Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1987, Qupperneq 25
ÞRIÐJUDAGUR 10. MARS 1987.
25
Sandkom
Valgeröur heggur.
Fyrir neðan
beltisstað
Valgerður Bjamadóttir er op-
inská í viðtali við tímaritið
Heimsmynd eins og fram hefur
komið. Svo opinská að Herdís
Þorge(irsdóttir ritstjóri þorði
ekki annað en láta lögfræðing
lesa viðtalið yfir áður en það
fórí prentun. Ritstjórinn hafði
mestar áhyggjur af þeim orð-
um er viðmælandi hennar lét
falla um Jón Baldvin Hanni-
balsson, formann Alþýðu-
flokksins, sem Valgerður
flokkar ekki með manneskj-
um.
Feitasta bitann i viðtalinu
fengu lesendur Heimsmyndar
þó ekki að sjá því hann var
tekinn út á síðustu stundu.
Var það frásögn Valgerðar af
orðaskiptum Jóns Baldvins og
dóttur hennar er formaðurinn
kom eitt sinn á heimili hennar
í fylgd Vilmundar heitins
Gylfasonar að loknu hana-
stélsboði. Lögfræðingurinn
hafði lagt blessun sína yfir
kaflann en ritstjóranum þótti
frásögnin högg fyrir neðan
beltisstað.
Ullarlyktá
landshindi
Mörgum fulltrúum á lands-
fundi Sjálfstæðisflokksins
V' Ánt
Lambalykt á tandsfundi.
varð ómótt er líða tók á funda-
höld síðdegis á sunnudag.
Römm ullarlykt fyllti þá
Laugardalshöllina og mátti
rekja hana til matseldar á
lambakjöti er bjóða átti rúm-
lega þúsund landsfundarfull-
trúum þá um kvöldið.
Landsbyggðarfulltrúar kunnu
lyktinni þó vel enda vanir ilm-
inum úr heimabyggð sinni.
Reykjavíkurliðinu var hins
vegar ekki skemmt og einn
þekkjum við sem yfirgaf sam-
komuna því hann var svo
hræddur um að rúskinnsjakk-
inn sinn eyðilegðist.
Athygli vakti að í veislunni
sjálfri var títtnefnt lambakjöt
ekki borið fram á pappadisk-
um eins og vani er þegar metta
á þúsundir í Höllinni heldur
voru kræsingarnar framreidd-
ar á alvöru diskum með
viðeigandi borðbúnaði. Sam-
kvæmt heimildum komsafn-
ara er uppvaski enn ólokið.
Hagkvæm
húsaleiga
Og áfram með landsfund Sjálf-
stæðisfiokksins. Ómar Ragn-
arsson skemmti stjórnmála-
mönnunum í Laugardalshöll-
inni við góðar undirtektir og
lét að sjálfsögðu ekki hjá líða
að minnast á annan fund sem
haldinn var fyrr á árinu, sjálf-
an leiðtogafundinn. Sagðist
hann hafa ætlað að bjóða allri
fjölskyldunni norður í land á
meðan á leiðtogafundinum
stóð og leigja húsið sitt á 80
þúsund krónur á meðan. Leig-
an hækkaði þó snarlega í 130
þúsund krónur þegar hann
breytti áætluninni og ákvað
að láta nægja að bjóða böm-
unum norður í land.
Hlógu þá allir landsfundar-
fulltrúar nema einn. Eigin-
kona Ómars, Helga
Jóhannsdóttir, varaborgar-
fulltrúi Sjálfstæðisfiokksins.
Steingrímur
í heimsókn
Steingrímur Hermannsson er
á ferð og fiugi. Þykir ekki tíð-
indum sæta að hann sé erlend-
is né heldur að hann láti í sér
heyra í gegnum fréttanet er-
lendra fréttastofa. Einn
daginn ræðir hann við Gor-
batsjov, næsta dag er hann
kominn inn á gólftil Margrét-
ar Danadrottningar. Nú segja
gámngarnir að Steingrímur
sé í opinberri heimsókn - á
íslandi.
Kosninga-
slagur
Ef að líkum lætur verður slag-
ur sjónvarpsstöðvanna um að
halda athygli sjónvarpsáhorf-
enda kosninganóttina ekki
síður spennandi en sjálfar
kosningarnar. Baráttan er
þegar hafin og eftir öllum sól-
armerkjum að dæma virðist
Stöð 2 ætla að kaffæra ríkis-
sjónvarpið.
Fyrir það fyrsta hefst kosn-
ingasjónvarp Stöðvar 2 hálf-
tíma fyrr en sams konar
dagskrá hjá ríkissjónvarpinu
Strax á Stöð 2.
og skiptir þá engu hvenær
þeirsíðamefndu byrja. Stöð 2
hefur ráðið hljómsveitina
Strax til að skemmta meðan
beðið er eftir nýjustu tölum
en ríkissjónvarpið býður upp
á hljómsveit Áma ísleifs. Þá
hefur Spaugstofan, sem reynd-
ar er fædd og uppalin á gömlu
gufunni, skrifað undir samn-
ing við Stöð 2 um að skemmta
í kosningasjónvarpinu. Mar-
íanna Friðjónsdóttir mun
stjóma útsendingum á kosn-
ingasjónvarpi Stöðvar 2. Hún
hefur mikla reynslu í þeim
fræðum eftir að hafa stjórnað
útsendingum á kosningasjón-
varpi ríkissjónvarpsins svo
kosningum skiptir. Það er
ástæða til að óska landsmönn-
um góðrar skemmtunar.
Umsjón:
Eirikur Jónsson
GAGGENAU
VERÐLÆKKUN
Þrátt fyrir verulega gengishækkun
þýska marksins gera hagstæð innkaup
okkur fært að bjóða stórkostlega
verðlækkun á takmörkuðu magni
af (logo) heimilistækjum.
af GAGGENAU heimilistækjum.
L_
Nú er ekkert vit í því
að kaupa ekki það besta.
GAGGENAU
Vestur-þýsk hönnun,
tækni í heimsklassa.
Vorumarkaðurinn hf.
Nýjabæ-Eiðistorgi Sími 622-200
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 110., 114. og 119. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 á
eigninni Olduslóð 41, Hafnarfirði, þingl. eign Guðmars Sigurðssonar, ferfram
eftir kröfu Veðdeildar Landsbanka íslands á eigninni sjálfri föstudaginn 13.
mars 1987 kl. 16.30.
Baejarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 110., 114. og 119. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 á
eigninni Kvíholti 1,1. hæð, Hafnarfirði, þingl. eign Þorsteins Péturssonar, fer
fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Hafnarfirði á eigninni sjálfri föstudaqinn
13. mars 1987 kl. 16.15.
Bæjarfógetinn i Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 110., 114. og 119. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 á
eigninni Lyngbaröi 3, Hafnarfirði, þingl. eign Eðvarðs Björgvinssonar, fer fram
eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Hafnarfirði á eigninni sjálfri föstudaginn 13.
mars 1987 kl. 15.45.
Bæjarfógetinn i Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á eigninni Kvíholti 3, 2. hæð, Hafnarfirði, tal. eign Ágústs
Ólafssonar, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 13. mars 1987 kl. 14.00.
___________________Bæjarfógetinn i Hafnarfirði.
VIKAN
er ekki sérrit
heldui íjölbreytt
og víðlesið heimilisblað
og býður hagstæðasta auglýsingaverð
allra íslenskra tímarita
VIKAN
nær til allra stétta og allra aldursstiga. Aug-
lýsing í Vikunni nær því til íjöldans en ekki
aðeins takmarkaðra starfs- eða áhugahópa.
VIKAN
hefur komið út í hverri viku í næstum 50 ár
og jafnan tekið breytingum í takt við tímann,
bæði hvað snertir efni og útlit. Þess vegna er
Vikan svona fjölbreytt og þess vegna er les-
endahópurinn svona stór og fjölbreyttur.
VIKAN
selst jafnt og þétt, bæði í þéttbýli og dreifbýli.
Þess vegna geta auglýsendur treyst því að
auglýsing í Vikunni skilar sér.
VIKAN
er ekki sérrit. Enginn efnisflokkur er henni
óviðkomandi. Þess vegna er Vikan svo vinsæl
og víðlesin sem raun ber vitni.
VIKAN
veitir auglýsendum góða þjónustu á skynsam-
legu verði og hver auglýsing nær til allra
lesenda Vikunnar.
VIKAN
hefur sína eigin verðskrá yfir auglýsingar.
Upplýsingar um auglýsingaverð Vikunnar
eiga við hana eina og þær fást hjá auglýsinga-
deild Vikunnar í síma 27022.