Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1987, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 13. MARS 1987.
21
Sjónvarpið laugardag kl. 21.55:
Hawaii
Myndin gerist snemma á 19. öld-
inni á draumaeynni Hawaii og
segir frá Englendingnum Abner
Hale, ofstækisfullum trúboða sem
sendur er til Hawaii til að kenna
frjálslyndum eyjarskeggjum guðs-
ótta og góða siði. Með honum í
ferðinni er nýbökuð eiginkona
hans, Jerusha Bromley, sem giftist
honum vegna annarlegra aðstæðna
og í raun elskar hún ekki eigin-
mann sinn. Spinnast allar aðstæð-
ur myndarinnar út frá þessum
tveimur ástæ'ðum, þ.e. ofstækinu
og ástleysinu.
I aðalhlutverkum eru Julie
Andrews, Max von Sydow, Richard
Harris og Gene Hackman. Leik-
stjóri er George Roy Hill.
| "*' » 'ýiV’
Ofstækisfullur trúboði reynir að kenna frjálslyndum eyjarskeggjum guðs-
ótta og góða siði.
RÚV, rás 1, kl. 9.30:
Böm í sjúkrahúsheimsókn
I morgunmund, sem er á dagskrá ríkisútvarpsins í fyrramálið, verður
farið í heimsókn i leikskólann Iðavöll á Akureyri, samverustund með
börnunum. Þar er glatt á hjalla og meðal annars syngja börnin og fara
með þulu.
Forstöðukona leikskólans, Sigríður Gísladóttir fóstra, ræðir við börnin
um sjúkrahús. Mörg börn eru hrædd við slíkar stofnanir og vita lítið sem
ekkert um hvað er að gerast innan veggja þeirra.
Undanfarna viku hefur verið fræðsla um þetta efni og hópar barna farið
í heimsóknir á Fjórðungsjúkrahúsið á Akureyri þar sem þau fengu að
sjá með eigin augum hvað var að gerast. Farið var með einn slíkan hóp
á vegum barnaheimilisins. Hjúkrunarfólk barnadeildar tók á móti börn-
unum og sýndi þeim rannsóknarstofuna, röntgendeildina, eldhúsið og
barnadeildina.
Þessi ferð vakti mikla hrifningu hjá börnunum og þau fóru heim reynsl-
unni ríkari og sögðust ekki vera vitund hrædd við sjúkrahús eftir þetta.
Umsjónarmaður þáttarins er Heiðdís Norðfjörð.
Lagakrokur er hinn nýi bandariski framhaldsmyndaflokkur og segir frá
lögfræöingum sem starfa i Los Angeles.
Stöð 2 sunnudag kl. 21.15:
Halla Linker hefur lifað viðburðaríku lífi og ferðast til fleiri þjóðlanda en nokkur annar Islendingur.
Stöð 2 sunnudag kl. 20.40:
Halla Linker í L.A. sótt heim
Hans Kristján Árnason heldur
áfram heimsóknum sinum vestur
um haf að heimsækja ísléndinga
er halda sitt heimili vestanhafs.
Halla Linker verður fyrir valinu
að þessu sinni. Hún er búsett í Los
Angeles og hefur alið manninn þar
undanfarna áratugi. Halla hefur
lifað viðburðaríku lífi og ferðast til
fleiri þjóðlanda en nokkur annar
íslendingur. I dag rekur hún fvrir-
tæki í Bandarikjunum. Hún segir
frá lífi sínu á opinskáan og hrein-
skilinn hátt á sunnudag.
Bylgjan laugardag kl. 12.30:
Asgeir á uppleið
Ásgeir Tómasson, hinn kunni
útvarpsmaður, hefur nú fært þætti
sínu til kl. 12.30 á laugardögum og
fyllir þar skarð forvera síns. Jóns
Axels, hláturmilda, Ólafssonar er
mun vera hættur á Bylgjunni. Ás-
geir hóf þætti sína klukkan 17.00
undanfarna laugardaga en nú ætl-
ar hann sem fyrr segir að vera með
tveggja og hálfs tíma þátt rétt um
og eftir hádegisbilið á laugardög-
um í framtíðinni Hann mun þar
leika öll gömlu uppáhaldslögin sín
og annarra með skemmtilegu ívafi
úr lífinu. getraunum og glensi.
Ásgeir Tómasson
RÚV, rás 1, sunnudag kl. 13.30:
Menntafrömuður og skáld á Mosfelli
Gunnar Stefánsson tók saman
þátt er nefnist Menntafrömuður og
skáld á Mosfelli sem fluttur verður
í Ríkisútvarpinu. rás 1. á sunnu-
dag. Þar er íjallað um séra Magnús
Grímsson (1825-1860). Hann var
einn fjölhæfasti menntamaður
sinnar samtíðar. Eftir hann liggja
ljóð. sögur. leikrit og þýðingar.
Einnig fékkst hann við náttúru- og
eðlisfræði og vann að landkönnun
og jarðfræðirannsóknum. Magnús
Grímsson er þó þekktastur sem
brautryðjandi í þjóðsagnasöfnun.
Hann var þar samstarfsmaður Jóns
Árnasonar en lést áður en hið
mikla safn þeirra kom út og er það
því kennt við Jón einan. Síðustu
æviár sin var Magnús Grímsson
prestur á Mosfelli í Mosfellsdal og
andaðist þar.
I dagskránni á sunnudag verður
fjallað um ævi og störf þessa merk-
ismanns. lesið úr ritum hans og
Ögmundur Helgason sagnfræðing-
ur segir frá þjóðsagnasöfnum hans.
Lesarar eru Edda Heiðrún Back-
man og Viðar Eggertsson.
Sjónvarpið sunnudag kl. 16.10:
Tónlist og tíðarandi
Hirðskáld 1 hallarsölum
Nýr breskur heimildarmvnda-
flokkur hefur göngu sína á sunnu-
dag í sjónvarpinu um tónlist og
tíðaranda frá ýmsum öldum. Einn-
ig verður lýst umhverfi. menningu
og aðstæðum sem tónskáldin
bjuggu við og mótuðu verk þeirra
og heitir fvrsti þátturinn. sem
sýndur verður. Monteverdi í
Mantúa.
Fyrstu fjórir þættirnir fjalla um
tónskáld sem voru lengst af í þjón-
ustu aðalsmanna eða konungsætta
í Evrópu og dvöldust við hirð
þeirra.
Sá fvrsti. Claudio Monteverdi.
var fremsta tónskáld ítala um alda-
mótinm 1600 og samdi m. a. eina
fyrstu óperuna. Orfeus.
Nýi heimildarmyndaflokkurinn, er
hefur göngu sina á sunnudag í
sjónvarpinu, fjallar um tónlist og
tíðaranda frá ýmsum öldum.
Lagakrókur
Nýr Golden globe verðlaunaþáttur
Golden globe verðlaunaþáttur-
inn Lagakrókur (L.A. Law) hefur
göngu sína á Stöð 2 á sunnudag
og er í honum fylgst með nokkrum
lögfræðingum í starfi sínu og utan
þess í stórborginni Los Angeles.
Fyrirtækið er rekið af Leland
McKenzie sem hefur i vinnu hjá
sér marga færa lögfræðinga, alla.á
sínu sviði. þar á meðal í skattamál-
um, félagsmálum og fleiru.
í aðalhlutverkum eru Harrv
Hamlin, Susan Dey, Corbin Berns-
en, Jill Eikenberry, Michele
Greene og fleiri.
Stöö 2 laugardag kl. 17.10:
Koppafeiti
Grease eða Koppafeiti, eins og
hún heitir á íslensku, verður. sýnd
á Stöð tvö á laugardag. Hún er með
þeim Oliviu Newton-John og John
Travolta í aðalhlutverkum. Þau
urðu goð allra ungmenna árið 1978
er myndin var sýnd enda sló hún
öll aðsóknarmet og kom af stað
hinu svokallaða „grísaæði". Sag-
an. sem svo oft áður. endurtók sig
og mátti vart sjá unga drengi á
götum úti án þess að þeir væru með
koppafeiti í hárinu og í svörtum
leðurjakka eða dömur sem ekki
voru komnar með liði eða hárband
og háan stert.
Dansinn dunar og hver söngur-
inn á fætur öðrum prýðir þessa
mvnd. en hún gerist á rokktímabil-
inu svokallaða þegar bensínið var
ódýrt og stórar glæsikerrur voru
mikið í tísku.