Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1988, Side 7
FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1988.
29
Mikið um íþrótta-
viðburöi um. helgiria
- heil umferö í körfii og 4 leikir í 1. deild 1 handknattleik
Mikið verður um að vera á íþrótta-
sviðinu hér innanlands um helg-
ina. Keppt verður í handknattleik,
körfuknattleik, innanhússknatt-
spymu, júdó, badminton og fijáls-
um íþróttum svo eitthvað sé nefnt.
Handknattleikur
Fjórir leikir eru á dagskrá í 1.
deild karla í Islandsmótinu. Þrír
leikir fara fram á laugardag. Þá
leika Þór og Valur á-Akureyri og
hefst leikurinn klukkan tvö. A
sama tíma leika Fram og KA í
Laugardalshöll og strax á eftir eða
klukkan 15.15 leika á sama stað
Víkingur og KR. Fjórði leikurinn
fer síðan fram á sunnudaginn
klukkan tvö en þá tekur toppliðið
í 1. deild, FH, á móti ÍR í íþróttahús-
inu í Hafnarfirði.
• Heil umferð fer fram í 2. deild
karla. Þrír leikir verða í kvöld,
fostudagskvöld. í Digranesi leika
HK og Haukar, í Seljaskóla leika
Fylkir og Selfoss og á Seltjarnar-
nesinu leika Grótta og Njarðvík.
Leikirnir hefjast klukkan átta
nema leikur Gróttu og Njarðvíkur
sem hefst klukkan 21.15.
Körfuknattleikur
Heil umferð fer fram í úrvals-
deildinni í körfuknattleik um
helgina. Á morgun, laugardag,
leika Haukar og Keflavík í Hafnar-
Jakob Sigurðsson og telagar hans i Val leika gegn Þór á Akureyri um helgina en KR-ingar leika gegn Vikingi í Laugardalshöll.
DV-mynd Brynjar Gauti
firði og hefst leikurinn klukkan
tvö. A sunnudag leika síðan
Grindavík og Breiðablik, Njarðvík
og KR og loks Valur og Þór. Allir
leikirnir hefjast klukkan átta.
• í 1. deild kvenna eru tveir leik-
ir á dagskrá. Keflavík og Haukar
leika klukkan tvö á sunnudag og
klukkan átta sama dag leika ÍR og
KR.
• í 1. deild karla verða leiknir
fjórir leikir. Á föstudagskvöld leika
Reynir og Léttir í Sandgerði klukk-
an átta og hálftíma síðar hefst
leikur íA og UMFS á Akranesi. Á
laugardag leika síðan ÍS og ÚÍA
klukkan tvö í Hagaskóla og á
sunnudag leika HSK og ÚÍA á Sel-
fossi klukkan tvö.
Badminton
Keppnistimabil badmintonmanna
er nú hafið og á sunnudag fer fram
Fyrirtækjakeppni TBR í TBR-hús-
inu.
Frjálsar íþróttir
Fyrsta meistaramót íslands í
fimmtarþraut karla og kvenna fer
fram á laugardag og sunnudag. Á
laugardag hefst keppni klukkan
sex í Laugardalshöll og verður þá
keppt í kúluvarpi, hástökki og
stangarstökki karla og kúluvarpi
og hástökki kvenna. A sunnudag
verður keppt í Baldurshaga og
verður þá keppt í 50 metra hlaupi
og 50 metra grindahlaupi karla og
50 metra grindahlaupi og lang-
stökki kvenna.
• HéraðsmótHSKfyrirkeppendur
15-18 ára fer fram á morgun, laug-
ardag, og fer mótið fram aö
Laugalandi.
Knattspyrna
Klukkan eitt á morgun, laugardag,
hefst keppni í 3. og 2. flokki kvenna
í innanhússknattspymu. Leikið
verður á Akranesi og hefst keppni
í 3. flokki klukkan eitt en klukkan
16.16 í 2. flokki. Keppnin í flokkun-
um hefst síöan aftur að morgni
sunnudags, klukkan tíu.
HELGARBLAÐ
Frjáist.óháÖ dágblað
Á MORGUIM
„Hann er hraustur og fylginn sér,“ segir einn af júdófélögum Thors Vilhjálmssonar. Thor er ekki síður
góður júdókappi en rithöfundur og státar af svarta beltinu í þeirri íþrótt. Aðrir létu segja sér það tvisvar
að skáldið hefði fallið fyrir iþróttinni. Thor Vilhjáimsson sýnir svarta beltið i helgarblaðinu á morgun...
Sumartískan hefur verið kynnt í París þessa vikuna og þar er stutta tískan
allsráðandi. Við leggjum heila opnu undir nýjustu tiskufötin í helgarblaðinu
á morgun.
Jóhann Hjartarson skákmaður á hug
og hjarta landsmanna þessa dagana
fyrir frækileg afrek. Sigurdór Sigur-
dórsson blaðamaður hefur fylgst vel
með öllu sem er að gerast í Kanada
og gefur okkur greinargóða lýsingu á
umhverfi og anda skákmótsins í helg-
arblaðinu á morgun.
Auk þessa segjum við frá Fordkeppn-
inni, ferðamálum, því nýjasta í poppinu
og mörgu fleiru í helgarblaðinu á
morgun.