Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1987, Blaðsíða 10
10
MÁNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1987.
Utlönd
Ortröð við kjörborðin
á Filippseyjum í dag
Biðraðir tóku fljótlega að myndast
við kjörstaðina á Filippseyjum þegar
þeir opnuðu í morgun og þykir því
horfa til mikillar kjörsóknar í þjóð-
aratkvæðagreiðslunni um nýju
stjómarskrárdrögin sem Aqiuno for-
seti hefur lagt íram.
Víðast virtist kosningin ætla að
fara friðsamlega fram en þrjár
sprengingar urðu þó í höfuðborginni
Manila og tveir stuðningsmenn
Marcosar fyrrum forseta voru hand-
teknir með 120 dínamítstauta. Eins
flúðu um 2.000 manns úr heimabæ
sínum á Mindanao-eyju þar sem
hótað hafði verið hryðjuverkum til
þess að spilla kosningunni.
Á fyrstu klukkustundum atkvæða-
greiðslunnar bar mjög á kvenfólki
meðal kjósenda en kjörstaðir opn-
uðu klukkan 23 að íslenskum tíma
á sunnudagskvöld. - Niðurstöður
skoðanakönnunar, sem unnin var í
síðustu viku, bentu til þess að stjóm-
arskráin mundi samþykkt með 70%
atkvæða.
260 þúsund manna herlið er haft í
viðbragðsstöðu víðast um eyjamar
til þess að grípa í taumana ef öfga-
menn reyna að spilla kosningunni.
Hermenn gerðu upptæk skotvopn
hjá öryggisvörðum Ramons Durano
í Cebu-héraði en Durano þessi er
fésýslumaður, fyrrum þingmaður og
náinn samstarfsmaður Marcosar.
Höfðu öryggisverðir hans sést vopn-
aðir fylgja þó nokkrum kjósendum
til kjörstaðar.
Kosningin hefúr þegar verið ónýtt
í Lanao del Sur þar sem skæruliðar
múhameðstrúarmanna hnupluðu
með sér 50 kjörkössum.
Kaþólskar nunnur á kjörstað að skila atkvæðaseðlum sínum en fljótlega
eftir að kjörstaðir opnuöu höfðu myndast biðraðir. Búist er við þvi að
um 25 milljónir Filippseyinga muni greiða atkvæði í þjóðaratkvæða-
greiðslunní um stjórnarskrána. Simamynd Reuter
Corazon Aquino, forseti Filippseyja, var meðal þeirra fyrstu til þess aö
greiða atkvæöi í heimabæ sinum, Tarlac, (norður af Manila) í morgun.
Ef stjórnarskrárdrögin verða samþykkt lengist kjörtímabil hennar í sex ár.
Símamynd Reuter
Fylgjendur nýju stjórnarskrárinnar fara um stræti í Manila með spjöld og blöðrur og hvetja aðra til þess að
Ijá jáyrði við henni. Um eiginlega kosningabaráttu hefur naumast verið að ræöa þvi að engir flokkadrættir
hafa verið um já- eða nei-atkvæðin. Símamynd Reuter
Marcos fúllyrðir
að kosningasvik
séu höfð í frammi
Ferdinand Marcos, fyrrum forseti
Filippseyja, sem dvelur á Honolulu,
hélt því fram í gær að umfangsmikil
kosningasvik væru höfð í frammi í
þjóðaratkvæðagreiðslunni á Filipps-
eyjum. Sagði hann að fjölda kjó-
senda væru greiddir milli 50 og 100
peso fyrir að greiða Aquino og
stjómarskránni atkvæði.
Um leið fullyrðir Marcos að stuðn-
ingsmönnum hans sé meinað að
koma á kjörstaði til þess að skila
atkvæði og bendir á að engir óháðir
aðilar hafi eftirlit með framkvæmd
atkvæðagreiðslunnar.
Blaðafulltrúi Marcosar flutti
fréttamönnum þessar grunsemdir
forsetans fyrrverandi en ekki kom
fram hvaðan Marcos hefði sínar
upplýsingar.
Marcos og Imelda, eiginkona hans,
fóru til Hawai í febrúar í fyrra og
hafa dvalið þar í útlegð síðan. Þá
vom nýafstaðnar forsetakosningar á
Filippseyjum og þótti bert að stuðn-
ingsmenn Marcosar hefðu viðhaft
ýmsar brellur til kosningasvika. Síð-
ar hafa bönd borist að því að forseta-
fjölskyldan og nánustu gæðingar
hennar hafi á valdatíma sínum á
Filippseyjum verið hreint ótrúlega
frek til fjárins og auðgast óhemju í
skjóli aðstöðu sinnar.