Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1987, Qupperneq 5
MÁNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1987.
31
Iþróttir
- mönnum stafaði nefnilega hætta af hamfömm kempunnar
Detroit Pistons er eitt af þeim liðum
á austurströndinni sem búist er við
að veiti Boston harða samkeppni í
vetur. Þeir stóðu í Celtics í úrslitun-
um í fyrra og með smáheppni hefðu
þeir þá getað slegið Boston-liðið út.
Aðall Piston-liðsins eru mjög góðir
varamenn. Sá besti þeirra heitir
raunar Winnie Johnson. Hann er
kallaður „örbylgjuofninn“ í NBA
deildinni, kappinn hitnar nefnilega
svo fljótt þegar hann kemur til leiks.
Þótt „örbylgjuofninn“ sé ekki nema
187 sentímetrar þá er hann byggður
eins og skriödreki og lítur miklu
frekar út fyrir að vera amerískur
fótboltamaður en körfuknattleiks-
maður. Að meðaltali skorar hann 17
stig í leik, kemur enda reglulega inn
á og gerir út um leiki á örstuttum
tima.
Súkkulaðiþruman treður með
stórmerkjum
Annar maður, sem Pistons vonast
til að hjálpi þeim í baráttunni um
titilinn, er Darryll Dawkins. Félagið
keypti kappann á fimmtudag frá
Utah Jazz vegna þess að liðið skorti
góðan og reyndan varasenter - mið-
heija, að áliti forvígismannanna.
Dawkins er frægastur fyrir sínar
þrumutreðslur og eitt aðalgælunafn-
ið hans er „súkkulaðiþruman.“
Sumar troðslur hans voru svo
rosalegar að hann átti það jafnvel til
að brjóta spjöldin - lamdi þá boltan-
um svo fast í körfuhringinn.
Þar sem spjöldin í NBA eru úr gleri
þá ruku allir upp og bönnuðu honum
að fremja þennan óskunda. Töldu
menn að þetta væri hættulegt fyrir
alla þá sem hafast við undir körf-
unni. Var „súkkulaðiþruman"
sektuð eftir sína aðra ofsatroðslu.
Síðan þá hafa snjallir menn fundið
upp kerfi sem að tengir hringinn við
spjaldið með gormum þannig að
hægt er að toga hringinn frá spjald-
inu niður um 10 til 15 sentímetra, án
þess að eiga það á hættu að fá allt
galleríið í hausinn. Dawkins er á
vissan hátt ábyrgur fyrir þessari
uppfinningu.
Keyptu heila þotu undir liðið
Enn eitt sem yfirmenn Pistons hafa
gert fyrir liðið var að kaupa flugvél
undir leikmennina. Öll önnur félög
ferðast með hefðhundnu áætlunar-
flugi, reyndar á fyrsta farrými vegna
hvað flesta sigra í röð varðar, í upp-
hafi tímabils. Þeir unnu fyrstu átta
leiki sína sem er met félagsins en
NBA metið er 15 sigrar. Lakers tap-
aði 9. leiknum heima fyrir Mill-
waukee Bucks. Sá leikur var
framlengdur og þó það hafi ekki ver-
ið nægur tími fyrir Lakers til að
vinna þá var það rétt nógur tími fyr-
ir Kareem Abdul-Jabbar til þess að
skora sitt tíunda stig. Málið er nefni-
lega þaö að hann hefur skorað
minnst tíu stig í leik í sjö hundruð
áttatíu og fjórum leikjum í röö sem
að sjálfsögðu er NBA met.
Úrslitaleikir teljast ekki með í
þessu, því er verið að tala um níu
og hálft ár af ferli kappans.
• Kareem Abdul-Jabbar hefur skorað fleiri en tíu stig i leik i níu
og hálft ár. Símamynd Reuter
Pétur Guðmundsson
hjá San Antonio Spurs
skrifar um NBA-körfuna:
álagsins. Pistons keyptu sér DC 9,
63ja sæta og breyttu henni í 24ra
sæti „lúxusþotu“ til þess að liðinu
gengi betur aö heiman. Golden State
mætti að ósekju taka sér Pistons til
fyrirmyndar en þeir unnu ekki nema
einn af fyrstu tiu leikjum sínum á
þessu tímabili.
Lakers sló ekki metið
Lakers tókst ekki að slá NBA-metiö
Ricky Pierce upp á kant við
samninginn
Það getur verið dýrt að vera ósáttur
við samninginn sinn.
Ricky Pierce hjá Millwaukee Bucks
situr heima og heimtar að Bucks rifti
núgildandi samningi við sig og veiti
sér nýjan í kjölfarið. Pierce þessi var
valinn besti „sjötti maður“ (fyrsti
varamaður) í fyrra. Honum finnst
hann því eiga rétt á launahækkun.
Ég vona satt best að segja aö hann
hafi verið duglegur að leggja inn í
banka því að Bucks hefur bvrjað
mjög vel án hans. Ætla þeir sér því
ekki aö gefa kappanum nýjan samn-
ing. Á meðan allt situr fast þá tapar
Pierce þrjú þúsund dollurum í hverj-
um leik sem hann á að fá samkvæmt
núgildandi samningi.
Xavier McDaniels var valinn leik-
maður vikunnar 15. til 22. nóvember
eftir að hafa skorað að meðaltali
þijátíu og eitt stig í þeim þremur
leikjum sem Seattle, félagið hans,
spilaði á þeim tíma.
Að lokum er hér svo besta löglega
nafnið í NBA. Lloyd Free var ekki
ánægður með skímarnafn sitt og
þegar hann var upp á sitt besta með
Philadelphia 76ers svaraði hann
frekar gælunöfnum en sínu rétta.
Best fannst honum þó að geta sýnt
hug sinn með því að fá nafni sínu
breytt í kirkjubókum.
Tók hann þá upp nafnið World B.
Free - já, lauslega þýtt frelsið heim-
Sjáumst að viku liðinni.
Pétur Guðmundsson.
„Súkkulaðiþrumunni“
var bannað að troða
Unglingalandslið íslands á æfingu á laugardag. Llðið æfir nú fyrir komandi átök, HM f
Júgóslavíu. DV-mynd Brynjar Gautl
Handknattleikur - U-21 landsliðið:
Strákamir æfa
af miklum krafti
Handboltalandslið íslands. skipað
leikmönnum 21 árs og yngri. keppir
á heimsmeistaramóti í þeim aldurs-
flokki snemma í næsta mánuði. Fer
keppnin fram í Júgóslavíu og verður
róðurinn án efa þungur hjá okkar
mönnum.
Mótheijar verða firnasterkir auk
þess sem liðið sjálft hefur orðið fyrir
miklu áfalli. FH-ingurinn Héðinn
Gilsson handarbrotnaöi nýlega í
deildarleik og Jón Kristjánsson, Val.
gaf ekki kost á sér til fararinnar.
Þeir sem verða í liðinu eru þessir:
• Markverðir:
Hrafn Margeirsson..............ÍR
Bergsveinn Bergsveinsson.......FH
Guðmundur Jónsson............Fram
• Aðrir leikmenn
Skúli Gunnsteinsson....Stjörnunni
Einar Einarsson........Stjörnunni
PéturPetersen..................FH
Gunnar Beinteinsson............FH
Þorsteinn Guðjónsson...........KR
Konráð Olavsson................KR
Stefán Kristjánsson............KR
Árrii Friðleifsson........Víkingi
Bjarki Sigurðsson.........Víkingi
Þórður Sigurðsson.............Val
Július Gunnarsson............Fram
Siguijón Sigurðsson...Shutterwald
• Þjálfari er Geir Hallsteinsson.
„Fengum mikiKægt stig“
sagði Sigurður Grétarsson eftir 2-2 jafntefli við Seivette
„Við fengum mikilvægt stig á úti-
velli gegn Servette. Það getur allt
gerst ennþá. Við eigum tvo leiki eftir
í deildinni áður en sjálf úrslitakeppn-
in byrjar og þá leiki þurfum við
hugsanlega að vinna til að eiga
möguleika," sagði Sigurður Grétars-
son hjá Luzem í samtali við DV. En
um helgina gerði Luzern jafntefli 2-2
við Servette í Genf.
Servette komst yfir í 2-0 eftir tutt-
uga mínútna leik en Luzem jafnaði
í síðari hálfleik með mörkum Jurgen
Mohr og Berna Cina. Karl Heinz
Rummenigge sat á varamannabekk
Servette en hefur átt við meiðsli aö
stríða að undanfómu.
• Úrslit í leikjunum urðu þessi:
St. Gallen-Young Boys.......2-0
Neuchatel-Lausanne...........3-0
Servette-Luzern..............2-2
Zurich-Basel.................0-4
Bellinzona-Grasshoppers......0-1
Sion-Aarau...................1-1
• Þegar tuttugu umferðum er lokið
er Neuchatel Xamax efst með 27 stig,
Grasshoppers er í ööm sæti með 26
stig og Aarau er i þriðja sæti með 25
stig. Luzern er í níunda sæti með 19
stig.
• Luzern á eftir að leika við Basel
á heimavelli og við Zurich á útivelli
en þessi bæöi liö er fyrir neðan Luz-
em aö stigum í deildinni.
-JKS