Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1987, Qupperneq 1
Dansstaðir - Matsölustaðir - Leikhús - Sýningar - Kvikmyndahús - Myndbönd o. fl.
ABRACADABRA,
Laugavegi 116
Diskótek föstudags- og laugardagkvöld.
ÁRTÚN,
Vagnhöfða 11, sími 685090
Gömlu dansarnir á föstudagskvöld. Opið
kl. 21-3. Nýju og gömlu dansamir laugar-
dagskvöld, opið kl. 22-03. Hljómsveitin
Danssporið ásamt söngkonunni Krist-
björgu Löve bæði kvöldin.
BROADWAY,
Alfabakka 8, Reykjavík, sími 77500
Sveitin milli sanda leikur fyrir dansi föstu-
dags- og laugardagskvöld. Stórsýningin
„Allt vitlaust" á laugardagskvöld.
CASABLANCA,
Skúlagötu 30
Diskótek föstudags- og laugardagskvöld
frá kl. 22-3.
DUUS-HÚS,
Fischersundi, simi 14446
Diskótek föstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöld, opið frá kl. 22 til 03. A
sunnudagskvöld verða jasstónleikar í
Heita pottinum og verður það Gítarkomp-
aníið sem kemur fram.
EVRÓPA
v/Borgartún
Hljómsveit hússins, Saga Class, leikur fyr-
ir dansi föstudags- og laugardagskvöld.
Húsið er opið frá kl. 22-3.
GLÆSIBÆR,
Álfheimum
Hljómsveit hússins leikur fyrir dansi
föstudags- og laugardagskvöld frá kl. 22-3.
HOLLYWOOD,
Ármúla 5, Reykjavík
Tónlist 7. áratugarins verður á föstudags-
og laugardagskvöld með „Leitinni að
týndu kynslóðinni". Húsið opið 22-3.
HÓTEL BORG,
Pósthússtræti 10, Reykjavík, sími 11440
Diskótek föstudags- og laugardagskvöld.
Gömlu dansamir á sunnudagskvöld.
Hljómsveit Jóns Sigurðssonar leikur.
HÓTEL ESJA, SKÁLAFELL,
Suðurlandsbraut 2, Reykjavík, simi
82200
Dansleikir föstudags- og laugardagskvöld.
Hljómsveitin Kaskó leikur. Tískusýning
öll fimmtudagskvöld.
HÓTELSAGA
v/Hagatorg, Reykjavík, sími 20221
Einkasamkvæmi föstudagskvöld. Hljóm-
sveit Grétars örvarssonar leikur fyrir
dansi í Súlnasal Hótel Sögu á laugardags-
kvöld. „The Wiz“, glæsileg söng- og
danssýning á miðnætti. Þá mætir Bjarni
Arason látúnsbarki með stórkostlega sýn-
ingu í minningu Elvis Presley. Á Mímisbar
leikur Stefán Jökulsson.
LENNON
v/Austurvöll, Reykjavík, simi 11630
Diskótek föstudags- og laugardagskvöld
MIAMI,
Skemmuvegi 34, Kópavogi, sími 74240
Diskótek föstudaga og laugardaga. Ald-
urstakmark 16 ár.
ÚTÓPÍA,
Suðurlandsbraut 26
Diskótek föstudags- og laugardagskvöld.
ÞÓRSKAFFI,
Brautarholti 2, Reykjavík, sími 23333
Hljómsveit Stefáns P. leikur á efri hæð
hússins föstudags- og laugardagskvöld.
Lúdósextett og Stefán skemmta gestum
bæði kvöldin svo og Bill Frederick.
Sjallinn,
Akureyri
í kvöld verður frumsýnd stórsýningin
„Stjörnur Ingimars Eydal í 25 ár“.
Friðarfundur á Holiday Inn: ,
Ár frá leiðtogafimd-
inum í Reykjavik
- vonir og
Alþjóðlegu friðarsamtökin Int-
ernational Liaison Forum of Peace
Forces hafa ákveðið að efna til al-
þjóðlegrar hringborðsumræðu hér
á landi í tilefni þess að ár er liðið
frá leiðtogafundinum í Reykjavik.
Yfirskrift umræðnanna er „Ári eft-
ir leiðtogafundinn í Reykjavík -
vonir og vandamál".
Umræðurnar verða haldnar á
laugardag og sunnudag á hótelinu
Holiday Inn. Hefjast þær klukkan
10.00 á laugardagsmorgninum og
lýkur síðdegis á sunnudag.
Steingrímur Hermannsson utan-
ríkisráðherra opnar umræðuna.
Síðan munu þrír íslenskir fulltrú-
ar, sem eru Olafur Ragnar Gríms-
vandamál
son, Guðrún Agnarsdóttir og séra
Gunnar Kristjánsson, flytja stutt
erindi. Meðal erlendra aðila sem
taka þátt í umræðunni eru: Irving
Stolberg, forseti fulltrúardeildar
ríkisþingsins í Connecicut, Vitality
Korotich frá Sovétríkjunum, rit-
stjóri tímaritsins Ogonjok, Alfred
Mechtersheimer, þingmaður
flokks græningja í V-Þýskalandi,
Clodomiro Almeyda, fyrrverandi
utanríkisráðherra Chile, og Milena
Staboliska, varaforseti búlgarska
þingsins, auk fjölda annarra.
Allir þeir sem áhuga hafa á að
fylgjast með umræðunum eru vel-
komnir.
Rætt verður í hringborðsumræðunum hlutverk almenningsálitsins út frá
þeirri stöðu sem afvopnunarvióræður stórveldanna eru i núna. Tilefnið
er að ár er liðið frá Reykjavíkurfundi leiðtoga stórveldanna.
TSOL hefur gefið út sex breiðskífur
á sjö árum.
TSOL
í íslensku óperumú:
Hljómsveit
sem líkt
er við
The Doors
Tónleikar verða með TSOL eða
True Sounds of Liherty í íslensku
óperunni í kvöld og munu Sykur-
molarnir jafnframt leika fyrir
hljómleikagesti.
Hljómsveitin var stofnuð árið
1980 og hefur sent frá sér sex breið-
skífur. John Wood, söngvari
hljómsveitarinnar, er sagður
minna mikið á hina látnu hetju Jim
Monison, söngvara The Doors.
Gagnrýnendur hafa jafnvel látið
þau orð falla um tónlistina að ef
The Doors væri starfandi enn í dag
myndi útkoman vera í líkingu við
TSOL. Er hún í fararbroddi banda-
ríska nýrokksins ásamt hljóm-
sveitum á borð við The Smitherins
sem skemmti hér á landi fyrir
skömmu, REM og fleiri rokkara.
Storsynmg Sjallans:
Stjömui Ingimais
Eydal
Frumsýning verður í kvöld á
stórsýningu Sjallans, Stjömur Ing-
imars Eydal í 25 ár, sem fjallar um
sögu hljómsveita Ingimars í gegn-
um tíðina.
Hljómsveit Ingimars Eydal er 25
ára um þessar mundir og er ætlun-
in að sem flestir sem starfað hafa
með hljómsveitinni komi fram og
skemmti gestum. Má í því sam-
bandi nefna Þorvald Halldórsson,
Bjarka Tryggvason, Helenu Ey-
jólfsdóttur og Finn Eydal ásamt
fleirum sem spilað hafa meö Ingim-
ar í þau 25 ár sem hljómsveitin
hefur starfað.
Handrit og verkstjóm eru í hönd-
um Sögu Jónsdóttur, Jón Þórisson
gerir leikmynd og búninga hannar
Freygerður Magnúsdóttir. -
Á sýningunni koma fram leikar-
ar ásamt dönsurum sem munu
túlka hin ýmsu atvik sem gerst
hafa á litríkum ferh hljómsveitar-
innar.
Þetta er ein stærsta sýning sem
sett hefur verið upp í Sjallanum og
allt verður gert til að hafa hana sem
glæsilegasta.
Ferðaskrifstofa Reykjavíkur
mun skipuleggja ferðir til Akur-
eyrar frá flestum stöðum á landinu
í samvinnu við umboðsaðila um
land allt.
Hljómsveit Ingmars Eydal eins og hún leit út fyrir tæpum fjórum árum.
Bo Carpelan verður i Norræna
húsinu á laugardag þar sem hann
mun ræða skáldskap sinn.
Bo Carpelan á íslandi:
Eitt virtasta
samtímaskáldið
r
a
Norðurlöndum
Nýlega kom út í íslenkri þýðingu
Njarðar P. Njarðvík ljóðabókin
Ferð yfir þögul vötn eftir Bo Carp-
elan. Af því tilefni verður dagskrá
um hann í Norræna húsinu á laug-
ardag kl. 16.00. Hjörtur Pálsson
kynnir skáldið. Að því búnu mun
Bo Carpelan spjalla um ljóðagerð
sína. í lokin mun skáldið ásamt
Nirði P. Njarðvík lesa upp úr bók-
inni.
Bo Carpelan er eitt allra virtasta
samtímaskáldið, ekki bara í Finnl-
andi heldur á öllum Norðurlönd-
unum. Hann hlaut bókmennta-
verðlaun Norðurlandaráðs árið
1977 fyrir ljóð sín. í þessari bók,
Ferðinni yfir þögul vötn, eru 52
ljóð, úrval úr 12 ljóðabókum
skáldsins en ferill hans sem ljóð-
skálds spannar nú 40 ár.