Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1987, Page 11
MÁNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1987.
29
Iþróttir
Steindautt jafn-
tefli í Laugardal
- Framarar höfhuðu í öðru sæti eftir markalaust jafntefli við ÍBK
„Mikill vindur gerði allar aðstæður
til að leika knattspymu mjög erfiðar.
Leikurinn skipti bæði liðin litlu máli
og af þeim sökum var erfitt að ná ein-
beitingu. Keflvíkingar börðust vel í
leiknum. Ef til vill voru mínir leik-
menn með hugann við Evrópuleikinn
á miðvikudaginn kemur,“ sagði Ásgeir
Elíasson, þjálfari Fram, eftir að Fram
og Keflvíkingar höfðu gert jafntefli,
0-0, í lokaumferð íslandsmótsins í
knattspymu á Laugardalsvelli sl.
laugardag.
Bæði liðin virtust lítinn áhuga hafa
á leiknum sem var afspymuleiðinlegur
á að horfa. Fram hreppti því silfur-
verðlaunin á mótinu. Keflvíkingar
sigldu lignan sjó fyrir þennan leik
enda komnir af hættusvæði deildar-
innar. Hvassviðrið setti einnig svip á
leikinn og áttu leikmenn í hinum
mestu erfiðleikum með að hemja
knöttinn.
Framarar sóttu mun meira í leiknum
og sköpuðu sér oft hættuleg mark-
tækifæri. Þorsteinn Bjamarson,
markvörður Keflvíkinga, var hins veg-
ar fastur fyrir og varði oft vel. í eitt
skipti um miðjan fyrri hálfleikinn
varði Þorsteinn glæsilega langskot frá
Jóni Sveinssyni vamarmanni sem
leyfði sér þann munað að skreppa í
sóknina.
í seinni hálfleik sóttu Framarar án
afláts en allt kom fyrir ekki. Þegar
upp að marki Keflvíkinga kom var
Þorsteinn Bjamarson alltaf á réttum
stað í markinu.
Framarar sýndu ekki sitt rétta and-
lit í leiknum, hafa oft í sumar leikið
miklu betur. Leikmenn tóku greini-
lega enga áhættu enda er framundan
mikilvægur leikur í Evrópukeppninni.
Ormar Örlygsson var skástur í liði
Fram og skapaði oft mikla hættu með
sínum frægu sendingum fyrir markið.
Friðrik í markinu átti mjög náðugan
dag, kom sárasjaldan við knöttinn.
Þorsteinn Bjamarson var bestur
Keflvíkinga, einnig átti Jóhann
Magnússon bakvörður góðan leik.
Sæmilegur dómari leiksins var Gísli
Guðmundsson. -JKS
• Guðmundur Steinsson reynir hér að leika á einn vamarmanna ÍBK. Hvorug-
ur haföi erindi sem erfiði í leiknum. DV-mynd Brynjar Gauti
FH-ingamir kvöddu
1. deild með sigri
- unnu Keflvikinga, 4-1, á Kaplakríkavelli
FH-ingar kvöddu 1. deildina með
sæmd á laugardag þegar liðið vann
stórsigur á Þórsurum, 4-1 , á Kapla-
krikávelli. Þrátt fyrir sigurinn falla
FH-ingar í 2. deild eftir þriggja ára
vem í þeirri fyrstu. FH-ingar litu þó
ekki út fyrir að vera botnliðið á laug-
ardag því þeir höfðu allmikla yfirburði
gegn slökum Þórsurum. Það var alla-
vega ekki að sjá að Þórsarar væm að
berjast fyrir Evrópusæti því allan
metnað og baráttu vantaði í liðið.
FH-ingar vom mun ákveðnari í
leiknum og léku oft á tíðum stórvel í
rokinu og kuldanum. FH-ingar náðu
forystunni á 27. mínútu leiksins. Viðar
Halldórsson tók homspymu og bolt-
inn datt niður á vítateigspunkti þar
sem Guðmundur Hilmarsson þrumaði
í stöng og inn. Skömmu síðar leit ann-
að markið dagsins ljós og var það
jafhframt stórglæsilegt. Kristján
Hilmarsson lék á þrjá Þórsara rétt
utan vítateigs og skaut síðan hörku-
skoti sem hafhaði í vinklinum og
þaðan í netinu. Þórsarar fengu einnig
færi og litlu munaði upp við FH-
markið þegar Halldór Áskelsson
skallaði í stöngina i upphafi síðari
hálfleiks. Það vom hins vegar FH-
ingar sem bættu við og var þar á
ferðinni Hlynur Eiríksson. Brotið var
á Hlyni innan vítateigs en honum
tókst að pota boltanum í markið og
Eyjólfur Ólafsson dómari dæmdi rétti-
lega mark. Þórsurum tókst að minnka
muninn á 71. mínútu þegar Ámi Stef-
ánsson skoraði eftir þunga sókn.
FH-ingar vom þó ekki lengi að svara
fyrir sig því í næstu sókn skoraði
Pálmi Jónsson eftir að hafa leikið á
Baldvin, markvörð Þórs. Bæði lið áttu
síðan ágætissóknir en þó árangurs-
lausar og stórsigur FH var í höfh.
FH-ingar sýndu í þessum leik að lið-
ið getur leikið af krafti og skorað
mörk. Það kom þó fullseint og kemur
ekki í veg fyrir að 2. deildar knattr
spyma verður leikin í Kaplakrika
var besti maður FH í þessum leik en
reyndar stóðu flestir leikmenn liðsins
sig vel.
Þórsliðið olli miklum vonbrigðum
að þessu sinni. Leikmenn náðu ekki
að sýna sitt rétta andlit og gerðu meira
að þrasa og rífast heldur en að spila
fótbolta. Jónas Róbertsson var einna
skástur og þá átti Baldvin ágætan leik
í markinu og verður ekki sakaður um
mörkin.
Dómari var Eyjólfur Ólafsson og
stóð hann sig vel í heildina þrátt fyrir
FRONSKUNAMSKEIÐ
ALUANCE FRANCAISE
//
13 vikna haustnámskeið hefst mánudaginn 21. sept-
ember. Kennt verður á öllum stigum ásamt bók-
menntaklúbbi, barnaflokki og unglingaflokki.
Einkatímar eftir óskum. Undirbúningur fyrir próf í A.F.
í París.
Innritun fer fram á bókasafni Alliance Francaise, Lauf-
ásvegi 12, alla virka daga frá kl. 14.00 til 19.00 og
hefst fimmtudaginn 10. september. Allar nánari upp-
lýsingar fást í síma 23870 á sama tíma.
Veittur er 10% staðgreiðsluafsláttur og 15% stað-
greiðslafsláttur fyrir námsmenn. Ath. Greiðslukorta-
þjónusta (EURO, VISA).
nú skaltu
takaþér
tak!
og það tonnatak, því að 7. sept hefjast
meiriháttar leikfiminámskeið hjá
RÆKTINNI fyrir konur og karla á
öllum aldri sem vilja ná af sér
aukakílóunum eða bara halda
sér í góðri líkamlegri þjálfun.
Við höfum breytt og bætt húsnæðið, og
höldum áfram þar sem frá var horfið
í vor og bjóðum upp á ýmsar nýjungar
AERÓBIC FYRIR
BYRJENDUR
AERÓBIC 2
BODYWORK1
BODYWORK2
MÚSIK-LEIKFIMI Kennaramir Hanna, Gústav og Kristln
Það er yndislegt að láta líða úr sér í Ljósalamparnir eru frábærir og
vatnsgufunni á eftir halda á manni lit allt árið
þú veist að þetta er eina
líkamsræktin í vesturbænum!
ATHUGIÐ að
innritun er hafin
u
mf
• Pálmi Jónsson sést hér skora fjóröa og siðasta mark FH gegn Þór og jafn- sJ
framt siðasta mark FH-inga I 1. delld að sinnl. DV-mynd GUN f I
Breyttur og betri tækjasalur
'Í’ Hérna að Ánanaustum 15 erum við !
á jaröhæöinni
RÆKTIN
LÍKAMSRÆKT
ÁNANAUSTUM 15 - RVÍK
SfMI12815