Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1988, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1988.
21
Stöð 2 laugardag kl. 20.10:
Fríða og dýrið
Á laugardagskvöldið verður
byijað að sýna nýjan framhalds-
myndaflokk á Stöð 2. Efnið ætti að
höfða til þeirra sem unna spennu,
átökum góðs og ills og ævintýra-
ljóma. Myndaflokkurinn lýsir
samskiptum fallegrar stúlku, Fríðu
að nafni, við kryppling sem hefst
við í undirheimum New Yorkborg-
ar. í aðalhlutverkum eru Linda
Hamilton og Ron Perlman.
Stöð 2 laugardag kl. 00.05:
Vígamaðurinn Haukur
Betri
Jóhanna Linnet verður meðal
gesta Arnar Árnasonar í Betri
stofu Bylgjunnar.
Bylgjansnnnudagkl. 13.30:
Linda Hamilton i hlutverki sínu í
myndalokknum Fríða og dýrið.
stofa
Sagan gerist fyrir langa löngu
þegar fjölkynngi og galdrar hrifu
enn. Voltan hinn illi drepur fóður
sinn sem á banastundinni gefur
yngri bróðumum, Hawk, töfras-
verðið sitt og leggur um leið þau
álög á Voltan að hann muni deyja
þúsund sinnum. Upphefst nú bar-
átta milli bræðranna sem jafnframt
er barátta góðs og ills.
Aðalhlutverk leika Jack Palance
og John Terry. Leikstjóri er Terry
Marcel.
Stöð 2 sunnudag kl. 21.15:
Eigirikonur í Hollywood
A sunnudagskvöld hefst sýning
,'ýrrar framhaldsmyndar í þremur
þáttum á Stöð 2. Myndin er byggð
á samnefndri bók Jackie Collins og
skartar ótrúlegum fjölda leikara.
Hér segir frá eiginkonum leikara
og kvikmyndaframleiðanda í
Hollywood sem þrátt fyrir auð og
allsnægtir eiga ekki alltaf sjö dag-
ana sæla og heyja oft harða baráttu
til þess að halda eiginmönnum sín-
um.
Með aðalhlutverk fara Candice
Bergen, Joanna Cassidy, Mary
Crosby, Angie Dickinson, Steve
Forrest, Anthony Hopkins, Roddy
McDowall, Stefanie Powers, Suz-
anne Somers, Robert Stack Rod og
fleiri.
Bylgjuimar
Bein útsending verður frá Hótel
Sögu, gamanmál, spurningaleikir
og spé. Örn Ámason, umsjónar-
maður þáttarins, fær til sín gesti,
þar á meðal meöhmi J.C. Ness, auk
nokkurra Lionsmanna. Meðal
gesta í þættinum verður Jóhanna
Linnet og Öm bregður sér í bæinn
með hljóðnemann og spyr fólk
hvað það myndi gera ef það væri
hitt eða þetta, til að mynda sterk-
asti maður heims.
Sjónvaip sunnudag kl. 18.15:
I fínu formi
Þol, styrking og liðleiki em höf-
uðáherslur kennslunnar. Við val á
æfingum er tekið tiflit til þeirrar
þekkingar sem tiltæk er hvað varð-
ar öryggi og árangur.
Þættirnir eru ekki ætlaðír byrj-
endum heldur þeim sem stundað
hafa leikfimi undanfarið og eru þar
af leiðandi i einhverri þjálfun.
Umsjón með þáttunum hefur
Jónína Benediktsdóttir en leið-
beinandi er Ágústa Johnson.
Sjónvarp sunnudag
kl. 22.35:
Úr ljóða-
bókiniú
Herdís Þorvaldsdóttir leikkona
flytur Vögguþulu eftir Garcia
Lorca en Sigurður Pálsson flytur
formálsorð um höfundinn. Fyrir
þá sem hafa áhuga skal tekið fram
að á mánudagskvöldið verður sýnd
heimildarmyndin Opnar svalir, á
frummálinu E1 Balcon Abierto, og
fjallar hún um skáldið og einnig
verður brugðið upp myndum úr
nokkrum ljóðum hans.
Spennandi ævintýramynd er á dagskrá Stöðvar 2 aöfaranótt sunnudags.
Raymond Læwy.
Sjónvaipsunnudagkl. 16.15:
RaymondLæwy
Yfirleitt veitir fólk vörumerkjum
ekki mikla athygli og því síður að
menn velti því fyrir sér hver hafi
hannað hin ýmsu vörumerki. En á
dagskrá sjónvarps á sunnudag er
ný frönsk heimildarmynd um Ray-
mond Læwy sem er einn þekktasti
vörumerkjahönnuður samtímans.
Eftir hann liggur mikill fjöldi vöru-
merkja sem við höfum fyrir
augunum dags daglega, til að
mynda Coca-Cola merkið. Mörg
önnur merki, sem hann hefur
hannað, hafa sett svip sinn á sam-
tímann. Læwy hefur einnig fengist
við útlitshönnun á bílum. Hann
hannaði til að mynda útlit Stude-
baker-bifreiðanna og hann hannaði
innréttingar í flugvél Bandaríkja-
forseta.
Rás 2 suimudag kl. 15.00:
Míkadóiim
Rás 1 laugardagkl. 16.30:
Laugardags-
leikritið
Míkadóinn verður tekinn fyrir í þætt-
inum Söngleikir í New York.
Fmmflutt veröur nýtt útvarps-
leikrit, Ópus, eftir Odd Björnsson
sem er einnig leikstjóri.
Leikritið fjallar um svipað efni
og fyrri verk höfundar, ástina og
samskipti karls og konu. í því segir
frá rithöfundi nokkmm sem býður
konu, sem hann er hrifinn af, á
tónleika. Þá kemst konan að því
að ástin hefur altekið rithöfundinn
svo að hann greinir vart á milli
ímyndunar og veruleika.
Leikendur em María Sigurðar-
dóttir og Harald G. Haraldsson.
Leikritið verður endurflutt
þriðjudaginn 19. jan. kl. 22.20.
Söngleikurinn The Mikado efitir
Bretana Gilbert og Sullivan er einn
af forverum nútímasöngleiksins
þar sem fram fer ólíkindaleg saga,
ofin í skrúð snjallra texta og söngs-
kondinna laga. Þar eð margir
þekkja lögin í þessu verki er bmgð-
ið á það ráð í þættinum aö fá þá
sem ekki hafa sungið hlutverk í
Míkadónum á sviði til aö flytja
nokkur lög í verkinu, m.a. banda-
ríska gyðinga-giinistann Groucho
Marx sem varð frægur fyrir grin-
aktugheit með bræðrum sínum,
hinum svokölluðu Marxbræðmm.
Einnig syngur Nelson Eddy lög í
þessari kynningu en hann fór meö
hlutverk í kvikmyndinni sem gerð
var eftir söngleiknum. Umsjónar-
maður er Árni Blandon.
Maria Sigurðardóttir, Friðrik Stef-
ánsson og . Pálína Hauksdóttir
tæknimenn, Oddur Björnsson leik-
stjóri og Harald G. Haraldsson.