Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1987, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1987.
29
Landskeppni í karate
hér á landi um helgina
Ekkert veröur leikið í 1. deild
íslandsmótsins í handknattleik um
helgina. Hins vegar veröa tvö ís-
lensk félagslið á fullri ferö í
Evrópumótunum í handknattleik,
Víkingur og Stjarnan.
• Einn leikur veröur í úrvals-
deildinni í körfuknattleik í kvöld
og leika þá Þór og Njarðvíkingar í
íþróttahölllinni á Akureyri kl.
20.00. Á sunnudag leika í Iþrótta-
húsinu í Hafnarflrði Haukar og
Valur og hefst leikurinn kl. 14.00.
• Blakmenn láta ekki deigan
síga um helgina. Á laugardag kl.
14.00 í Hagaskóla leika Fram og
HSK og strax á eftir IS og Víkingur
í 1. deild karla. í Vogaskóla leika
Þróttur og KA kl. 14.45 í 1. deild
karla. Kl. 16.00 í Neskaupstaö leika
heimamenn, Þróttarar, og HK. Á
sunnudag verður einn leikur í 1.
deild karla og leika þá Víkingur og
KA í Hagaskóla kl. 14.00.
• í 1. deild kvenna á laugardag
kl. 16.30 leika ÍS og Víkingur. í
Vogaskóla kl. 13.30 leika Þróttur
og KA. í Neskaupstað kl. 17.15 leika
Þróttur og HK. A sunnudag verður
einn leikur 1 kvennaflokki og leika
þá Víkingur og KA.
• Þrír leikir verða í 1. deild
kvenna á laugardag. I Hafnarfirði
kl. 15.15 leika Haukar og Fram. í
Laugardalshöll verða tveir leikir.
Kl. 14.00 leika KR og Valur og strax
á eftir Þróttur og FH.
• Á laugardag og sunnudag
verður haldin hér á landi í fyrsta
skipti landskeppni í karate. Auk
íslands tekur Skotland og N-írland
þátt í landskeppninni. Búist er við
jafnri og tvísýnni keppni. í fyrra fór
þessi keppni fram með sömu þjóð-
um í Glasgow og sigruðu íslending-
ar þá í einstaklingskeppninni en í
sveitakeppni lenti ísland í öðru
sæti. -JKS
• Mikið verður um að vera hjá blakfólki um helgina. Leiknir verða niu leikir i 1. deild karla og kvenna
^SRARIK
^ RAFMAGNSVEITUR RÍKISIN?
ÚTBOÐ
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í eftirfar-
andi:
RARIK-87009: Aflstrengir, stýristrengir og ber kop-
arvír.
Opnunardagur: Fimmtudagur 2. desember 1987, kl.
14.00.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkis-
ins, Laugavegi 118,105 Reykjavík, fyrir opnunartíma
og verða þau opnuð á sama stað að viðstöddum
þeim bjóðendum er þess óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og með
fimmtudegi 5. nóvember 1 987 og kosta kr. 200,-
hvert eintak.
Reykjavík, 3. nóvember 1987.
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
BLAÐBURÐARFÓLK
Á ÖLLUM ALDRI
VANTAR í HFTIRTALIN HVERFI
Kleppsvegur 2-60
Lynghagi
Tómasarhagi 20 - út
Njörvasund
Hlunnavogur
Sigluvogur
GARÐABÆR
Espilundur
Grenilundur
Heiðarlundur
Hofslundur
Hörgslundur
Reynilundur
AFGREIÐSLA
Þverholti 11 - Sími 27022
HELGARBLAÐ
Frjálst.óháö dágblaö
A MORGUN
Grímur Marinó Steindórsson hefur unnið við flest á sjó og landi. Nú ekur hann leigubíl en í tómstundum
leika logsuðutæki í höndum hans og hann mótar kalda málma í lifandi iistaverk. Árangurinn er m.a. sá að
hann hefur hlotið fyrstu verðlaun í samkeppni Ferðamálaráðs um mingjagrip vegna leiðtogafundarins í
Höfða. Grímur er í helgarviðtalinu.
Aðsókn fólks að vínveitingahúsum hefur
dregist gífurlega saman síðustu ár. Nú
er svo komið að fáir fara út að skemmta
sér á föstudögum og veitingahúsin bít-
ast um þá sem enn nenna að gera sér
dagamun á laugardögum. Helgarblaðið
kannaði málið.
Anna Margrét, fegurðardrottn-
ing íslands, er nú í Lundúnum
og undirbýr sig fyrir loka-
sprettinn í keppninni um titiiinn
ungfrú heimur. Helgarblaðið
er að sjálfsögðu ekki langt
undan og færir ykkur nýjustu
fréttir af keppninni.
í helgarblaðinu er einnig sagt
frá Matlock, vinsælasta þætti
sjónvarpsins - þar er ítarlegt
efni um ferðamál - sagt frá
leikhúslífinu - Jónas Kristjáns-
son skrifar um veitingahúsið
Óðinsvé - og margt fleira.