Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1987, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1987, Blaðsíða 12
12 MÁNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1987. Neytendur DV Notendaráðgjöf - nýmæli Rafinagnsveitur ríkisins halda upp á fertugsafinæli sitt nú um þessar mund- ir. Af því tilefiii mun fyrirtækið senda írá sér bækling, ágrip af sögu þess. Kemur hann væntanlega út í byrjun febrúar og er þriðji bæklingurinn sem Rarik hefur gefið út að undanfomu. Hafa bæklingar þessir verið sniðnir að þörfum neytenda og em uppfullir af notendaráðgjöf ýmiss konar. Hefur þegsu- verið gert ráð fyrir 6 slíkum og munu koma út 2-3 slíkir á ári. Opinber þjónustufyrirtæki hafa allt of lengi vanrækt almannatengsl og ber að hrósa Rafmagnsveitum ríkisins fyr- ir úrbætur í þessum efnum. Em slíkir bæklingar kærkomin nýjung enda ekki vanþörf á að auka notenda- fræðslu á þjónustu sem þessari. Rafinagn er sennilega sá liður í heimilishaldi sem víðtækasta notkun hefúr. Þar sem það er tiltölulega ódýrt, auk þess sem reikningar berast aðeins annað veifið, er fólk lítt meðvitað um notkun sína. En auðvelt er að spara það og geta einföldustu atriði orðið til að lækka reikninginn vemlega. Of sterkar perur, of kaldur ísskápur, of stór þvottavél, allt hefúr þetta sitt að segja. Á síðustu heimilissýningu var Rarik með kynningu á starfsemi stofhunar- innar. Þar var sett upp líkan sem sýndi rafmagnsnotkun í venjulegu íbúðar- húsi. Líkanið var tengt við tölvu og var fólki gefinn kostur á því að sjá hvað ýmsir þættir rafmagnsnotkunar kostuðu í krónum og hvemig mætti spara. Nú er unnið að því að endurbæta líkanið og mun stofhunin sýna það víðs vegar um landið. Gefet því not- endum á orkuveitusvæði Rarik kostur á þessari fræðslu, auk þess sem hægt verður að gefa upplýsingar um ra- forkunotkun hvers og eins. Einn af bæklingunum fjallar um leiðir til að spara rafmagn. Er fúll ástæða til að birta helstu hollráðin fyrir þá sem em ekki á orkuveitu- svæði Rarik og hafa því ekki fengið bæklinginn. Fara þau hér á eftir. Tölvustýrt likan af íbúðarhúsi notað til að sýna notendum sparnaðarleiðir i raforkunotkun. DV-mynd RS Lýsing Notið rétta Ijósgjafa Rétt val á ljósgjafa er mikilvægt. Notið ekki stærri perur en þið þurfið og gætið að því að lampabúnaður dragi ekki um of úr birtu. Notið flúr- pípur þar sem þess er kostur. Notið Ijósa liti Umhverfið ræður miklu um hve mikla lýsingu þarf. Ljósir litir á lofti, veggjum, gluggatjöldum, og gólfum geta sparað mikla lýsingu. Haldið lömpum hreinum. Slökkvið á eftir ykkur Munið að slökkva á eftir ykkur. Oft loga ljós að óþörfu þar sem enginn hefst við. Slíkt getur einnig skapað eldhættu. Þvottatækin Skolið í köldu vatni Skolun með köldu vatni fyrir þvott getur sparað orku. Hvort sem um er að ræða þvottavél fyrir klæði eða leir- tau er hægt að sleppa forþvotti fyrir vikið. Fyllið þvottavélina Fyllið þvottavélina og nýtið hana þannig til fúllnustu. Það munar litlu á orkunotkun á fullri vél og hálfri. Því er mikill spamaður í að þvo eina fulla vél frekar en tvær hálfar. Veijið rétt þvottakerfi Margar vélar em með spamaðar- stillingar. Með því að nota þær er hægt að spara töluverða orku. Notið ekki hæma hitastig en nauðsynlegt er. Kæliskápur Hæfilegt hitastig 5° Hæfilegt hitastig er +5°. Margir freistast til að hafa skápinn kaldari en við hverja gráðu sem hitinn lækkar eykst raforkunotkun töluvert. Hafið hitamæli í skápnum. Kæligrindin á baki skápsins á að vera hrein Kæliskápurinn skilar hita frá sér um kæligrindina á bakinu. þetta ræður miklu um orkunotkun. Þéttingar á skáphurð þurfa að vera í lagi Ef þéttikantur á skáphurð er orðinn harður og óþéttur fer mikil orka til spillis. Frystir Hæfilegt hitastig er -18° Nægilegt frost er -18°C. Við hverja gráðu sem frostið er aukið eykst raf- magnsnotkun um 5%. Þannig er orkunotkun við -25°C um 40% meiri en við -18°C. Staðsetjið frysti á svölum stað Sömu reglur gilda um fiystinn og kæliskápinn. Halda þarf kæligrindinni hreinni en loftræsting og umhverfis- hiti em ennþá mikilvægari fyrir frystinn. Hafið hann í köldu herbergi. Nýtið frystinn vel Tómur frystir notar ekki minni orku en fúllur. Þar sem frystirinn er eitt orkufrekasta heimilistækið er skyn- samlegt að nýta hann vel ellegar tæma hann alveg og slökkva á honum þegar þörfin er lítil. Eldavél Notið rétta gerð af pottum Pottar og pönnur em af ýmsum gerðum. Botninn þarf að vera sléttur og skal ætíð hylja eldunarhelluna. Skipuleggið matseldina Skipuleggið eldunina. Stundum er hægt að hita fleiri en eina tegund grænmetis í sama potti. Athugið að stytta suðutíma þar sem suða heldur áfram um stund eftir að slökkt hefur verið undir. Notið lítið vatn og nýtið ykkur hraðsuðupotta þar sem það á við. Notið ofninn skynsamlega Notið ofiiinn á réttan hátt. Bakið fleiri en eina tegund í einu. Hitið marga rétti samtímis. Grillið er orkuf- rekt. Það þarf um tvöfalt meiri orku í að grilla kótilettur en að pönnus- teikja. Annað Notið kaffivél og hitakönnu Kaffivélin nýtir orku mun betur en gert var með gömlu aðferðinni. En munið að láta ekki kaffivélina um að halda heitu, notið hitakönnur. Þurrkið þvott úti Þurrkið þvott úti hvenær sem til þess viðrar og sparið þannig þurrkara en hann er orkufrekur. Siökkvið á sjónvarpinu - stund- um Margir láta sjónvarpstæki vera í gangi allan þann tíma sem útsending varir þó ekki sé verið að horfa á það. Látið eftir ykkur að slökkva stundum. Hvað færðu fyrir eina kílóvatt- stund Með einni kílóvattstund geturðu: Hellt upp á 60-70 bolla af kaffi. Ristað 20-25 brauðsneiðar. Horft á sjónvarp í 10 klukkustundir. Notað 40w lampa í 25 klukkustundir. Ryksugað í 4 klukkustundir. Hlustað á útvarp í 200 klukkustundir eða 5 vikur. -PLP Þjófabjalla fyrir bíla Þjófnaðir á og úr bifreiðum hafa stæða bíla og flúið af hólmi. Hingað færst mjög í vöxt nú á síðustu árum. til hafa menn staðið berskjaldaðir Einnig er mikið um að ekið sé á kyrr- gagnvart þessu en nú ætti slíkt brátt Upplýsingaseðill til samanburðar á heimiliskostnaði Hvað kostar heimilishaldið? Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak- andi í upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar fiölskyldu af sömu stærð og yðar. að fara að heyra sögunni til. Komið er á íslenskan markað þjófa- vamarkerfi sem vemda á bifreiðir. Tækið samanstendur af tölvuheila, titringsnemum og segullás. Titringsnemamir em festir á dyra- stólpa og nema allan fastan titring. Við högg berast rafboð fiá titrings- nemum til tölvuheilans og fer þá bfllinn að flauta og ljósin að blikka. Þetta stendur yfir í tæpa mínútu. Kerfi þetta sem nefnist Secar alarm fæst í Bílanaust og kostar 18.750 krón- ur. -PLP Nafn áskrifanda Heimili Sími Fjöldi heimilisfólks_____ Kostnaður í janúar 1987: Matur og hreinlætisvörur kr. Annað kr. Alls kr. Svona lítur þjófavarnarkerfið út. DV-mynd RS Mörg svona reiðhjól eru enn ósótt hjá S.Á.Á. Ósóttir vinn- ingar hjá SÁÁ Nú fyrir nokkm birtum við skrá yfir ósótta vinninga í happdrættunum. Þar vantaði yfirlit frá S.Á.Á en það var látið bíða vegna þess að þegar skráin var gerð var verið að byrja afhendingu vinninga úr síðasta drætti. Nú er hins vegar nokkur tími liðinn þannig að hér birtast númer ósóttra vinninga: JVC videotökuvél á miða númer: 160.427 JVC kassettutæki á miða númer: 5.814, 13.470, 24.153, 51.734, 51.936, 53.392, 82.018, 91.196, 106.756, 141.966, 164.532, 190.948. BMX reiðhjól á miða númer: 28.277, 29.966, 50.714, 62.670, 75.808, 87.820, 88.504, 95.707,107.506,110.726,113.574, 130.887, 132.954, 139.087, 143.115, 145.655, 153.168, 158.197, 162.877, 162.992, 170.397, 180.763, 186.238, 186.731. Vinninga ber að vitja í síma 91-82399. -PLP

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.