Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1987, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1987, Blaðsíða 5
22 xm FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1987. 27 FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1987. Myndin heitir Eldland, 1981, ull og hrosshár. Listasafn. ASI: Myndvefnaður Ásgerðar Ásgerður Búadóttir opnar sýn- ingu á nýjum myndvefnaði í Listasafni ÁSÍ við Grensásveg laugardaginn 28 þ.m. ki. 2 e.h. Síð- ast hélt hún einkasýningu á Kjarvalsstöðum 1984 en hefur hin síðari ár tekið þátt í ýmsum sýning- um erlendis, svo sem Scandinavia To-day, Borealis og sýningu í boði Kaupmannahafnarborgar ásamt Svavari Guðnasyni. Sýning Ásgerðar stendur til 15. mars og er opin daglega kl. 2-6 nema á sunnudögum kl. 2-10. Fjölmiðlun og stjómmál í ijósi hinna miklu og öru breytinga, sem hafa átt sér stað í íslenskum fjölmiðlaheimi í kjölfar afnáms einkaréttar ríkisins á rekstri hljóðvarps og sjónvarps, er tímabært að skoða hlutverk og til- gang fjölmiðla í íslensku nútfma- þjóðfélagi og áhrif þeirra á íslensk stjórnmál. Þar sem alþingiskosningar standa fyrir dyrum, þær fyrstu eftir að nýju .útvarpsréttarlögin tóku gildi, boðar ritnefnd „Samfélags- tíðinda" til námsstefnu um fjöl- miðla og stjórnmál. Námsstefnan verður haldin laug- ardaginn 28. febrúar nk. í stofu 101 í Odda og hefst kl. 13.30. Dagskrá: Ólafur Þ. Harðarson lektor fjallar um áhrif fjölmiðla á kosningahegðun, Þorbjörn Broddason dósent fjallar um ímynd stjórnmálamannsins, Þórólfur Þórlindsson prófessor fjallar um auglýsingar og prófkjör. Þá verða fyrirspurnir, stuttar umræður og kaffihlé. Ólafur Ragnar Grímsson prófessor fjallar um tengsl fjöl- miðla og flokkakerfis, Einar Sigurðsson framkvæmdastjóri fjallar um hlutverk fjölmiðla í lýð- ræðisþjóðfélagi og að endingu verða umræður. Námsstefnustjóri verður Vilborg Guðnadóttir. Á síðustu árum hefur verið rætt mikið um tengsl Háskólans og at- vinnuh'fsins og á stundum borið á þröngum hagkvæmissjónarmiðum til vísinda og mennta. Lítið hefur hins vegar verið rætt um tengsl Háskólans og þjóðlífsins almennt og þá þýðingu sem öflugur háskóli hefur fyrir menningu okkar og samlíf. Ráðstefna á við þá sem hér er boðað til er kjörinn vettvangur til þess að efla þessi tengsl Háskól- ans og þjóðlífsins. Samfélaginu er því sérstök ánægja að því að bjóða öllum áhugamönnum um stjórnmál og fjölmiðla í Háskóla íslands þann 28. nk. Nýlistasafnið Vatnsstíg 3b í kvöld, 27. febr., kl. 20 verður opnuð sýning á verkum Helga Val- geirssonar, Guðrúnar Láru Hall- dórsdóttur og Kristins Guðbrands Harðarsonar í Nýlistasafninu, Vatnsstíg 3b. Helgi, sem stundaði nám við málaradeild Myndlista- og handíðaskólans (MHl) 1983-86, sýnir rýmisverk (installation) unn- ið á þessu ári. Verk þetta er samansett af málverkum og hlutum úr daglegu umhverfi. Helgi hefur áður tekið þátt í sýningunni: Gull- ströndin andar 1983 og NART- sýningunni 1986. Guðrún nam einnig við MHÍ á árunum 1982-86 og útskrifaðist úr málaradeild. Hún sýnir 6-7 olíu- málverk sem unnin eru 1986-87. Guðrún sýndi verk sín í Ingólfs- brunni 1986. Kristinn sýnir 43 dúkristur unnar 1984, en sunnudaginn 1. mars lýkur málverkasýningu hans í Gallerí Svart og hvítu. Sýningin í Nýlistasafninu er opin til 8. mars og er opin daglega frá kl. 16-20 en um helgar frá kl. 14-20. Myndlistarmenn framtíðarinnar Allnýstárleg myndlistarsýning ungs fólks verður opnuð að Kjarvalsstöðum laugardaginn 28. febr. næstkomandi. Þar er um að ræða samsýningu rúmlega 70 myndlistar- manna, 35 ára og yngri, sem haldin er á vegum IBM á Islandi í tilefni 20 ára afmælis fyrirtækisins hér á landi. Sýningin ber þessa glögg merki að mikil gróska er í mynd- list meðal ungs fólks og kennir þar margra ólíkra grasa, bæði í tækni og framsetningu. Myndlistarmennirnir eru flestir nær óþekktir og stór hluti hópsins enn við nám, ýmist hér heima eða erlendis. Þátttaka í sýningunni stað- festir að ungt myndlistarfólk fagnar slíku tækifæri til að koma verkum sínum á framfæri því þarna gefur að líta á þriðja hundrað listaverka. Öll verða verkin til sölu og eru sérstakir söluráðgjafar frá Gallerí Borg sýningargestum til aðstoðar. Sýningin verður opin alla daga kl. 14-22 til og með 8. mars. í báðum sýningarsölum Kjarvalsstaða. Leikfélag Menntaskólans við Hamrahlíð Leikfélag Menntaskólans við Hamrahlíð frumsýnir þann 28. þessa mánaðar leikritið Hólpin (Saved) eftir enska leikritaskáldið Edward Bond og er þetta hans frægasta verk. Þýðinguna gerði Úlfur Hjörvar. Leikritið er eitt hið umdeildasta í leikhússögu síðari ára. Það var á sínum tíma bannað í Englandi og aðeins sýnt í lokuðum klúbbum eftir upphaflegu frumsýningu þess í London 1965. Einnig olli það miklum úlfaþyt í íslenskum fjölmiðlum þegar það var sett upp af Leikfélagi Reykjavíkur 1971 undir nafninu Hjálp. Verkið dregur upp dökka mynd af nútíma þjóðfélagi og þeirri firringu og örvæntingu sem iðnaðarsamfélag hefur skapað meðal fólks. Leikstjóri er Ingunn Ásdísardóttir. Lýsingu annast Vil- hjálmur Hjálmarsson. Leikmynd og búninga hannaði Hlín Gunnarsdóttir en leikhljóð eru í höndum Hilmars Arnar Hilmarssonar og Orra Jónssonar. Síðasta sýuingarhelgi á verkum Andys Warhol Á sunnudag lýkur sýningu í and- dyri Norræna hússins á verkum Andys Warhol af kvikmynda- stjörnunni Ingrid Bergman. Sýn- ingin nefnist einfaldlega „Andlits- myndir af Ingrid Bergman“ og eru gerðar í minningu hennar árið 1982. Eru þær í sama stíl og hin fræga mynd Warhols af Marilyn Monroe. Á sýningunni eru þrjátíu verk, þar af þrjár áritaðar grafík- myndir. Sem kunnugt er lést Andy War- hol á dögunum og vart þarf að hafa um listamanninn mörg orð. En hann var einn helsti frumkvöð- ull popplistarinnar í Ameríku og hefur fengist við margt fleira en hefðbundna myndlist. Sýningin er opin.á venjulegum sýningartíma hússins og lýkur sem fyrr segir á sunnudag. „Andlitsmyndir af Ingrid Bergman" nefnist sýning á verkum Andys Warhol en henni lýkur á sunnudag. Kjarvalsstaðir: Allnýstárleg myndlistarsýning ungs fólks verður opnuð að Kjarvalsstöðum laugardaginn 28. febr. næstkomandi. Messur Guðsþjónustur í Reykjavíkur- prófastsdæmi sunnudaginn 1. mars 1987. ÆSKULÝÐSDAGUR ÞJÓÐKIRKJUNNAR Safnaðarráðsfundur Reykjavíkur- prófastsdæmis verður í safnaðar- heimili Bústaðarkirkju á sunnudag kl. 16.00 og hádegisfundur presta verður í safnaðarheimili Bústaðar- kirkju mánudag 2. mars. Árbæjarprestakall. Barnasam- koma í Foldaskóla í Grafarvogs- hverfi laugardag kl. 11 árdegis. Barnasamkoma í safnaðarheimili Árbæjarsóknar sunnudag kl. 10.30, árdegis. Æskulýðsguðþjónusta í safnaðarheimilinu kl. 14. Ungt fólk aðstoðar við guðsþjónustuna. Skóla- kór Árbæjarskóla syngur undir stjórn Áslaugar Bergsteinsdóttur tónmenntakennara. Allir velkomnir. Sr. Guðmundur Þorsteinsson. Áskirkja. Barna- og fjölskyldu- guðsþjónusta kl. 14. Kór Laugarnes- skóla syngur. Sr. Árni Bergur Sigurbjömsson. Breiðholtsprestakall. Barnaguðs- þjónusta í Breiðholtsskóla kl. 11. Æskulýðsguðsþjónusta kl. 14. Börn og unglingar aðstoða. Organisti Daníel Jónasson. Óskað eftir þátt- töku fermingarbarna og foreldra þeirra. Sr. Gísli Jónasson. Bústaðakirkja. Barnasamkoma kl. 11. Elín Anna Antonsdóttir og Guðr- ún Ebba Ólafsdóttir. Guðsþjónusta kl. 14. Ræða: Guðrún Ebba Ólafs- dóttir. Ungmenni úr æskulýðsfélagi Bústaðasóknar syngja og taka þátt í messuflutningnum. Organisti Guðni Þ. Guðmundsson. Æskulýðs- félagsfundur þriðjudagskvöld. Félagsstarf aldraðra miðvikudag- seftirmiðdag. Sr. Ólafur Skúlason. Digranesprestakall. Barnasam- koma í safnaðarheimilinu við Bjarnhólastíg kl. 11. Æskulýðsguð- þjónusta í Kópavogskirkju kl. 11. Bjarni Karlsson guðfræðinemi préd- ikar. Sr. Þorbergur Kristjánsson. Dómkirkjan. Laugardagur: Barna- samkoma í kirkjunni kl. 10.30. Egill og Ólafía messa kl. 11. Altarisganga. Sr. Þórir Stephensen. Æskulýðs- messa kl. 14. Sr. Hjalti Guðmundsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Þóri Stephensen. Fermingarbörn lesa ritningarorð og bænir. Vænst er þátttöku foreldra fermingarbama. Sr. Hjalti Guðmundsson. Dómorgan- istinn leikur á orgel kirkjunnar í 20 mín. fyrir messuna kl. 11. Elliheimilið Grund. Guðsþjónusta kl. 10. Hulda Helgadóttir guðfræð- ingur. Fella- og Hólakirkja. Laugardag- ur: Barnasamkoma í Hólabrekku- skóla kl. 14. Sunnudagur: Barnasamkoma - kirkjuskóli kl. 11. Ragnheiður Sverrisdóttir djákni. Æskulýðsguðþjónusta kl. 14. Kór Hólabrekkuskóla syngur undir stjórn Sigvalda Kaldalóns. Ungling- ar lesa upp og aðstoða við messuna. Organisti Guðný Margrét Magnús- dóttir. Fundur í æskulýðsfélaginu mánudagskvöld kl. 20.30. Sr. Hreinn Hjartarson. Fríkirkjan í Reykjavík. Guðsþjón- usta kl. 14. Ræðuefni: Sjá, vér förum upp til Jerúsalem. Fermingarbörn og foreldrar þeirra sérstaklega velkom- in. Föstudagur 6. mars kl. 13.30: Lagt af stað í ferð fermingarbarna austur í Skálholt. Bænastundir eru í Frí- kirkjunni fram að páskum á þriðjd., miðvikud., fimmtud. og föstud. kl. 18. Sr. Gunnar Björnsson. Grensáskirkja. Barnasamkoma kl. 11. Æskulýðsmessa kl. 14. Altaris- ganga. Ungt fólk úr UFMH tekur þátt í messunni. Ragnar Schram og Þorvaldur Daníelsson tala. Leikræn tjáning. Organisti Árni Arinbjarnar- son. Fimmtudagur: Almenn sam- koma kl. 20.30. Sr. Halldór S. Gröndal. Hallgrímskirkja. Messa á æsku- lýðsdegi kl. 11. Fermingarbörn flytja ritningarlestur og frásöguþátt. Sunnudagsskólabörn flytja helgileik og syngja. Þýskur blokkflautukvart- ett leikur. Altarisganga. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson prédikar. Þriðju- dagur: Fyrirbænamessa kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Miðvikudagur: Föstumessa kl. 20.30. Sr. Karl Sigur- björnsson. Fimmtudagur: Afmælis- fundur kvenfélagsins kl. 20.30. Laugardagur 7. mars: Samvera ferm- ingarbarna kl. 10. Frá og með öskudegi eru kvöldbænir með lestri Passíusálma í kirkjunni alla virka daga nema laugardaga kl. 18. Landspítalinn. Guðsþjónusta kl. 10. Sr. Jón Bjarman. Háteigskirkja. Messa kl. 10. Barna- guðsþjónusta kl. 11. Æskulýðsguðs- þjónusta kl. 14. Sr. Arngrímur Jónsson. Organleikari Orthulf Prunner. Borgarspítalinn. Guðsþjónusta kl. 10.30. Sr. Sigfinnur Þorleifsson. Kársnesprestakall. Barnasam- koma í safnaðarheimilinu Borgum kl. 11. árdegis. Guðsþjónusta á æsku- lýðsdegi kl. 14. Unglingar úr tónlist- arskóla Kópavogs leika, Ómar Kristmundsson unglingafulltrúi bæjarins flytur úvarp. Fimmtudag- inn 5. mars kl. 20.30 verður fundur á vegum fræðsludeildar safnaðarins í Borgum. Þar mun sr. Þorbjörn Hlyn- ur Árnason fjalla um trúarhugmynd- ir í Passíusálmunum. Áætlað er að framhald verði á þessum fræðslu- fundum á föstutímanum. Vænst er fyrirspurna og umræðna og eru allir velkomnir. Sr. Árni Pálsson. Langholtskirkja. Kirkja Guð- brands biskups. Óskastund barnanna kl. 11. Söngur- sögur- myndir. Þór- hallur Heimisson og Jón Stefánsson sjá um stundina. Guðsþjónusta kl. 14. Prestur sr. Pjetur Maack. Organ- isti Jón Stefánsson. Fermingarbörn og foreldrar þeirra hvattir til að mæta. Sóknamefndin. Laugarneskirkja. Laugardagur 28. febr.: Guðsþjónusta í Hátúni lOb, 9. hæð, kl. 11. Síðdegiskaffi eldri borg- ara kl. 14.30. Þór Halldórsson yfir- læknir talar. Jónas Ingimundarsson og Ólafur Magnússon frá Mosfelli flytja nokkur sönglög. Sunnudagur: Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Ungl- ingar sýna helgileik, sönghópur úr kristilegum skólasamtökum syngur. Jóna Hrönn Bolladóttir prédikar. Hádegismatur eftir guðsþjónustuna í safnaðarheimilinu í umsjá Kvenfé- lagsins, sérstakur bamaréttur og réttur fyrir fullorðna. Mánudagur: Æskulýðsstarf kl. 18. Þriðjudagur: Bænaguðsþjónusta á föstu kl. 18, alt- arisganga. Orgeltónlist frá 17.50. Sóknarprestur. Neskirkja. Laugardagur: Félags- starf aldraða kl. 15. Félagar úr JC Nes koma í heimsókn og annast skemmtiefni. Sr. Frank M. Halldórs- son. Sunnudagur: Barnasamkoma kl. 11. Munið kirkjubílinn. Sr. Frank M. Halldórsson. Æskulýðs- og fjöl- skylduguðsþjónusta kl. 14. Orgel og kórstjórn: Reynir Jónasson. Sr. Guð- mundur Óskar Ólafsson. Mánudag- ur: Æskulýðsstarfið kl. 19.30. Þriðjudagur og fimmtudagur: Opið hús fyrir aldraða kl. 13-17. Fimmtu- dagur: Biblíulestur kl. 18.30 og föstuguðsþjónusta kl. 20. Sr. Guð- mundur Óskar Ólafsson. Seljasókn. Barnaguðsþjónusta í Ölduselsskóla kl. 10.30. Bamaguðs- þjónusta í Seljaskólanum kl. 10.30 Guðsþjónusta í Ölduselsskóla kl. 14. Ungt fólk syngur létt lög í guðs- þjónustunni. Organisti verður Ólafur W. Finnsson. Þriðjudagur: Fundur í æskulýðsfélaginu Sela, Tindaseli 3, kl. 20.00. Sóknarprestur. Seltjarnarneskirkja. Barnaguðs- þjónusta kl. 11.00. Eirný og Sólveig Lára tala við börnin og stjórna söng. Æskulýðsguðsþjónusta kl. 14. Ungt fólk spilar á hljóðfæri og krakkar úr æskulýðsfélagi kirkjunnar leiða söng og taka þátt í guðsþjónustunni. Hróbjartur Árnason guðfræðinemi prédikar. Pres(,ur sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir. Organisti Sighvat- ur Jónasson. Foreldrar eru hvattir til að koma með fermingarbörnun- um. Opið hús fyrir unglingana mánudagskvöld kl. 20.30. Opið hús fyrir 10-12 ára þriðjudag kl. 17.30. Sóknarprestur. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Barna- samkoma kl. 11. Fjölskyldumessa kl. 14. Fermingarbörn lesa ritningarorð og bænir og flytja prédikunarefni dagsins i leikþætti. Sr. Einar Eyjólfs- son. Keflarvíkurkirkja. Æskulýðsdag- ur: Sunnudagaskóli kl. 11. Munið skólabílinn. Æskulýðsguðsþjónusta kl. 14, með þátttöku fermingarbarna. Ungmenni flytja ávörp sem fjalla um fjölskylduna og félagana. Sóknar- prestur. Leikhús Þjóðleikhúsið Hallæristenór, gamanleikur eftir Ken Ludwig í þýðingu Flosa Ólafssonar og leikstjórn Benedikts Árnasonar er sýndur á stóra sviði Þjóðleikhússins í kvöld og nk. fimmtudagskvöld kl. 20. Leikurinn er eitt alsherjar óperugrín er greinir frá und- irbúningi og flutningi óperunnar Othelló eftir Verdi. Uppreisn á Isafirði eftir Ragnar Arnalds verður sýnt á stóra sviðinu á laugardags- kvöld kl. 20. Leikstjóri er Brynja Bene- diktsdóttir. Þetta vinsæla leikrit Ragnars fjallar um Skúlamálin frægu. Rympa a ruslahaugnum, nýtt leikrit Herdísar Egilsdóttur verður sýnt á stóra sviðinu á laugardag og sunnudag kl. 15. Leikstjórn er í höndum Kristbjargar Kjeld. Þetta er bráðfjörugt barnaleikrit í ævintýrastíl með skemmtilegri tónlist og dönsum. Aurasálin, gamanleikur eftir Moliére verður sýndur á stóra sviðinu á sunnu- dagskvöld kl. 20. Leikstjórn er í höndum Sveins Einarssonar. Alls leika 16 leikarar í Aurasálinni. I smásjá, leikrit Þórunnar Sigurðardóttur verður sýnt á litla sviði Þjóðleikhússins að Lindargötu 7 í kvöld kl. 20.30. Verðlaunaeinþáttungar. Á litla sviðinu á sunnudagskvöld kl. 20.30 er önnur sýn- ing á einþáttungunum Gættu þin eftir Kristínu Bjarnadóttur og Draumar á hvolfi eftir Kristínu Ólafsdóttur en þeir eru verðlaunaverk úr leikritasamkeppni Þjóðleikhússins í tilefni loka kvennaára- tugar Sameinuðu þjóðanna. teikfélag Reykjavíkur Land míns föður, stríðsárasöngleikur eft- ir Kjartan Ragnarsson verður sýndur kl. 20.30 á laugardagskvöldið í Iðnó, í 186. sinn. Dagur vonar eftir Birgi Sigurðsson verð- ur sýnt í kvöld og á sunnudagskvöld kl. 20. Djöflaeyjan eftir Einar Kárason verður sýnt í leikskemmu LR v/Meistaravelli í kvöld og á sunnudagskvöld kl. 20. Nemendaleikhúsið. Þrettándakvöld eftir William Shakespe- are. Síðasta sýningarhelgi á þessari uppfærslu Nemendaleikhússins. Sýningar verða í kvöld og annað kvöld kl. 20.30. Sérstök fjölskyldusýning verður á sunnu- dag kl. 15. Sýnt er í Lindarbæ. islenska Óperan sýnir Aidu eftir Verdi tvisar um helgina, í kvöld kl. 20 og á sunnudagskvöld kl. 20. I sýningunni taka þátt um 170 manns, þar með talin hljómsveit og stærsti kór sem sungið hefur á sviði íslensku óperunnar. Sýníngar Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74 Safnið er opið þriðjudaga, fimmtudaga og sunnudaga kl. 13.30-16. Ásmundarsafn við Sigtún Opnunartími safnsins er á þriðjudögum, fimmtudögum, laugardögum og sunnudög- um frá kl. 14-17. Gallerí Grjót, Skólavörðustíg 4A Þar stendur yfir sýning á nýjum verkum 'eftir þá sem að Galleríinu standa en það eru þau Jónína Guðnadóttir, Magnús Tómasson, Ófeigur Björnsson, Ragnheiður Jónsdóttir, Steinunn Þórarinsdóttir, Þor- björg Höskuldsdóttir og Örn Þorsteinsson. Sýningin er opin virka daga kl. 12-18 en frá kl. 14-18 laugardaga og sunnudaga. Gallerí Grjót hefur nú starfað í 3 Vi ár og hefur eingöngu verk eftir félagana sem vinna í mjög mismunandi efni. Gallerí Hallgerður, Bókhlöðustíg 2 Á morgun opnar Áslaug Sverrisdóttir sýn- ingu á textílverkum úr handspunnu togi. Sýningin verður opin kl. 14-18 daglega til 8. mars. AUGLÝSING UMINNLAUSNARVEFÐ VERÐTRYGGÐRA SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 100,00 1982-1. fl. 01.03.87-01.03.88 kr. 594,23 1983-1. fl. 01.03.87-01.03.88 kr. 345,25 1985-2. fl.C 10. mars 1987 kr. 139,56 ‘Innlausnarverö er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og veröbót. Innlausn sparískírteina ríkissjóðs ferfram í afgreiðslu Seðlabanka (slands, Hafnarstræti 10, og liggja þarjafnframtframmi nánari upplýsingar um skírteinin. Reykjavík, febrúar 1987 SEÐLABANKIÍSLANDS Seljum þessa viku eftirtalin heimilistæki, lítið útlitsgölluð: þvottavélar allt að afsláttur OEIectrolux kæli- og frystiskápar allt að Einnig kaffikönnur, brauðristar, viftur, straujárn, eldavélar og fleiri tæki á 10 til 35% afslætti Opið mánudaga til fimmtudaga.. kl. 9-19 Föstudaga ................... kl. 9-20 Laugardaga .................... kl.10-16 Sunnudaga ................... kl. 13-17 Tilboðin gilda á meðan birgðir endast Vörumarkaðurinn hf. Nýja-bæ - simi 622-200 Það hefur alltaf borgað sig að versla i Vörumarkaðinum. ©

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.