Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1987, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1987, Qupperneq 13
LAUGARDAGUR 7. MARS 1987. verk í Trúboðsstöðinni. Faðir Gabríel nær sambandi við Guar- ani-indíánana í gegnum tónlist og einstæðir tónlistarhæfileikar indí- ánanna eru hans sterkasta rök- semd fyrir því að þeir hafi sál. í byrjun „réttarhaldanna" syngur lítill indíánadrengur sálm og Evr- ópumennirnir hlusta, greinilega hugfangnir, sumir mót vilja sínum. Faðir Gabríel heldur því fram að hver sá sem syngur eins og Guar- ani-drengurinn hljóti að vera mennskur og hafa sál en spænski landstjórinn fullyrðir að hér sé ein- ungis um páfagaukalærdóm að ræða. The Mission hefur hlotið tilnefn- ingu til óskarsverðlauna fyrir tónlistina sem er mjög góð. Sama gildir um kvikmyndatökuna sem er hreint frábær. Að auki hefur myndin verið tilnefnd til verðlauna fyrir bestu listræna leikstjóm, besta leikstjórann, bestu búning- ana, bestu klippingu og síðasta en ekki síst hefur The Mission verið tilnefnd sem besta kvikmynd ársins 1987. Leikur þeirra Jeromy Irons og Robert De Niro er stórgóður, þó ekki hafi þeir verið tilnefndir til verðlauna. Því hefur verið haldið fram að hlutverk Mendoza hljóti að hafa verið eitt það erfiðasta sem De Niro hefur fengist við um dag- ana. En hann stendur svo sannar- lega undir því og hæst rís leikur hans þegar hann brotnar saman og þiggur sína syndaaflausn úr hendi þess fólks sem hann áður þrælkaði. -VAJ Faðir Gabriel (Jeremy Irons) ákveður að standa með indiánunum gegn páfanum en á sinn eigin friðsamlega hátt. Ágóðim af fnunsýninguniii í baráttu gegn fíkniefnum virða Mendoza. Hann er stoltur og hrokafullur maður og í hjarta hans rúmast lítill kærleikur. Eina fólkið, sem honum þykir vænt um, er y ngri bróðir hans, Felipe, og Charlotta, ung og fögur ekkja sem Mendoza lítur á sem sína eign. Þegar Charlotta segir Mendoza að hún elski Filipe bróður hans og vilji giftast honum, umtumast hann af bræði. Þeir bræður berjast og Mendoza drepur Felipe. Yfir- kominn af sektarkennd og örvingl- aður af sorg lokar Mendoza sig inni á hæli fyrir hina ólæknandi og þar hittir faðir Gabriel hann öðm sinni. Jesúítapresturinn býður Mendoza að gera yfirbót með því að fara með honum upp fyrir foss- ana og reisa trúboðsstöð meðal fólksins sem hann áður veiddi og seldi mansali. Málaliðinn eygirþá von að sú ferð geti linað þjáningar hans og fellst á tilboð föður Gabrí- els. Réttarhöldin Robert Bolt byggir The Mission að nokkru leyti upp eins og réttar- höld. Og það er trúboðsstöð jesúít- anna í landi Guarani-indíánanna sem stendur frammi fyrir dómaran- um sem birtist þeim í líki sendi- manns páfa og berst fyrir eigin tilvemrétti. Spánverjum og Portúgölum stóð ógn afvaldi jesúítanna. Þeir ágimtust land þeirra og vildu þá burt. En jesúítareglan heyrði und- ir páfa og framtíð trúboðsstöðvar- innar var í hans höndum. í orði kveðnu var sendimanni páfa ætlað það verkefni að kynna sér starfsemi trúboðanna og ákveða í framhaldi af því örlög stöðvarinnar. En í rauninni var þegar búið að ákveða í Evrópu að Spánverjum og Portú- gölum skyldi afhent þetta svæði og Guarani-indíánarnir ofurseldir frumskóginum og þrælaveiðurun- um. Eins og í flestum öðmm verkum Roberts Bolt em samviskuspurn- ingar grundvallaratriði í mynd- inni. Guarani-indíánamir ákveða að skera upp herör og berjast gegn hvíta manninum sem þeim finnst hafa svikið sig. Jesúítamir standa því frammi fyrir erííðu vali. Eiga þeir að hlýða yfirboðara sínum, páfanum, og yfirgefa indíánana eða eiga þeir að standa með þessum sóknarbömum sínum sem skilja ekki hvers vegna guð hefur yfirgef- ið þau. Faðir Gabríel og Mendoza bregð- ast ólíkt við en þegar upp er staðið reyndi hvor fyrir sig að að verja indíánana með sínum hætti. Stórmynd Tónlistin skipar mjög stórt hlut- „Allur ágóðinn af frumsýning- unni rennur í baráttusjóð gegn fíkniefnum," sagði Kristlaug Gunnlaugsdóttir, blaðafulltrúi Lionessuklúbbsins EIR í Reykavík, en þær standa fyrir frumsýningu myndarinnar The Mission í Há- skólabíói. Lionessuklúbburinn EIR var stofnaður fyrir réttum þremur árum og hefur helgað krafta sína baráttunni gegn fíkniefnum. Á síðastliðnu ári stóðu EIR- konur fyrir frumsýningu á kvik- myndinni Carmen og að sögn Kristlaugar var stuðningur al- mennings með ólíkindum þá. „Forráðamenn Háskólabíós voru svo ánægðir með hvemig tókst til með frumsýningu Carmenar í fyrra að þeir buðu okkur að endurtaka þetta núna og við vonum að undir- tektir almennings verði jafngóðar núna. Við erum forráðamönnum bíósins afar þakklátar fyrir þetta tækifæri því frumsýningamar eru stærsta staka ijáröflunarverkefni okkar,“ sagði Kristlaug. Ágóðanum af frumsýningu Carmenar var varið til kaupa á fimm tækjum til myndbandsgerðar sem afhent vom Fíkniefnadeild lögreglunnar í ágúst á síðasta ári og í ár rennur féð í svokallaðan „Baráttusjóð gegn ávana- og fíkni- efnum“. Konurnar í EIR afla einig fjár með ýmsum vinnuverkefnum og fer hagnaðurinn af þeim til ýmissa líknarmála, auk baráttunn- ar gegn fíkniefnabölinu. -VAJ Ágóðanum af frumsýningu kvikmyndarinnar Carmen var varið til kaupa á tækjum handa fíkniefnalögreglunni. Hér sjást lionessurathenda William Th. Möller og Arnari Jensen tækin. E Þú boigar alltaf sama gjaldið, hvort sem þú ert einn eða með fleirum í bílnum! Hreyfill býður sætaferðir til Keflavíkur Ef þú ert á leið til útlanda er þægilegt að fara fyrsta spölinn í Heyfilsbíi. Hringdu í okkur með góðum fyrirvara og greindu frá áætluðum flugtíma. Við vekjum þig með hressilegri símhringingu, óskir þú þess. \ UREVnii-/ 68 55 22

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.