Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1987, Síða 6
28
FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1987.
Leikhús- Leikhús- Leikhús- Leikhús- Leikhús
Leikfélag Akureyrar
Síðustu sýningar
á Kabarett
Nú fer hver að verða síðastur að
panta sér far norður á Akureyri til
þess að sjá söngleikinn Kabarett i
leikstjórn Bríetar Héðinsdóttur,
sem sýndur hefur verið að undan-
fömu, nær alltaf fyrir fullu húsi.
Kabarett er sígildur söngleikur
sem notið hefur vinsælda um víða
veröld. Ennfremur hefur Lisa Min-
elli í hlutverki Sally Bowels gert
söngleikinn ódauðlegan í kvik-
mynd sem var gerð árið 1972.
Kvikmyndin sópaði þá til sín
óskars- og öðrum verðlaunum.
Hugmyndin að oaki verkinu er
sprottin úr sögum Christophers Is-
herwood og leikgerð John Van
Druten sem hreifst af persónunum
og hinni makalausu blöndu af von
og vonleysi, ótta og gleði sem ríkir
í sögunni. Höfundar tónlistar og
söngtexta eru Fred Ebb og John
Kander.
Fjöldi leikara kemur fram í Ka-
barett á Akureyri en í aðalhlut-
verkum em Guðjón Pedersen, sem
leikur siðameistarann, Sally Bow-
els er leikin af Asu Hlín Svavars-
dóttur, Einar Jón Briem leikur
Clifford Bradshaw, Soffía Jakobs-
dóttir leikur frk. Schneider, Rudolf
Schultz er leikinn af Þráni Karls-
syni, Gestur E. Jónsson leikur
Ernest Ludwig og Inga Hildur
Kit Kat klúbburinn í Berlín ásamt siðameistaranum (Guðjóni Pedersen) með pipuhattinn sem túlkar and-
rúmsloftið og móralinn i landinu.
Haraldsdóttir leikur frk. Kost.
Leikmynd og búninga hannaði
Karl Aspelund, hljómsveitarstjóri
er Roar Kvam. Þýðingu annaðist
Óskar Ingimarsson og lýsing er í
höndum Ingvars Björnssonar.
Sýningar á Kabarett verða í
kvöld og annað kvöld klukkan
20.30.
Kvikmyndahús - Kvikmyndahús
Regnboginn
Nýjasta mynd Johns Landis nefnist
Þrír vinir (Three Amigos). Slær
hann þar á létta strengi, enda með
fræga grínara í aðalhlutverkum.
Það þarf ekki að kynna Steve
Martin og Chevy Chase. Þeir eru
í dag meðal allra þekktustu og vin-
sælustu gamanleikara vestanhafs.
Þriðji vinurinn er aftur á móti
Martin Short, alveg óþekktur hér-
lendis en þekktur grínari vestan
hafs. Þessir þrír heiðursmenn leika
þrjár hetjur þöglu kvikmyndanna
en eru í raun hinir mestu hrak-
fallabálkar. Þegar þeir heimta
launahækkun eru þeir umsvifa-
laust reknir...
Háskólabíó
Gullni drengurinn (The Golden
Child) er fyrsta mynd Eddies Murp-
hys eftir stórsigurinn í The Beverly
Hills Cop. Þetta er ævintýramvnd
þar sem slegið er á létta strengi
eins og búast má við þegar Eddie
Murphy á í hlut. Meðleikari Murp-
hys er Charies Dance og leikur
hann barnaræningja sem rænir
barni með töframátt. Samkvæmt
spásögn getur aðeins einn maður
fundið barnið og að sjálfsögðu er
það persónan sem Eddie Murphy
leikur.
Bíóhúsið
Bíóhúsið hefur hafið sýningar á
nýjustu mynd Toms Cruise. Tom
Cruise er sjálfsagt í dag meðal dáð-
ustu leikara af yngri kynslóðinni.
All the Right Moves er unglinga-
mynd í gamansömum tón. Cruise
leikur ungan mann sem langar í
háskóla en hefur ekki efni á því.
Þess vegna verður hann að treysta
á skólastyrk og þar eru margir um
hituna...
Stjörnubíó
Hinn þekkti leikstjóri Blake Ed-
wards er kominn með enn eina
mynd og nefnist hún einfaldlega
Svona er lífið (That’s Life). Fjallar
myndin um Harvey sem er að verða
sextugur en Jack Lemmon leikur
hann. Þegar afmælið nálgast renn-
ur það upp fyrir honum að hann
vill ekki verða gamall og tekur upp
á ýmsum uppátækjum sem allir
geta ekki sætt sig við.
Tónabíó
Tónabíó sýnir spennumyndina
Fyrsti apríl (April Fool’s Day) sem
fjallar um átta háskólanema sem
dvelja eina helgi hjá einum þeirra.
Fljótt byrja óvæntir atburðir að
gerast, einn af áttmenningunum
hverfur og um leið byrjar sú sem
bauð að haga sér heldur betur und-
arlega...
Bíóborgin
Morguninn eftir
I hinu nýuppgerða Austurbæj-
arbíói, sem hér eftir heitir Bíóborg-
in, hefur verið tekin til sýningar
nýjasta kvikmynd Sidneys Lumet,
Morguninn eftir (The Morning Aft-
er). Fjallar myndin um drykkfellda
leikkonu á niðurleið sem morgun
einn vaknar í ókunnri íbúð og við
hliðina á henni er maður sem hefur
verið myrtur. Hún veit ekki hvort
hún hefur myrt hann eða ekki. I
örvæntingu ílýr hún húsið en rekst
á fyrrverandi lögregluþjón. Fer
hún aftur á morðstaðirm, reynir að
hreinsa allt sem hún kom nálægt,
finnur að einhver annar er í íbúð-
inni, flýr aftur út, rekst aftur á
íyrrverandi lögreglumanninn, býð-
ur honum heim til sín, drekkur sig
fulla, vaknar timbruð morguninn
eftir og þegar hún opnar klæða-
skápinn dettur líkið út úr hon-
um...
Það er sannarlega nóg um að
vera í byrjun góðs þriller frá Lum-
et. Jane Fonda leikur leikkonuna
og fer á kostum. Jeff Bridges leikur
lögreglumanninn átakalaust að
vanda. Sem sagt góð afþreying fyr-
ir unnendur sakamálamynda.
Kvikrnyndahús
Bíóhöllin
Að venju er hægt að velja úr
mörgum myndum í Bíóhöllinni. I
aðalsalnum er ný gamanmynd,
Með tvær í takinu (Outrageous
Fortune). Þar fara tvær góðar leik-
konur með aðalhlutverkin, söng-
konan og leikkonan Bette Midler
og Shelley Long sem flestir muna
eftir úr sjónvarpsþáttunum Cheer
eða Staupasteinn eins og þeir
nefndust á íslensku. Þá má nefna
að úrvalsmyndin Koss köngurlóar-
innar hefur fært sig um set og er
nú í Bíóhöllinni. Mynd sem allir
unnendur kvikmynda ættu að sjá.
Litla hryllingsbúðin er önnur
mynd sem óhætt er að mæla með.
Laugarásbíó
í aðalsal Laugarásbíós er sýnd
þessa dagana kanadísk-frönsk
verðlaunamynd, Hrun ameríska
heimsveldisins. Hefur þessi mynd
víðast hvað hlotið mikla athygli
og var meðal annars tilnefnd til
óskarsverðlauna. Þá má geta þess
að Einkarannsóknin er sýnd í
Laugarásbíói. Þetta er bandarísk
sakamálamynd og er framleiðandi
hennar Sigurjón Sighvatsson.
-HK
Sýningar
Árbæjarsafn
Opið samkvæmt samkomulagi.
Ásgrimssafn,
Bergstaðastræti 74
Skólasýning Ásgrímssafns hefur verið
opnuð. Sýningin er opin almenningi á
opnunartíma safnsins: sunnudaga, þriðju-
daga og fimmtudaga kl. 13.30-16. Aðgang-
ur er ókeypis.
Ásmundarsafn
við Sigtún
Opnunartími safnsins er á þriðjudögum,
fimmtudögum, laugardögum og sunnudög-
um frá kl. 14-17.
Ásmundarsalur,
Freyjugötu 9
Sýningin „Frakkland og Bandaríkin -
nýir straumar í módernisma" stendur yfir
í Ásmundarsal við Freyjugötu og verður
hún til 24. maí. Sýningin er opin alla daga
frá kl. 14-18.
Gallerí Borg,
Pósthússtræti 9
Vignir Jóhannsson opnaði í gær sýningu
á olíumyndum og kolateikningum, unnum
á þessu ári í Nýju-Mexíkó þar sem hann
er búsettur. Þetta er 9. einkasýning Vign-
is en hann hefur einnig tekið þátt í fjölda
samsýninga, bæði hér heima og erlendis.
Sýningin er opin virka daga kl. 10-18,
nema mánudaga kl. 12-18, og um helgar
frá kl. 14-18. Henni lýkur 2. júní.
Gallerí Borg,
Austurstræti 10
Á morgun opnar Edda Jónsdóttir sýningu
í Gallerí Borg, nýja sýningarsalnum, Aust-
urstræti 10, á annarri hæð. Á sýningunni
verða rúmlega 20 vatnslitaþrykk og æting-
ar, unnar seinni hluta ársins 1986 og á
þessu ári. Þetta er 8. einkasýning Eddu
en hún hefur einnig tekið þátt í fjölda
samsýninga hér heima og erlendis. Sýn-
ingin verður opin virka daga frá kl. 10-18
og um helgar kl. 14-18. Henni lýkur 3. júní.
Gallerí Gangskör
v/Lækjargötu.
1. maí sl. var opnuð sýning á klippimynd-
um, silkiþrykki og gvassmyndum eftir
Guðrúnu Sigurðardóttur Urup listmálara.
Guðrún, sem er búsett í Danmörku, hefur
tekið þátt í sýningum í Danmörku en ekki
sýnt hérlendis fyrr en nú. Sýningin er
opin kl. 12-18 virka daga en kl. 14-18 um
helgar.
Gallerí Svart á hvítu
við Óðinstorg
Á morgun verður opnuð í Gallerí Svart á
hvítu sýning á keramikskúlptúrum Borg-
hildar Öskarsdóttur. Sýningin verður opin
alla daga nema mánudaga kl. 14-18 og
lýkur henni 8. júní.
Gallerí 119
v/JL húsið
Þar eru til sýnis plaköt og verk eftir
þekkta listamenn. Opnunartími er mánu-
daga til föstudaga kl. 12-19, laugardaga
kl. 12-18 og sunnudaga kl. 14-18.
Gallerí Langbrók, Textíl,
Bókhlöðustíg 2
Eina textílgalleríið á Iandinu. Vefnaður,
tauþrykk, myndverk, fatnaður og ýmiss
konar listmunir. Opið þriðjudaga til föstu-
daga kl. 14-18 og laugardaga kl. 11-14.
Kjarvalsstaðir
við Miklatún
Fimm listamenn sýna nú á Kjarvalsstöð-
um. ívar Valgarðsson og Níels Hafstein
sýna skúlptúra í Kjarvalssal. I austurfor-
sal sýnir Ingibjörg Styrgerður Haralds-
dóttir 10 veggteppi, en hún hefur sjálf litað
ullina í teppunum. Þá er Gunnsteinn
Gíslason myndhöggvari með sýningu á
múrristum. í vestursal sýnir svo Einar
Hákonarson 77 olíumálverk. Opið er dag-
lega kl. 14-22 til 10. júní
Listasafn ASÍ,
Grensásvegi 16
Á morgun kl. 14 verður opnuð norræn
heimilisiðnaðarsýning í Listasafni ASÍ.
Sýningin stendur til 31. maí.
Listasafn Einars Jónssonar
við Njarðargötu
er opið alla daga nema mánudaga frá kl.
13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn
daglega frá kl. 10-17.
Listasafn Háskóla íslands
í Odda, nýja hugvísindahúsinu, er opið
daglega kl. 13.30-17. Þar eru til sýnis 90
verk í eigu safnsins, aðallega eftir yngri
listamenn þjóðarinnar. Aðgangur að safn-
inu er ókeypis.
Myntsafn Seðlabanka og
Þjóðminjasafns,
Einholti 4.
Opið á sunnudögum kl. 14-16.
Mokkakaffi
v/Skólavörðustíg
Sænski listamaðurinn Magnus Svartvall
sýnir verk sín á Mokkakaffi.
Norræna húsið
v/Hringbraut
Norski myndlistarmaðurinn Yngve Zakar-
ias sýnir málverk og grafík.
Nýlistasafnið, Vatnsstig 3b
I dag verður opnuð í Nýlistásafninu norsk
sýning sem er liður í skiptisýningaáætlun
milli Islands, Svíþjóðar og Noregs. Á sýn-
ingunni eru málverk, skúlptúrar, mynd-
bönd, grafík, hljóðverk, gerningur, bækur
og fl. Sýningin er opin virka daga kl. 16-20
og um helgar kl. 14-20. Sýningin stendur
til 7. júní.
Stofnun Árna Magnússonar
Handritasýning er opin á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugardögum frá kl. 14-
16.
Þjóðminjasafnið
I Bogasal Þjóðminjasafns Islands stendur
yfir sýningin Hvað er á seyði? Eldhúsið
fram á okkar daga. Þar eru til sýnis eld-
húsáhöld frá ýmsum tímum. Opið alla daga
frá kl. 13.30-16.
Póst- og símaminjasafnið
Austurgötu 11
Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl.
15-18. Aðgangur ókeypis.