Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1987, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1987, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 10. MARS 1987. 7 Atvinnumál Ríkissprtalamir: Alvariegar horfur vegna uppsagna 400 starfsmanna - taka gildi um næstu mánaðamót, segir Davíð Á. Gunnarsson forstjóri GoldStar Grásleppusjómenn: 50 þúsund kall á dag Jón G. Haukssan, DV, Akureyri; Góður grásleppusjómaður getur haft 50-75 þúsund krónur á dag ef vel viðr- ar á komandi vertíð en grásleppuveiði hefst fyrir Norður- og Austurlandi í dag, 10. mars. Veiðin hefst síðar fyrir sunnan. Gott verð fæst nú fyrir grásleppu- hrogn eða 25-26 þúsund krónur fyrir tunnuna. Talið er létt verk fyrir vanan grásleppusjómann að veiða í tvær tunnur á dag. Mikill hugur var í sjó- mönnum á Raufarhöfn og Þórshöfn í blíðviðrinu í gær og binda þeir miklar vonir við komandi vertíð sem stendur fram i maí. „Það verður að segjast eins og er að ástandið er alvarlegt því upp- sagnir 400 starfsmanna á Ríkisspít- ölunum taka gildi um næstu mánaðamót. Það er þegar búið að nýta 3ja mánaða framlengingu þannig að ef ekkert gerist í málum þessa fólks gengur það út 1. apríl,“ sagði Davíð Á. Gunnarsson, forstjóri Ríkisspítalanna, í samtali við DV. Að sögn Davíðs er langstærsti hluti þess hóps sem sagt hefúr upp störfum sjúkraliðar og hjúkrunar- fræðingar innan BHMR. Þá hafa aðrar stéttir innan sjúkrahúsanna boðað verkfall frá og með 19. mars hafí samningar ekki tekist fyrir þann tíma. Að sögn Indriða H. Þorlákssonar, Alvarlega horfir er uppsagnir fjögur hundruð starfsmanna ríkisspítalanna taka gildi um næstu mánaðamót. aðalsamningamanns fjármálaráðu- neytisins í kjarasamningum opin- berra starfsmanna, eru samninga- viðræður í gangi við stéttarfélög allra þeirra stétta sem hér eiga hlut að máli. Hann sagði þá samninga mislangt á veg komna. I sumum til- fellum eru samningar á lokastigi en aðrir eru styttra komnir. Indriði sagði að uppsagnir fyrmefhdra 400 starfsmanna Ríkisspítalanna kæmu þessum samningaviðræðum ekkert við. „Hópuppsagnir starfsfólks passa engan veginn inn í kjarasamninga- viðræður. Ef þama er um hópupp- sagnir að ræða til að pressa á hærra kaup þá em þær ólöglegar. Því hafa þær ekkert blandast inn í samninga- viðræðumar að undanfömu," sagði Indriði H. Þorláksson. Eftir stendur þá að engin vissa er fyrir því að uppsagnirnar verði dregnar til baka þótt nýir kjara- samningar náist við stéttarfélög þeirra aðila sem sagt hafa upp störf- um frá og með 1. apríl. -S.dór Hagstæð greiðslukjör SÍMI 29800 SKIPHOLTI 19 Búnaðarþing: Hafnaði flutningi RALA að Hvanneyri Fiskurinn flýr undanvöðusel Félag áhugafólks um byggingu nátt- úmfræðihúss fékk Erling Hauksson sjávarliffræðing til að halda fyrirlestur um vöðusel í anddyri Háskólabíós fyr- ir skömmu. Tilefnið var vöðusela- ganga sú er kom á miðin á dögunum og setti ótta að mönnum vegna fiski- miðanna. Erlingur sagðist hafa rætt um vöðu- selinn frá líffræðilegu sjónarmiði • og eins sagðist hann hafa rætt málið frá sagnfræðilegu sjónarmiði en vöðuse- lagöngur hafa oft komið á íslandsmið. Hér áður fyrr fylgdi selurinn hafísnum og var þá mikil matbjörg víða um land þegar „landsins fomi fjandi" kom upp að landinu. Segir Eiríkur að þá hafi vöðuselurinn verið drepinn þúsundum saman hér við land. Fiskurinn hræðist vöðuselinn mjög og flýr af miðunum undan honum. Því má segja að vöðuselurinn sé eins og fjárhundur sem rekur safnið á undan sér. Hans verður að jafnaði vart frá Breiðafirði norður og austur um land en sjaldgæft er að hans verði vart við Homaljörð eins og nú gerðist. -S.dór ARNIOLAFSSON HF. Vatnagörðum 14, Reykjavík. Sími 83188. AUKA SJONVARP 22.900,-kr stgr. eöa 24.976,- kr afb. útborgun 8.000,-kr og eftirstöövar á 6 mán. eða Eurokredit 0 kr. útborgun og eftirstöðvar á 11 mán. Á nýafstöðnu Búnaðarþingi var fjallað um þingsályktunartillögu frá Davíð Aðalsteinssyni og fleirum um að Rannsóknastofnun landbúnaðarins verði flutt að Bændaskólanum á Hvanneyri. Tilgangurinn er að stuðla að aukinni atvinnuuppbyggingu úti á landi og að auka rannsóknir og til- raunastarfeemi í landbúnaði í samráði við bændaskólana. Þegar þessi tillaga var rædd á Bún- aðarþingi brá svo við að fellt var að mæla með því að Alþingi samþykkti 14" GoldStar CBS-4341 litsjónvarp og verðið eraðeins tillöguna. Segir í áliti allsheijamefnd- víðtæka skoðun og meiri undirbúning. ar Búnaðarþings að málið þurfi -S.dór Draumur fagmannsins sérhæfö áhöld í tösku á ótrúlega lágu verði. Einnig er hægt að kaupa einstaka hluti.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.