Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1988, Blaðsíða 8
30
FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1988.
V
Mynd-
bönd
Umsjón:
Sigurður M.
Jónsson
Hilmar Karlsson
DV-LISTINN
Angel Heart var ekki lengi í fyrsta
sæti myndbandalistans. Hin róm-
aða mynd Oliver Stone skiptir um
sæti við hana. Annars eru engar
stórvægilegar breytingar á listan-
um. Ein ný mynd kemur inn og
stekkur beint í íjórða sætið. Er þaö
gamanmyndin Morgan Stewart’s
Coming Home, gamanmynd sem
ekki vakti mikla athyli er hún var
frumsýnd vestanhafs í fyrra. Ann-
ars er merkilegt að sú kvikmynd,
er var lífseigust á listanum á síð-
asta ári, Krókódíla Dundee, skríður
aftur inn í tíunda sætið. Þá koma
Amazing Stories og Tough Guys
einnig aftur inn á listann.
1. (2) Platoon
2. (1) Angel Heart
3. (3) Tres Amigos
4. (-) Morgan Stewart’s
Coming Home
5. (8) Half Moon Street
6. (-) Amazing Stories
7. (7) 52 Pick Up
8. (4) Let’s Get Harry
9. (-) Tough Guys
10. (-) Krókódíla Dundee
★★★ ‘/2
Raunveruleiki stríösins
PLATOON
Útgefandi: Skifan.
Leikstjóri: Oliver Stone.
Aðalleikarar: Chatlie Sheen, Tom Ber-
enger og William Dafoe.
Bandarisk 1986 -Sýningartími: 120 min.
Það er víst að Platoon var kvik-
mynd árins 1986. Fékk hún mörg
meiriháttar verðlaun, óskarsverð-
laun þar á meðal, og er hún vel að
þeim verðlaunum komin.
Platoon er mögnuð lýsing á því
hvemig græningjar innan við og
rétt yfir tvítugt urðu aþ dýrum er
þeir voru sendir í hildarleikinn í
Víetnam, líttþjálfaðir og örugglega
ekki viðbúnir því sem beið þeirra.
Flestum ber saman um aö Víet-
nam hafi verið helvíti á jörðu
meðan styrjöldin stóð yfir og þrátt
fyrir að nokkrar myndir hafi verið
gerðar um ástandið þar og afdrif
hermanna þeirra sem lifðu hildar-
leikinn af þá er Platoon líklega sú
er kemst næst því að lýsa hryll-
ingnum þar.
Starx. í byrjunaratriðinu erum
við minntir á það sem bíður her-
★★★
«□
Riddarar
hringborðsins
EXCALIBUR
Útgefandi: Tefli hf.
Leikstjóri: John Ðoorman.
Aðalleikarar: Nigel Terry, Helen Mirren
og Nicol Williamsson.
Bresk 1982 - Sýningartimi: 140 min.
Riddarar hringborðsins, með
Arthúr konung í fararbroddi, hafa
margoft verið kvikmyndaðir og
hefur myndast rómantísk stemn-
ing og hetjudýrkun um riddarana
sem sjálfsagt flestir eru skáld-
sagnapersónur sem blandað er við
raunverulega atburði.
John Boorman hefur greinilega
verið heillaður af sögusögnum um
Arthúr konung og er kvikmynd
hans, Excalibur, sönnun þess.
Hann lætur gamminn geisa í magn-
þrunginni mynd sem lýsir örlögum
Arthúrs konungs frá barnæsku þar
til hann lætur lífiö. Og Boorman
er ekki feiminn við að gera hinn
dularfulla töframann Merlin að
þeirri persónu sem ræður örlögum
allra með kynngikrafti sínum.
Það eru fleiri goðumlíkar persón-
ur sem koma við sögu. Ástarævin-
týrum Gueneve drottningar,
Arthúrs og Sir Lancelot eru gerð
góð skil og hin illa Morgana reynir
allt sem hún getur til að koma Art-
húri frá völdum.
Excahbur er ævintýramynd eins
og þær geta bestar orðið. Hröð at-
burðarás, alltaf eitthvaö að gerast
og þótt ofbeldið sé mikið er aldrei
farið yfir markið.
Boorman hefur fengið til liðs við
sig úrval breskra leikara með Nicol
Williamson, er leikur Merlin
snilldarlega, og Helen Mirren, sem
er ekki síðri í hlutverki Morgana,
í fararbroddi. Aðrir standa þeim
ekki langt að baki.
Þótt Excalibur sé kvikmynd sem
fjallar um aevintýri er ungviðið
hefur hvað mest dálæti á er mynd-
in ekki fyrir böm og ætti að forðast
að sýna þeim hana. En fullorðnir
eru ekki síður fyrir ævintýri og
fyrir unnendur ævintýramynda er
Excalibur hin besta skemmtun.
HK.
I fréttaleit
WAR ZONE
Útgefandi: JB myndbönd.
Aðaihlutverk: Christopher Walken.
Bandarisk 1986. 95 min. Bönnuð yngri
en 16 ára.
Hér hefur líklega verið bent á þaö
áður að fréttamenn eru hetjur nú-
tímans! Þeir skunda af stað með
myndavél sína og ritvél og flytja
heim í stofu mynd og lýsingu á
dramatískum atburðum sam-
tímans. Vitaskuld er það ýkt mynd
sem Hollywood hefur ákveðið að
bregða upp af þessum fréttahetjum.
Þær verða yfirleitt nokkurs konar
sambland af Indiana Jones og
Hemingway. Þrátt fyrir að deila
megi um ágæti þessara mynda, eins
og Under Fire, Killing Fields,
Salvador, Missing, The Year of Li-
ving Dangerously og nú War Zone,
þá er óhætt að segja að fréttamenn-
irnir verða sjaldnast að neinum
fígúrum. Flestar þessara mynda
byggjast á yfirborðslegum hug-
myndum um hlutleysi frétta-
mannsins og vandamálum hans við
aö segja hlutlaust frá atburðum
sem hann blandast óhjákvæmilega
í. Eigi að síður eru þær framarlegh
í handritsgerð og búa yfir frásagn-
arkrafti sem vel kemst til skila.
Ekki veröur annað séð en að War
Zone geti alveg sómt sér í þessum
hópi. Myndin segir frá fréttamanni
sem dvelst í þeirri hrjáðu borg
Beirút. Hann er í fyrstu mjög tæki-
færissinnaður og kýs að semja
fréttir sínar horfandi út um hótel-
gluggann. Hann lendir í því að vera
misnotaður í pólitískum tilgangi og
blandast sífellt meira inn í atburð-
ina.
Það er Christopher Walken sem
hér er í aðalhlutverki en hann hef-
ur orðið að búa við heldur misjöfn
hlutverk á undanfömum árum og
líklega ekki orðið að þeirri stór-
stjömu sem sumir spáðu eftir
frammistöðu hans í Deer Hunter.
Líklega er hann sinnar gæfu smið-
ur þvi margt skortir hann til að
verða stórleikari. Umskiptin úr
tækifærissinnanum yfir í hug-
sjónamanninn em frekar ósann-
færandi en líklega er þó frekar við
handritið að sakast. Þessi mynd
verður að teljast þokkalega kre-
fjandi afþreying og vel þess virði
að horfa á hana.
-SMJ
mannanna. Um leið og þeir stíga
fyrstu skrefin á víetnamskri grund
er farið að hlaða flugvélina er þeir
komu með og farmurinn er lík fall-
inna hermanna.
Sögumaðurinn er ungur maður
sem leikstjórinn, Oliver Stone,
byggir á eigin lífsreynslu, en hann
barðist í Víetnam. Sögumaðurinn
sker sig nokkuð frá öðrum, hann
er sjálfboðaliði og vekur því í fyrstu
andúð annarra. Þungamiðjan í
myndinni eru þó liðþjálfar tveir.
Annar hefur enn mannlegar til-
fmningar, þrátt fyrir að vera
atvinnuhermaður, og má hann
hafa sig allan við að hafa hemil á
hinum sem lítur á hvern íbúa Víet-
nam sem bráð og hagar sér eftir
því. Myndast hatur milli þessara
tveggja manna.
Mörg atriði í Platoon eru áhrifa-
mikil og lokaorrustan, þegar
herdeildin er innikróuð, er meist-
aralega gerð og er ekki laust við
að hárin rísi á manni, bara við til-
hugsunina um hvað maður sjálfur
hefði gert í sporum þessara her-
manna sem fæstir höfðu þjálfun til
að takast á við óvininn...
Oliver Stone hefur gert mynd
sem tekur af allan vafa um hversu
hræðilegt það var að vera hermaö-
ur í Víetnam í stríði sem á sér enga
hliðstæðu í mannkynssögunni.
HK.
★ /2
o
Kærisáli
PRIVATE SESSIONS
Útgefandi: Arnar Videó
Leikstjóri: Michael Pressman. Aöalhlut-
verk: Mike Farretl, Mauren Stapleton,
Kelly McGillis.
Bandarisk. 95 mín. Öllum leyfð.
Hér segir af sálfræðingi einum
og tveim vandamálatilfellum hans.
Annars vegar er um að ræða unga
konu (McGillis) sem þjáist af kyn-
lífsvandamálum sem felast í því að
hún kastar sér í fang allra manna
sem hún sér. - Og það þrátt fyrir
að hún er mjög ástfangin af unn-
usta sínum. Hitt vandamálið snýst
um leigubílstjóra einn sem óttast
að hann sé að ruglast á geðsmun-
um. Inn í þetta blandast síðan
kvennamál læknisins sem eru í
ólestri.
Þama vefjast saman þrír sögu-
þræðir sem tengjast í einni per-
sónu, sálfræðingnum, sem því.
miður er fullkomlega litlaus og
dauflega leikinn af Farrell. Þrátt
fyrir þokkalega mannlegt handrit
er lítið púður í því og hvorki drama
né gaman.
-SMJ
Bamsrán
DEADLY DECEPTION
Útgefandi: Steinar hf.
Leikstjóri: John Llewelyn Moxley.
Aðalleikarar: Matt Salinger, Lisa Eilbac-
her og Bonnie Bartlett.
Bandarisk 1986- Sýningartími: 90 min.
Deadly Deception er dæmigerð
sakamálamynd þar sem ágætri
hugmynd eru gerð svo slæm skil
að úr verða ein allsherjarmistök
sem engin getur bætt úr.
Fjallar myndin um barnsrán þar
sem móðirin er drepin. Eigin-
maðurinn finriur á sér að barnið
er lifandi þótt allir aðrir séu á öðru
máli og heldur ótrauður áfram leit
sinni. Honum gengur þó ekkert
fyrr en blaöakona ein verður til að
koma honum á rétt spor...
Deadly Deception er greinilega
gerð í miklum flýti og eru margir
lausir endar þegar upp er staðiö.
Sjálfsagt hefði mátt gera ágætis
klukkutímaþátt úr myndinni því
hún er með eindæmum langdregin
og maöur er fyrir löngu búinn að
missa áhugann á persónunum þeg-.
ar loks sér fyrir endann.
Ekki bjarga leikararnir miklu og
enginn er verri en Matt Salinger í
hutverki hins syrgjandi eigin- •
manns og fóður. Ætti hann að snúa
sér að einhverju öðru sem allra
fyrst.
HK.