Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1987, Blaðsíða 7
29
FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1987.
Ferðalög
Skógarferð í Fossvogsdal
Á morgun, laugardag, kl. 13.30 fer Nátt-
úruvemdarfélag Suðvesturlands vett-
vangsferð um skógræktarstöð Skógrækt-
arfélags Reykjavíkur í Fossvogi.
Vilhjálmur Sigtryggsson, forstöðumaður
Skógræktarfélagsins, mun ganga með
okkur um skóginn og sýna það sem fyrir
augun ber. Hann mun kynna þær trjáteg-
undir sem ræktaðar em á svæðinu og
leiðbeina með söfnun á birkifræi. Haustlit-
imir setja mjög fallegan svip á skóginn
þessa dagana og þrestir og ýmsir flækings-
fuglar safnast þar saman. Turtildúfur og
netlusöngvarar hafa sést þar undanfarið.
Allir era velkomnir. Vettvangsferðin tek-
ur um eina og hálfa klukkustund.
Útivistarferðir
Sunnudagsferðir 27. sept.
Kl. 9: Línuvegurinn - Hlöðufell. Ekið um
línuveginn norðan Skjaldbreiðar á Hlöðu-
velli og gengið á fjallið. Verð kr. 1.000.
Kl. 9: Línuvegurinn - Brúarárskörð.
Gengið frá upptökum Brúarár á Rótasandi
um hin sérstæðu Brúarárskörð. Verð
kr.1000.
Kl. 10.30: Söguskoðunar- og haustlita-
ferð á Þingvelli. Leiðsögumaður verður
Sigurður Lindal prófessor sem þekkir
sögu Þingvalla flestum betur. ATH.
Engin ferð verður kl. 13. Heimkoma úr
Þingvallaferð er kl. 16.30 síðdegis.
Kl. 8: Þórsmörk, einsdagsferð. Nú eru
haustlitirnir í hámarki. Verð 1000 kr.
Brottför frá BSÍ, bensinsölu. Sjáumst.
Helgarferðir 25.-27. sept.
1. Jökulheimar - Veiðivötn - Hraun-
vötn. Gist í skála í Jökulheimum. Ein
fjölbreyttasta óbyggðaferð haustsins.
Gengið verður um nágrenni Jökulheima
og um vatnasvæðin. Haustlitir í hámarki
í Veiðivötnum. Farastjóri: Þorleifur Guð-
mundsson.
2. Haustlitaferð í Þórsmörk. Frábær
gistiaðstaða í Útivistarskálunum í Básum.
Gönguferðir við allra hæfi. Pantið tíman-
lega. Uppl. og farm. á skrifstofunni,
Grófinni 1, símar: 14606 og 23732.
Einsdagsferð í Þórsmörk verður sunnu-
daginn 27. september kl. 8. Ekki þarf að
panta. Sjáumst.
Ferðafélag íslands
Dagsferðir sunnudaginn 27. sept.
1. Kl. 10: Hátindur Esju. Verð kr. 500.
Munið að vera í hlýjum fotum og þægileg-
um skóm.
2. Kl. 13: Brynjudalsvogur - náttúru-
skoðun. Ekið verður í Brynjudalsvog og
gengið í fjömborðinu og eins upp til lands-
ins. Verð kr. 600. Brottför frá Umferðar-
miðstöðinni, austanmegin. Farmiðar við
bíl. Frítt fyrir böm í fylgd fullorðinna.
Töluvert er enn af óskilamunum' frá ferð-
um sumarsins á skrifstofu FÍ.
Helgarferðir Ferðafélagsins 25.-27. sept.
1. Landmannalaugar - Jökulgil. Gist
verður í sæluhúsi FÍ í Laugum (þar er
hitaveita, góð eldunaraðstaða og svefn-
pláss notalegt). Þetta er einstakt tækifæri
til að skoða Jökulgilið en á haustin
minnkar vatn í Jökulgilskvíslinni og verð-
ur þá gilið fært bílum.
2. Þórsmörk - Langidalur. Þórsmörk er
aldrei fegurri en á haustin og aðstaðan í
Skagfjörðsskála er frábær. Ferðamenn
njóta dvalarinnar í Þórsmörk, inni sem
úti. Upplýsingar og farmiðasala á skrif-
stofu FI, Öldugötu 3. Brottför í ferðimar
á föstudag kl. 20.
Félagsvist
Húnvetningafélagið
í Reykjavík
Félagsvist verður spiluð laugardaginn 26.
september kl. 14 í félagsheimilinu, Skeif-
unni 17. Allir velkomnir.
Vikan
Litið í Víkuspegil á tímamótum því nú hefur Vikan vistaskipti
Israel - til heilsubótar
Laila og Saima eru konur
sem fórna öllu fyrir föðurlandið
Vélvæddur fugl
- Ævintýraferð með Hans Óla Hansen
VIÐTÖL:
Þórarinn Jón Magnússon
Nafn Vikunnar
★
Lífið í Lúx - rætt við íslenskar
mæðgur í Lúxemborg
Frá Borgarfirði til Buenos
Aires
- Anna Erla Magnúsdóttir
Ross
HRESSTBLAÐVIKULEGA
HELGARBLAÐ
Frjálst.óháö dágblað
A MORGUiM
Einu sinni sá Derrick
lögregluforingi einn um
að hafa hendur í hári
glæpamanna á sjón-
varpsskjánum. Síðasta
árið hefur honum bæst
verulegur liðsauki í bar-
áttunni við illþýðið því
nú geta íslenskir sjón-
varpsáhorfendur fylgst
með níu sakamálaþátt-
um og þeim á eftir að
fjölga. Allt um sakamál
sjónvarpsstöðvanna í
helgarblaðinu.
Þeir sem á undanförnum
árum hafa átt leið um Kefla-
víkurflugvöll þekkja þjóninn
sem afgreiddi á barnum í
gömlu flugstöðinni og síðan
í þeirri nýju. Hann heitir Vil-
hjálmur Schröder og lærði
list sína á Borginni í gamla
daga. Nú hefur honum verið
sagt upp. Hann er ósáttur við
þá meðferð en „hvað geta
gamlir menn sagt?" spyr
hann í viðtali við helgarblað-
ið.
Jonathan Motzfeldt er umdeildur
maður á Grænlandi. Hann á
undir högg að sækja í pólitíkinni
en slúðurkerlingar hafa hann í
hávegum. Blaðamaður DV var á
ferð á Grænlandi og segir frá
Motzfeldt og löndum hans í helg-
arblaðinu.