Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1987, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1987, Page 9
MÁNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1987. 27 íþróttir Síðasta Grand Prix mótíð í frjálsum íþróttum: Einar varð fimmti á síðasta mótinu og stigakeppninni - kastaði 77,56 m og sigraði fræga spjótkastara í Brussel Einar Vilhjálmsson, UÍA, varð í fimmta sæti í spjótkasti á síðasta Grand Prix mótinu i frjálsum íþróttum en mótið fór fram í Brussel um helgina. Einar kastaði lengst 77,56 metra og það dugði honum í fimmta sætið. Ein- ar skaut heimsfrægjim spjótkösturum aftur fyrir sig, þar á meðal tveimur bestu spjótkösturum Svía, þeim Peter Borglund og Dag Wennlund. Sovétmaðurinn Viktor Yevsyukov kastaði lengst allra k^þflgnda um helg- ina, 84,02 metra. f öcjrii - sæti varð Bandaríkjamaðurinrr Tom, Petranoff með 83,24 metra og þriðji Tékkinn Jan • Í stigakeppni 200 metra hlaupsins sigraði Thomas Jefferson og hlaut hann 53 stig. Calvin Smith, USA, varð annar með 52 stig og Brasilíumaður- inn Robson da Silva varð þriðji með 43 stig. • 1 110 metra grindahlaupi var hörkukeppni á milli Bandaríkjamann- anna Tonie Campbell og Gregs Foster en sá síðamefhdi sigraði glæsilega á heimsmeistaramótinu í Róm á dögun- um. Campbell sigraði og fékk tímann 13,35 sek. en Foster kom á hæla hans á 13,36 sek. Mark McKoy, Kariada, varð þriðji á 13,42 sek. Campbell sigr- aði í stigakeppninni í 110 metra grindahlaupinu, hlaut 63 stig en Greg Foster fékk 59 stig. • Búlgarska stúlkan Stefka Ko- stadinova sannaði það um helgina að hún er fremst allra kvenna i há- stökki. Kostadinova stökk 1,99 metra í Bmssel en þær Svetlana Issaeva, Búlgaríu, og Tamara Bykova, Sovét- ríkjunum, stukku báðar 1,97 metra. í stigakeppninni sigraði Kostadinova og fékk 61 stig. Louise Rittar, Banda- ríkjunum, varð önnur með 53 stig, Issaeva hlaut 44 stig og Bykova 43 stig. -SK • Tonie Campbell kemur rétt á undan Greg Foster i 110 m grindahlaupinu í Brussel um helgina. Campbell hljóp á 13,35 sek. en Foster, sem sigraði á HM i Róm á dögunum, kom í mark á 13,36 sek. Símamynd Reuter • Einar Vilhjálmsson - 5. á Grand Prix mótunum. Zelezny með 79,26 metra. Vestur- Þjóðveijinn Klaus Tefelmeier kastaði 78,16 metra og varð fjórði Fyrir aftan Einar urðu þeir Mike Hill, Bretlandi, með 77,54 metra, Peter Borglund, Sví- þjóð, með 77,52 metra og Dag Wenn- lund, landi hans, með 76,12 metra. Af úrslitunum má því sjá að sentímetra- stríðið var í algleymingi í spjótkastinu. • Bandaríkjamaðurinn Tom Petr- anoff sigraði í samanlagðri stiga- keppni spjótkastsins og hlaut 51 stig. Mike Hill varð annar með 49 stig og Sovétmaðurinn Yevsyukov þriðji með 43 stig. Tékkinn Zelezny varð fjórði í stigakeppninni með 38 stig og síðan kom Einar Vilhjálmsson í fimmta sæt- inu með 36 stig. Svíinn Peter Borglund varð sjötti með 30 stig og síðan komu þeir jafiiir með 22 stig, Dag Wenn- lund, Svíþjóð, og Klaus Tefelmeier, V estur-Þýskalandi. Lewis á 20,31 í 200 m hlaupi Bandaríkjamaðurinn Carl Lewis sigraði af miklu öryggi í 200 metra hlaupi á mótinu í Brussel um helgina. Lewis hljóp á 20,31 sek. en Thomas Jefferson, jandi hans, varð annar á 20,43 sek. í sérstöku hlaupi, þar sem mörgum snjöllum hlaupurum var boð- ið til þátttöku, sigraði Ben Johnson, Kanada, á 20,76 sek. • Carl Lewis, öruggur sigurvegari í 200 m hlaupi. I0H i ■ ', - v -:v Texas Instruments reiknivélar og tölvur Tölvusalan hf. Suðurlandsbraut 20 býður nú fjölbreytt úrval af Texas Instruments vasareiknivélum jafnt fyrir háskóla sem grunnskóla. ÚTSÖLUSTAÐIR: Tölvusalan hf. Suðurlandsbraut 20 Bókabúð Braga v/Hlemm Penninn Hallarmúla Fjölhæfar Sterkar Fallegar Endingargóðar 2 ára ábyrgð Sendum í póstkröfu Tölvusalan HE Heildsaia - smásala ® 91-84779

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.