Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1987, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1987, Síða 3
FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1987. 21 Stórsveit Ríkisútvarpsins æfir fyrir tónleika sína á Djassdögum. Djassdagar RHdsútvarpsins Dagana 7.-14. nóv. efnir Ríkisút; varpið til sérstakra Djassdaga. Á þessum dögum er ætlunin að kynna hlustendum djasstónlist af ýmsum toga. M.a. verður umfjöll- un um djasstónlist og djasstóníist- armenn, blöðum djasssögunnar verður flett og síðast en ekki síst verða djasstónleikar í beinni út- sendingu. Þetta er í fyrsta skipti sem Ríkisútvarpið gengst fyrir slíkum dögum en þeir verða árlega á dagskrá stofnunarinnar hér eftir. í tilefni af Djassdögum kemur hingað til lands sænska tónskáldið og básúnuleikarinn Mikael Ráberg. Hann mun vinna með Stórsveit Ríkisútvarpsins, Big bandi Kópa- vogs og Stórsveit Tónhstarskólans á Akureyri en þessar hljómsveitir koma ailar fram á Djassdögum. Það er mikill fengur aö fá Mikael Rá- berg til landsins því hann hefur mikla reynslu sem útsetjari og stjórnandi hljómsveita. Það verður Stórsveit Ríkisút- varpsins sem opnar Djassdaga með tónleikum á Hótel Borg á laugar- daginn. Tónleikarnir hefjast kl. 17 og verður þeim útvarpað beint á rás 2. Ný útvarpsstöð - útsendingar hefjast í dag Egiil Ólafsson og Helga Thorberg eru bæði þekktir skemmtikraftar á íslandi. Þau sjá um dagskrá Ljósvakans um helgar. Egill verður fyrir hádegi en Helga seinni part dags. í dag hóf Ljósvakinn, hin nýja útvarpsstöð Islenska útvarpsfé- lagsins, útsendingar í fyrsta skipti. Stöðin sendir út á fm 95,7 allan sólarhringinn. Ljósvakinn er fyrst og fremst tón- listarútvarp en með nokkru öðru sniði en tíðkast hefur. Þar verður leikin melódísk og róleg popptón- list í bland við sígilda tónlist, djass og ný dægurlög. Öll tónlistin er leikin af geisladiskum eða böndum sem bjóða upp á sambærileg hljóm- gæði. í þeim tilgangi að auka breidd í tónlistarflutningi hefur útvarps- stöðin látið endurvinna gamlar upptökur með íslenskum tónhstar- mönnum, s.s. Hauki Morthens og Erlu Þorsteinsdóttm-. Ljósvakinn er ekki eingöngu tón- hstarútvarp heldur verða þar einxúg sagðar fréttir á heila tíman- um. Skotið verður inn í upplýsing- um um hstir og menningu og gert er ráð fyrir að í framtíðinni komi inn í dagskrána leikþættir, sögur, ljóðalestur o.fl. Ljósvakinn mun einnig í náinni framtíö hefja kynn- ingar á óperutónlist og annarri klassískri tónlist, auk þess sem stefnt er að því að hafa heinar út- sendingar í framtíðinni frá flutn- ingi klassískrar tónhstar og djasstónhstar. Tveir dagskrárgerðarmenn sjá um kynningar á tónhstardagskrá Ljósvakans á virkum dögum. Það eru þau Stefán S. Stefánsson og Bergljót Baldursdóttir. Um helgar_ sér Egih Ólafsson um aö kynna tónhst fyrri part dags en Helga Thorberg verður seinni partinn með tónlist, spjah, fróðleiksmola og viðtöl. En þau eru bæði betur þekkt sem skemmtikraftar. Fleira fólk mun koma við sögu í framtíð- inni í kvölddagskrá og sérunnum dagskrárþáttum. Aðstandendur útvarpsleikritsins Lögtak eftir Andrés Indriðason. RÚV, rás 1, laugardag kl. 16.30: Lögtak - nýtt íslenskt útvarpsleikrit Nýtt leikrit eftir Andrés Indriða- son, Lögtak, verður frumflutt á rás 1 á laugardag. Segir þar frá göml- um manni sem bundinn er við hjólastól. Dag nokkum fær hann óvænta heimsókn. Eru þar á ferð- inni ungur maður og stúlka í þeim erindagerðum að taka sjónvarps- tæki hans lögtaki vegna ógreidds afnotagjalds. En gamli maðurinn, sem er þess fullviss að hafa greitt gjöld sín, er ekki á þeim buxunum að láta tækið af hendi, þrátt fyrir fortölm- ráðskonu sinnar sem ber ótakmarkaða virðingu fyrir hinu opinbera. Leikstjóri er Stefán Baldursson. Leikendur eru Þorsteinn Ö. Steph- ensen, Sigríður Hagahn, Valdimar Öm Flygenring og Sigrún Edda Björnsdóttir. Tæknimenn eru Frið- rik Stefánsson og Hreinn Valdim- arsson. Sjónvarp laugardag kl. 21.30: Ástir og afbrot Bandaríska sjónvarpsmyndin Ástir og afbrot fjallar um lögregluforingj- ann Kate Hudson. Hún er ung, metnaðarfull og mjög hæf í starfi sínu enda leggur hún hart að sér. Ahir samstarfsmenn hennar, sem flestir era karlmenn, eru sammála um að Kate sé einn besti lögregluforingi sem völ er á. Einn góðan veðurdag keyrir hún Richard Weyland prófessor niður af hjóh úti á götu. Slysið er ekki alvarlegt og verða þau strax hrifm hvort af öðm. Kate flnnur fljótt að hún er orðin ástfangin en á sama tíma fær hún spennandi verkefni að ghma við í vinnunni svo hún hefur lítinn tíma aflögu fyrir prófessorinn. Leikstjóri ér Dean Hargrove. Aðalhlutverk leika Brenda Vaccaro og Arlen Dean Snyder. Stöð 2 laugardag kl. 23.35: Tvær stórstjömur - í myndinni Berskjölduð Þaö eru tvær stórstjömur sem leiða saman hesta sína í fyrri mynd kvöldsins á Stöð 2 á laugardag. Annars vegar er það rússneski bal- letdansarinn Rudolf Nureyev og hins vegar Nastassia Kinski. Þetta er óvenjuleg spennumynd sem greinir frá leit eins manns aö ógn- vænlegum hryöjuverkamanni. Þessi eini maður er drifinn áfram af hefndarþorsta og lætur ekkert tækifæri ónotað til þess að ná fram markmiði sínu. En hermdarverka- maðurinn er slunginn og sleppur hvað eftir annað úr greipum réttví- sinnar. Hann hefur þó einn við- kvæman blett - dálæti mikið á ljósmyndafyrirsætu nokkurri. Hrifning hans á konunni gefur höggstaö á honum. Leikstjóri myndarinnar er Jim Goddard. Natassia Kinski og Rudolf Nurey- ev. Úr ítalska framhaldsþættinum Lúðvík. Stöð 2 sunnudag kl. 22.20: Gyllingar og pluss - nýr framhaldsþáttur um Lúðvik II. Nýr framhaldsþáttur hefur göngu sína á Stöð 2 á sunnudags- kvöld. Nefnist hann Lúðvík og er í 5 þáttum. Segir þar frá ævi Lúðviks II. konungs af Bæjaralandi sem var upp frá 1845 þar til hann svipti sig lífi eftir að hafa verið sviptur kon- ungdómi árið 1886. Lúðvík II., ásamt Prússum og Bæjumm, veitti Bismarck dygga aðstoð við að sameina öll þýsku smáríkin til að stofna Þýska keis- aradæmið. Vonir Lúðviks um að komast til valda í hinu nýja ríki bmgðust og varð hann þá vonsvik- inn og frábitinn stjórnmálum. í stað þess sneri hann sér að listum, einkum byggingarhst, og varð það brátt árátta hjá honum að láta byggja hinar skrautlegustu hallir og kastala. Margar komust ekki lengra en á teikniborðið en þær sem komust upp em hin fegurstu hstaverk og er skrautið og íburður- inn gegndarlaus. Það var hinn þekkti ítalski leik- stjóri Luchino Visconti sem gerði myndina. Hann lenti í talsverðum erfiðleikum við framleiöslu hennar þar sem hann krafðist þess að hún væri að mestu tekin upp í þeim höhum sem Lúðvik n. lét reisa. Hann þurfti því að gera bygging- arnar upp með ærnum thkostnaði enda er engu minna um gylhngar og pluss en var á tímum Lúðviks II. Meðal leikara eru Romy Schneider, Trevor Howard og Sh- vana Mangano. Sjónvarp laugard. kl. 18.30: Kardi- mommubæriim Á laugardag verður þriðji þáttur- inn um Kardimommubæinn sýndur. Gerð þáttarins var sam- norrænt verkefni og var upptakan gerð 1985. Höfundurinn, Thorbjörn Egner, gerði teikningarnar við sög- una. íslenskt tal hefur verið sett inn á þáttinn og er Róbert Arnf- innsson í hlutverki sögumanns. Auk þess syngja tólf íslenskir leik- arar og tuttugu böm söngvana úr Kardimommubænum við texta Kristjáns frá Djúpalæk. Leikaram- ir tólf komu allir fram í síðustu uppfærslu Þjóðleikhússins á leik- ritinu fyrir tveimur árum. Klem- enz Jónsson leikstýrir íslensku tah og Agnes Löve stjómar söngflutn- ingi. Thorbjöm Egner, höfundur Kardi- mommubæjarins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.