Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1987, Blaðsíða 26
26
ÞRIÐJUDAGUR 10. MARS 1987.
Andlát
Bjarni Vilhjálmsson lést 2. mars sl.
Hann fæddist að Hátúni á Nesi í
Norðfirði 12. júní 1915, sonur hjón-
anna Kristínar Árnadóttur og Vil-
hjálms Stefánssonar. Bjarni lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólanum á
Akureyri og kandídatsprófi í íslensk-
um fræðum frá Háskóla íslands.
Hann varð síðar kennari við ýmsa
skóla hér í Reykjavík. Hann réðst
sem skjalavörður að Þjóðaskjala-
safni Islands 1958, en var skipaður
þjóðskjalavörður 10 árum síðar,
1968, og gegndi því embætti til árs-
loka 1984. Eftirlifandi eiginkona
hans er Kristín Eiríksdóttir. Þeim
hjónum varð fjögurra barna auðið.
Utför Bjarna verður gerð frá Há-
teigskirkju í dag kl. 13.30.
Áslaug Ólafsdóttir lést 2. mars sl.
Hún fæddist 17. nóvember 1927 á
Norðfirði og voru foreldrar hennar
Guðný Haraldsdóttir og Ólafur Stef-
ánsson. Að gagnfræðaprófi loknu
vann Áslaug ýmis störf, m.a. á sím-
stöðinni í Keflavík. Auk þess stund-
aði hún nám við Handíða- og
myndlistarskóla Islands. Eftirlifandi
eiginmaður hennar er Árni Bjarna-
son. Þau hjón eignuðust sex börn og
' eru fimm þeirra á lífi. Útför Áslaugar
verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju
í dag kl. 15.
Sigurveig Steingrímsdóttir, Álfa-
skeiði 43. Hafnarfirði, lést að kvöldi
8. mars.
Auður Marinósdóttir, Suðurhólum
22, lést í Landspítalanum að kvöldi
8. mars.
Þórir Bergsson, tryggingastærð-
fræðingur, lést í Landspítalanum
laugardaginn 7. mars.
Guðbjörg Sandholt, Reynimel 31,
lést í Landakotsspítala sunnudaginn
8. mars.
Þorsteinn Guðbrandsson, fyrrver-
andi vitavörður, Loftsölum, Mýrdal,
' andaðist á Hrafnistu 7. þ.m.
Halldór Bachmann Hafliðason,
Álfheimum 68, lést í Borgarspitalan-
um 6. mars.
Guðrún Hallsteinsdóttir, áður
Leifsgötu 14, andaðist á Hrafnistu
laugardaginn 7. mars.
Bjarni Pétursson Walen, fyrrv.
bústjóri á Kópavogsbúinu, verður
jarðsunginn frá Kópavogskirkju
fimmtudaginn 12. mars kl. 13.30.
Páll Pálsson lést 28. febrúar sl. Ut-
förin hefur farið fram.
Gunnar Júlíusson bóndi, Laugar-
bóli, Laugardal, Reykjavík, verður
jarðsunginn frá Áskirkju miðviku-
daginn 11. mars kl. 15.
Útför Guðmundar Breiðfjörðs Jó-
hannssonar fer fram frá Kópavogs-
kirkju miðvikudaginn 11. mars kl.
13.30.
Útför Erlu Þórdísar Jónsdóttur fer
fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík
miðvikudaginn 11. mars kl. 13.30.
Margrét Halldórsson lést 27. febrú-
ar sl. Fullu nafni hét hún Inger
Margrethe Eriksen, fædd í Kaup-
mannahöfn 25. desember 1908. Eftir-
lifandi eiginmaður hennar er Gísli
Halldórsson. Þau hjón eignuðust
einn son. Útför Margrétar verður
gerð frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30.
Ragnhildur Björg Methúsalems-
dóttir lést 27. febrúarsl. Hún fæddist
27. júní 1917 á Eiðum í Eiðahreppi í
Suður-Múlasýslu. Foreldrar hennar
vou Methúsalem Stefánsson og
Guðný Jónína Óladóttir. Eftirlifandi
eiginmaður Ragnhildar er Bjarni
Konráðsson. Þeim hjónum varð
tveggja barna auðið. útför Ragn-
hildar verður gerð frá Dómkirkjunni
í dag kl. 15.
Fundir
Kvenfélag Kópavogs
heldur aðalfund sinn í félagsheimili bæjar-
ins 12. mars nk. kl. 20.30.
Sagnfræðingafélag íslands
Fundur verður haldinn í kvöld, þriðjudag
10. mars, kl. 20.30 í húsi Þjóðskjalasafns
Islands að Langhpltsvegi 162 (gömlu
Mjólkurstöðinni). Á dagskrá er efnið:
Framlag dr. Björns Þorsteinssonar til ís-
lenskrar sagnfræði. Félagar og aðrir
áhugamenn eru hvattir til að fjölmenna.
Kvennadeild Skagfirðingafé-
lagsins í Reykjavík
er með tískusýningu og góukafíí fyrir fé-
lagsmenn og gesti í Drangey, Síðumúla
35, miðvikudaginn 11. mars kl. 20.30.
Prófastar funda
Prófastar landsins, 15 að tölu, koma saman
til árlegs fundar, að þessu sinni í Reykja-
vík dagana 10.-16. mars. Prófastafundur-
inn hófst með athöfn í Dómkirkjunni í
morgun kl. 10.30 þar sem biskup Islands
setur fjóra nýja prófasta inn í embætti,
þá sr. Birgi Snæbjörnsson á Akureyri próf-
ast Eyfirðinga, sr. Tómas Guðmundsson í
Hveragerði prófast Árnesinga, sr. Þorleif
Kjartan Kristmundsson á Kolfreyjustað
prófast Austfírðinga, og sr. Örn Friðriks-
son á Skútustöðum prófast Þingeyinga.
Síðdegis í dag verður fjallað um drög að
erindisbréfum sóknamefnda, safnaðarfull-
trúa, meðhjálpara, hringjara og kirkju-
varða. Um kvöldið bjóða biskupshjónin til
kvöldverðar í Biskupsgarði. Á miðvikudag
verða þeir sr. Sigurður Árni Þórðarson,
rektor í Skálholti, og sr. Bragi Friðriks-
son, prófastur í Garðabæ, framsögumenn
um efnið: Námsbraut í safnaðarþjónustu
(diakonia) og þörfm á þeirri þjónustu í
kirkjum. Síðdegis sama dag verður greint
frá undirbúningi kristnitökuhátíðar árið
2000 og þætti prófastanna í þeim undir-
búningi. Borgarstjórahjónin bjóða pró-
fostunum til hádegisverðar í Höfða. Á
fimmtudag verður rætt um sóknargjöld og
hugsanlegar breytingar á gjöldum til
kirkju og kirkjugarða vegna nýrra skatta-
laga. Þann dag hedur Prófastafélagið
aðalfund sinn en núverandi formaður þess
er sr. Ólafur Skúlason dómprófastur. Pró-
fastafundinum lýkur með altarisgöngu í
Dómkirkjunni á fimmtudag kl. 18. Fundir
prófastanna verða í fundarsal Kirkjuhúss-
ins, Suðurgötu 22, í Reykjavík.
í gærkvöldi dv
Heiðar Ástvaldsson danskennari:
„Hræðilegasta dæmi um
mannvonsku“
Ég horfði heilmikið á sjónvarp í
gær og var mjög ánægður með dag-
skrána en að vísu hafði ég ekki tíma
til að horfa fyrr en ég kom heim því
ég var að kenna um eftirmiðdaginn
og langt fram á kvöld og hóf því
ekki að horfa fyrr en um miðnætti.
Fréttimar var ég mjög ánægður með
svo og þáttinn frá Orator, félagi
laganema, um slit á sambúð. Sem
kennsluþáttur var hann alveg frá-
bær, fræðandi og vel framsettur. Að
því búnu sá ég bláendinn af Eldlín-
unni og þar kom fram eitt hræðileg-
asta dæmi um mannvonsku hér á
landi og satt að segja hélt ég að
ekki væru til svona vondir menn á
íslandi. Maður heíúr gott af því að
fá að vita af svona löguðu. Ég hef
gaman að sjá Ginger Rogers dansa
við Fred Astaire en ekki við Cary
Grant. Apaspil var léleg mynd og
Marilyn Monroe, sem hefúr verið í
miklu uppáhaldi hjá mér, var satt
að segja ömurleg í þessari mynd. Að
Ástvaldsson
lokum horfði ég á viðtal CBS við
Diahann Carrol, sem er glæsileg og
freistandi útlits, þrátt fyrir að vera
komin á fimmtugasta og annað ald-
ursár.
Ef ég hefði sjálfur mátt hafa áhrif
á valið í sjónvarpið í gær þá hefði
dagskráin verið á þessa leið: Frétt-
irnar í fyrstu, því næst Goya sem
bæði er sögulegur og skemmtilegur
þáttur. Einnig hefði ég viljað hafa
einhvem skemmtilegan grínþátt,
Benny Hill eða jafhvel MASH og til
þess að svala forvitninni hefði ég að
lokum haft Nýjustu tækni og vísindi.
Sjónvarpið hér á landi er mjög
gott en ég var ekki undrandi á því
er rás 2 fór niður á við. Fólk verður
svo agalega þreytt á að hlusta alltaf
á sömu tónlistina dag eftir dag og
ég veit dæmi þess i mínum dans-
skóla að krakkamir hafa verið að
biðja um sama lagið aftur og aftur
en eftir smátíma em þeir orðnir
hundleiðir á því.
Kvennadeild Flugbjörgunar-
sveitarinnar
verður með fund í félagsheimilinu mið-
vikudaginn 11. mars kl. 20.30. Torfi
Geirmundsson hársnyrtir kemur á fund-
inn.
Fundur lyfjafræðinga
haldinn að Óldugötu 4 í Reykjavík föstu-
daginn 6. mars 1987 harmar það að Ólafur
Ólafsson landlæknir skuli hafa látið sér
sæma að taka undir aðdróttanir og dylgjur
óábyrgra manna í garð íslenskra lyfia-
fræðinga. Þá lítur fundurinn svo á að
landlæknir hafi sjálfur beinlínis reynt að
óírægja þessa stétt íslenskra heilbrigðis-
starfsmanna og gera hana tortryggilega í
augum almennings með yfirlýsingum sín-
um í fjölmiðlum. Fundurinn ákvað að
kannaður yrði grundvöllur fyrir málssókn
á hendur landlækni vegna atvinnurógs.
Tónleikar
Sænskur harmóníkuleikari
með tónleika í Garðabæ
Sænski harmóníkusnillingurinn vinsæli
Lars Ek kemur til landsins nú fyrir helg-
ina og mun halda hér eina tónleika. Þetta
er í þriðja skipti sem hann kemur, hann
hefur mikinn áhuga á Islandi og íslending-
um. Lars Ek er allur á léttu nótunum og
leikur tónlist Píetro Frosinis, Ragnars
Sundqvist Nisse Lind o.fl., einnig eftir
sjálfan sig. Að þessu sinni leika með hon-
um Þorsteinn Þorsteins á gítar og Þórður
Högnason á bassa. Tónleikarnir fara fram
í Garðabæ, safnaðarheimilinu Kirkju-
hvoli, og heíjast kl. 16. laugardaginn 14.
mars. Unnendur hinnar léttu og líflegu
harmóníkutónlistar ættu ekki að sleppa
þessu einstæða tækifæri.
Ýmislegt
Skólamálaráð KÍ
hefur miklar áhyggjur af skipan sér-
kennslumála á landinu. Á undanförnum
árum hefur stórt átak verið gert til þess
áð greina þörf fyrir sérkennslu víða um
land, en því miður hefur komið í ljós að
hvergi nærri er séð fyrir því fjármagni sem
nauðsynlegt er til að mæta henni. Af þess-
um sökum hefur ekki verið hægt að sjá
öllum nemendum með sérþarfír fyrir slíkri
kennslu.
Skólasýning Ásgrímssafns
Skólasýning Ásgrímssafns hefur verið
opnuð. Leitast var við að hafa sýninguna
sem fjölbreyttasta, bæði hvað viðfangsefni
og tækni snertir. Sýndar eru olíu- og
vatnslitamyndir auk íjölda þjóðsagna-
teikninga. I vinnustofu málarans á efri
hæð hússins eru sýndar olíu- og vatnslita-
myndir og er þema þeirra að þessu sinni:
Árstíðimar í list Ásgríms Jónssonar. Á
heimili málarans á neðri hæð hússins eru
sýndar þjóðsagnamyndir. Rakel Péturs-
dóttir safnakennari annast í vetur safn-
kynninguna á vegum menntamálaráðu-
neytisins. Hún mun skipuleggja
heimsóknir bama úr grunnskólum lands-
ins og tekur á móti pöntunum um heim-
sóknir í safnið á þriðjudögum kl. 8-12 í
síma 10665. Sýningin er að sjálfsögðu opin
öðrum en grunnskólanemum, á opnunar-
tíma safnsins: sunnudaga, þriðjudaga og
fimmtudaga kl. 13.30-16. Aðgangur er
ókeypis.
Ættfræðinámskeið
Senn heíjast ný ættfræðinámskeið í
Reykjavík á vegum Ættfræðiþjónustunnar
- þau síðustu á þessum vetri. Boðið verður
upp á átta vikna grunnnámskeið ( eitt
kvöld eða síðdegi í viku) og einnig fimm
vikna námskeið fyrir framhaldshóp.
Skráning er hafin hjá forstöðumanni í
síma 27101. Markmið þessara námskeiða
er að gera menn færa um að rekja ættir
sínar og annarra af kunnáttusemi og ör-
yggi, fyrst og fremst með notkun frum-
heimilda, auk útgefinna ættfræðiverka.
Fer kennslan að nokkru fram í fyrirlestr-
um, þar sem fjallað er um heimildir,
aðferðir, vinnubrögð og hjálpartæki ætt-
fræðinnar, en umfram aílt veitir nám-
skeiðið þátttakendum tækifæri og aðstöðu
til rannsókna á eigin ættum og frænd-
garði. Gagnasafn og tækjabúnaður Ætt-
fræðiþjónustunnar hefur verið stóraukið
síðan í haust og hafa þátttakendur aðgang
og afnot af fjölda heimilda, m.a. filmusöfn-
um af öllum manntölum frá upphafi til
1930, kirkjubókum, skiptabókum, ættar-
tölubókum o.s.frv., auk útgefinna niðja-
tala, stétta- og ábúendatala, íbúðaskráa,
manntala og annarra ættfræðiheimilda.
Eru þátttakendum útveguð þau frumgögn,
sem til þarf, s.s. ættartré, margvíslegar
heimildaskrár og aðrar leiðbeiningar. Fær
hver og einn leiðsögn í þeirri ættarleit, sem
hann kýs sem viðfangsefni í námskeiðinu.
Forstöðumaður Ættfræðiþjónustunnar og
leiðbeinandi á þessum námskeiðum er sem
fyrr Jón Valur Jensson.
Hugeflisþjálfun
Þann 13. mars nk. mun Þrídrangur standa
fyrir kvöldnámskeiði í hugeflisþjálfun að
Hótel Loftleiðum. Hugeflisþjálfun kennir
aðferðir til að auka sköpunarhæfni,
minnisgetu og hæfileikann til að finna
úrlausn vandamála. Virkjaðir verða ónot-
aðir möguleikar einstaklingsins með
djúpslökun, sjálfssefjun og notkun ímynd-
unaraflsins til að yfirvinna slæmar lífs-
venjur eins og reykingar og ofát.
Jafnframt verða kenndar aðferðir til að
bæta sjálfsímynd, efla sjálfstraust og yfir-
vinna neikvæða sjálfsgagnrýni. Hugeflis-
þjálfun byggir m.a. á aðferðum búlgarska
vísindamannsins dr. Georgi Lozanov.
Leiðbeinandi er Garðar Garðarsson. Hann
hefur starfað sem framkvæmdastjóri
Þrídrangs frá upphafi og hefur leiðbeint
og túlkað á ýmsum námskeiðum um heild-
ræn málefni. Upplýsingar fást að Tryggva-
götu 18 í síma (91)-622305.
Tímarit
H&H heimsækir Arnór Guð-
jónsson
Arnór Guðjónsson og kona hans, Ólöf
Einarsdóttir, búa í snotru húsi í litlu þorpi
í Belgíu, en Arnór spilar sem kunnugt er
með belgíska liðinu Anderlecht, sem varð
belgískur meistari i fyrra. H&H heimsóttir
Arnór og Ólöfu fyrir nokkru og segir frá
þeirri heimsókn í nýjasta tölublaðinu.
Fleiri falleg heimili voru heimsótt fyrir
þetta blað. Ennfremur er litið inn á nokkra
skemmtilega innréttaða skemmtistaði. Þá
er þess að geta að í þessu tbl. fer af stað
lesendaþjónusta arkitekts. Arkitektinn,
sem mun leitast við að greiða úr vanda-
málum lesenda, heitir Eyjólfur Bragason
og eru nokkur verka hans kynnt í blað-
inu. Annar arkitékt veitir lesendum Húsa
& híbýla góð ráð, sá er landslagsarkitekt
og heitir Áuður Sveinsdóttir. Fjallar hún
um mikilvæg atriði, sem hafa ber í huga
þegar garðurinn er skipulagður. Sigurður
Garðarsson matreiðslumaður hefur tekið
sér fastan matreiðsluþátt í H&H. Ýtir
hann úr vör með uppskriff af pönnu-
steiktri tindaskötu. Þá eru einnig í blaðinu
leiðbeiningar varðandi meðhöndlun fugla-
kjöts. Af öðru efni má svo nefna peysuup-
skrift, heilræði múrarameista, úrslit í
verðlaunasamkeppni H&H og IKEA,
kostnaðaráætlun húsbyggjenda, mynda-
uppsetningu á heimilum, tiltekt í bílskúr-
um, húsráð og sitthvað fleira. Þetta er
fyrsta tölublað H&H á þessu ári. Útgef-
andi er SAM-útgáfan. Ritstjóri er Þórar-
inn Jón Magnússon.
Afmæli
60 ára verður á morgun, miðvikudag-
inn 11. mars, Árni Gunnlaugsson
hrl., Hafnarfirði. Hann tekur á móti
gestum í Góðtemplarahúsinu þar í
bæ eftir kl. 20.30 í kvöld.