Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1988, Blaðsíða 8
30
FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1988.
Mynd-
bönd
Umsjón:
Sigurður M.
Jónsson
Hilmar Karlsson
DV-LISTINN
Það eru tvær myndir sem skera sig
nokkuð frá öðrum hvað vinsældir
sneitir þessa vikuna, Platoon og
Lethal Weapon. Platoon heldur enn
fyrsta sætinu en Lethal Weapon
sækir stíft á. Annars eru þrjá nýjar
myndir er fara inn á hstann, tvær
gamanmyndir Who’s That Girl sem
státar af að hafa poppdrottninguna
Madonnu í aðalhlutverki og Gung
Ho sem fjallar um ástand er skap-
ast þegar Japanar ákveða að
framleiða bíla í Bandaríkjunum.
Þriðja myndin er franska gæða-
myndin Betty Blue.
Platoon
Lethal Weapon
Who’s That Girl
Betty Blue
Angel Heart
52 Pick Up
Gung Ho
Tres Amigos
Half Moon Street
Amazing Stories
★★★
Skotgledi í hámarki
LETHAL WEAPON.
Útgefandi: Steinar hf.
Leikstjóri: Richard Donner.
Aðalhlutverk: Mel Gibson, Danny Glov-
er og Gary Busey.
Bandarísk: 1987. Sýningartimi: 106 mín.
Það er víst óhætt að segja að Let-
hal Weapon hafi verið spennu-
mynd ársins í fyrra og mundu fáir
mótmæla því. Þessi lögreglumynd,
sem hefur áhorfandann á valdi
sínu allan sýningartímann, þrátt
fyrir allan óhugnaðinn, býður upp
á ógnvekjandi spennu sem erfitt er
að standast.
Lethal Weapon íjallar um tvo lög-
reglumenn í Los Angeles. Annar,
svartur íjölskyldumaður, Roger
Murtaugh (Danny Glover), finnur
að hann er á síðasta snúningi og
er ekki ánægður þegar hann fær
nýjan félaga, Martin Riggs (Mel
Gibson), sem enginn vill vinna með
því álitiö er að hann sé haldinn
þeirri ósk að verða drepinn.
Nokkuð er til í því. Riggs hafði
Af uppvaxtarárum bombunnar
misst eiginkonu sína og sjálfsmorð
er honum ofarlega í huga. Kynni
hans af Murtaugh og íjölskyldu
hans hafa þó áhrif á hann til betri
vegar.
Þeim er falið að rannsaka morð
á ungri stúlku. Leiðir það til rann-
sóknar á hópi manna, sem voru í
Víetnam þegar stríðið stóð yfir, og
hafa haldið hópinn, myndað smygl-
hring og stundað eiturlyfjasmygl
og sölu þar sem miklir peningar
eru í umferð.
Áður en þeir félagar vita af eru
þeir orönir bráð sem verður að
eyða. Dóttur Murtaughs er rænt
og hefst nú barátta upp á líf og
dauða þar sem ekkert er gefið eftir
í vopnaviðskiptum...
Lethal Weapon er hörkuspenn-
andi. Mel Gibson og Danny Glover
skapa með samleik sínum eftir-
minnilegar persónur og eiga þeir
mikinn þátt í að allur óhugnaður-
inn hverfur fyrir falslausri vináttu
þeirra.
Öll tæknivinna er til fyrirmyndar
og er sérstaklega áberandi hve
kvikmyndunin á mikinn þátt í að
skapa þá spennu sem einkennir
myndina.
HK.
y
DESERT BLOOM.
Útgefandi: Skífan.
Leikstjóri og handritshöfundur: Eugene
Corr.
Myndataka: Reynaldo Villalobos.
Aðalhlutverk: Jon Voight, Jobeth Will-
iams, Ellen Barkin, Allen Garfield og
Annabeth Gish.
Bandarísk: 1985. 104 min.
Bönnuð yngri en 12 ára.
Hér er áhorfandinn hrifinn inn í
einn afkima kalda stríðsins. í eyði-
mörkinni við Las Vegas er verið
að gera kjarnorkusprengjutilraun-
ir árið 1950, í miðju kalda stríðinu.
Kóreustyrjöldin var einnig í hám-
arki og fréttir þaðan fléttast inn í
söguþráðinn. Hann snýst að mestu
um fjölskylduna hennar Rose, sem
er 13 ára þegar þessir atburðir eiga
sér stað, og er myndin byggð á end-
urminningum hennar. Hún er á
erfiðum aldri og stirt samband
hennar við stjúpfoður hennar bæt-
ir ekki.
í myndinni fléttast saman átök í
alþjóðamálum og íjölskyldudrama.
Allt gerist það í skugga kjarnorku-
blómsins sem á að fara að springa
út í eyðimörkinni. Ekki verður
annað sagt en að samspil þessara
þátta falli vel saman og byggi upp
sannferðuga tíðarfarslýsingu
ásamt snoturri þroskasögu ungrar
stúlku. Um efnið er farið nærfærn-
um höndum þó sumum þyki
kannski vanta kjöt á beinin. í lok-
in, þegar sprenjan springur við
mikil fagnaðarlæti áhorfenda,
vaknar sú tilfinning að einhver
hafi verið að glata sakleysi sínu -
hvort það var bandaríska þjóðin
eða 13 ára gömul stúlka er ekki á
hreinu.
-SMJ
Krimmar í London
EMPIRE STATE.
Útgefandi: Steinar.
Leikstjóri: Ron Peck.
Handrit: Ron Peck og Mark Ayres.
Aðalhlutverk: Ray McAnally, Cathryn
Harrison og Martin Landau.
Bresk: 1987. Bönnuð yngri en 16 ára.
Hér ætla Bretar greinilega að
reyna fyrir sér í borgarofbeldis-
myndum eins og þessi snöggsoðna
glæpaklíkumynd sýnir. Hér eru
fetaðar slóðir sem Bandaríkja-
menn hafa hingað til verið þekktir
fyrir að fara. Sagt er frá tveim hóp-
um glæpa/verslunarmanna sem
kljást um yfirráð í undirheimum
London. Bandarískur auðjöfur er í
bænum og allir vilja klófesta hann.
Kallar það fram uppgjör milli
glæpahópanna.
Myndin er barin áfram af hörku-
legri klippingu og ofbeldislegum
undirtón sem, eins og áður segir,
hefur fremur sést í myndum að
vestan. Það er dálítil peningalykt
af þessu öllu saman og myndina
skortir flest það af breskri fágun
sem mörgum þykir nauðsynleg.
Ailir eru að nota alla en fátt nýtt
er sagt hér. Gaman er að fylgjast
með McAnnally í hlutverki skúrks-
ins Fred en líklega hefur hann
fengið virðulegri hlutverk til þessa.
-SMJ
Að ferðast
niður
SID & NANCY.
Útgefandi: Skifan.
Leikstjóri: Alex Cox.
Aðalhlutverk: Chloe Webb, Garry Old-
man og Drew Schofield.
Bresk: 1986. 109 min.
Það hefur ekki reynst auðvelt að
segja til um áhrif pönkbylgjunnar
svokölluðu á þá tónlist sem við lif-
um við í dag, hvað þá menningarleg
áhrif þessa fyrirbæris. „Pönkið er
dautt“ heyrist oft en því er mót-
mælt jafnóðum. Staðreyndin er sú
að þær þjóðfélagskringumstæður,
sem kölluðu fram pönkið, eru enn
fyrir hendi þó að hugmyndafræði
(hugmyndafátækt!) pönksins hafi
orðið að víkja fyrir áferöarfallegri
þankagangi, svo sem þeim er upp-
amir stunda.
Niðurrifs- og sjálfstortímingar-
kraftur pönksins var ekki eftir-
breytniverður. Sú er allavega
niðurstaða Cox sem brýtur niður
goðsögnina um pönkkónginn Sid
Vicious á miskunnarlausan hátt.
Lífshlaup þessa unga manns var
stutt en samkvæmt myndinni alltaf
á niðurleið þótt hann hefði fæðst
nánast í ræsinu.
Ástarsaga Sid & Nancy er furðu-
leg en ótrúlega harmþrungin. Þau
stefna svo hratt til glötunar að aldr-
ei er hægt að njóta neins, þau leika
sér að þeim eldi sem étur þau bæði,
eiturlyfjum. Samt er það svo að
stundum er eins og eitrið skipti
ekki einu sinni máli, þaö sé ekki
nógu fljótvirk sjálfsmorösleið.
Þetta er ekki bjartsýnismynd og
Cox er æaunar ótrúlega grimmur
gagnvart persónum myndarinnar -
allt að því ósanngjarn. Hann virðist
kjósa að ýkja og bæta við, fyrir
utan það sem óneitanlega hlýtur
að vera skáldskapur. Fyrir vikið'
verður myndin áhrifaríkari og lík-
leg til að reka síðasta naglann í
líkkistu pönksins.
Leikur þeirra Webb og Oldman
er mjög svo áhrifaríkur og geysi-
lega krefjandi líkamlega. Þau
samlagast hlutverkunum „hræði-
lega“ vel. -SMJ
★★★
Sr
Ósví&iir sölumenn
íMritmaat*
TINMEN
■DMnnBinaMMaiasiawawmH .
íMxœ mo» muam »*r
TIN MEN.
Útgefandi: Bergvík.
Leikstjóri: Barry Levenson.
Aóalhlutverk: Richard Dreyfuss, Danny
DeVito og Barbara Hersey.
Bandarísk: 1987. Sýningartimi: 107 min.
Barry Levenson vakti fyrst at-
hygli fyrir nokkrum árum þegar
hann leikstýrði sinni fyrstu mynd,
Diner. Þar tók hann fyrir nokkra
unglinga í Baltimore í lok sjötta
áratugarins og skapaði eftirminni-
lega kvikmynd, góða mynd sem
gerði nokkra leikara þekkta, þar á
meðal Mickey Rourke.
í nýjustu mynd sinni, Tin Men,
hverfur Levenson aftur til heima-
borgar sinnar, Baltimore. Nú er
sjöundi áratugurinn sögusviðið og
aðalpersónurnar eru tveir ósvífnir
sölumenn sem fá hatur hvor á öðr-
um.
Sölumönnunum tveim, sem eru
túlkaðir snilldarlega af Richard
Dreyfuss og Danny DeVito, verður
það á að keyra á kádiljákunum sín-
um hvor á annan. Þeir byrja að
rífast á staönum og hóta hvor öðr-
um illu.
Þeir láta ekki orðin ein nægja og
hefst nú hið magnaðasta stríð milli
þeirra sem nær hámarki þegar
annar þeirra tælir konu hins til
lags við sig. Sú áætlun mistekst að
vísu því eiginmaðurinn er alveg
sáttur við að tapa eiginkonunni.
Inn í þennan söguþráð kemur svo
til sögu rannsóknarnefnd sem
kannar óheiðarlega sölumennsku.
Sölumennirnir okkar lenda báðir í
klónum á útsendurum hennar...
Barry Levenson hefur með Tin
Men gert hina allra skemmtileg-
ustu mynd þar sem persónur eru
skýrt markaðar. Og það eru fleiri
en DeVito og Dreyfuss sem sýna
góðan leik. Barbara Hersey sýnir
hér enn einu sinni aö hún er meðal
bestu leikkvenna vestanhafs um
þessar mundir.
HK.