Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1987, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1987, Blaðsíða 6
28 FÖSTUDAGUR 13. MARS 1987. Regnboginn Hjartasár Hjartasár (Heartburn) fjallar um Rachel og Mark, tvo blaðamenn sem kynnast í brúðkaupi. Þau fella hugi saman og þrátt fyrir að hvor- ugt trúi á hjónaband giftast þau, eignast barn og framtíðin virðist blasa við þeim. Það fer samt fyrir þeim eins og 60% hjóna í Banda- ríkjunum, þau skilja eftir að Rachel kemst að því að Mark hefur haldið fram hjá henni.... Höfundur skáldritsins og kvik- myndahandritsins, Nora Ephron, byggir sögu sína á eigin æfi en hún var gift hinum fræga rannsóknar- blaðamanni Carl Bernstein sem frægur var fyrir að koma upp Wat- ergate hneykslinu á sínum tíma ásamt öðrum. Hjartasár er kvik- mynd sem er eins og sköpuð fyrir tvo góða leikara og það færa þau sér í nyt Meryl Streep og Jack Nicholson. Leikhús- Leikhús- Leikhús- Leikhús- Leikhús Fnirnsýning á Akureyri: Nú er það Kabarettinn Háskólabíó Trúboðsstöðin (Mission) er ein þeirra kvikmynda sem tilnefnd er sem besta mynd við næstu óskars- verðlaunaafhendinu. Myndin er leikstýrð er af Roland Joffé sem síðast stjórnaði hinni rómuðu mynd The Killing Fields. Þess má geta að Trúboðsstöðin fékk verð- laun sem besta mynd á Cannes í fyrra. Trúboðsstöðin gerist á átj- ándu öld í Suður-Ameríku og fjall- ar aðallega um samskipti tveggja ólíkra manna, föður Gabriels, sem er kaþólskur prestur, og Mendoza, sem er þrælasali í byrjun myndar- innar. Flestir eru sammála um að Robert De Niro og Jeremy Irons sýni báðir stórgóðan leik i aðal- hlutverkunum. Bíóhúsið Sjóræningjarnir (The Pirates) er gamaldags sjóræningjamynd með Walter Matthau í aðalhlutverki. Leikur hann gamlan sjóræningja- foringja sem lætur sér ekki allt fyrir brjósti brenna. Sjóræningj- arnir voru óhemju dýr kvikmynd og til að mynda lét leikstjórinn Roman Polanski byggja sjóræn- ingjaskip í fullri stærð og var enginn smákostnaður við það æv- intýri. Tvennum sögum fer af gæðum hennar og sýnist sitt hverj- um. Og nú er bara að sjá hvort íslendingum líkar ævintýramynd Romans Polanski. Bíóhöllin Whoopi Goldberg er leikkona er hlaut heimsfrægð fyrir leik sinni í Color Purple, dramatískri mynd sem Steven Spielberg stjórnaði. Goldberg er aðallega þekkt sem gamanleikkona og í nýjustu mynd sinni, Njósnaranum (Jumpin Jack Flash), sýnir hún hvað í henni býr í bitastæðu hlutverki fyrir gaman- leikkonu. Af öðrum myndum í Bíóhöllinni má nefna úrvalshryll- ingsmyndina Fluguna (The Fly), mynd sem fær hárin til að rísa á höfði áhorfandans og Góða gæja (Tough Guys) þar sem gömlu brýn- in Kirk Douglas og Burt Lancaster fara á kostum. Stjörnubíó Stattu með mér (Stand by Me) er nýjasta kvikmyndin gerð eftir rit- verki Stephens King. I þetta skiptið er það smásagan Líkið sem orðið hefur fyrir valinu. Fjallar hún um fjóra þrettán ára drengi sem fara í óvenjulega helgarferð. Tilgangur- inn er að finna lík drengs sem hvarf. Leikstjóranum Rob Reiner tekst að gera virkilega huggulega kvikmynd úr litlum efnivið. Ekki skemmir fyrir góður leikur drengj- anna fjögurra. Tónabíó Vítisbúðir (Hell Camp) er um hermenn í æfingabúðum og ævin- týri þeirra. Aðalhlutverkin leika Tom Skeritt og Lisa Eichorn. Þetta er mynd fyrir þá sem láta sér nægja hasar án þess að efnisþráður skipti miklu. Kvikmyndahús Austurbæjarbíó Myndir Andreis Konchalovsky eru svo sannarlega snemma á ferð- inni hérlendis. Brostinn strengur (Duet for One) er alveg glæný. Fjallar myndin um fiðluleikara sem kemst að því að hrörnunarsjúk- dómur muni brátt hindra hana í að leika á hljóðfæri sitt. Breytir þetta viðhorfi hennar til lífsins. Örvænting heltekur hana og verð- ur til þess að hún gerir ýmsa hluti sem henni hefði aldrei dottið í hug að gera. Julie Andrews sýnir stór- leik í hlutverki fiðluleikarans. Þá sýnir Austurbæjarbíó einnig mynd með kappanum Bud Spencer. Þeir sem ekki eru orðnir leiðir á honum fá væntanlega eitthvað fyrir aur- ana sína. Laugarásbíó Hollenski leikarinn Rutger Hau- er leikur aðalhlutverkið í spennu- myndinni Eftirlýstur lífs eða liðinn (Wanted Dead or Alive). Leikur hann þar mannaveiðara sem eltir uppi hryðjuverkamenn með góðum árangri. Þá má nefna að Laugarás- bíó sýnir enn úrvalsmyndina Lagarefi (Legal Eagles) með úr- valsleikurunum Robert Redford og Debru Winger í aðalhlutverkum. -HK Söngleikurinn Kabárett verður frumsýndur hjá Leikfélagi Akur- eyrar annað kvöld, 14. mars, klukkan 20.30. Er þessi sýning í tilefni afmælis leikfélagsins um þessar mundir. Sagan gerist í Berlín skömmu fyrir valdatöku nasista. Er þetta svo sannarlega söngleikur þar sem hlutirnir gerast hratt og er sá sami og kvikmyndaður var fyrir níu árum þar og sló í gegn með Lizu Minnelli og Martin Gray í aðal- hlutverkum. Leikstjóri Kabaretts er Bríet Héðinsdóttir en danshöfundur er Kenn Oldfield. Hljómsveitarstjóri er Roar Kvam. Leikmynd og bún- ingar eru eftir Karl Aspelund. Margir leikarar koma fram í sýn- ingunni en með helstu hlutverk í Kabarettinum á Akureyri er spáð geysilegum vinsældum. Þetta er sannarlega söngleikur þar sem hlutirnir gerast hratt skömmu fyrir valdatöku nasista. Kabarett fara Guðjón Pedersen, Asa Svavarsdóttir, Einar Jón Briem, Soffía Jakobsdóttir og Þrá- inn Karlsson. Forseti Islands, Vigdís Finn- bogadóttir, verður viðstödd frum- sýningununa og til stóð að fá Sverri Hermannsson menntamála- ráðherra einnig til að koma. Sýningar Gallerí Borg v/Austurvöll Þar stendur yfir sýning á verkum Hrings Jóhannessonar. Á sýningunni eru um 40 verk: olíumálverk, teikningar, pastel- myndir og litkrítarmyndir. Sýningin er opin virka daga kl. 10-18 nema mánudaga frá kl. 12-18 en um helgar frá kl. 14-18. Henni lýkur 17. mars. Kjarvalsstaðir við Miklatún Þar stendur yfir skúlptúrsýning Hansínu Jensdóttur. Hún er gullsmiður að mennt og starfar hjá Jens Guðjónssyni gullsmið. Hún stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla íslands og við Myndlistar- skólann í Reykjavík og var einnig tvö ár í skúlptúrdeild SAIT í Calgary, Kanada. Hún hefur tekið þátt í fjölda samsýninga. Sýningin stendur til 29. mars. í austursal verður opnuð á morgun samsýning Félags íslenskra myndlistarmanna og verður hún opin daglega kl. 14-22 til 29. mars. Mokkakaffi, Skólavörðustíg 3a Um þessar mundir sýnir Þóra Sigurðar- dóttir 40 myndir á Mokka sem allar eru unnar á þessu og síðasta ári. Þóra stund- aði nám við Myndlista- og handíðaskóla íslands og Myndlistarskólann í Reykjavík á árunum 1975-81. Norræna húsið, Hringbraut f anddyri hússins hefur verið opnuð sýning sem ber yfirskriftina Norrænar ljósmyndir '85. Á sýningunni er úrval mynda eftir ljós- myndara frá fslandi, Danmörku, Finn- landi, Noregi og Svíþjóð. Markmiðið með sýningunni er að sýna listræna ljósmynd- un frá sem flestum sjónarhornum og að styrkja stöðu ljósmyndalistarinnar með tilliti til annarra greina myndlistarinnar. Sýningin er opin á opnunartíma hússins kl. 0-19 alla daga nema sunnudaga kl. 12-19 til 23. mars. Á sunnudaginn verður opnuð í sýningarsölum sýning á málverk- um norsku listamannanna Olavs Strömme og Bjöms Tufta og höggmyndum eftir Sig- urð Guðmundsson. Sýningin verður opin daglega kl. 14-19 til 29. mars. Listasafn ASÍ, Grensásvegi 16 Ásgerður Búadóttir sýnir myndvefnað í Listasafni ASf. Á sýningunni eru verk frá liðlega síðustu tveimur árum. Síðast hélt hún einkasýningu á Kjarvalsstöðum 1984 en hefur hin síðari ár tekið þátt í ýmsum sýningum erlendis. Sýning Ásgerðar stendur til 15. mars og er opin daglega kl. 14-18, nema á sunnudögum kl. 14 22. Listasafn Einars Jónssonar við Njarðargötu er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn daglega frá kl. 10-17. Listasafn Háskóla íslands í Odda, nýja hugvísindahúsinu, er opið daglega kl. 13.30-17. Þar eru til sýnis 90 verk í eigu safnsins, aðallega eftir yngri listamenn þjóðarinnar. Aðgangur að safn- inu er ókeypis. Listasafn íslands Þar stendur yfir yfirlitssýning á verkum Valtýs Péturssonar. Sýningin spannar all- an listferil Valtýs, allt frá því að hann var við nám í Bandaríkjunum 1944 46 til verka frá þessu ári. Em þar alls 127 verk, olíu- myndir, mósaík og gvassmyndir. f tilefni sýningarinnar hefur verið gefin út vönduð sýningarskrá og litprentað plakat. Sýn- ingin er opin virka daga frá kl. 13.30 18 en kl. 13.30-22 um helgar. Myntsafn Seðlabanka og Þjóðminjasafns, Einholti 4. Opið á sunnudögum kl. 14 16. Nýlistasafnið, Vatnsstíg 3b Á morgun kl. 14 opnar Guðbergur Auð- unsson 8. einkasýningu sína. Á sýning- unni verða um tuttugu málverk, unnin á sl. fjórum árum. Meginuppistaða sýning- arinnar eru verk byggð á Islendingasögun- um. Sýningin verður opin frá kl. 14 20 um helgar en kl. 16-20 virka daga. Stofnun Árna Magnússonar Handritasýning opin á þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum frá kl. 14 16. Þjóðminjasafnið í Bogasal Þjóðminjasafnsins stendur yfír sýning á 32 vaxmyndum af þekktum mönn- um, íslenskum og erlendum. Vaxmynda- safnið var fyrst opnað í húsakynnum Þjóðminjasafns 14. júlí 1951 og var það til sýnis í 20 ár, en síðan hafa myndirnar verið í geymslu. Vegna mikillar eftir- spurnar hefur nú verið ákveðið að sýna vaxmyndasafnið um tíma. Vaxmyndirnar eru til sýnis á venjulegum opnunartíma Þjóðminjasafnsins, þ.e. þriðjudaga, fimmtudaga, laugardaga og sunnudaga kl. 13.30-16. Aðgangseyrir er kr. 50 en ókeyp- is fyrir börn og ellilífeyrisþega. Sjóminjasafn íslands, Vesturgötu 8, Hafnarfirði Opið þriðjudaga til sunnudaga kl. 14 18. Sædýrasafnið Opið alla daga kl. 10 17. Póst- og símaminjasafnið, Austurgötu 11 Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl. 15-18. Aðgangur ókeypis.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.