Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1988, Blaðsíða 6
28
FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1988.
Kvikmyndahús
býöur upp á allt þaö sem góö saka-
málamynd getur boöið upp á,
spennu, rómantík og óvæntan endi.
Aður en Michael J. Fox varð fræg-
ur lék hann í Teen Wolf, frekar
ómerkilegri kvikmynd sem þó hef-
ur oröiö vinsæl eftir að hróöur hins
lágvaxna Fox jókst. Einhverjum
hefur þótt borga sig að gera fram-
hald og nú hefur Laugarásbíó hafið
sýningar á Loðinbaröa (Teen Wolf
Too). Ekki er Michael J. Fox til
staðar heldur er „varúlfurinn"
leikinn af Jason Bateman.
Bíóborgin
Hamborgarahæðin (Hamburger
Hill) er enn ein myndin um Víet-
nam stríðið og fjallar um hóp
hermanna sem eiga að ná á sitt
vald Hamborgarahæðinni. Er það
hættuspil mikið. Leikstjóri er John
Irvin. Tvær aðrar eftirtektarverðar
myndir er óhætt að benda á. Sagan
furðulega (The Princess Bride) er
hugljúf ævintýramynd sem alls
staðar hefur fengið góða dóma og
Á vaktinni (Stakeout) er með betri
gamanmyndum síðustu mánuðina.
Richard Dreyfuss fer á kostum í
hlutverki lögregluþjóns sem verð-
ur óvænt hrifinn af stúlku sem
hann á að hafa gætur á.
-HK
Leikhús - Leikhús - Leikhús - Leikhús - Leikhús - Leikhús - Leikhús -
íslenska óperan frumsýnir
Litla sótarann
I---------------------------;
Kvikmyndahús - Kvikmyndahús
Stjörnubíó
Nadine er sakamálamynd með
gamansömu ívafi. Gerist í Texas
og fiallar um unga konu sem verð-
ur vitni að morði og áður en hún
veit af er hún hundelt af glæpa-
mönnum. Fyrrverandi eiginmaður
hennar reynir að rétta hjálparhönd
en ekki fer betur en svo að hann
er ásamt Nadine grunaður um
morðið. Jeff Bridges og Kim Bas-
inger eru í aöalhlutverkum. Leik-
sfióri er Robert Benton sem meðal
annars á að baki Kramer versus
Kramer. Þá er hin ágæta gaman-
mynd Roxanne með Steve Martin
einnig sýnd í Stjömubíói. Þetta er
mynd sem byggð er á hinu sígilda
leikriti Cyrano De Bergerac en snú-
iö upp á nútímann og gamansemin
látin vera í fyrirrúmi.
Háskólabtó
Kæri sáli (The Coach Trip) er
kostuleg gamanmynd þar sem Dan
Aykroyd fer á kostum í hlutverki
fanga á geðsjúkrahúsi. Hann er
vandræðagripur sem á frekar
heima í fangelsi en geðsjúkrahúsi.
Hann sleppur af hælinu og með
smásvindli fer hann að stjóma út-
varpsþætti sem hefur þaö markmið
að aðstoða taugaveiklaða. Kæri
Sáli er góð skemmtun og hefur Dan
Aykroyd ekki verið betri og Walter
Matthau stendur Vel fyrir sínu sem
fyrri daginn.
Regnboginn
Þá hefur hún loks litið dagsins
ljós, nýjasta kviktpynd ítalska leik-
stjórans Bernardo Bertolucci,
Síðasti keisarinn (The Last Em-
peror). Og þeir sem biðu verða
sjálfsagt ekki fyrir vonbrigðum því
að Bertolucci hefur skapaö eftir-
minnilegt verk um ævi síðasta
keisarans í Kína. Er honum fylgt
frá því hann er barn að aldri þar
til hann endar langa ævi á heima-
slóðum. Af öðrum myndum er helst
að nefna aðra myndina um Otto
sem hefur slegið í gegn hér sem
annars staðar á meginlandi Evr-
ópu. Betri skemmtun er víst varla
að fá að sögn þeirra er séð hafa.
Þá frumsýndi Regnboginn í vik-
unni spennumyndina Hinn skot-
heldi (Bullet Proofi með hinum
ágæta leikara Gary Busey í aðal-
hlutverkinu.
Laugarásbíó
Hin frábæra sakamálamynd, Öll
sund lokuð (No Way Out), hefur
nú veriö færð úr Háskólabíói yfir
í Laugarásbíó og eru þeir sem ekki
hafa séö hana hér með hvattir til
að missa ekki af henni. Myndin
Þann þrítugasta þessa mánaðar
frumsýnir íslenska óperan í bíó-
húsinu á Akranesi óperuna Litla
sótarann.
Sagan um litla sótarann gerist
um aldamótin 1800. Söguhetjan
Bjartur er bláfátækur átta ára
drengur sem verður að yfirgefa
heimili sitt sökum matarskorts.
Faðir hans greip til þess örþrifa-
ráðs að selja hann sótmeistaranum
Surti gamla og Klunna syni hans
en þeir hyggjast nota Bjart til að
hreinsa reykháfana að innan með
því að láta hann klifra upp í þá og
skafa sótið burtu.
Óperan hefst á því að áhorfendur
syngja Sótarasönginn en í lok hans
koma sótararnir inn með Bjart á
milli sín. Bagga ráöskona, sem
stjórnar öllu með harðri hendi, fer
að skipa þeim fyrir verkum. Rúna,
barnfóstran, aumkar sig yfir Bjart
litla sem grætur af skelfingu við
tilhugsunina um að þurfa að fara
inn í þennan óttalega reykháf. Sót-
aramir syngja hins vegar um
nauðsyn þess að hafa horaða
stráka til að hreinsa reykháfa.
Reipi er brugðið um Bjart og hann
sendur upp í reykháfinn.
Bjartur festist í reykháfnum og
er viö það að kafna í sótinu. Böm-
unum á heimihnu, þeim Silju, Glóa
og Soffíu, tekst að ná honum úr
reykháfnum og láta síðan líta út
eins og Bjartur hafi strokið en á
meðan sótararnir em að leita að
Bjarti fela þau hann.
Morguninn eftir færa bömin
Bjarti morgunverð. Þau hafa
ákveðið að bjarga honum með því
að gangast fyrir peningasöfnun svo
faðir hans þurfi ekki að senda hann
Spaceballs
Fyrir Mel Brooks er ekkert heil-
agt. Hann geröi gys að vestmm í
Blazing Saddles á þann hátt að
varla er hægt að líta vestra réttum
augum eftir meðferðina. Hryllings-
myndir fengu sinn skammt í Young
Frankenstein, Broadway söngleik-
ir vom heldur betur teknir fyrir í
The Producers og í High Anxiety
gerði hann góðlátlegt grín af sjálf-
um meistara Hitchcock.
Enn er Mel Brooks á ferðinni, nú
með Spaceballs, þar sem hinar há-
tæknivæddu geimvísindamyndir
fá sinn skammt, sérstaklega fá Star
Wars myndirnar að kenna á háði
hans. Hann leikur sjálfur tvö hlut-
verk í myndinni, Skroob forseta og
hinn vitra Yogurt. Söguþraðurinn
tekur mið af Star Wars. Forseti
plánetunnar Spaceball hefur skip-
að stjörnuflota sínum að ræna
Vespu prinsessu. En henni til
bjargar kemur hetjan okkar Lone
Star...
Mel Brooks fer að sjálfsögðu
fijálsum höndum um söguþráðinn
eins og hans er von og vísa, yfir-
keyrir stundum, en þegar best
lætur er húmorinn óborganlegur.
Brooks hefur eins og alltaf ágætt
lið leikara með sér. í fremstu röö í
þetta skipti eru John Candy og Rick
Moranis.
-HK
aftur að heiman.
Söngleikurinn Litli sótarinn er
eftir Eric Croxier en tónlistin eftir
Benjamin Britten. Þýðinguna gerði
Tómas Guðmundsson en hljóm-
sveitarstjóri er Jón Stefánsson.
Leikstjóri er Þórhildur Þorleifs-
dóttir og Una Collins gerði leik-
mynd.
Með helstu hlutverk fara Hrönn
Hafliðadóttir sem leikur Böggu
ráðskonu, Rúna bamfóstra er leik-
in af Elísabetu Erhngsdóttur, Tom
Speight leikur Tomma ekil, með
hlutverk Klunna sótara og Alfreðs
garðyrkjumanns fer Ágúst Guð-
mundsson, SOja er leikin af Mörtu
Guðrúnu Halldórsdóttur en Bjart,
htla sótarann, leika þeir ívar
Helgason og Þorleifur Arnar-
son.
Litli sótarinn.
Bíóhöllin
Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn
Sýningar
Listasafn ASÍ
Grensásvegi 16
Á morgun verður opnuð sýningin Vinna
og mannlíf. Á sýningunni eru listaverk
frá ýmsum tímum sem öll eiga það sam-
eiginlegt að fjalla um mannlegar athafn-
ir, leik og störf. Sýningin er opin virka
daga kl. 16-20 en um helgar kl. 14-20.
Aðgangur er ókeypis. Sýningunni lýkur
20. febrúar.
Listasafn Einars Jónssonar
við Njarðargötu
er opið alla laugardaga og sunnudaga kl.
13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn
daglega frá kl. 11-17.
Listasafn Háskóla íslands
í Odda, nýja hugvisindahúsinu, er opið
daglega kl. 13.30-17. Þar eru til sýnis 90
verk í eigu safhsins, aðallega eftir yngri
Iistamenn þjóöarinnar. Aðgangur að
safhinu er ókeypis.
Listasafn íslands
Fríkirkjuvegi 7
Safnið verður opnað almenningi kl. 11.30
á sunnudag. Það verður opið alla daga
nema mánudaga kl. 1.30-16.30.
Mokka
Skólavörðustíg
Þessa dagana sýnir þýskur listamaður,
Christoph von Thungen, oliumálverk.
Sýningin á Mokka er fyrsta sýning Chri-
stophs von Thungen utan Þýskalands og
stendur hún til 11. febrúar. Mokka er
opið daglega kl. 9-23.30.
Myntsafn Seðlabanka og
Þjóðminjasafns
Einholti 4
Opið á sunnudögum kl. 14-16.
Norræna húsið
Á morgun kl. 16 verður opnuð í kjallara
Norræna hússins sýning á málverkum
eftir Tuma Magnússon. Myndimar eru
málaðar á síðustu 18 mánuðum. Tumi
hefur haldið margar einkasýningar og
tekið þátt í samsýningum á íslandi og
erlendis frá 1978. Sýningin stendur til 14.
febrúar og er opin daglega kl. 14-19.
Nýlistasafnið, Vatnsstíg 3
Á morgun opnar Ingólfur Amarsson sýn-
ingu í Nýlistasafninu. Á sýningunni em
lágmyndir og teikningar. Sýningin er
opin virka daga kl. 16-20 og kl. 14-20 um
helgar. Sýningunni Iýkur 14. febrúar.
Stofnun Árna Magnússonar
Handritasýning Áma Magnússonar er í
Ámagarði við Suðurgötu á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugardögum kl. 14-16
Sjóminjasafn íslands
Vesturgötu 8, Hafnarfirði
Opnunartími í vetur er laugardaga og
sunnudaga kl. 14-18. Skólafólk og hópar
geta pantað tíma í síma 52502 alla daga
vikunnar.
Póst- og símaminjasafnið
Austurgötu 11
Opið á sunnudögum og þriðjudögumkl.
15-18. Aðgangur ókeypis.
Þjóðminjasafn Islands
Nýlega var opnuð sýning í forsal Þjóð
minjasafns íslands á ýmsum munum sem
fundust við fomleifarannsóknir á Bessa-
stöðum á sl. ári. Safnið er opið þriðju-
daga, fimmtudaga, laugardaga og
sunnudaga kl. 13.30-16.
Sýning í Náttúru-
fræðistofu Kópavogs
Nú hefur enn einu sinni verið opnuð sýn-
ing NFSK. í þetta skipti hefur hið fjöl-
breytta lífríki Kársnesfjöru orðið fyrir
valinu. Er reynt að gefa sem gleggsta
mynd af einni gróskumestu fiöra á höfuð-
borgarsvæðinu. Þá verða sýndar allar
tegundir andfugla sem finnast hér á
landi, auk þess eitt fullkomnasta lindýra-
safn (skeldýr) á íslandi o.fl. Opnunartími
kl. 13.30-16.30 á laugardögum, annar tími
eftir samkomulagi ef um skóla eða aðra
hópa er að ræða. Sími 40680 eða 40241.
AKUREYRI
Gallerí Glugginn
Glerárgötu 31, Akureyri
í kvöld kl. 21 opnar Ragna Róbertsdóttir
sýningu í Gallerí Glugganum. Ragna hef-
ur alla tíð fengist við textíl, í fyrstu á
hefðbundinn hátt en nú i seinni tíð hefur
hún getið sér gott orð fyrir nýstárlega
skúlptúra sem þessi sýning samanstend-
ur af. Glugginn er opinn daglega kl. 14-18
en lokaö er á mánudögum. Sýningin
stendur til sunnudagsins 7. febrúar.
ÍSAFJÖRÐUR
Slunkaríki
ísafirði
Á morgun opnar Birgir Andrésson sýn-
ingu á myndverkum sínum. Sýningin
verður opin í mánuð á auglýstum opnun-
artíma sýningarsalarins. Birgir hefur
haldið fiölmargar einkasýningar hér
heima og erlendis. Einnig hefur hann
tekið þátt í samsýningum.
Málverkasýning
í bókasafni Kópavogs
Þórhallur Filippusson sýnir málverk í
bókasafni Kópavogs. Sýningin er opin
mánudaga til fóstudaga kl. 9-21 og laug-
ardaga kl. 11-14. Sýningin stendur til 16.)
febrúar.