Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1987, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1987, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1987. 21 Sjónvarpið sunnudag kl. 22.30: Saga af sjónum - eftir Hrafn Gurmlaugsson Hrafn Gunnlaugson höfundur leik- ritsins. Saga af sjónum kom fyrst fram í leikritasamkeppni Leikfélags Reykjavíkur í tilefni 75 ára afmælis þess og hlaut þá sérstök heiðurs- verðlaun. Sjónvarpið tók verkið upp nokkrum árum síðar og var því fyrst sjónvarpað í mars 1973. Saga af sjónum er fyrsta verk Hrafns Gunnlaugssonar sem tekið var upp í sjónvarpi en höfundur skrifaði verkiö þegar hann var við nám á lokaári í menntaskóla. Leikurinn fjallar um tvo skip- verja á flutningaskipi sem hefur villst í þoku og hvernig einagrun og ótti breytir raunveruleikanum í þjóðsögu. Sjómennina leika Róbert Arnfmnsson og Helgi Skúlason en leikstjóri er Herdís Þorvaldsdóttir. Leslie Howard og Ingrid Bergman i hlutverkum sínum. Sjónvarpið laugardag kl. 23.10: Millispíl Ingrid Bergman og Leshe Howard leika aðalhlutverkin í seinni laugar- dagsmynd sjónvarpsins. Millispil eöa Intermezzo, eins og myndin heitir á frummáhnu, segir fahega en sorglega ástarsögu. Aöalpersónumar eru Holger, sem er fiðluleikari, og Anita sem er dóttir tónlistarkennara Holg- ers. Þau fella hugi saman en vandamáhð er að Holger er giftur annarri konu. Sagan berst frá New York til Stokkhólms, þaðan til Frakklands og eyjarinnar Kaprí þegar ástarfuglarnir reyna að flýja raunveruleikann og hjónabandsskyldur Holgers. RÚV, Rás 1, suimudagkl. 15.00: Tónlistarkrossgátan Stjarnan sunnudag kl. 14.00: r I hjarta borgarinnar útsendingu frá Hótel Borg - í beinni Nýr skemmtiþáttur mun heíja göngu sína á Stjörnunni á sunnu- daginn. Þátturinn hefur hlotið nafnið „í hjarta borgarinnar" og verður sú nýbreytni tekin upp aö honum verður ávaht útvarpað beint frá Hótel Borg. Stjómandi þáttarins verður Jörundur Guð- mundsson en honum til aöstoðar verða leikararnir Pálmi Gestsson og Randver Þorláksson. Þremenn- ingarnir munu taka á móti gestum í Gyllta sal Hótel Borgar og brydda síðan upp á fjölbreyttu skemmti- efni mhli atriða. Þeir munu bjóða fulltrúum fyrirtækja th þátttöku í spurningaleik sem verður fastur hður í þættinum en einnig verður opið hús fyrir alla setp vilja eyða sunnudeginum í notalegu um- hverfi, fá sér veitingar og fylgjast með beinni útsendingu. Tónhst verður að mestu leyti í höndum hljómsveitar þáttarins sem ber nafnið Borgarbandið og er skipuð af þeim Ama Scheving, Carh Möller og Birgi Baldurssyni. Stöö 2 laugardag kl. 20.25: Jennifer Beals leikur aðalhlutverk- ið í Flashdance. Stöð 2 suimudagkl. 15.45 Leiftur- dans Klassapíur Klassapíur eru í raun arftakar skemmtiþáttarins Löðurs sem var sýnd- ur í sjónvarpinu á sínum tíma. Þegar hinum siðprúða meirihluta tókst að stöðva framleiðslu Löðurs ákváðu höfundur og framleiðandi þáttanna að hefla framleiðslu nýrrar þáttaseríu sem hlaut nafniö Klassapíur. í stað fjölskyldnanna tveggja í Löðri em það fjórar konur sem ætla að eyöa ævikvöldinu á Flórída sem sagan fjallar um. Klassapíurnar samankomnar. Stöð 2 suimudag kl. 20.35: Bandaríska stórmyndin Leiftur- ‘dans (Flashdance) verður á dag- skrá Stöðvar 2 á sunnudag. TQnnifor Poolc or í UUIUUMU jyvvuu V* * HU..1IIIWI M.l 1V1 og leikur unga stúlku sem dreymir um að verða dansari. Myndin lýsir baráttu hennar við að fá hlutverk auk þess sem hún lendir í ástar- sambandi. Mjög skemmtileg dansatriði em í myndinni. Nærmynd af Martin Berkovskí píanóleikars Fáir íslendingar vita að einn af bestu píanóleikumm samtímans býr hér á landi. Martin Berkovskí heitir maðurinn og hefur hann búið hér ásamt konu sinni, Önnu Málfríði Sigurðardóttur, um árabil. Þau hjónin eru bæöi góöir píanóleikarar og eru nú á fómm til Tyrklands. Jón Óttar Ragnarsson ræðir við þau hjónin í þættinum á simnudag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.