Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1987, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1987, Side 7
LAUGARDAGUR 7. MARS 1987. 49 „Nei, en ég á ekki auðvelt með að tala um leikstjómina mína.“ - Finnst þér gaman að leikstýra? „Já, óskaplega." - Af hverju? „Leyfðu mér að segja þetta þannig: Það sem ég leita að í handriti og hjá leikstjóra, bæði sem leikari og áhorf- andi, er sýn. Mér fannst ekkert sérstaklega mikið koma til handrits Polanski að The Pirates en af því hann ætlaði sjálfur að leikstýra þá vissi ég að myndin yrði góð. Roman er einn af þeim fimm bestu. Og það sama get ég sagt um Stanley Kubrick og John Huston. En eins og ég sagði þá held ég að það sé sú sýn sem ég geri mér hverju sinni sem ræður því hvort mig langar til að leikstýra eða ekki. Ég er mjög stoltur af myndunum mínum tveimur og held þær séu dá- lítið sérstakar. Ég stefni þó ekki að því að verða jafngóður og Antonini, Kubrick eða Polanski. Ég vil bara að myndin sýni að ég hafi stjórnað henni.“ - Hefurðu fengið tækifæri til að leikstýra mynd sem þú leikur sjálfur „Já, en ég vil ekki dreifa kröftunum þannig. Tökum Moon Trap sem dæmi. Það er vestri sem mig hefur alltaf langað til að gera. Þegar ég byrjaði á handritinu fyrir um tíu árum sagði ég víð félagið sem ætlaði að gera hana: „Ekki láta mig sitja - Geturðu borið Prizzis Honor sam- an við einhveija aðra mynd, sem þú hefur leikið í? „Nei, enga. Þær sem næst komast myndu vera myndir þar sem ég hef vikið frá venjulegri túlkun eins og Goin’ South, The King of Marvin Gardens og ef til vill The Missouri Breaks. Þessar myndir hafa ekki all- ar fallið almenningi vel í geð þótt mér - hversu einkennilegt sem það kann að virðast - finnist þær ef til vill það besta sem ég hef gert. Marg- ir leikarar vilja reyna eitthvað óvenjulegt einu sinni en gangi svo myndin ekki reyna þeir ekki oftar við slíkt. Mín skoðun er aftur á móti sú að það sé ekki til neins að vera að gera það sama aftur og aftur. Ég er mjög ánægður yfir því að mér skuli finnast ég geta leikið öll hlut- verk þótt sum hræði mig meira en önnur.“ - Kom samstarfið við Huston þér á óvart? „Það kom mér mest á óvart hve algerlega einstakur hann er. Ég vissi heilmikið um hann og hafði heyrt margt en var þó ekki undir það búinn að hann væri svona einstakur. Það kemur fram í því hvernig hann stjórnar upptökunni, hve nýtinn hann er, hverju hann stefnir að og hvernig hann fer að því að ná mark- miðinu. Það var meira um það í þessari mynd að við kæmumst af með að taka atriði einu sinni en í nokk- urri mynd sem ég hef leikið í síðan ég starfaði með Roger Corman í gamla daga. John Huston kennir ekki fólki að leika atriði með því að mynda þau mörgum sinnum. Allir verða strax að gera sitt besta. Þó eru engin vandamál. Það bera allir svo mikla virðingu fyrir honum að enginn vill verða til þess að valda vonbrigðum." við skriftir í allt sumar ef þið ætlið mér bara að leika í henni.“ Það eru tvö hlutverk í myndinni og þeir vildu að ég léki yngri mann- inn en mér fannst ég vera orðinn dálítið of gamall til þess þá. Þar að auki var ég með lista yfir menn sem ég taldi koma til greina í hlutverkið. Félagið vildi hins vegar ekki leyfa mér að leikstýra svo það varð ekkert úr gerð myndarinnar. Þar eð ég á handritið getur þó farið svo að ég endi með því að gera það.“ - Ætlarðu ekki að leikstýra á ný fyrr en þú færð að ráða ferðinni? „Ég get farið að gera þær kvik- myndir sem mig langar til að gera (leikstýra) eftir þrjú til fjögur ár. Miðjan er að vísu alltaf í miðjunni en ég held að kvikmyndafélögin verði ekki eins mikið á þessari mið- braut, sem þau eru nú á, eftir nokkur ár. Ég var að fara yfir það sem kom fram á sjónarsviðið í sumar sem leið. Það voru myndir um sjóræningja- íjársjóði, fréttamenn sem eiga gamlar ritvélar og látast vera flæk- ingar á ströndinni og annað sem má sennilega helst rekja til kímnigáfu námsmanna eða fastheldni. Það hlýtur eitthvað að fara að breytast. Fólk vill ekki halda áfram að gera það sama. Pils styttast og pils síkka. Það er ástæðan til þess að ég lék í Terms of Endearment. Handritið var það mannlegasta sem ég hafði séð árum saman og ég vissi að mynd- in myndi ganga vel. Það á því eftir að verða breyting. Trúðu mér. Það verða gerðar margar góðar myndir sem ekki hafa fengist gerðar enn.“ - Prizzis Honor var nokkurs konar ljölskyldumynd. Var þér ekkert illa við að leika í henni? „Mér var ekki alveg rótt í upphafi. Ég reyni hins vegar alltaf að gera það sem réttast er en ekki það sem er þægilegast. Mér var hins vegar langt frá því að vera rótt áður en taka myndarinnar byrjaði því við- fangsefnið var erfitt og líka mjög viðkvæmt. Hins vegar varð um nokkurs konar fjölskyldusamstarf að ræða eftir að gerðin hófst. Það þarf þó ekki endilega að merkja annað en það að Prizzis Honor er um fjöl- skyldu. Það er þó rétt að leikstjórinn, John Huston, og framleiðandinn, John Formen, hafa verið nánir kunn- ingjar árum saman og ég hef verið vinur Anjelicu, dóttur Huston, all- lengi. Ég þekkti aftur á móti Huston áður en ég kynntist Anjelicu og lang- aði alltaf til þess að vinna með honum. Reyndar höfðum við oft rætt um samstarf." í One Flew Over the Cuckoo's Nest, 1974. Með Shirley MacLaine i Terms of Endearment, 1983. finnst mér eitt mest áberandi af öllu sem við lesum og skrifum um kvik- myndir og það er þetta: Fólk óttast augnablikið þegar sköpunin fer fram. Þess vegna talar það svo mikið um einstök atriði. Sköpunin fer hins veg- ar fram á meðan kvikmyndavélin gengur en hættir um leið og hún hættir að ganga. Það sem þá gerist verður aldrei gert nákvæmlega eins aftur. Einn maður getur þó aldrei stjórn- að þvi öllu. Leikstjórinn segir hvenær kvikmyndavélina á að ganga og hvort taka á atriði aftur. Svo vel- ur hann það sem honum líst best á. Ég reyni alltaf að falla í það mót sem leikstjórinn hefur gert í huga sínum en í raun og veru er það þó þannig að leikstjórinn ræður ekki yfir leiknum. Hann vilja þeir sækja til okkar. Þeir ráða mann eins og mig af þvi þeir vonast til að ég geti gert enn meira en þeir hafa í huga. Komi með eitthvað sem þeir geta ekki komið með. Áður en kvik- myndavélin fer að ganga hafa þeir valið fötin, daginn og tímann en þeg- ar hún fer í gang eru þeir algerlega háðir leikaranum." Þýð: ÁSG.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.