Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1988, Page 1
Islendingar komnir í hóp
mestu bílaþjóða heims
- aldrei meiri innflutningur eða alls 23.459 bílar
íslendingar eru óumdeilanlega
komnir í hóp mestu bílaþjóða heims.
Á síðasta ári, 1987, jókst enn bifreiða-
innflutningur til landsins og varð
heildarinnflutningur ökutækja til
landsins samtals 24.485, sem er mikil
aukning frá árinu 1986, en þá voru
alls flutt inn 15.851 ökutæki. Er nú
svo komið að það er aðeins 1,85 mað-
ur um hvem bíl á landinu. Aðeins
Bandaríkin skáka okkur í þessu efni
en þar er 1,4 um hvem bíl. í Kanada
og á Nýja-Sjálandi em jafnmargir um
hvem bíl og hér á landi. Önnur lönd
standa okkur síðan langt að baki.
Eitt hefur sett mark sitt á bifreiða-
innflutninginn á síðasta ári, en það
er stóraukinn innflutningur notaðra
bfla, einkum frá Bandaríkjunum. Á
síðasta ári vom alls fluttir inn 4.494
notaðir fólksbílar til landsins en á
árinu 1986 voru þeir 1.666.
Notaðir sendibílar voru nánast
eins margir og nýir, en af þeim voru
fluttir inn 175 á móti 197 nýjum. Á
árinu 1986 vora nýir sendibflar hins
vegar 240 á móti aðeins 49 notuðum.
Nýir vörabílar voru 310 á móti 232 á
árinu 1986. Innflutningur notaðra
bíla jóks hins vegar því 133 slíkir
komu til landsins á móti 48 árið áður.
Innflutningur fjórhjóla margfald-
aðist á árinu 1987, en þá komu alls
1.022 slík ökutæki til landsins á móti
aðeins 225 á árinu 1986.
Toyota Corolla mest seldi ein-
staki bíllinn
Af einstökum gerðum seldist Toy-
ota Corolla mest, eða alls 881 bfll.
Næstur í röðinni er Subaru 1800, alls
837 bflar. Þriðji er Mazda 323, 729, þá
Daihatsu Charade 701 og Lada 21043,
alls 680 bflar.
Lada mest selda tegundin
Af heildarinnflutningi tegunda hef-
ur Lada vinninginn með 2.824 bfla
eða 15,61% af heildarsölu fólksbíla. í
öðru sæti er Toyota með 2.327 bfla
eða 12,86%. í þriðja sæti kemur
Mitsubishi með 2.051 bíl eða 11,34%.
Mikil aukning í bíla
eign á milli ára
Þessi mikli bílainnflutningur jók
bílaeign þjóðarinnar verulega á mifli
áranna 1986 og 1987.
Heildarbílaeign landsmanna var í
árslok 1987 alls 133.540 bílar á móti
126.126 bflum í árslok 1986. Þar af eru
fólksbílar 121.696 á móti 113.982 fólks-
bílum í árslok 1986. Fólksbflar á
þúsund íbúa vora 492,7 í árslok 1987
og bílar alls 540,6 á þúsund íbúa.
íbúar á fólksbfl vora því 2,0 í árslok
og ef allir bflar eru taldir saman þá
vora 1,8 um hvern bíl í árslok 1987.
Samsvarandi tölur fyrir 1986 vora 2,1
og 1,9.
Meðalaldur bíla á skrá 1986 var um
9 ár en var 8 ár 1985. Meðalaldur af-
skráðra bíla á árinu 1986 var um 13,7
ár á móti 13,5 áram 1985. Meðalaldur
afskráðra bfla á árinu 1987 verður
án efa mun hærri því mikill fjöldi
bíla var afskráöur á því ári vegna
hækkaðra gjalda til hins opinbera.
Til sölu
PORSCHE 924 TURBO
Höfum nú til sýnis og sölu frábært eintak af 924 turbo.
Dökkgrænn, sanseraður, 170 hö, m. rafm. rúðum og spegl-
um, leðurklæddum aukahl., lituðu gleri o.fl. Bíllinn er af
árgerð 1980 og er I toppstandi. Sjón er sögu ríkari. Góð
greiðslukjör.
umboðið - Austurströnd 4 - Seltjarnarnesi - s. 611210.
3000-i
2824
2000-
1000
2327
2051
1383
1368
/--J/
1086 1079
Lada Toyota Mitsubishi Subaru Mazda Nissan Daihatsu Skoda
A þessu súluriti sést hvaða átta tegundir nýrra fólksbila seldust best hér á landi á siðasta ári.
í fjórða og fimmta sæti koma nán-
ast jafnir Subaru með 1.383 bíla,
7,64%, og Mazda með 1.368 bíla,
7,56%.
í sjötta og sjöunda sæti era nánast
hnífjafnir Nissan með 1.086 bfla eða
6,0% og Daihatsu með 1.079 bíla,
5,96%. I áttunda sæti er svo Skoda
meö 639 bfla eða 3,53% af heildarsölu
bíla á árinu 1987.
Sprenging í innflutningi not-
aðra bíla
Aldrei áður hafa jafnmargir notað-
ir bílar verið fluttir til landsins eða
alls 4.494 bílar. Má segja með sanni
að „sprenging“ hafi orðið í innflutn-
ingi notaðra bíla, því á árinu 1986
voru „aðeins" fluttir inn 1.666 fólks-
bílar.
Af einstökum tegundum má nefna
að af Mercedes Benz voru fluttir inn
511 notaðir bílar en frá General Mot-
ors í Bandaríkjunum foru fluttir alls
inn 504 notaðir fólksbílar. Jeppar
hafa verið fluttir inn notaðir í mikl-
um mæb og til dæmis má nefna að
af gerðinni AMC-Cherokee var flutt-
ur inn 241 bfll og Wagoneer 69 bílar.
Frá Ford í Vestur-Þýskalandi (aðal-
lega Escort og Sierra) voru fluttir inn
549 notaðir bílar og frá Ford í Banda-
ríkjunum 241 bíll. Af Toyota voru
fluttir inn 386 notaðir bílar.
Hraður
akstur veldur oft
alvarlegum slysum
s*
UMFBIÐftR
RAÐ
GÆÐABILARISERFL0KKI
Toyota Corolla Twin Cam GTI, árg.
1988, hvitur, 5 gíra, 3 dyra, ekinn
750 km. Verð 750.000.
Saab 900i árg. 1986, brúnsans., 5
gíra, vökvastýri, ekinn 33.000. Verð
730.000.
Toyota Corolla liftback 1300, árg.
1988, rauður, 5 dyra, 5 gíra, ekinn
9.000. Verð 590.000.
Dodge Aries LE, árg. 1987, blá-
sans., 4 dyra, sjálfskiptur, vökva-
■ stýri, útvarp/segulband, ekinn
6.000. Verð 690.000. Góð kjör.
Citroen BX 19 TRS station, hvitur, VW Golf GL 1800, árg. 1987, blá-
ekinn 18.000, sjálfskiptur, vökva- sans, ekinn 11.000, 5 gíra, útvarp/
stýri, sportfelgur, sumardekk, segulband, sumar- og vetrardekk.
vetrardekk, útvarp/segulband. Verð 620.000.
Verð 890.000.
Spennum beltin og notum ökuljós.
Allar gerðir bíla vantar á söluskrá - mikil sala.
Opið laugardaga kl. 10-18.
BILATORG
NOATUN 2 - SIMI 621033
Neðst í Nóatúni eru viðskiptavinir okkar efstir á blaði.