Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1988, Blaðsíða 6
28
FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1988.
Leikhús - Leikhús - Leikhús - Leikhús - Leikhús
Leikfélag Akureyrar:
Piltur og stulka
Um helgina veröa þijár sýningar á
Pilti og stúlku hjá Leikfélagi Akur-
eyrar en verkið var frumsýnt þann
26. desember síöastliðinn.
Verkið er sýnt í leikgerð Emils
Thoroddsen gerðri eftir skáldsögu
Jóns Thoroddsens. Piltur og stúlka
er talin marka upphaf íslenskrar
skáldsagnaritunar, fyrst gefln út
1850. íslensk leikhúsmenning nær
ekki langt aftur en í byijun síðustu
aldar fýsti menn mjög að koma Pilti
og stúlku á svið og alls voru gerðar
fimm leikgerðir af sögunni fram til
1934 en þá kom fram á sjónarsviðið
leikgerö Emils sem varð strax mjög
vinsæl og segja má að hinar fimm
leikgerðirnar hafi faliið í skuggann
og gleymst. Enda var tilgangur
Emils sá að semja alþýðlegan söng-
leik með söngvum. Sagan sjálf er
hugljúf ástarsaga sem birtir nú-
tímamanninum makalausa þjóðlíf-
slýsingu frá miðri öldinni sem leið.
Hún hefur lifað mr 5 þjóðinni allar
götur síðan hún kom út. En það eru
ekki síst hinar makalausu per-
sónulýsingar sögurmar sem hafa
hrifið fólk og flestir ílendingar eiga
sínar ímyndir af Gróu á Leiti og
Bárði á Búrfelli. Bæði í leikgerð-
inni og í sögunni eru persónumar
ofurlítið ýktar en það er stílbragð
höfundar til að gera þær skýrari.
Jón Thoroddsen sýnir persónur
sínar í gamansömu ljósi, þrátt fyrir
þaö beinir höfundur ekki skeytum
sínum að þeim, þvert á móti lýsir
hann þeim af næmum skilningi og
finnur til með þeim undir niðri.
Gróa á Leiti og Sigríður ræðast við, en þær stöllur leika Þórey Aðalsteinsdóttir og Arnheiður Ingimundardóttir.
í sýningunni koma allir þekkt-
ustu leikarar Leikfélags Akureyrar
fram auk nokkurra annarra sem
ekki hafa áður leikið með leikfélag-
inu. Arnbjörg Valsdóttir og
Amheiður Ingimundardóttir leika
Sigríði. Guðmundur Jónsson leik-
ur Jón, Sunna Borg er í hlutverki
Ingveldar í Tungu, Kristjana N.
Jónsdóttir túlkar Ingibjörgu á Hóli,
Pétur Eggerts og Páíl Finnsson
leika Indriða, Þórey Aöalsteins-
dóttir leikur Gróu á Leiti, Marinó
Þorsteinsson er í hlutverki Bárðar
á Búrfelli og Skúli Gautason er í
hlutverki Guðmundar á Búrfelli.
Leikstjóri er Borgar Garðarson
sem kom sérstaklega hingað til
lands til að leikstýra þessu verki
en Borgar starfar sem kunnugt er
í Finnlandi. Örn Ingi gerði leik-
mynd, Jón Hlöðver Áskelsson er
tónlistarstjóri og Ingvi Björnsson
sér um lýsingu.
Bíóborgin
Á vaktinni
Stjörnubíó
Roxanne er nýjasta kvikmynd
gamanleikarans Steve Martin sem
verður betri og betri með hverri
mynd. Roxanne er tvímælalaust
besta kvikmynd hans hingað til.
Roxanne er nútímaútgáfa af hinu
þekkta leikriti Cyrano de Bergerac.
I Roxanne er leikurinn færður til
nútímans og leikur Steve Martin
slökkviliðsstjórann C.D. Bales sem
er greindur og gamansamur ná-
ungi. Hann nýtur þó ekki hylli
kvenna vegna afarstórs nefs sem
hann verður að burðast með. Hann
kynnist hinni glæsilegu Roxanne
og verður ástfanginn. Hún verður
aftur á móti hrifin af samstarfs-
manni Bales sem er myndarlegur
en stígur ekki í vitið. Verður úr
þessu sérkennilegur þríhymingur.
Roxanne er kvikmynd er ætti að
létta öllum skapið í skammdeginu.
Háskólabíó
Það er greinilegt að Kevin Costner
verður næsta stórstimið í kvik-
myndum. Eftir stórsigur sinn í The
Untouchables kemur hann jafn-
ferskur í rómantískum þriller, Öll
sund lokuð (No Way out), mynd
sem alls staðar hefur fengiö góðar
viðtökur. Meðleikarar hans eru
Sean Young, sem einnig er spáð
miklum frama eftir ‘'rammistöðuna
hér, og gamla brýnið Gene Hack-
man sem bregst ekki frekar en fyrri
daginn. Þetta er hörkumynd sem
enginn fer óánægður út af.
Regnboginn
Þá hefur hún loks litið dagsins
ljós, nýjasta kvikmynd ítalska leik-
stjórans Bemardo Bertolucci,
Síðasti keisarinn (The Last Emper-
or). Og þeir sem biðu verða sjálf-.
sagt ekki fyrir vonbrigðum því að
Bertolucci hefur skapað eftir-
minnilegt verk um ævi síðasta
keisarans í Kína. Er honum fylgt
frá því hann er barn að aldri þar
til hann endar langa ævi á heima-
slóðum. Af öðrum myndum er helst
að nefna Að tjaldabaki (Fourth
Protocol), sakamálamynd gerða
eftir sögu Frederick Forsyth. Mic-
hael Caine leikur aðalhlutverkið.
Bíóhöllin
Að venju eru margar myndir í Bíó-
höllinni' og ber fyrsta að telja
jólamyndina, Undraferðina (Inn-
erspace), sem er nokkuð sérkenni-
leg framtíðarmynd. Fjallar hún um
hóp manna er getur sprautað í sig
efni er virkar þannig að þeir
minnka í örverur og þannig er
þeim sprautað inn í mannslíkam-
ann i rannsóknarskyni. Ekki fer
A vaktinni (Stakeout) er gaman-
mynd sem óhætt er að mæla með,
hröð og skemmtileg og uppfull af
hárfinum húmor sem góðir leikar-
ar koma vel til skila. Enginn er
samt betri en Richard Dreyfuss
sem leikur lögregluþjón sem fær
það verkefni að vakta unga stúlku
er var í tygjum við glæpamann sem
sloppið hefur úr fangelsi.
Hann er á næturvakt ásamt fé-
laga sínum. Á dagvakt eru tvær
löggur og er sambandið milli vakt-
anna í stirðara lagi og eru nokkur
góð atriði er lýsa sambandi vakt-
anna. Dreyfuss verður óvart ást-
fanginn af stúlkunni og leiðir það
til atvika sem áhorfandinn
skemmtir sér vel yfir. Ekki er
bragðminna samband lögreglu-
þjónanna íjögurra er skipta með
sér vöktum allan sólarhringinn.
Gamanmyndir, sem virkilega
kitla hláturtaugarnar, eru sjald-
gæfar en af og til koma myndir sem
standa undir nafni, Á vaktinni er
ein þeirra.
-HK
þó allt samkvæmt áætlun...
Undraferðin hefur fengið góðar
viðtökur erlendis og er ekki við
öðru að búast en að eins verði hér.
Þá hefur Bíóhöllin frumsýnt nýja
gamanmynd, Allir í stuði (A Night
in Town). Henni er leikstýrt af
Chris Columbus. Þá er enn sýnd
hin magnaða kvikmynd Stanleys
Kubrick, Skothylkið (Full Metal
Jacket), sem er áhrifamikil kvik-
mynd sem fæstir ættu að láta fram
hjá sér fara.
Laugarásbíó
Steven Spielberg gerði Jaws og
varð.heimsfrægur. Það hefur verið
reynt að feta í fótspor hans en ekki
tekist. Laugarásbíó hefur nú tekið
til sýninga fjórðu kvikmyndina um
hákarlinn, Hefndina (Jaws - The
Revenge), og enn heijar hákarlinn
á strendur New York fylkis. Eins
og í fyrri myndum er reynt að gera
sem mest úr áhrifamætti hins
ógurlega hákarls en sú stemning,
er skapaðist í fyrstu myndinni, þar
sem tónlist Johns Williams spilaði
stórt hlutverk, er ekki fyrir hendi
hér svo úr verður aðeins miðlungs
skemmtimynd fyrir þá sem hafa
sterkar taugar. Meðal leikara er
Michael Caine sem viröist hendast
heimshorna á milli op tekur sér
enga hvíld.
-HK
Kvikmyndahús
Kvikmyndahús - Kvikmyndahús
Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn
Sýningar
Gallerí list,
Skipholti 5tíb
Þar er nú mikið úrval af grafík, oliu- og
vatnslitamyndum. Einnig glerlist og
postulini. Opið virka daga kl. 10-18 og
10-12 á laugardögum.
Gallerí Langbrók,
Bókhlööustig 2,
textilgallerí. Opið þriðjudaga til fóstu-
daga kl. 12-18 og laugardaga kl. 11-14.
Gallerí Nes,
Nýja Bæ v/Eiðistorg
Opnaður hefur verið nýr sýningarsalur,
Galleri Nes, í verslunarhúsnæði Nýja
Bæjar við Eiðistorg, III. hæð. Opið er
virka daga kl. 16-19 og laugardaga og
sunnudaga kl. 13-16.
Gallerí Svart á Hvítu
v/Óðinstorg
í Gallerí Svart á hvítu stendur yfir sýning
á vatnslitamyndum Guðmundar Thor-
* oddsen. Guðmundur stundaði nám við
Myndlistarskólann í Reykjavík 1974-76
og í Paris 1976-78. Frá 1981 til 1985 var
hann við nám í Ríkislistaakademíuna í
Amsterdam. Guðmundur er búsettur í
París þar sem hann starfar sem myndlist-
armaður. Á sýningunni verða vatnslita-
myndir frá síðasta ári. Sýningunni lýkur
sunnudaginn 17. janúar.
Kjarvalsstaðir
við Miklatún
Baltasar sýnir málverk í vestursal Kjar-
valsstaða. Þetta er 22. einkasýning
Baltasar en auk þess hefur hann tekið
þátt í samsýningum heima og erlendis. Á
sýningunni eru 35 myndir, flestar málað-
ar á sl. ári. Allt olíumyndir með blandaðri
tækni. Sýningin er opin alla daga kl. 14-22
og stendur hún til sunnudagsins 24. jan-
úar.
Listasafn Einars Jónssonar
við Njarðargötu
er opið alla laugardaga og sunnudaga kl.
13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn
daglega frá kl. 11-17.
Listasafn Háskóla íslands
í Odda, nýja hugvísindahúsinu, er opið
daglega kl. 13.30-17. Þar eru til sýnis 90
verk í eigu safnsins, aðallega eftir yngri
listamenn þjóðarinnar. Aðgangur að
safninu er ókeypis.
. Mokka
Skólavörðustíg
Þessa dagana sýnir þýskur listamaður,
Christoph von Thungen, olíumálverk.
Sýningin á Mokka er fyrsta sýning Chri-
stophs von Thungen utan Þýskalands og
stendur hún til 11. febrúar. Mokka er
opið daglega kl. 9-23.30.
Myntsafn Seðlabanka og
Þjóðminjasafns,
Einholti 4
Opið á sunnudögum kl. 14-16.
Norræna húsið
v/Hringbraut
í sýningarsölum Norræna hússins sýna
þijár danskar textíllistakonur, Annette
Graae, Annette Qrom og Merete Zacho.
Listakonurnar vinna með ýmis efni, hör,
sísal, silki, ull og bómull og myndefnið
er sótt til náttúrunnar og í heim drauma
og fantasíu. Þær hafa haldið margar sýn-
ingar í Danmörku og víðar og verk þeirra
eru í eigu safna og opinberra stofnana.
Sýningin er opin daglega kl. 14-19 til 25.
janúar.
Stofnun Árna Magnússonar
Handritasýning Áma Magnússonar er i
Ámagarði við Suðurgötu á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugardögum kl. 14-16.
Sjóminjasafn íslands,
Vesturgötu 8, Hafnarfirði
Safnið verður í vetur opið laugardaga og
sunnudaga kl. 14-18. Skólafólk og hópar
geta pantað tima í síma 52502 alla daga
vikunnar.
Póst- og símaminjasafnið,
Austurgötu 11
Opiö á sunnudögum og þriðjudögum kl.
15-18. Aðgangur ókeypis.
Þjóðminjasafn íslands
Laugardaginn 16. janúar kl. 13.30 verður
opnuð sýning í forsal Þjóðminjasafns ís-
lands á ýmsum munum sem fundust við
fomleifarannsóknir á Bessastöðum á sl.
ári. Safnið er opið þriðjudaga, fimmtu-
daga, laugardaga og sunnudaga kl.
13.30-16.
Sýning í Náttúrufræðistofu
Kópavogs
Nú hefur enn einu sinni verið opnuð sýn-
ing N.F.S.K. í þetta skipti hefur hið
fjölbreytta lifríki Kársnesfjöru orðið fyrir
valinu. Er reynt að gefa sem gleggsta
mynd af einni gróskumestu (jöm á höfuð-
borgarsvæðinu. Þá verða sýndar allar
tegundir andfugla sem finnast hér á
landi. Auk þess eitt fullkomnasta lin-
dýrasafn (skeldýr) á íslandi o. fl.
Opnunartími kl. 13.30-16.30 á laugardög-
um Annar timi eftir samkomulagi ef um
skóla eða aðra hópa er að ræða. Símar
40680 eða 40241.
AKUREYRI
Gallerí Glugginn,
Glerárgötu 34, Akureyri
Laugardaginn 16. janúar kl. 14 opnar
Glugginn sýningu á málverkum og högg-
myndum þeirra Jóns Axels Bjömssonar
og Sverris Ólafssonar. Sýningin stendur
til sunnudagsins 24. janúar. Glugginn er
opinn daglega frá kl. 14-18 en lokað er á
mánudögum.