Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1988, Síða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1988, Síða 1
.«*'í XíMtíZfi £ ÚtS&Á&JT&ft Kjarvalsstaðir: Súlnasalur Hótel Sögu: Þjóðarspaug í 30 ár Eitt af málefnum líðandi stundar sem Omar Ragnarsson gerir grin af í Þjóðarspaugi sínu er bjórinn. Hér er hann ásamt Ragnari Bjarnasyni að syngja bjórnum til dýrðar. Ómar Ragnarsson verður aðal- stjarnan á skemmtidagskrá sem Hótel Saga ætlar að bjóða lands- mönnum upp á um helgar á næst- unni. Nefnist dagskráin Þjóðar- spaug í 30 ár og mun fara fram hámákvæm söguskýring Ómars og hans manna á atb.urðum líðandi stundar. Þrjátíu ár er sá tími og rúmlega þaö sem Ómar hefur verið í sviðs- ljósinu og vinsældir hans hafa ver- ið miklar allan þann tíma. Hann hefur ávallt verið í sviðsljósinu öll árin, hvort sem hann hefur verið í hlutverki grínarans eða sjónvarps- mannsins. Það má eiginlega segja að Þjóðarspaugið sé úttekt á mönn- um og tíðaranda þessara ára. Ómar er og verður æringi, tekur hin þekktu bakföll sín og þeysir með áhorfendur aftur í tímann og fram og er honum ekkert heilagt, engum hlíft, höfðingjar reynast hrek- kjalómar og kennimenn kroppar. Ómar nýtur aðstoðar úrvalsfólks. Hemmi Gunn verður ábyggilega með eitthvað í pokahorninu. Þá mun Helga Möller einnig aðstoða og Haukur Heiðar sem hefur verið undirleikari hjá Ómari í mörg ár. Leynigestur verður í hvert skipti sem skemmtunin fer fram og hljómsveitin Einsdæmi heldur uppi dúndrandi fjöri langt fram á nótt. Skemmtunin er með mat og er val á réttum. Miðaverðið er 3600 fyrir manninn. Sértilboð frá Hótel Sögu er aðgöngumiði með mat og gisting í eina nótt í tveggja manna herbergi með morgunmat fyrir kr. 5150 kr. Gildir það tilboð jafnt fyrir borgarbúa sem og utanbæjarmenn. Stjórnandi skemmtunarinnar er Björn Bjömsson. Árni Scheving sá um útsetningar á .tónlist. -HK Tvær sýningar íslenskra nútímalistamanna Teikningar 1972-1988 er yfirskrift sýningar á verkum eftir Kristján Guðmundsson og er þetta önnur tveggja sýninga á Kjarvalsstöðum. Kristján var á sínum tíma einn helsti fulltrúi SÚM-hópsins og einna fyrstur til að tileinka sér myndmál og aðferðir konseptlistarinnar í byrj- un áttunda áratugarins. Á síðustu áram hefur Kristján opnað fyrir þátt- töku áhorfandans í verkum sínum, líkt og fleiri konseptlistamenn átt- unda áratugarins, og boðið honum að njóta fagurfræðilegra unaðs- semda myndverksins. Sýning Kristjáns að Kjarvalsstöð- um er opin daglega frá kl. 11 til 18 og stendur til 12. febrúar. Myndhst Halldórs Ásgeirssonar, en hann sýnir í austursal og á gangi Kjarvalsstaða, byggist á sjónrænu hugarflæði sem hann skráir ósjálf- rátt niður. Efniviðurinn er tekinn úr umhverfi og lífsreynslu listamanns- ins hveiju sinni og eru ferðalög með- al annars ríkur þáttur í hinni sjón- rænu upplifun, hvort sem auga og penni ferðast um óbyggðir íslands eða sigla upp ána Níl. Halldór Ásgeirsson er fæddur 1956 og nam myndlist við Parísarháskóla nr. 8 á árunum 1977-80 og 1983-’86. Þetta er sjötta einkasýning Halldórs á íslandi en hann hefur sýnt og starf- að að myndlist undanfarin ár bæði heima og erlendis. — ■ ; ' ■ V;'—. : » “V''' Myndverk eftir Halldór Ásgeirsson. Myndverk eftir Kristján Guðmundsson. Veitingahús vikunnar: Uppinn - sjá bls. 18 I Norræn fegurð - sjá bls. 19 Hvar verður Sniglabandið um helgina? - sjá bls. 19 I Vorið kallar sjá bls. 22 Tvær sýn- ingar Ný- listasafni - sjá bls. 29 Njósnari af lífi og sál - sjá bls. 21 Hvaðeríbíó um helgina? - sjá bls. 30 Hættuleg kynni - sjá bls. 32 ísland- Noregur og meira um íþróttir - sjá bls. 31

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.