Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1986, Blaðsíða 40
52
FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1986.
Sviðsljós
á munni og fyrsta reynslan af kynlifi.
M 260. Tvískiptur, alsjálfvirkur. 260 lítra,
með þriggja stjörnu frysti, kr. 16.650,-
stgr.
280 DL. Hálfsjálfvirkur. 280 lítra, með
tveggja stjörnu frysti, kr. 14.495,- stgr.
DL 150. Hálfsjálfvirkur. 150 lítra, með
tveggja stjörnu frysti, kr. 9.985,- stgr.
Umboðsmenn um land allt.
Kælitæki, Njarðvík
Árvirkinn, Seifossi
Mosfell, Hellu
Kaupf. Vestmannaeyinga,
Vestmannaeyjum
Hátíðni, Höfn, Hornafirði
Rafvirkinn, Eskifirði
Myndbandaleigan, Reyðarf.
Búland, Neskaupstaö
Kaupf. Héraðsbúa, Egilsst.
Kaupf. Þingeyinga, Húsavík
KEA, Akureyri
Valberg, Ólafsfirði
Kaupf. Skagf., Sauðárkróki
Oddur Sigurðss., Hvammst.
Póllinn hf., ísafirði
Kaupf. Stykkish., Stykkish.
Versl. Blómsturv., Helliss.
Húsprýði, Borgarnesi
Skagaradíó, Akranesi
EKKI BRÆÐA ÞETTA
MEÐ ÞÉR LENGUR
ÞAÐ BÝÐUR ENGINN BETUR
OPIÐ LAUGARDAGA.
GELLIR
Skipholti 7, símar 20080 og 26800.
Fyrsta reynslan af
kynlífi á jólunum
Jón G Haukssan, DV, Akureyri.
„Pæld’í’ðí fjallar um fyrstu ást
unglinga og fyrstu reynslu þeirra af
kynlífi," sagði Amar Kristinsson hjá
leikklúbbnum Sögu á Akureyri.
Leikklúbburinn fmmsýnir leikritið
Pæld’í’ðí á annan í jólum í Dyn-
heimum á Akureyri.
„Pæld’í’ðí er ekki bara leikrit held-
ur hefur það heibnikið fræðslugildi.
í því er til dæmis langur kafli um
getnaðarvamir og hvemig á að nálg-
ast þær,“ sagði Amar.
Alþýðuleikhúsið sýndi stykkið fyr-
ir nokkrum árum.
Hláturinn lengir lífið hjá þessum hressu unglingum sem leika i leikritinu
Pæld’i’ðí á jólunum. DV-myndir JGH
Á yfirboröinu virtist allt ganga eins og I sögu
Fimm ára sambandi lokið
Don Johnson úr sjónvarpsþáttun-
um Miami Vice hefur nú sagt skilið
við unnustu sína, Patti D’Arbanville,
eftir fimm ára samband. Það var hún
sem hjálpaði honum að yfirstíga
stærsta og mesta vandamál hans, eit-
urlyfin og drykkjuna. Hún hvatti
hann og styrkti þegar verst gekk og
nú hefur hann alveg náð sér upp úr
þessum vanda.
Þau giftu sig aldrei. Don sagði allt-
af að pappírarnir myndu bara eyði-
leggja sambandið og því væri best
að láta giftinguna eiga sig. En það
þurfti ekki pappíra til að eyðileggja
sambandið, það gerðist án þeirra.
Telly enn í fullu fjöri
Verður hann átján barna faðir í álf-
heimum?
Þann tuttugasta og fyrsta janúar
næstkomandi verður Telly „Kojak“
sextíu og þriggja ára og besta af-
mælisgjöfin er að hann er að verða
pabbi aftur.
„Ég óska þess að ég fái dóttur sem
ég geti ofdekrað. En ég verð líka
glaður þótt þetta verði strákur, aðal-
atriðið er að barnið sé heilbrigt,"
segir Telly.
„Bam er stærsta gersemi lífsins.
Faðir minn átti tuttugu og sjö stykki.
Ég efast um að ég hafi þrek í það en
ég geri hvað ég get,“ segir Telly
glettnislega.
Hann giftist Julie Hovland 1978 á
rómantískri eyju í Grikklandi og síð-
an hafa þau gifst tvisvar í viðbót
vegna þess að þetta er svo hátíðleg
athöfn og Telly er svo rómantískur.
Fyrir rúmlega tveimur árum fædd-
ist þeim lítill sonur, Cristian. „Hann
er það dýrmætasta sem við eigum
sarnan," segja þau stolt á svip.
Telly á fyrir fjögur börn sem nú eru
uppkomin.
Núna er Telly að leika í kvikmynd
sem tekin er í Júgóslavíu og á að
vera tilbúin nú fyrir jólin og þá ætl-
ar hann að drífa sig heim til fjöl-
skyldunnar.