Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1987, Qupperneq 7
FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1987.
29
MyndJist
Aðalsteinn Ingólfsson
Ævintýri
á gönguför
Sigurður Örlygsson í Gallerí Svart á hvítu
Eru eitt hundraö mynda einkasýn-
ingamar ekki fyrir bí? Þaö ætla ég
aö vona.
Aö minnsta kosti benda nokkrar
nýliönar og yfirstandandi sýning-
ar, bæði áð Kjarvalsstööum og í
Gallerí Svart á hvítu, til þess aö
hstamenn hugsi nú meira um gæði
en magn.
Það er satt aö segja fremur dapur-
legt aö ganga inn á allar þessar
stórsýningar að Kjarvalsstöðum,
vitandi þaö fyrir víst aö einungis
þriðjungur hinna sýndu verka á
nokkurt erindi við almenning.
Þess vegna varö mörgum svo bilt
við hér í fyrra þegar Sigurður Ör-
lygsson lagöi eitthundraömynda-
salinn að Kjarvalsstöðum undir
fimmtán stór myndverk.
Fjörmikil og samstæð
Varla heíði Siguröur komist upp
meö þetta heföi hann ekki troðið
upp meö fjörmikil og samstæð verk
sem höfðu mikla nánd.
Nú hefur Siguröur sett upp aöra
sýningu í Gallerí Svart á hvítu en
á henni eru álíka mörg verk og aö
Kjarvalsstööum í fyrra en þó miklu
minni um sig og um leið átaka-
minni, svona eins og listamaöurinn
sé að ná úr sér streitu síðustu miss-
era með léttu kóseríi.
í þessum verkum er Sigurður við
svipaö heygarðshom og á fyrri sýn-
ingunni, kúplar saman gömlu
vélvæðingunni, poppuðum tilvís-
unum í nánasta umhverfi sitt og
íslenskt landslag, sitt eigið og ann-
arra.
í þetta sinn er aðalpúðrið í mynd-
unum að fmna í gamalli púður-
kvörn sem í augum okkar
nútímafólks jafnast á við góðan
skúlptúr.
Sigurður veltir kvörninni á allar
hliðar í landslagi, gerir hana hlægi-
lega, ógnvekjandi, dularfulla eða
allt í senn.
Sigurður Örlygsson - Málverk, 1987.
Framhaldssaga í vel völdum
myndum
Ut úr þessu kemur herjans mikil
framhaldssaga í nokkrum vel völd-
um myndum, blanda af Innrásinni
frá Mars og Ævintýri á göngufór,
sem gefur vonandi einhverja hug-
mynd um fjölbreytt áhugasvið
málarans.
í þessi verk vantar aðeins hljóm-
flutningsgræjurnar til að full-
komna þau.
Jafnframt hafa þessi óstýrilátu
verk mikið malerískt aðdráttarafl.
Bakgrunnurinn kraumar af fjólu-
bláum, purpurarauðum og okkur-
gulum litum, fjöll í Georgs-Guöna-
stíl rísa upp úr silfurlitu mistri,
gull- og silfurslikju slær á stálin
stinn.
Mikilli sköpunar- og leikgleði
stafar af þessum verkum Sigurðar.
Sönn ánægja að kynnast þeim.
Sýningin hans í Svart á hvítu
stendur yfir til 12. október.
-ai
BORGARFIRÐI EYSTRA
Nýr umboðsmaður I Borgarfirði eystra
frá 1.10 ’87,
Helgi Arngrímsson
Réttarholti
Hs. 97-29913,
vs. 97-29977
ATVENNA
Iðnaðardeild Sambandsins á Akureyri óskar eftir
duglegu og hressu starfsfólki á dagvakt og kvöld-
vakt við ýmis störf í skinna- og ullariðnaði.
Unnið eftir bónuskerfi sem gefur góða tekjumögu-
leika. Við getum útvegað herbergi með aðgangi að
eldunaraðstöðu.
Mötuneyti á staðnum.
Upplýsingar hjá starfsmannastjóra.
IDNADARDEILD
SAMBANDSINS
GLERÁRGÖTU 28 AKUREYR! SÍMI (96)21900
Vetur og vélsleðar
Eftirtaldir notaðir sleðar, sem við höfum tekið upp í
nýja, eru fyrirliggjandi, til sýnis og sölu:
Skidoo Formula Plus, ekinn 30.000 km, árgerð 1985
Skidoo Citation, ekinn 2500, árgerð 1981
Aktiv Panter, langur, ekinn 1800 km, árgerð 1985
Yamaha SRV, ekinn 3000, árgerð 1984
Yamaha SRV, ekinn 3000, árgerð 1984
Suzuki fjórhjól, minkur, 4 wd, árgerð 1987
Nýir sleðar fyrirliggjandi:
Skidoo Formula MX standard
Skidoo Formula MX long
Fleiri sleðar, bæði nýir og notaðir,
væntanlegir á næstunni.
Gísli Jónsson & Co. hf.
Sími 686644
HELGARBLAÐ
Frjáist, óháö dágblað
Á MORGUN
Jóhannes Guðmundsson segist
ekki þreytast þótt hann taki smá-
spretti. Hann sprettir þó helst ekki
úr spori nema setja íslandsmet í
leiðinni. Þetta þætti nú varla í frá-
sögur færandi nema vegna þess
að hann er hálfníræður og hóf
hlaupaferilinn fyrir nokkrum dög-
um. Jóhannes Guðmundsson,
íslandsmethafi öldunga í 100
metra hlaupi, er eldhress í helgar-
viðtalinu.
Það er langur vetur frá Garðskaga-
vita til Izmir í Tyrklandi. Þessa leið
hafa þau Martin Berkofsky og
Anna Málfríður Sigurðardóttir,
sem um skeið hafa gætt vitans á
Garðskaga, nú lagt að baki og
ætla að setjast að í Izmir til að
kenna við tónlistarháskólann þar.
Helgarblaðið greip þau hjón í við-
tal um borð í Norrænu á leiðinni
úr landi.
Austurbæingar sjónvarpsins eru litríkt fólk. Það verður á skjánum
í vetur á fimmtudögum hjá sjónvarpi ríkisins en helgarblaðið
kynnti sér þennan liðsafnað og býður lesendum sínum að fylgj-
ast með á morgun.
í helgarblaðinu á morgun er einnig sagt frá 10 ára afmæli SÁÁ;
öllu því nýjasta sem er að gerast í poppinu; Gunnar Bender er
með syrpu af helstu laxveiðigörpum sumarsins og Jón L. Árnason
fer í saumana á afrekum félaga sinna á Skákþingi islands - að
ógleymdu því að börnin fá sitt blað eins og venjulega.