Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1987, Blaðsíða 43
MÁNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1987.
43
Sviðsljós
Nafna-
brengl
í sfðustu viku blrtust hér á siðunum
myndir frá frumsýningu óperunnar
Aidu. Þar urðu þau ieiðu mistök aö
eiginkona Ingva Hrafns Jónssonar
er nefnd Kristin Hauksdóttir en sú
ágæta kona hlaut nafnið Ragnheið-
ur i bemsku og er hún Hafsteins-
dótUr. Héma kemur svo myndin
aftur - af Ingva Hrafni Jónssyni,
Bessý Jóhannsdóttur og Ragnheiði
Hafsteinsdóttur. Hlutaðeigandl ern
beðnir velvirðingar á mistökunum.
Bi
Robert Wagner og Jill St. John halda ennþá saman
en verður litt skrafsamt þegar minnst er á giftingará-
formin.
Á skíðum skemmta þau sér
Omuiiegustu
elskendumir
mL:,:
Liz Taylor styður Jón Baldvin og félaga í þjóömála-
vafstrinu og gengur því um götur Gstaad iklædd hvitum
pels meö rauða rós í hönd. Fylgdarsveinn er að sjálf-
sögðu George Hamilton.
- sem og reyndar öll síðustu ár líka.
Það er sumsé toppurinn að fara í vetr-
arleyfi til Gstaad og ekki seinna
vænna fyrir íslenskar hefðardúllur og
hrista nokkra kringlótta úr pyngjunni
og dusta rykið af skíðunum.
Gamli timinn - árið 1963 voru fursta-
hjónin af Mónakó - Grace og Rainier
- i St. Moritz meö börnin Karólinu
og Albert.
Sofffa Loren og Burl Ives em fiestum ógleymanleg úr kvikmyndinni Des-
ire Under the Elms.
Þotuliðið er nú almennt í vetrar-
leyfi á skíðum og aðalstaðurinn er
Gstaad í Svisslandi. Þar búa hinir
frægu og ríku aðallega á lúxushótel-
inu Park en einstaka eiga sína eigin
fjallakofa í útjaðri bæjarins. Roger
Moore og Gunther Sachs eru meðal
þeirra lukkulegu húseigenda og vetr-
arpartí hins síðamefiida eru víðfræg.
Það er eitt af stöðutáknum glæsiver-
aldarinnar að vera boðinn í veislur
þessa heimsfræga milljónera sem eitt
sinn var eiginmaður Brigitte Baidot.
Meðfylgjandi myndir, sem teknar
voru um miðjan janúarmánuð, sýna
nokkra gestanna sem þar dvelja núna
Nútíminn - Karólína f Gstaad meö Andrea og Karlottu.
Elskendur af hvíta tjaldinu eru ekki allir jafiihrífandi og nú er út komin
bók vestra - Son of Golden Turkey Awards - þar sem drepið er á nokkra
af ömurlegustu elskendum kvikmyndasögunnar.
Ronald Reagan forseti lék eitt sinn elskhuga Shirley Temple. Þá var hún
átján ára en hann um fertugt og söguþráðurinn snerist mikið um pískrandi
nágranna sem héldu því fram að Reagan væri - svona til þess að bíta höfuð-
ið af skömminni - raunverulegur kynfaðir bamastjömunnar.
Dolly Parton og Sylvester Stallone börðu bringum saman í Rhinestone.
Þau em áhorfendum í fersku minni fyrir sérstæðan leik þar sem ástaratlot-
in urðu að átökum tveggja bringubreiðustu leikara í henni Hollí.
Sean Penn og Madonna sannfærðu alheim um það að sambandi þeirra
tveggja ætti undantekningarlaust að halda í raunveruleikanum - á tjaldið
hefðu þau lítið erindi - annað eða bæði.
Luciano Pavarotti og Kathryn Harrold í Yes, Giorgio minntu sorglega á
þá félaga Laurel og Hardy. Rómantík horfinna dýrðardaga komst engan
veginn til skila og í bókinni segir að jafhvel dauðir áhorfendur hreinlega
yrðu að hlæja að hörmunginni.
Soffia Loren og Burl Ives fá engar silkistrokur heldur fyrir Desire Under
the Elms. Logandi heitar ástarsenur með tröllinu og Soffiu em fáránlegar
og Burl er í besta falli broslegur.
Svo mörg vom þau orð og hefur útkoma þessarar ágætu bókar hitað vem-
lega í kolunum meðal hinna frægu og ríku í kvikmyndaborginni.
V
Mariana
Borg og Jean-Louis Schlesser
láta
sig ekki vanta á staðinn.