Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1987, Blaðsíða 5
MÁNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1987.
5
Fréttir
Skoðanakönnun DV um Sturiumálið:
Flestir sjálf-
stæðismenn
styðja Sverri
nema í Norðuriandskjördæmi eystra
Skoðanakönnun DV sýnir, að lang-
flestir sjálfstæðismenn styðja ákvörð-
un Sverris Hermannssonar um brott-
rekstur Sturlu Kristjánssonar. Þó
virðast sjálfstæðismenn á Norðurlandi
eystra yfirleitt andvígir þessari ák-
vörðun ráðherra, en úrtakið í því
kjördæmi er ekki nóg til þess að reikna
megi nákvæm hlutföll með áreiðan-
leika. Unnt er að sjá, hvemig flokka-
fylgið skiptist í Sturlumálinu, þar sem
sama fólkið var spurt, hvaða lista það
kysi og hvort það teldi rétt eða ekki
rétt af Sverri að reka Sturlu.
65 prósent sjálfstæðismanna á
landinu öllu styðja Sverri í málinu,
en 13,7 prósent þeirra styðja Sturlu,
19,7 prósent eru óákveðin og 1,5 pró-
sent vildu ekki svara spumingunni
um Sturlumál.
Alþýðuflokksmenn á landinu em
mjög skiptir. 33,8 prósent þeirra styðja
Sverri en 38,5 prósent Sturlu. 26,2 pós-
ent em óákveðin og 1,5 prósent vildu
ekki svara.
23 prósent framsóknarmanna styðja
ákvörðun ráðherra en 49,2 prósent em
henni andvíg. 26,2 prósent em óákveð-
in og 1,6 prósent vildu ekki svara.
Einn maður kvaðst í könnuninni
styðja Bandalag jafhaðarmanna.
Hann telur brottrekstur Sturlu rangl-
átan.
7,3 prósent alþýðubandalagsmanna
telja brottrekstur Sturlu rétta ákvörð-
un, en 85,4 prósent þeirra telja brott-
reksturinn ranglátan. 7,3 prósent em
óákveðin.
Fjórir stuðningsmenn Flokks
mannsins skiptast þannig í Sturlumáli
að einn telur brottreksturinn réttmæt-
an en þrír telja hann ranglátan.
10,7 prósent stuðningsmanna
kvennalista telja brottreksturinn rétt-
mætan en 64,3 prósent álíta hann
ranglátan. 25 prósent em óákveðin.
Sex stuðningsmenn lista Stefáns
Valgeirssonar, sem upp komu í könn-
uninni, telja allir rangt að reka Sturlu.
Hinn stóri hópur óákveðinna um
flokk skiptist þannig: 23,7 prósent
standa með Sverri, 32,3 prósent með
Sturlu. 27,6 prósent em óákveðin í
Sturlumálinu, og 16,3 prósent vildu
ekki svara.
-HH
Stórafmæli undir-
búið í Ólafsvík
Sigurjón Egisaon, DV, Ólafevík:
Árið 1987 verður ár merkra tíma-
móta í Ólafsvík. Fyrst ber að nefna
að 26. mars em liðin þrjú hundmð ár
frá því að Ólafsvík varð löggiltur
verslunarstaður. Einnig em á þessu
ári liðin eitt hundrað ár frá því að
samfelld bamakennsla hófet í Ólafs-
vík. Verkalýðsfélagið Jökull verður
fimmtíu ára á árinu.
Kristján Pálsson bæjarstjóri var
fenginn til að segja frá því helsta sem
gert verður til að minnast þessara
merku tímamóta, en þannig vill til að
Kristján er einnig formaður afmælis-
nefndar.
Kristján sagði að á afmælisdaginn
sjálfan hæfust dagskráratriði með há-
tíðarfundi bæjarstjómar. Þá yrði
einnig frumflutt nýtt lag eftir Elías
Davíðsson, sem hann samdi sérstak-
lega af þessu tilefni, en Elías er
skólastjóri Tónlistarskólans í Ólafs-
vík. Á afmælisdaginn munu nemendur
og kennarar grunnskólans setja upp
sögusýningu og einnig verður flutt
erindi um sögu Ólafsvíkur. Afmælisins
verður minnst meira og minna allt
árið. T.d. verða haldin ýms íþrótta-
mót. Ákveðið hefur verið að skíðamót
verði haldið á Fróðárheiði, skíðalandi
Ólafsvíkinga og nágranna, í apríl.
Einnig verður haldið golfmót, en Golf-
klúbburinn Jökull á góðan níu holu
Kristján Pálsson, bæjarstjóri i
Ólafsvik.
golfvöll. Þá er stefrit að því að haldið
verði sterkt skákmót um haustið.
Þó verða aðalhátíðahöldin vegna
afinælisins um miðjan ágúst. Þá mun
forseti íslands, frú Vigdís Finnboga-
dóttir, sækja Ólafsvíkinga heim. I
ágúst taka síðan Ólafsvíkingar í notk-
un nýtt og glæsilegt félagsheimili. Við
það tækifæri verður frumsýnd ný
heimildarkvikmynd um Ölafevík.
Einnig verður listasýning, sýndar
verða gamlar ljósmyndir frá Ólafsvík
auk stórrar sögusýningar. Þá verða
einnig útisamkomur o.fl.
Akureyri:
Gróður ekkert tekið við sér
Jón G. Haukssan, DV, Akuieyii:
„Þetta er allt annað hjá þeim fyrir
norðan en í Reykjavík. I hlýindakafl-
anum þrútnuðu í mesta lagi viðkvæm-
ir runnar og tóku aðeins við sér en
ekkert meira. Það verða að vera meiri
hlýindi en þetta,“ sagði Eiríkur Bóas-
son, garðyrkjumaður á Akureyri, við
DV.
Eiríkur sagði enn fremur að enginn
skaði á trjágróðri væri fyrirsjáanlegur
á Akureyri eins og útlit væri fyrir að
yrði í Reykjavík.
Veðrið á Akureyri í janúar hefur
verið mjög gott og hlýindi í um hálfan
mánuð. I síðustu viku hefur hitinn
verið í kringum frostmark en engu að
síður fallegt og gott veður.
10% STAÐGREIÐSLUAFSLATTUR
GREIÐSLUKJÖR
ATH. AUKIN ÞJÓNUSTA
PÓstí
VISA
SKÚVERSLUN pós^00^
ÞÓRÐAR PÉTURSSONAR,
Laugavegi 95, sími 13570 - Kirkjustræti 8, sími 14181.
Teg. 656.
Svart eða grátt
leðurm/skinn-
sóla. Stærðir
40-46.
Verð 985,-
BIRKENSTOC
Fyrir dömur og herra
litunum hvítu, marinebláu,
rauðu eða brúnu. ,
Teg. 672.
Brúnt leður m/
skinnsóla.
Stærðir 40-46.
Verð 1.275,-
Teg.
BiRKENSTOCK
Nr. 35-40
Kr. 2.080,-
Nr. 41-45
tr. 2.430,-
Teg.105.
Grátt-vínrautteða
Ijósbrúnt leður, m/
skinnsóla. Stærðir
36-41.
Verð 975,-
Teg. 487.
Litir hvítur-grænn
-rauðureða gulur.
Stærðir 36-41.
Verð 670,-
BIRKENSTOCK
Nr. 35-40
Kr. 2.080,-
Nr. 41-46
Kr. 2.430,-
Teg. 5
Beige eða hvítt
leður. Stærðir
36-41.
Verð 750,-
Teg. 207.
Navybláttleður.
Stærðir 36-41.
Verð 750,-
Teg. 45328. Beige leóur.
Nr. 36-41.
Kr. 795,-
Teg. 14914
Með innleggi.
Litur: hvítt leður.
Stærðir: 36-41.
Verð kr. 795,-
Teg. 129. Rautt leður.
Nr. 36-41.
Kr. 750,
Teg. 31
Með innleggi.
Litir: beige eða hvítt
leður.
Stærðir: 36-41.
Verð kr. 795,-
Teg. 43
Með innleggi-
Litur: hvítt leður.
Stærðir: 36-41.
Verð kr. 795,-
i ey. c i.
Nr. 36-41.
Kr. 650,-
Teg. 1. Hvitt leður.
Nr. 36-41.
Kr. 750,-
■URKENSTOa
Nr. 35-40
Kr. 3.435,-
Nr. 41-45
Kr. 3.535,-
Teg.44335.
Vínrauttleður.
Stærðir 36-41.
Verð 730,-