Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1987, Blaðsíða 18
60
LAUGARDAGUR 7. MARS 1987.
Kvikmyndir
Bette Midler.
eftir úr krabbameini. Faðir minn
lést í maí síðastliðnum úr hjartabil-
un. Það var mjög slæmt, bara mjög
slæmt.“
Að brjótast áfram
Bette'Midler kom til New York
á miðjum sjöunda áratugnum stað-
ráðin í að verða söngkona. Hún
hitti strax Tom Eyven, þekkt leik-
ritaskáld á þeim tíma, og hóf strax
að vinna fyrir hann í söngleikjum.
Á kvöldin vann hún í Fiðlaranum
á þakinu, sem elsta dóttirin. Eftir
sýningar söng hún í hvaða klúbbi
sem vildi fá hana, á daginn var hún
með allar klær úti í lausavinnu við
að syngja bakraddir en upp úr
þessu skapaði hún ákveðna per-
sónu kom fram í fjólubláum flau-
elskjól, með hárið greitt aftur og
vaxbornar augabrýr syngjandi lög
frá fjórða áratugnum. Bette Midler
varð The Divine Bette Midler. Á
einum staðnum sem hún kom fram
var ætlast til að hún færi einnig
með gamanmál og þróaðist sýning
hennar upp frá því meira yfir í grín
og ýmiskonar brandara.
Á þessum tíma hafði hún undir-
leikara á píanó sem síðar varð
Myndir Bette
Midler:
The Rose.
Jinxed. Ruthless People.
W '
Down and Out in Beverly Hills.
3ette Midler
siær í gegn
- í kvikmyndum á vegum
Walt Disney fyrirtækisins
þekktur söngvari og lagahöfundur
en það var Barry Manilow. Fyrstu
æfingar þeirra voru ...„ekkert sér-
stakar, næstum leiðinlegar,"
minnist Manilow. „Ég lék og hún
söng. En síðan gerðum við þetta
fyrir framan áhorfendur. Hún kom
niður stiga með túrban á höfðinu,
klædd einhverju sem hefði getað
komið úr klæðaskáp ömmu minnar.
Hún var hvirfilbylur af hæfileikum
og orku. Ég var sex fet í burtu en
þessi sýn var einn af þrumufleyg-
unum í lífi mínu.“
Stjama á Broadway
Sá er einna mest áhrif hafði á
feril Bette Midler var Aaron Russo
sem gerðist framkvæmdastjóri
hennar 1971. Þau urðu elskendur
um tíma og samband þeirra sem
varaði í átta ár var bæði uppbyggj-
andi og eyðileggjandi. Aaron
byrjaði að bóka Midler í hin og
þessi leikhús þar sem hún sló í
gegn og brátt var hún orðin stjarna
á Broadway.
Aaron þóttist einnig sjá að hæfi-
leikar Midler gætu notið sín á
hvíta tjaldinu og leiddu þær pæl-
ingar til kvikmyndarinnar The
Rose.
„Ég skemmti mér konunglega.
Ég gat varla beðið eftir upptökun-
um. Ég tel þessa mynd mitt besta
verk,“ segir Midler er hún minnist
The Rose.
Hljómleikaför um Evrópu fylgdi
í kjölfar The Rose og plötu þeirrar
sem gefin var út í framhaldi af
myndinni. Á þessari ferð rifust þau
Russo heiftarlega og slitnaði upp
úr samstarfi þeirra í kjölfarið. Síð-
an hefur Midler staðið á eigin
fótum og þrátt fyrir brösótt gengi
í kvikmyndum hefur hún nú slegið
í gegn. Walt Disney fyrirtækið hef-
ur gert við hana þriggja mynda
samning og framtíðin virðist nokk-
uð trygg.
-FRI
Ferill gamanleikarans Bette
Midler hefur gengið upp og ofan
síðan hún ákvað að fara af sviðinu
og í kvikmyndir en nú hefur hún
loksins slegið í gegn í Hollywood
og það í myndum á vegum Walt
Disney fyrirtækisins. Raunar segja
forráðamenn Walt Disney að hnát-
an sé heitasta kvenstjarna þeirra
síðan Minny mús kom fram á sjón-
arsviðið.
Bette Midler hefur aldrei átt í
erfiðleikum með að vinna til verð-
launa, hún hlaut Grammy verð-
launin sem besti nýi listamaðurinn
árið 1973, árið 1979 náði lp-plata
hennar The Rose platínusölu og
hún hefur jafnvel náð inn á met-
sölulista bóka með barnabókinni
The Saga of Baby Divine.
En eitt vafðist lengi fyrir henni
og það var að ná stöðunni kvik-
myndastjarna. Fyrsta mynd
hennar, The Rose, sem byggði m.a.
á lífi Janis Joplin aflaði henni frá-
bærra dóma sem leikkonu og
útnefningar til óskarsverðlauna en
nákvæmlega engra annarra tilboða
um leik i kvikmyndum. Næsta
mynd hennar, Jinxed gerð 1982, var
„flopp" og hið eina sem Midler
hlaut úr þeirri mvnd var taugaá-
fall.
Það liðu þrjú ár þar til Bette
Midler ákvað að leika aftur og þá
í myndinni Down and Out in Be-
verly Hills sem síðan varð tíunda
söluhæsta myndin árið 1986. Sú
næsta sem hún lék í var Ruthless
People sem náði áttunda sætinu
og sú nýjasta er Outrageous Fort-
une sem hefur nú halað inn 25
milljónir dollara á fyrstu 25 sýning-
ardögunum.
Þessar þrjár myndir eru allar
gerðar af Walt Disney fyrirtækinu
og hafa þær breytt því í einn af
hinum stóru í Hollywood. Þvi er
ekki að furða að forráðamenn
Disney líki Midler við Minny mús.
Á sviði
Bette Midler er mun þekktari í
Bandaríkjunum sem söngkona og
gamanleikari á sviði heldur en í
kvikmyndum og hún hefur oft tek-
ið þar upp á ýmsu sem fáa aðra
hefur dreymt um, hvað þá dottið í
hug að gera. Á gamlárskvöld 1972
var hún borin inn á sviðið í Linc-
oln Center í lokrekkju, með annan
fótinn fyrir utan tjaldið. Á mið-
nætti sneri hún aftur inn á sviðið,
í bleyju, sem barn ársins 1973. Hún
hefur stigið upp úr risaskel í póli-
nesísku bikini, komið fram í
hnjásíðum pylsukjól með sinneps-
rönd niður hann að framan og þotið
fram og aftur um sviðið í vélknún-
um hjólastól klædd sem hafmey
með sporð og tilheyrandi svo dæmi
séu tekin.
En það er einkum notkun Midler
á líkama sínum í gamanatriðum
sem gert hafa hana fræga. Hún
snýr honum, vindur upp á hann,
teygir hann og togar og á það til
að „flassa" framan í virðulega
áhorfendur við öll tækifæri. Það
er einkum hinn viðamikli barmur
Bette sem fær notið sín best í þess-
um uppákomum. Þótt hann sé
kannski ekki alveg af sömu stærð-
argráðu og hjá Dolly Parton lét
hún hafa það eftir sér á plötunni
Mud Will Be Flung Tonight að hún
hefði eitt sinn útvegað sér póstvigt
til að athuga nákvæmlega hve
þung brjóstin á sér væru... „Ég segi
vkkur ekki hve þung þau voru en
það hefði kostað mig 87,50 dollara
að senda þau til Brasilíu, með
skipapósti."
Upprunnin á Honolulu
Bette Midler er fædd á Honolulu,
faðir hennar Fred Midler var mál-
ari fyrir sjóherinn en hann og kona
hans Ruth fluttu til Honolulu á
fjórða áratugnum. Bette var sú
þriðja í röðinni af íjórum krökkum
þeirra og skirði Ruth hana í höfuð-
ið á Bette Davis.
„Móðir min var glæsileg," segir
Bette, „og vann mikið. Hún saum-
aði fallega og bjó til öll föt okkar
þar til foreldrar mínir uppgötvuðu
Hjálpræðisherinn. Við vorum mjög
fátæk. Við áttum ekki sjónvarp eða
síma fyrr en seint á sjötta áratugn-
um. Við bjuggum í leiguhúsnæði á
miðjum sykurreysakri, flestar fjöl-
skyldurnar í kring voru frá
Samóaeyjum, Japan, Hawai eða
Kína. Við vorum eina hvíta fjöl-
skyldan."
Er Bette minnist æsku sinnar í
þessu umhverfi kemur fram að fað-
irinn var harðstjóri sem skolaði
snyrtivörum dætranna niður um
klósettið og lokaði þær eldri inni
ef þær komu of seint heim á kvöld-
in.
„Faðir minn áleit mig alltaf
skrýtna. Hann sá mig aldrei á sviði
nema i þætti Johnny Carson. Hann
sagði að ég liti út eins og lauslætis-
drós. Móðir mín aftur á móti taldi
að ég gæti ekkert rangt gert. Eitt
kvöldið læddist hún út úr húsinu
til að sjá myndina The Rose og
fannst hún frábær. Hún lést árið
Outrageous Fortune.