Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1987, Síða 3
FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1987.
21
Sjónvarpið laugardag
kl. 21.55:
Eric Clapton
og félagar
Það má segja að góðir gítarleikarar
eigi upp á pallborðið hjá sjónvarps-
mönnum um þessa helgi því
klukkustundarlangur þáttur verð-
ur frá hljómleikum Erics Claptons
og félaga sem haldnir voru í Birm-
ingham í fyrrasumar. Sýndi hann
og sannaði þá að hann hefur engu
gleymt frá þeim tíma er hann var
talinn einn besti gítarleikari heims.
Á efnisskrá hljómleika hans eru
meðal annars lög á borð við Layla,
Sunshine of your love og fleiri góð
sem hann, ásamt hljómsveit sinni,
Cream, gerði fræg á sínum tíma.
Eric Clapton hefur engu gleymt.
Sjónvarpið laugardag
kl. 22.55:
Ævintýri í
Austurlöndum
- ný áströlsk
sj ónvarpsmynd
Bryan Brown, hinn frægi ástralski
leikari, sem lék á móti konu sinni,
Raquel Ward, í Þyrnifuglunum, fer
með aðalhlutverkið í nýrri ástr-
alskri sjónvarpsmynd sem sýnd
verður í ríkissjónvarpinu á laugar-
dagskvöld og nefnist Ævintýri í
Austurlöndum.
Myndin segir frá blaðamanni sem
fer í leiðangur ásamt konu sinni,
sem áður hafði verið söngkona í
næturklúbbi i Saigon, til ónefnds
Asíuríkis. Þar verður á vegi þeirra
fyrrum ástmaður eiginkonunnar,
vafasamur kráreigandi sem reynist
þó drengur góður þegar í harð-
bakkann slær.
Fyrir utan Bryan Brown, sem er
í hlutverki kráreigandans, eru í
aðalhlutverki Helen Morse, sem
leikur eiginkonuna, og John Dug-
an sem leikur blaðamann.
Helen Morse og Bryan Brown i
Ævintýri i Austurlöndum.
Sérfræðingar Stöðvar 2 i bílamálum láta ekki sitt eftir liggja á vorvertíð bílasalanna i bænum.
Stöö 2 surmudag kl. 19.05:
Bílamarkaðurinn kannaður
Ekki er úr vegi að kynna bíla-
þáttinn sem er á Stöð 2 um helgina,
nánar tiltekið á sunnudagskvöld.
Hann er nú endursýndur vegna
fjölda áskorana og ekki síst vegna
þess að þessa dagana er vorvertíð
á öllum bílasölum i bænum.
Sérfræðingar Stöðvar 2 kanna
bílamarkaðinn. Fyrir verða teknir
Peugeot 205 GTI. Einnig eru sýnd
nokkur fréttaskot af nýjum athvgl-
isverðum bílum, t.d Mazda 929.
Daihatsu Charade og Nissan 240
RS - rallbíll.
Umsjónarmenn eru Ari Arnórs-
son og Sighvatur Blöndahl.
Þorkell Sigurbjörnsson tónskáld og Pétur Jónasson gitarleikari ræðast við i sjónvarpssal á laugardagskvöldið.
Sjónvarpið laugardag kl. 21.10:
Kvöldstund með Pétri
Jónassyni gítarleikara
Þámirinn Kvöldstund með lista-" farin ár hefur tom að mennta sig við hressilegan gítarundirleik. Af
manni er enn við lýði og á laugar- í klassískum gítarleik. Margir mörgum er Pétur talinn einn besti
dagskvöld mun Þorkell Sigur- muna eflaust eftir Pétri úr Kerling- klassíski gítarleikarinn hér á landi.
bjömsson tónskáld ræða við Pétur arfjöllum þar sem hann fékk fólk
Jónasson gítarleikara sem undan- ævinlega til að hefja upp raust sina
Bylgjan surmudag kl.
21.00:
Einvaldur á
sunnudags-
kvöldi
Þorsteinn J. Vilhjálmsson sér um
popp á Bvlgjunni á sunnudags-
kvöldið. Hann spilar popp af öllum
tegundum í þrjár klukkustundir
samfleytt. „Ég reyni að koma sem
víðast við," segir Þorsteinn. „Ég
leita uppi það nýjasta í poppinu
hverju sinni og spila í bland tónlist
með flytjendum sem af einhverjum
ástæðum komast ekki i sviðsljósið.
Nýmetið krydda ég svo aftur með
eldri tónlist. Að auki vel ég svo
breiðskífu kvöldsins og spila af
henni nokkur lög. Sú plata er ýmist
ný eða gömul, eftir atvikum.
Allt er þetta eftir mínum smekk.
Ætli megi ekki með sanni segja að
ég hagi mér eins og einvaldur á
Bylgjunni þessa þrjá tirna," sagði
Þorsteinn.
Þorsteinn J. Vilhjálmsson. Hann spilar tónlist að eigin vali á Bylgjunni
á sunnudagskvöldum.
Stöö 2 laugardag
kl. 20.50:
Chevy
Chase
í Fletch
Einn vinsælasti grínleikari vestan-
hafs, Chevy Chase, er í aðalhlut-
verki í gamansamri spennumynd á
Stöð 2 um helgina þar sem hann
leikur blaðamann sem ræðst til
starfa sem leigumorðingi í því
skyni að verða sér úti um góðan
stubb eins og sagt er meðal blaða-
manna. Hann ræður sig til starfa
hjá auðjöfri nokkrum sem verður
skotmark hans.
Chevy Chase, í hlutverki blaða-
mannsins Fletcher, bregður sér í
hin ýmsu gervi og flettir um leið
ofan af spilltum viðskiptamönnum
og eiturlyfjasölum úr röðum lög-
reglunnar.
Chevy Chase í hlutverki blaða-
mannsins Fletcher í gamansamri
spennumynd.
RÚV, rás 2,
surmudag kl. 23.00:
Frumútgáfur
gamalla laga
Svavar Gests kallar ekki allt ömmu
sína þvi í Rökkurtónum á sunnu-
dagskvöld mun hann leita inn á
áður óþekkt mið. mið sem að
minnsta kosti eru ekki á allra færi
að komast á. I þætti sínum ætlar
hann að dusta rvkið af gömlum
lögum sem voru á vinsældalistum
á árunum 1937 til 1967 og leika
frumútgáfur sem heyrast örsjaldan.
Svavar Gests dustar rykið af göml
um vinsældalistalögum.
RÚV, rás 1,
sunnudag kl. 16.20:
Dickie
stígur
á Cooper
Það var helst að frétta úr síðasta
þætti leikritsins Dickie Dick Dick-
ens að Dickie haslar sér völl í
undirheimum Chicagoborgar með
þvf að stíga óþyrmilega á tærnar á
Jim Cooper, foringja stærsta bófa-
flokks borgarinnar. Jim er á móti
einkaframtaki af þessu tagi og hef-
ur þegar gert ráðstafanir til að flýta
fyrir hinstu ferð Dickies.
Framhaldið verður á sunnudag
og verður spennandi að vita hvern-
ig Dicke reiðir af. Sem kunnugt er
leikstýrði Flosi Ólafsson verkinu á
sínum tíma og er það nú endur-
flutt, mörgum til óblandinnar
ánægju.