Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1988, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1988, Page 3
FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1988. 21 Stóri greipapinn með vinum sín- um. Stöð 2 laugardag kl. 09.20 Stóri greipapiim Gamall kunningi yngstu áhorf- endanna er aftur mættur til leiks á laugardagsmorgnum en það er hinn elskulegi, saklausi og auðtrúa bleiki api. Hann lendir ásamt vini sínum, litla hvíta hundinum, í mörgum og spennandi ævintýrum. Einnig verða á laugardagsmorgun sýndar teiknimyndirnar Selurinn Snorri, Lith fohnn, Jakari, Júhi og töfraljósið. Allar myndirnar eru með íslensku tah. Rás 1 laugardagkl. 22.20: í hnotskum Paul Robeson í þættinum fjallar Vaigerður Stef- ánsdóttir um bandaríska söngva- rann Paul Robeson sem söng sig inn í hjörtu fólks um allan heim á árunum 1928-1960. Hann átti lengi í útistöðum við bandarísk stjórn- völd sem ásökuðu hann um kommúnisma og tóku af honum vegabréfið eins og margir muna kannski eftir. Leynifélagsskapur- inn Ku Klux Klan hóf einnig um hkt leyti krossferð gegn Robeson og brenndi stórar myndir af honum og hótaði honum öllu Olu ef hann léti sjá sig á þeim slóðum. Paul Roheson syngur nokkra af sínum þekktustu söngvum í þættinum og saga hans verður rakin. Þetta verð- ur næstsíöasti Hnotskurnarþáttur Valgerðar. Rás 1 laugardag kl. 16.30: Eyja Frumflutt verður leikritið Eyja eftir Huldu Ólafsdóttur í leikstjóm Maríu Kristjánsdóttur. Eyja, sem er ekkja á fimmtugs- aldri, fær dag nokkum senda hljómplötu frá gömlum unnusta sínum sem orðinn er frægur tón- listarmaður. Þessi gjöf verður til þess að rifja upp minningar frá stormasömum kafla í hfi hennar. Leikendur eru Kristbjörg Kjeld, Jóhann Sigurðarson, Amar Jóns- son, Kolbrún Pétursdóttir, Herdís Þorvaldsdóttir, Þórarinn Eyfjörð og Karl Guðmundsson. Hulda Ólafsdóttir lauk námi í leikhúsfræðum í Svíþjóð árið 1985. Sama ár var leikrit hennar, Val- kyijan, leiklesið á htla sviði Þjóð- tæknimaður, Þórarinn Eyfjörð, Arnar Jónsson og Jóhann Sigurðarson. leikhússins. Pálína Hauksdóttir tæknimaður, María Kristjánsdóttir leikstjóri, Hulda Ólafsdóttir, höfundur leikverks, Kristbjörg Kjeld, Friðrik Stefánsson Romy Schneider i hlutverki Mar- ianne í myndinni Sundlaugin. Stöö 2 laugardag kl. 23.45: Monte Walsh - laufléttur vestri Hér er á ferðinni vestri með hinni kunnu kempu Lee Marvin í aðal- hlutverki. Hann leikur uppgjafakú- reka sem minnir um margt á hlutverk í myndinni Cat Ballou sem færði honum óskarsverðlaun- in á sínum tíma. Mótleikarar Marvins eru ekki síður þekkir en það eru þau Jack Panance og franska leikkonan Jeanne Moreau. Rás 2 sunnudag kl. 15.00: Söngleikir í New York Lokaþáttur- Billie Holiday Söngleikurinn um Billie Holiday, sem sýndur var Off-Broadway í New York síðastliðinn vetur, heitir Lady Day at Emersons’s Bar and Grill. Veerkið gerist íjórum mán- uðum áður en BUhe deyr og fjallar um æviferil hennar. Hún kemur fram á barnum hjá Emerson, syng- ur og þjáist. í þessum lokaþætti á „Söngleikjum í New York“ eru leiknar lagasyrpur með Billie Hohday, sem ekki eru truflaðar með frammígripum. Fyrir þá sem vUja heyra samvalin lög í túlkun BUlie Hohday er upplagt að leggja við hlustimar. Umsjónarmaður þáttarins er Árni Blandon. Stöð 2 sunnudag kl. 21.15: Miss Marple leysir gátuna Hin bráðglögga Miss Marple, sem fmna morðingj a bresks herforingj a fæddist í hugarfylgsnum Agöthu og þegar Miss Marple einbeitir sér Christie, er hér mætt tU leiks á má búast við skjótum árangri. Það nýtískulegum baðstrandarstað við er Helen Heys sem fer með hlut- Karíbahafið. Hún ætlar sér að verk Miss Marple. Miss Marple er mætt til leiks á ný. Lee Marvin í hlutverki uppgjafakú- reka. Sjónvarp laugardag kl. 23.10: Sundlaugin - örlagaríkt sumarleyfi Jean-Paul og Marianne fá lánað hús vina sinna við Miðjarðarhafið þar sem þau hafa ákveðið að eyða saman sumarleyfmu. Allt gengur vel í fyrstu, ástin blómstrar og skötuhjúin skemmta sér konung- lega uns Marianne ákveður að bjóða Henry, sem er kunningi þeirra hjóna, í heimsókn ásamt dóttur hans. En um leið og hann birtist á staðnum verður loftið lævi blandið og hefur heimsóknin ör- lagaríkar afleiðingar. Með aðalhlutverk í myndinni fara Alain Delon, RomySchneider, Maurice Tonet og Jene Birkin. Franska nýrokksveitin Etron Fou Leloublan. Útvarp Rót laugardag kl. 13.00: Poppmessa í G-dúr A laugardag er á dagskrá Út- varps Rótar „Poppmessa í G-dúr“. Jens þjónar fyrir poppaltari. Til meðhjálpar verða kvaddir ný- bylgjupopparar frá ýmsum lönd- um. Þeir munu væntanlega tala tungum Frakka, Þjóðverja, Svía, Norðmanna og jafnvel Grænlend- inga. Þá verður val músíkdeildar Rótar á hljómplötu kynnt. Ennig verður rakin markaðssetning á einhverju vinsældalistalagi. Rás 1 sunnudag kl. 18.30: Örkin - erlendar samtímabókmenntir A sunnudaginn verður þátturinn tileinkaður einum rithöfundi, Eng- lendingnum Ian McEwan sem er meðal þekktustu samtímahöfunda Breta. Umsjónarmaður Arkarinn- ar er Ástráður Eysteinsson. Einar Már Guðmundsson mun fjalla um McEwan og lesið verður úr þýðing- um þeirra beggja á verkum hans. Lesarar eru Jóhann Sigurðarson og Leifur Hauksson. Rás 1 laugardag kl. 20.30: Ástralía - þættir úr sögu Ástralía var eins og kunnugt er sú álfan sem seinast fannst og byggðist. Á þjóðhátíðardegi Ástral- íu 26. janúar síðastliðinn voru hðin 200 ár frá því byggð hvítra manna hófst þar. Margt mun verða gert til að minnast þessa merka atburðar, fjölbreytt hátíðahöld verða um lands og þjóðar Ástralíu allt þetta ár. í tilefni af þessum tímamótum mun Vilberg- ur Júlíusson rifja upp nokkra stutta þætti úr sögu andfætlinga okkar. Ennfremur mun hann huga að landkostum, veöráttu, atvinnu- vegum og lifnaðarháttum fólks í álfunni. Rás 2 sunnudag kl. 19.30: Spumingakeppni framhaldsskólanna Á sunnudagskvöldið hefst spum- ingakeppni framhaldsskólanna á rás 2. Þetta er þriðja árið í röð sem keppnin fer fram. Skólarnir sem taka þátt í keppninni em 24 alls. Spumingakeppninni veröur út- varpað í febrúar og mars en undanúrshtum og úrslitum verður sjónvarpað í apríl. í fyrstu umferð verður fyrir- komulag keppninnar með þeim hætti að 12 skólar detta út en 12 komast áfram ..., en það er þó ekki öll von úti fyrir þá sem tapa í fyrstu umferð því fjögur stiga-' hæstu tapliðin hætast í hóp hinna 12 sem áfram komast þannig að í annarri umferð keppa 16 skólar. Skólarnir, sem ríöa á vaðið og keppa fyrst í spumingakeppni framhaldsskólanna á sunnudags- kvöldið, eru Verzlunarskóli íslands gegn Flensborgarskóla._

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.