Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1987, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1987, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1987. 21 Stöð 2 suimiid. kl. 20.35: Nærmynd af Birgi Jón Óttar Ragnarsson, sjón- varpsstjóri Stöðvar 2, mun bregða upp nærmynd af Birgi Sigurðssyni rithöfundi. Með leikriti sínu, Dagur vonar, sem hiotið hefur metaðsókn hjá Leikfélagi Reykjavíkur, hefur Birgir Sigurðsson skotist upp á stjömuhimin íslenska leikhúslífs- ins. Það er Maríanna Friðjónsdóttir sem sér um dagskrárgerð. Birgir Sigurðsson rithöfundur. Útvarp, rás 1, suirnud. 27. sept. kl. 13.30: „Mig langar að sjá árroðans strönd" Þetta er þáttur í tilefni af aldarafmæh Jónasar Guðlaugssonar skáids. Gunnar Stefánsson tók dagskrána saman. Lesarar em Guðný Ragnars- dóttir og Viðar Eggertsson. Jónas fæddist 27. sept 1887 á Staðarhrauni í Mýrasýslu en lést 15. apríl 1916 á Skagen á Jótlandi og er þar grafinn. Á skömmum æviferli gaf hann út allmargar bækur, ljóð og sögur. í dagskránni e.- térill Jónasar rakinn og í því sambandi lesið úr greinum ýmissa manna. tíinnig er les- ið úr ljóðum Jónasar og kafli úr skáldsögu hans, Sólrún og biðlar hennar. Sjónvarpið laugardag kl. 23.05: Olía í OÍdahóma Sjónvarp laugd. kl. 19.30: TSOLí Smellum Núna á laugardaginn munu þeir Skúli Helgason og Snorri Már Skúlason fjalla um bandarísku rokkhljómsveitina TSOL og spjalla jafnframt við Mike Roche, bassa- leikara og söngvara sveitarinnar. TSOL er væntanleg til landsins og mun halda hér tvenna tónleika um næstu helgi. Hljómsveitin TSOL verður kynnt i Smellum á laugardag en hljómsveitin er væntanleg um næstu helgi hingað til lands. Sjónvarp laugardkv. kl. 22.30: Þjóðlaga- söngur Þá mun hin kunni breski þjóð- lagasöngvari, Ralph McTell, skemmta áhorfendum en upptakan var gerö á næturklúbbi í London. Ralph er líklega kunnastur fyrir lag sitt, The Streets of London, en það hefur heyrst í mörgum útsetn- ingum. Ralph á sína traustu aðdáendur og er ekki að efa að margir munu gleðjast yfir þætti hans. Jeremy Brett og David Burke í hlutverkum Holmes og Watsons. Stöð 2 suimudag kl. 19.45: Holmes veður reyk Lengi lifir í gömlum glæðum, það sannast best á vinsældum sagn- anna um Sherlock Holmes. Nú hefjast sýningar á breskum fram- haldsmyndaflokki um þau ævin- týri sem Holmes og hinn tryggi félagi hans, dr. Watson, rötuðu í. Jeremy Brett og David Burke leika þá Holmes og dr. Watson og þykja sýna stórkostleg leiktilþrif. Um þá var sagt í Sunday Times: „Jeremy Brett og David Burke eru þeir bestu sem hafa sést í hlutverkum Holmes og dr. Watsons. Þessir þættir eru sú besta aðlögun að bókmennta- verki sem sést hefur síðan DýTasta djásnið var sýmt.“ í þættinum á sunnudagskvöldið veröur Holmes vitni að harmleik í reykfylltu húsi eftir að ráðvilltur túlkur og forkunnarfógur kona hafa leitt hann þangað. Stöö 2 sunnud. kl. 15.55: mann (George C. Scott) sem ein- göngu hefur áhuga á peningum. Myndin er síðan 1973 og er Stanley Kramer leikstjóri. Aðalleikararnir í myndinni „Olía í Oklahóma" George C. Scott, John Milis og Jane Fonda. Laganeminn James T. Hart. Af laganámi Þá verður á dagskránni mynd sem enginn laganemi getur látið framhjá sér fara. Myndin segir frá samskiptum úrvalsnemanda nokk- urs í lögfræðiskóla og lærimeistara hans sem leikinn er af hinum fræga og virta leikara, John Houseman. Lögfræðinámið getur verið erfitt eins og véra ber en James T. Hart (James Stephens) gefur sér þó öðru hverju tima til að hta upp úr bók- unum. Það verður nóg af stjörnum í laugardagsmynd sjónvarpsins því þar leiöa saman hesta sína þau George C. Scott og Jane Fonda auk Johns Mills. Myndin segir frá kjarnakonunni Lenu (Jane Fonda) sem ætlar sér að standa uppi í hár- inu á stórfyrirtækinu Oklahóma Oil Co. og nýta sjálf gjöfula olíuhnd á landi sínu. Faðir hennar (John Mills) vill aðstoða hina þrjósku dóttur sína og ræður aðstoðar- Ralph McTell þjóðlagasöngvari.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.