Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1987, Blaðsíða 1
FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1987.
19
ABRACADABRA,
Laugavegi 116
Diskótek fóstudags- og laugardagkvöld.
ÁRTÚN,
Vagnhöfða 11, sími 685090
Gömlu dansarnir á fostudagskvöld. Opið
kl. 21-03. Nýju og gömlu dansarnir laug-
ardagskvöld. Opið kl. 22-03. Hljómsveitin
Danssporið ásamt söngkonunni Krist-
björgu Löve bæði kvöldin.
BROADWAY,
Álfabakka 8, Reykjavík, sími 77500
Sveitin milli sanda leikur fyrir dansi
fóstudags- og laugardagskvöld. Stórsýn-
ingin „Allt vitlaust" á laugardagskvöld.
CASABLANCA,
Skúlagötu 30
Diskótek fóstudags- og laugardagskvöld
frá kl. 22-03.
DUUS-HÚS,
Fischersundi, sími 14446
Diskótek föstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöldu. Opið frá 22 til 03. A
sunnudagskvöld verða jasstónleikar í
Heita pottinum.
EVRÓPA
v/Borgartún
Divine er kominn aftur.. .og skemmtir í
Evrópu fóstudags- og laugardagskvöld.
Hljómsveit hússins, Saga Class, leikur
fyrir dansi bæði kvöldin.
Húsið er opið frá kl. 22-03.
GLÆSIBÆR,
Álfheimum
Hljómsveit hússins leikur fyrir dansi
fóstudags- og laugardagskvöld frá 22-03.
HOLLYWOOD,
Ármúla 5, Reykjavík
Útgáfutónleikar hljómsveitarinnar Graf-
íkur í kvöld. Tónhst 7. áratugarins verður
á laugardagskvöld með „Leitinni aö
týndu kynslóðinni". Húsið opið 22-03.
HÓTEL BORG,
Pósthússtræti 10, Reykjavík, sími 11440
Diskótek fóstudags- og laugardagskvöld.
Gömlu dansarnir á sunnudagskvöld.
Hljómsveit Jóns Sigurðssonar leikur.
HÓTEL ESJA, SKÁLAFELL,
Suðurlandsbraut 2, Reykjavík, sími
82200
Dansleikir fóstudags- og laugardags-
kvöld. Hljómsveitin Kaskó leikur. Tísku-
sýning öll fimmtudagskvöld.
HÓTELSAGA
v/Hagatorg, Reykjavík sími 20221
Hringekjan á laugardagskvöld. íslenski
jazzballettflokkurinn með frábær dansat-
riði, Jóhanna Linnet syngur lög úr
frægum söngleikjum. Bjami Arason
kemur fram með söngdagskrá í minningu
Elvis Presley og Öm Ámason hringekju-
stjóri með söng og grín. Hljómsveit
Grétars Örvarssonar leikur fyrir dansi.
Á Mímisbar leikur Stefán Jökulsson.
LEIKHÚSKJALLARINN,
Hverfisgötu
Diskótek fóstudags- og laugardagskvöld.
LENNON
v/Austurvöll, Reykjavík, sími 11630
Diskótek fóstudags- og laugardagskvöld
MIAMI,
Skemmuvegi 34, Kópavogi, sími 74240
Diskótek fóstudaga og laugardaga. Ald-
urstakmark 16 ár.
ÚTÓPÍA,
Suðurlandsbraut 26
Hljómleikar með Megasi í kvöld. Megas
mun kynna lög af væntanlegri hljóm-
plötu sem mun koma út í næstu viku.
Gaui mun einnig spila lög af nýju hljóm-
plötunni sinni. Dansleikur laugardags-
kvöld. Húsið opið kl. 22-03.
ÞÓRSCAFÉ,
Brautarholti 2, Reykjavik, simi 23333
Hljómsveit Stefáns P. leikur á efri hæð
hússins fóstudags- og laugardagskvöld.
Lúdósextett og Stefán skemmta gestum
bæði kvöldin.
Sjallinn,
Akureyri
„Stjörnur Ingimars Eydal í 25 ár“ um
helgina.
Skátastarf
á íslandi
75 ára
íslenskir skátar fagna um þess-
ar mundir 75 ára afmæli íslensku
skátahreyfmgarinnar. Starfandi
skátar á íslandi í dag eru um
11.000 og starfa þeir í 40 skátafé-
lögum víðs vegar um landið.
Aftur á móti eru um 26 milljónir
manna sem taka þátt í skátastarfi
í heiminum en hreyfmgin er
starfandi í rúmlega 100 löndum.
Á þessu ári eru 80 ár liðin síðan
skátahreyfingin var upphaflega
stofnuð. Vegna afmælis íslensku
skátahreyfmgarinnar hafa skát-
ar sett saman hátíðardagskrá.
Dagskráin hófst um síðustu mán-
aðamót og mun standa til 15.
nóvember. Það sem hæst ber hjá
skátunum um helgina er að Vig-
dís Finnbogadóttir, forseti ís-
lands, mun afhenda forsetamerk-
ið í Neskirkju kl. 14 á laugardag.
Á sunnudag verður svo hátíðar-
dagskrá í Háskólabíói kl. 16 til 18.
50 ára ferm-
ingarböm
- hittast aftur
„Fermdar meyjar og sveinar",
eins og stendur í kirkjubókum
Reykjavíkur, árið 1937 hafa ákveð-
ið að hittast aftur eftir 50 ár til að
minnast fermingarinnar.
Þau börn, sem fermdust vorið og
haustið 1937, voru rúmlega 400 aö
tölu. Þessi börn fermdust hjá fjór-
um prestum í þremur kirkjum, hjá
þeim séra Bjarna Jónssyni og séra
Friðriki Hallgrímssyni í Dómkirkj-
unni, séra Áma Sigurðssyni í
Fríkirkjunni og Meulenberg í ka-
þólsku kirkjunni. Þá voru íbúar
Reykjavíkur aðeins 36103 taisins
og mátti heita að flest fermingar-
börnin þekktust eða vissu deili
hvert á öðru. Flest áttu þau sameig-
inlegt að vera borin og barnfædd í
Reykjavík.
A árum síðara stríðsins þyrptist
fólk úr sveitum landsins til höfuð-
borgarinnar sem skyndilega
breyttist úr bæ í borg. Bifreiðin
varð almenningseign og síðar hélt.
sjónvarpið innreið sína. Gömlu fé-
lagarnir hættu að hittast á förnum
vegi.
Nú er því ætlunin að efna til end-
urfunda í Domus Medica við
Egilsgötu, laugardaginn 7. nóv. kl.
15-18. Vonandi verða heimtur góð-
ar svo að sem flestir geti glaðst yfir
að hittast aftur, sumir eftir hálfa
öld.
Háskólinn á Akureyri:
4 fyiirlestrar rnn
bókmenntir íslands
Háskólinn á Akureyri er nú að
hleypa af stokkunum röð fyrir-
lestra sem ætlaðir eru nemendum
skólans og ölium almenningi. Gísli
Jónsson cand. mag. og fyrrverandi
menntaskólakennari mun flytja
fyrirlestrana alla laugardaga í nóv-
ember en þeir bera heitið: Trú,
upplýsing, rómantík.
Gísli mun fjalla um bókmenntir
íslands og nokkur höfuðskáld og
fræðimenn frá aldamótunum 1600.
Hann sagði á blaðamannafundi að
hann myndi reyna að að gera grein
fyrir því menningarástandi sem þá
ríkti og koma síðan að helstu skáld-
um og fræðimönnum 17. aldarinn-
ar. Hann sagðist reikna með því að
fjalla um Hallgrím Pétursson og
verk hans og koma síðan að öðrum
fræðimönnum.
Fyrirlestrarnir verða fluttir í sal
Verkmenntaskólans kl. 14 á laug-
ardögum í nóvember og eru öllum
opnir.
Norðurlandamót í hár-
greiðslu og hárskurði
Norðurlandamót 1987 í hár-
greiðslu og hárskurði fer fram í
íþróttahúsinu Digranesi, Skála-
heiði Kópavogi,. á sunnudag kl.
10.50-17. Friðrik Sophusson iðnað-
arráðherra setur keppnina. AUs
verða 50 keppendur frá Norður-
löndunum - 25 í hárgreiðslu og 25
í hárskuröi. Mikill áhugi er fyrir
keppninni á hinum Norðurlöndun-
um og munu á annað hundrað
manns koma þaðan til að fylgjast
með. Þetta er í annað skipti sem
keppnin fer fram á íslandi.
Meðal keppenda verða tveir ný-
bakaðir Evrópumeistarar, þau Aud
Mæhre Haugen frá Noregi og Steen
Nedergaard frá Danmörku. Spenn-
andi verður að sjá hvernig íslensku
keppendunum tekst til á heima-
velli en alls keppa 10 manns fyrir
íslands hönd.
Sumum þykir Divine með eindæmum dónaleg kona.
Divine aftur á
íslandi
Margir muna eflaust eftir Divine
sem skemmti íslendingum í veit-
ingahúsinu Evrópu fyrir rúmu ári.
Hann er kominn aftur til landsins
og hyggst skemmta í Evrópu í
kvöld, laugardagskvöld og sunnu-
dagskvöld. Sýningarnar hefjast um
miðnætti öll kvöldin.
Fyrir þá sem ekki þekkja Divine,
sem raunar heitir Glen Milsted,
skal þess getið að hann er 150 kg
karlmaður sem kemur fram í gervi
stórrar, feitrar og grófrar kvenper-
sónu. Hann hefur verið umdeildur
manna á meðal og töldu sumir ís-
lendingar siðgæðisvitund sinni
misboðiö á skemmtunum hans í
fyrra en aðrir skemmtu sér kon-
unglega.