Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1987, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1987, Page 8
30 FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1987. isuNSKUfí rfíxri SV&AHCt N£W WORtD ■ ÁXOM < RATHLEENMiUÆR ,m4 K£XNE CURTJS as Pr. Scoit ★ Ví í furöuheimi STRANGE NEW WORLD. Útgefandl: Tefll/Warner. Aðalhlutverk: John Saxon, Kathleen Mlller og Keene Curtls. Bandarisk 1975. Sýnlngartíml: 94 mfn. Bönnuð yngrl en 12 ðra. Það er nokkuð fjölbreytt framtíðarsýn sem birt- ist í þessari 12 ára gömlu bandarísku sjónvarps- mynd. Sögusviðið er jörðin enda voru menn þá þokkalega jarðbundnir í vísindaskáldskap sínum. Ég er ekki frá því að til þess aö geta gert þokka- lega framtíðarmynd þurfl menn að velja sér efni sem getur veitt okkur innsýn í þá veröld sem við lifum í í dag og hvert við stefnum. Það er reynt að gera í þessari mynd en það er hins vegar annað mál hve skynsamlega það er gert. Myndin segir frá þremur vísindamönnum sem koma til jarðar eftir að hafa legið í dvala úti í geimnum á meðan yfir jörðina dundu ýmsar hör- mungar. Þegar til jarðar kemur hefja þeir leit að þróuðum mönnum en lenda í staðinn í kynnum við þjóðfélög sem hafa þróast á ýmsa lund. Eins og áður sagöi er þetta fremur bamalegt en þó er reynt að segja smáævintýri og eftir þeim sækjast fleiri en Polanski þannig að ýmsir ættu aö hafa nokkra skemmtun af myndinni. Endirinn gefur þó til kynna að hún hafi átt aö vera upphafið aö einhveiju meira í sjónvarpi. -SMJ Leikrit Tónlist Iþróttir Hryllings- Gaman- mynd mynd 0 Fulloróins- Hasar- Ástarsaga mynd mynd Barna- mynd 0 Víslndaskáld- Fjölskyldu- Annað saga mynd Mynd- bönd Umsjón: Sigurður Már Jónsson DV—LISTINN Sprellarinn hann Ferris Bueller verður að gefa eftir efsta sætið núna fyrir Lagarefunum sem loks- ins tekst að hrifsa efsta sætið eftir mikið ströggl. Tom Hanks og Jackie Cleason eru þó til alls líkleg- ir og ekki víst að þeim Redford og Winger takist að einangra efsta sætið lengi. Fjórar nýjar myndir eru á listan- um og þeirra á meðal fjölskyldu- hrollvekjan Poltergeist II en þar halda draugarnir áfram að hrella bandaríska vísitölufjölskyldu. Nú má fara að búast við miklum átök- um á videomarkaðnum enda flest útgáfufyrirtækin að vígbúast fyrir vetrarvertíðina. Má þar nefna titla eins og Stand By Me, Ruthless Pe- ople, Krókódíla Dundee og Betty Blue auk margra fleiri. 1 (2) Leagal Eagals 2 (4) Nothing in Common 3 (1) Ferris Buellers Day Off 4 (3) Weels of Terror 5 (7) Marin Issue 6 (-) Mission 7 (-) Poltergeist II 8 (-) Honneymon 9 (-) Nafn rósarinnar 10 (5) Room with a View BANDARIKIN 1. Krókódíla Dundee 2. Color Purple 3. Black Widdow 4. Golden Child 5. Three Amigos 6. Hannah and Her Sisters 7. Crimes of Heart 8. Little Shop of Horror 9. The Morning After 10. No Mercy ★★★ í leit að líki STAND BY ME Leikstjóri: Rob Reiner. Handrit: Raynold Gideon og Bruce A. Evans. Byggt á sögu Stephen King. Framleiðandi: Andrew Scheiman, Bruce A Evans og Raynold Gideon. Myndataka: Thomas Del Ruth. Aðalhlutverk: Wil Wheaton, River Phonix, Corey Feldman og Jerry O’Connell og Richard Dreyfuss. Bandarisk 1986. öllum leylð. Það er nokkuð óvenjuleg Stephen King saga sem leggur grunninn að þessari mynd. í stað þess að halda sig í sinni venjulegu hryllingsó- peru hefur King brugðið sér aftur til æskuáranna og hvort sem það er að þakka sögu Kings eða sleipu handriti er útkoman ákaflega nær- færin og trúverðug mynd. Myndin segir frá fjórum ungum piltum sem leggja af stað upp í mikla langferð yfir í næstu sveit til að sjá lík sem einn þeirra hefur sannfrétt að liggi þar á glámbekk. í raun eru ekki mjög sterk tengsl á milli piltanna í upphafi en þetta ferðalag verður þeim ákveðin manndómsvígsla og þó að þeir skiljist í lokin má greina ákveðin tímamót í lífi þeirra við ferðalagið. Leikur piltanna er öldungis stór- góöur og tekst þeim öllum vel upp í túlkun sinni. Einlægni og breisk- leiki ungra pilta verður augljós í framgöngu þessara fjögurra sveina. Það er greinilegt aö leik- stjóri og handritshöfundar hafa lagt sig fram við að slípa piltana til og hafa þeir uppskorið eftir því. Ferðalag þeirra er um margt táknrænt þrátt fyrir æsku þeirra er dauðinn nálægur sem sést í leit- inni að likinu. Þegar þeir loksins finna líkið þurfa þeir að berjast fyrir að fá að halda því þó að þeir viti auðvitað ekkert hvaö þeir eiga að gera við þaö. í ferðalaginu upp- gvötva þeir margan sannleik varðandi líf og dauða og sjálfa sig. Það er fyrst og fremst stórgóður leikur piltanna þriggja og vel skrif- að handrit sem sem gera það aö verkum að þetta er líklega ein af betri myndum ársins í Bandaríkj- unum. -SMJ Skrítnir feðgar á ferð NOTHING IN COMMON Útgefandi: Tefli/Tri Star. Leikstjóri: Garry Marshall. Handrit: Rick Podell & Mlchael Preminger. Framlelö- andi: Alexandra Rose. Myndataka: John A. Alonzo. Aöalhlutverk: Tom Hanks og Jackle Cleason. Bandarisk 1986. Sýningartíml: 114 mfn. öllum leyfö. Líklega mun þetta vera sfðasta myndin sem Jackie Cleason lék í og er ekki hægt að segja annað en að þessi mynd sé ágætur minni- svarði um þann merka leikara. Undir þaö síðasta var Gleason far- inn að treysta fullmikið á andlits- grettur og ýktar hreyfingar sem voru þessum ágæta leikara ekki samboönar. Sást þetta sérstaklega vel í myndunum um Reyk bófa. Reyndar vill stundum fara svona í henni Ameríku því leikstjóramir, sem eiga auðvitað aö lagfæra svona hluti, hafa yfirleitt allan hugann við tæknilega og skipulagslega út- færslu á myndunum. Þessi mynd segir frá David Basn- er (Tom Hanks) sem er ungur og fijósamur auglýsingagerðarmaður og er miklum tíma varið í upphafi myndarinnar í að útskýra hve hress og lífsglaður hann er. David bregður þó óneitanlega í brún þeg- ar foreldrar hans skilja eftir 30 ára hjónaband og eftir það verður hann að eyða æði miklum tíma með þeim. Hið áhyggjulausa líf pipar- sveinsins virðist vera fyrir bí. Foreldramir hatast og þegar sjúk- dómur fóður hans (Jackie Cleason) bætist ofan á ætlar Hanks aö bug- ast. Samleikur þeirra Hanks og Clea- sons er prýðilegur en einhverra hluta vegna er uppgjör þeirra í milli ekki nógu kröftugt. Má þar líklega kenna um brotalömum í handriti en handritshöfundum virðist ganga illa að fóta sig á þeim þunna ís sem skilur að gaman- og grátmynd. Frísklegir sprettir em þó í myndinni sem er fagmannlega unnin en ekki að sama skapi frum- leg. -SMJ Uppreisn gegn Bogart River Phonix (Chris) og Wil Wheaton (Gordie) í hlutverkum sínum. THE CAINE MUTINY Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Edward Dmytryk. Handrit: Stanley Roberts eftir sögu Hermann Wouk. Aðalhlutverk: Humprey Bogart, Jose Ferrer, Van Johnson og Fred MacMurray. Bandarisk 1954. öllum leyfö. Sýningar- tími 94 mín. Uppreisnin á Bounty ætlar að verða kvikmyndagerðarmönnum notadijúg. Ekki nóg með að einar þrjár myndir hafi verið gerðar eftir þessari frægu sögu heldur hafa margar myndir sótt efni sitt þang- að. Svo er með þessa 33 ára gömlu mynd sem byggð er á frægri sögu Hermanns Wouk (Winds of War). Kapteinn Queeg og hans hrjáða áhöfn eiga mjög sterka hhðstæðu í Kapteinn Bligh og hans mönnum. Nú er sögusviðið heimsstyijöldin síðari og í staðinn fyrir seglskipið Bounti er kominn tundurdufla- slæðarinn Caine. Þessi samsvörun er þó engan veginn til lýta því þessi mynd er gerð með frumlegum huga og tilfinningu fyrir myndmiðlin- um. í upphafi sést skipið Caine sem er í niðumíðslu enda orðið lúið af langri þjónustu. Enginn hefur neinn sérstakan áhuga á þ’.i að breyta til. Allt þar til að Queeg tek- ur við yfirstjóm skipsins. Hann er harður og nákvæmur mjög svo að hggur við smámunasemi og fljót- lega vaknar uppreisnarhugmynd meðal áhafnarinnar. Queeg er ákaflega vel leikinn af Humphrey Bogart sem sýnir vel geöveikina í Queeg án þess þó að svipta hann allri samúð. Það er helst 1 lokin sem hann missir fótanna en það er ekki Bogart að kenna. Réttarhöldin em einfaldlega aht of snubbótt til að fylgja eftir ágætri uppbyggingu lengst af. Ekki þar fyrir, myndin er hin ágætasta skemmtun og tilva- hð fyrir kvikmyndaáhugamenn að sjá Bogart í einu af sínum betri hlutverkum. Hann fékk meira að segja óskarsverðlaunatilnefningu fyrir. -SMJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.