Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1987, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1987, Blaðsíða 36
r FRÉTT ASKOTIÐ Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið- hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. skot, sem birtist eöa er notað í DV, greiðast 1.500 Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Augtýsingar - Áskrifft - Dreifing: Sími 27022 Enn sigrar Jóhann Spennan á millisvæðamótinu í Szirák er nú að ná hámarki. Jóhann Hjartarson, sem hefur staðið sig með stakri prýði á mótinu, vann breska skákmanninn Flear í tuttugu og tveimur leikjum í gær. Jóhann var með svart en Flear valdi Petrosjan afbrigði af Drottningar-indverskri vöm. Flear lék ónákvæmt, fékk snemma verri stöðu og gafst upp eft- ir að hafa tapað mjög mikilvægu . peði. Önnur helstu úrslit í tíundu um- ferð urðu þau, að Nunn vann Ljubojevic, Portisch vann Milos, Salov vann Allan, Andersson vann Christiansen og Benjamin gerði jafntefli við Beliavsky. Staðan á mótinu nú, þegar tiu umferðir hafa verið tefldar, er sú að Beliavsky er enn efstur með sjö og hálfan vinning, Jóhann. Nunn og Salov eru í öðru til fjórða sæti með sjö vinninga, Ljubojevic og Portisch em i fimmta til sjötta sæti með sex ... r og hálfan vinning, Andersson er með sex vinninga í sjöunda sæti og Milos er í áttunda sæti með fimm og hálfan vinning. í dag hefur Jóhann hvítt á móti Totorshevic. -KGK Forieikur í Vest- mannaeyjum í nótt sem leið var mikil ölvun i Vestmannaeyjum. Dansleikir voru í ..W þremur húsum. Lögreglan i Vest- mannaeyjum sagði að þetta hefði verið forleikur að þjóðhátíðinni sem hefst í dag. Ölvun var mikil og í morgun var ennþá eitthvað um fólk ranglandi um götur. Tveir voru teknir vegna meintrar ölvunar við akstur. Annar þeirra ók á gangandi vegfaranda. Vegfarand- inn var sendur á sjúkrahúsið en fékk að fara heim að lokinni skoðun. -sme DV kemur næst út þriðjudaginn 4. ágúst. Smáauglýsingadeild DV er opin til kl. 22 í kvöld. Lokað verður laugardag, sunnudag og mánudag. Anægjulega verslunarmanna- helgi og góða ferð. ÓVENJU LÁGT VERÐ 0PIÐ TIL KL. 16.00 Á LAUGARDÖGUM Smiðjuvegi 2, Kópavogi Símar 79866, 79494. LOKI Er „gosið“ frítt í Eyjum? Er frosið grænmeti nýtt? Troðið á rétti neytenda - segir Jónas Bjamason stjómarmaður í Neytendasanrtókunum „Landbúnaðarráðherra er með þessu að troða á rétti íslenskra neyt- enda og fara út fyrh' lagaheimildir með því að túlka þær ffjálslega. Hann býr til regnhlíf fyiir íslenska ffamleiðendur sem bindast samtök- um og halda uppi verði og einokun á innlendu grænmeti og hugsanlega erlendu," sagði Jónas Bjamason, formaður landbúnaðamefodar Neytendasamtakanna og stjómar- maður í Neytendasamtökunum. Nýlega gaf landbúnaðarráðuney- tið út túlkun sína á skilyrðum fyrir innflutningi á frosnu grænmetL Vill ráðuneytið túlka lagagrein í lögum um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum þannig að undir nýtt grænmeti mætti flokka ferskt og frosið grænmeti. Samkvæmt þess- ari túlkun má ekki fiytja grænmeti inn til landsins á meðan til em birgð- ir af frosnu grænmeti. „Ef íslenskir sjómenn væru spurðir að því hvort þeir vildu kalla frystan fisk ferskan þætti þeim það fráleitt. Það er alveg jafofráleitt að flokka ffyst grænmeti sem nýtt. Fryst græn- meti er unnið sérstaklega og því af og frá að það geti talist nýtt,“ sagði Jónas. Jónas sagði að hann teldi land- búnaðarráðherra hafe ferið út fyrir stjómvaldsheimildir sfoar með væg- ast sagt frjálslegri túlkun á lagatext- anum. Því yrði eitthvað gert. „Það er okki til neinn stjómlagadómstóll á tslandi en við munum fá lögfróða aðila til að styðja okkur í að koma í veg fyrir valdkúgun," sagði Jónas Bjamason. JF.J Verslunarmannahelgin er framundan, mesta ferðahelgi ársins. Menn láta örlitla vætu ekki á sig fá og halda galvaskir á vit náttúrunnar. Þessir skátar voru að gera sig klára fyrir helgarferðina fyrir framan Skátabúðina á Snorrabraut. Gítarar voru dregnir fram og raddir æfðar. Varðeldurinn logaði meira að segja glatt í úðanum. Góða ferð. DV-mynd Brynjar Gauti. Helgarveðrið: Hæg norðanátt um allt land „Spáin fyrir morgundaginn er hæg norðanátt um allt land og skúrir víðast hvar. Sennilega verður veðrið best á S-Austurlandi og þar er helst von til þess að sjáist til sólar. Aftur á móti gerum við ráð fyrir þvi að á sunnudag skáni veðrið og verði þá sæmilega þurrt víðast hvar,“ sagði Eyjólfur Þorbjömsson veðurfræð- ingur í samtali við DV í morgun, aðspurður um það sem allir vilja vita um þessar mundir, veðurhorfur helgarinnar. Þessari norðanátt sem spáð er fylg- ir að sjálfsögðu minna hitastig, en að sögn Eyjólfs er ekki spáð neinum kulda þótt svalara verði. „Það má segja að líkur séu á mein- lausu veðri alla helgina um allt landið eins og horfumar em núna,“ sagði Eyjólfur. Þær þúsundir manna sem em að leggjast í ferðalög í dag ættu því engu að þurfa að kvíða með veðrið fari spá Eyjólfs eftir. -S.dór Útískemmtanimar: Straumurinn liggur í Húsa- fell og til Eyja Þeim aðilum sem annast um hóp- férðir helgarinnar og DV ræddi við i morgun bar saman um að straumurinn um helgina lægi til tveggja staða, Húsafells og Vestmannaeyja. Ásgerður Jónsdóttir hjá Bifreiðastöð Islands sagði að lítið væri spurt um rútuferðir til annarra staða en Húsa- fells nema ef vera skyldi Þórsmörk. Hún sagði að í dag væm áætlaðar fimm ferðir að Húsafelli, klukkan 10 í morgun, 13.00, 15.00, 18.30 og 22.00 í kvöld. Langmest aðsókn væri í ferðina klukkan 18.30 og væri hún uppseld nema ef hægt yrði að bæta við rútum. Á morgun verða ferðir að Húsafelli klukkan 13.00 og 18.00. Margrét Gunnarsdóttir í afgreiðslu Flugleiða hf sagði að í fluginu lægi straumurinn til Vestmannaeyja. I dag em áætlaðar 13 ferðir til Eyja og væri uppselt í þær allar. Áfram verður fiog- ið á morgun en ekki jafo margar ferðir og í dag. Herjólfur fer þrjár ferðir frá Þorláks- höfo til Vestmannaeyja í dag og tvær á morgun laugardag. -S.dór Kaupmannahöfn: Fleiri íslend- ingar bíða handtöku - nokkurra leitað Fikniefoalögreglan í Kaupmanna- höfo höfo leitar nú nokkurra íslend- inga í tengslum við amfetamínmálið sem hófst með handtöku 53 ára gam- als íslendings í borginni í síðustu viku með 1,3 kíló af amfetamíni. Að sögn dönsku lögreglunnar em þetta Islend- ingar sem búsettir em í Kaupmanna- höfo en hafa nú falið sig vegna leitar lögreglunnar. Ekki fengust upplýsing- ar um hver margir þeir em en fíkni- efnamál þetta er stórt og em margir tengdir því. Tveggja kílóa af amfetam- íni er leitað í Danmörku og Svíþjóð. Verða þessir íslendingar handteknir ef þeir finnast. Tveir íslendingar sitja þegar i gæslu- varðhaldi í Kaupmannahöfo út af þessu máli, sá sem handtekinn var í síðustu viku og einn sem framseldur var frá Málmey í Svíþjóð í fyrradag. Verður varðhaldið framlengt um mán- uð á næstunni. I Málmey sitja þrír íslendingar í gæsluvarðhaldi vegna sama máls. -BTH Veðrið á morgun: Þurrt og bjart sunnan og vestanlands Margir sem ætla úr bænum á Suð- ur- eða Vesturland þurfa ekki að hafa áhyggjur af veðri þar á morgun því bjart verður og þurrt að kalla, en fremur hæg norðlæg átt og skýjað og skúrir á víð og dreif norðan og austanlands. Hiti verður 10 til 15 stig.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.