Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1987, Qupperneq 5
FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1987.
27
DV-mynd Brynjar Gauti
r“ Sigurðar
aö málaralist Sigurðar sé í ætt við eldflaugar þær sem skjóta gerfitunglum meö
feiknakrafti út í geiminn, en sjá um leið til þess að þau lendi á réttri sporbraut.“
Gallerí Svart á hvítu er opið frá kl. 14 til 18 aUa daga nema mánudaga. Síð-
asti sýningardagur er 11. október.
lingar hjá MÍR
einum eða öörum hætti 70 ára afmæli októberbyltingarinnar sem minnst verður
í nóvemberbyrjun. Sunnudaginn 27. sept. kl. 16 verður sýnd klukkustundar löng
kvikmynd um Sovétríkin, hið víðlenda ríkjasamband. Skýringar á íslensku flyt-
ur Sergei Hahpov, háskólakennari í Leningrad, en hann hefur verið aðaltúlkur-
inn í hópferðum MÍR til Sovétríkjanna undanfarin ár.
Aðgangur að kvikmyndasýningum MÍR að Vatnsstíg 10 er ókeypis og öllum
heimill meðan húsrúm leyfir.
Akureyri:
Þráinn sýnir
,,Er það eirúeikið“
Þráinn Karlsson leikari er nú aö
hefja sýningar aö nýju á tveimur
einþáttungum eftir Böðvar Guð-
mundsson sem saman ganga undir
nafninu „Er það einleikið“. Þráinn
flutti þessa einþáttunga sl. vetur í
Reykjavík og á Akureyri og fékk
mjög góða dóma gagnrýnenda.
Böðvar Guðmundsson samdi
þessa einþáttunga sérstaklega fyrir
Þráinn að beiöni hans, en á sl. ári
voru 30 ár liðin frá því að Þráinn
steig fyrst á fjalimar hjá Leikfélagi
Akureyrar. Einþáttungamir nefn-
ast „Varnarræða mannkynslausn-
ara“ og „Gamli maðurinn og
kvenmannsley sið“.
Þráinn er eini leikarinn sem
kemur fram í sýningunni og þótti
fara á kostum í þessu verki sl. vet-
ur að mati gagnrýnenda. Leikstjóri
er Þórhildur Þorleifsdóttir.
Fyrsta sýningin veröur í Sam-
komuhúsinu á Akureyri annað
kvöld og hefst kl. 20.30. Onnur sýn-
ing verður síðan á sama stað og
sama tíma á sunrtudagskvöld en
alls eru áformaðar fimm sýningar
á Akureyri. Aö þeim sýningum
loknum heldur Þráinn meö sýning-
una úr bænum og ætlar að sýna
hana víðsvegar um Norðurland.
Kristiim og Jónas á Sauðárkróki
Sunnudaginn kl. 16 halda þeir Kristinn Sigmundsson og Jónas Ingi-
mundarson tónleika í Safnahúsinu á Sauðárkróki.
Á tónleikunum flytja þeir íslensk lög af ýmsu tagi, svo sem Hamraborg-
ina eftir Sigvalda Kaldalóns, Vor hinsti dagur er hniginn eftir Þórarin
Guðmundsson og Litla kvæðiö um htlu hjónin eftir Pál ísólfsson. Auk
þess flytja þeir lög úr amerískum söngleikjum og ítölsk sönglög. Síðast
en ekki síst má telja Ijóðaflokkana Don Quichotte a Dulcinée eftir Maurice
Ravel og Dichterlibe eftir Robert Schumann.
Ragnar Kjartansson myndlistar-
maður sýnir í Hveragerði.
Ragnar
sýnir í
Hveragerði
Nú stendur yfir sýning Ragnars
Kjartanssonar myndhöggvara á
keramikmálverkum og höggmynd-
um í Heilsuhælinu í Hveragerði.
Sýningin er sett upp í tilefni af 50
ára afmæli Náttúrulækningafé-
lags íslands og gaf hstamaðurinn
félaginu verk eftir sig, keramik-
málverið Parið. Sýningin hófst
sunnudaginn 20. september og
stendur til 31. október.
starfsmenn Múlabæjar efna til flóamark-
aðar í húsakynnum heimilisins að Ármúla
34, Reykjavík. Sala hefst kl. 14. Á boðstól-
um er mikið úrval af ágætum fatnaði,
blómum, húsmunum og jafnvel leikföngum
sem að hluta til eru smíðuð á stofnun-
inni. Verðið er við allra hæfi og er
almenningur hvattur til þess að koma,
kaupa og styrkja góðan málstað.
Kvennadeild
Flugbjörgunarsveitarinnar
í Reykjavík
heldur útimarkað á Lækjartorgi í dag. Á
boðstólum eru kökur og fl. Ágóðinn renn-
ur til styrktar húsbyggingu F’lugbjörgun-
arsveitarinnar.
Sjálfsbjörg, landssamband
fatlaðra
verður með opið hús laugardaginn 26.
september í Hátúni 12. Húsið verður opnað
kl. 14. Kl. 14.30 verður skoðunarferð um
húsið, lagt af stað fyrir framan endur-
hæfingastöðina. Síðan verður farið ú
hálftíma fresti frá sama stað. Kl. 15 syngur
Jóhanna Þórhallsdóttir við undirleik
Svönu Víkingsdóttur og kl. 16 munu Gísli
og Herdís lífga upp á stemninguna. Iþrótt-
ir, ljósmyndir og litskyggnur. Kaffiveit-
ingar á lágu verði. Merkjasöludagur
Sjálfsbjargar er sunnudaginn 27. septemb-
er.
Doktorsvörn
Laugardaginn 26. september fer fram dokt-
orsvörn við læknadeild Háskóla íslands.
Stefán Skaftason læknir ver doktorsrit-
gerð sína sem íjallar um eyrnaskurðlækn-
ingar á íslandi 1970 til 1980. Heiti
ritgerðarinnar er „Otosurgery in Iceland
1970-1980“. Andmælendur af hálfu lækna-
deildar verða prófessor Otto Meurman frá
Ábo Universittet og dr. med. Ole Bentzen,
yfirlæknir frá Árósum. Prófessor Davíð
Davíðsson stjórnar athöfninni. Doktors-
vömin fer fram í Odda, stofu 101, og hefst
kl. 14. Öllum er heimill aðgangur.
Squashmót
Sunnudaginn 27. september fer fram fyrsta
squashmót vetrarins. Mótið er eitt af fjór-
um squashmótum á vegum eftirtalinna
aðila: Stjömunnar fm-102,2, Dansstúdíós
Sóleyjar og Veggsports hf. Mótið nefnist
„Opna Stjömu - Matin Bleu mótið" og
verður það haldið í Dansstúdíói Sóleyjar
og hefst það kl. 13. Verðlaun á þessu móti
eru gefin af Sportvöruþjónustunni og eru
það íþróttavörur frá Matin Bleu. Þátttaka
tilkynnist í Veggsport hf. í síma 19011 eða
í Dansstúdíó Sóleyjar í síma 687701 fyrir
kl. 13 laugardaginn 26. september.
Hallgrímskirkja
-starf aldraðra
Nk. sunnudag, 26. september. verður farið
til Garðakirkju og verið þar við guðs-
þjónustu. Prestur verður sr. Bragi Frið-
riksson. Á eftir verður drukkið messukaffi
í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli. Nánari
upplýsingar gefur Dómhildur Jónsdóttir í
síma 39965.
Laugardagsganga Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Frístundahóps-
ins Hana nú í Kópavogi verður laugardag-
inn 26. september. Lagt af stað frá
Digranesvegi 12 kl. 10. Einfalt og skemmti-
legt frístundagaman. Góður félagsskapur.
Nýlagað molakaffi. Allir velkomnir.
Tónleikar
Tónleikar á Akureyri
Tónleikar verða haldnir í sal Tónlistar-
skólans á Akureyri laugardaginn 26.
september kl. 17 síðdegis. Flytjendur eru
Signý Sæmundsdóttir sópran og Þóra
Fríða Sæmundsdóttir píanóleikari. Á efn-
isskránni em lög eftir Pál Isólfsson,
Þórarín Guðmundsson, Sigvalda Kalda-
lóns. J. Haydn. R. Strauss. A. Berg og
óperuaríur.
Fyrirlestur
Fyrirlestur um grafík
Clinton Adams verður með fyrirlestur í
menningarstofnun Bandaríkjanna við
Neshaga í kvöld. 25. september. kl. 20.
Clinton er annar af stofnendum Tamarind
Institute og stjómandi til 1985. Fyrirlest-
urinn mun fjalla um nýja grafíkverkstæðið
í Bandaríkjunum, þróun grafíklistar fyrr
og nú með sérstakri áherslu á Tamarind.
Veitingar að loknum fyrirlestri.
Leikhús
Þjóðleikhúsið
Rómúlus mikli eftir Friedrich Durren-
matt verður á fjölum Þjóðleikhússins
fóstudags-. laugardags- og sunnudags-
kvöld.
Ég dansa við þig. Danssýning Islenska
dansflokksins verður á dagskrá aftur 30.
september og er miðasala hafin.
Leikfélag Reykjavíkur
Dagur vonar, fyrsta sýning á þessu leik-
ári, verður í Iðnó í kvöld kl. 20 og önnur
á sunnudagskvöld.
Djöflaeyjan verður sýnd í Skem-
munni í kvöld og laugardagskvöld
kl. 20.
Faðirinn. 3 sýning laugardagskvöld kl.
20.30.
Sýningar
Árbæjarsafn
Opið um belgar frá kl. 12.30-18 í septemb-
er. ^
Ásgrímssafn,
Bergstaðastræti 74
Sumarsýning safnsins er opin alla daga
nema laugardaga kl. 13.30-16.
Ásmundarsafn
við Sigtún
Um þessar mundir stendur vfir sýningin
Abstraktlist Ásmundar Sveinssonar. Þar
gefur að líta 26 höggmyndir og 10 vatns-
litamvndir og teikningar. Þá er einnig til
sýnis videomvnd sem fjallar um konuna í
list Ásmundar Sveinssonar. Þá eru til sölu
bækur. kort. litskvggnur, videomvndir og
afstevpur af verkum listamannsins. Safnið
er opið daglega vfir sumarið kl. 10-16.
Ásmuhdarsalur
v/Freyjugötu
Jakob Jónsson opnaði sína 4. einkasýn-
ingu í Ásmundarsal v/Frevjugötu sl.
laugardag en sýningin er opin virka daga
kl. 16-22 og um helgar kl. 14-22. Sýning-
unni lýkur 4. október.
Gallerí Borg,
Pósthússtræti 9
Anna S. Gunnlaugsdóttir sýnir í Gallerí
Borg við Pósthússtræti. Á sýningunni eru
verk unnin með akrýl á striga og pappír.
Þetta er seinni sýningarhelgin og er opið
virka daga kl. 10-18 en um helgina kl.
14-18. Sýningunni lýkur þriðjudaginn 29.
september.
Gallerí Grjót,
Skólavörðustig
Samsýning í tilefni 4 ára starfsafmælis
gallerísins stendur yfir. Á sýningunni eru
skúlptúrar, málverk og grafík. Þeir sem
að sýningunni standa eru Jónína Guðna-
dóttir, Magnús Tómasson, Ófeigur Bjöms-
son. Ragnheiður Jónsdóttir, Steinunn
Þórarinsdóttir, Þorbjörg Höskuldsdóttir
og örn Þorsteinsson. Sýningin er opin
virka daga frá kl. 12-18.
Gallerí List,
Skipholti 50,
nýr sýningarsalur og listmunaverslun.
Sýning á handblásnu gleri frá Noregi,
Finnlandi og Bretlandi. Sýningin stendur
til 3. október. Opið virka daga kl. 10-18
og laugardaga kl. 10-12.
Gallerí119
v/JL húsið
Þar eru til sýnis plaköt og verk eftir
þekkta listamenn. Opnunartími er mánu-
daga til föstudaga kl. 12-19, laugardaga
kl. 12-18 og sunnudaga kl. 14-18.
Gallerí íslensk list,
Vesturgötu 17
Þar stendur yfir samsýning Listmálarafé-
lagsins. Þar eru sýnd verk 14 þekktra
listamanna. Þetta er sölusýning. Sýningin
er opin mánudaga til föstudaga kl. 9-17.
Gallerí Langbrók, Textíll,
Bókhlöðustíg 2,
textílgallerí. Til synis vefnaður, tauþrykk,
myndverk, módeífatnaður og fleiri list-
munir. Opið þriðjudaga til föstudaga kl.
12-18 og laugardaga kl. 11-14.
ssT
SIP
kolsýrusuðuvélunum
110 AMP vél með segul-
rofa, tekur 0,6 mm úr og
0,8 mm.
Verð
16.910
m/söluskatti
130 AMP vél sem notar 24 volta
DC straum. Er með segulrofa,
notar 0,6 mm vír og 0,8 mm.
Verð
13.926
m/söluskatti
120 AMP vél á hjólum, er með
segulrofa. Notar 0,6 mm og 0,8
mm vír.
Verð 17.575 m/söluskatti
Öllum vélunum fylgir virrúlla og
gashylki. Eigum einnig fyrirliggj-
andi 140 AMP og 160 AMP
vélar.
Opið á laugardögum kl.
10-13.
Tjöhnson
rsteinsson
Armúla 1, sími 685533