Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1988, Page 6
38
LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1988.
Bflar
Nýtt kveikju-
' kerfi frá Saab
- framhald
líkt og eiga sér stað við gangsetningu
í kulda. Raunar er þetta nýja kerfi
sagt vera áreiðanlegt við hvaða hita-
stlg sem er og við mismunandi álag.
Einkaleyfi á hlífðarkassettu
Háspennukeflin og raunar allir
hlutar kveikjukerfisins, sem vinna á
hærri spennu en 12 voltum, eru lok-
íkðir inni i hlífðarkassettu af sér-
stakri gerð sem Saab hefur fengið
einkaleyfi á. Þessi „kassetta" er
þannig gerð að koma má við hana
án þess að eiga á hættu að fá há-
spennuneista, líkt og hætta er frá
venjulegri kveikju. Hlífðarkassettan
er úr málmi sem ásamt vélarheddinu
gerir það að verkum að hættan á
truflunum í útvarpi er hverfandi.
Meira að segja tengingarnar við
kertin sjálf eru bundnar einkaleyfi
Saab-Scania. Tengingarnar eru
þannig að gúmmíslífin við hvert
kerti opnast þegar hlífðarkassettan
er tekin upp eða sett niður. Þetta
auðveldar alla vinnu við kveikju-
kerfið og kertin, jafnvel í mesta
hulda.
Engir hreyfanlegir hlutir
Dl-kerfið frá Saab hefur enga
venjulega „kveikju". Skynjari sem
er' á sveifarásnum mælir snúning
hans og stýrir kveikingunni með
nákvæmni sem nemur 'A gráðu í
hvora átt. Þegar skynjarinn sendir
frá sér merki til örtölvunnar er
kveikineisti sendur til kertisins, mið-
aður við hraða og álag vélarinnar.
Kerfið er sagt svo áreiðanlegt að
ekki þurfi að endurstilla kveikjuna á
líftíma vélarinnar.
Vegna örtölvunnar, sem stýrir
kveikjunni, er aðeins sendur neisti
til kertisins þegar þörf er á honum.
Aukið öryggi
Þá býður Dl-kerfið upp á aukið ör-
yggi í rekstri. Ef bilun verður til
dæmis í örtölvunni, sem stýrir kveik-
ingunni, þá stýrist kveiking kert-
anna beint frá skynjaranum á
sveifarásnum. Þetta á einnig við í
starti. Þar með eykst öryggið einnig
þótt spenna rafgeymisins minnki og
þar með gæti starfsemi örtölvunnar
ruglast.
Það að hafa eitt háspennukefli fyrir
hvert kerti eykur einnig öryggið því
þótt eitt þeirra bili er samt hægt að
aka áfram. Þetta er ekki hægt að
gera á bíl með eitt venjulegt há-
spennukefli.
M. Benz 280 SE árg. 1984, sjálfsk.,
4ra dyra, ekinn 67.000 km, sæ-
grænn. Verð 1.400.000, góður bíll á
góðu verði.
MMC Pajero, langur, árg. 1987,
beinsk., 5 dyra, ekinn 20.000 km,
grásans. Verð 1.150.000, toppbíll.
2 stk. Subaru 4x4 árg. 1986, beinsk.,
5 dyra, ekinn 19.000 km, blár. Verð
700.000, almælisútgáfa.
VW Golf GTI árg. 1988, beinsk., 3ja
dyra, ekinn 1500 km, steingrár.
Verö 900.000.
Cherokee Laredo árg. 1987,
sjálfsk., 5 dyra, ekinn 5 þús. mílur,
svartur. Verð 1.650.000, rafmagn í
öllu.
Volvo 740 GL árg.
dyra, ekinn 4000
1.040.000.
sjálfsk., 4ra
km, blár. Verð
Mazda 626 hatchback GLX árg. BMW 318i árg. 1984, beinsk., 2ja
1986, sjálfsk., 5 dyra, ekinn 42.000 dyra, ekinn 33.000 km, steingrár.
km, gullsans. Verð 640.000. Verð 600.000.
SÝNISHORN ÚR SÖLUSKRÁ
• Volvo 244 árg. 1982, sjálfsk., ekinn 64.000 km, gullsans. Verð 420.000.
• Honda Accord EX árg. 1982, sjálfsk., ekinn 70.000 km, gullsans. Verð 370.000.
• Ch. Monza árg. 1987, sjálfsk., blár. Verð 530.000.
• VW Golf árg. 1986, beinsk., ‘ekinn 42.000 km, blár. Verð 520.000.
• Honda Civic Sedan árg. 1986, beinsk., ekinn 42.000 km, vinr. Verð 480.000.
• Ford Sierra 1600 laser árg. 1985, beinsk., ekinn 75.000 km, vínr. Verð 520.000.
V
Geysilegt úrval af bílum á skrá
Verð og kjör við allra hæfi
Lukka fylgir bílunum
frá SKEIFUNNI
A
Opið mán.-fös. 9-19.
laugardaga 10-18.
Skeifan
Skeifunni 11, simar 84848 og 35035.
„Direct Ignition kassettan" frá Saab. Háspennukeflin eru sambyggð kertahettunum. Á myndinni sést hvernig þetta
er byggt upp og lengst til vinstri er búið að skera utan af háspennukeflinu þannig að kertið og keflið eru sem-ein heild.
Hægt að nota mismunandi
kerti
Kerti fyrir bensínvélar eru mis-
munandi, allt eftir því hvernig vél
og akstri er háttað. Kertin eru mis-
piunandi „heit“, þ.e. þau vinna
mismunandi við álag og hitastig vél-
arinnar.
„Kalt“ kerti er notað í bílvél þegar
hratt er ekið, til dæmis á hraðbraut.
Slík kerti geta skapað vandamál þeg-
ar gangsett er í kulda eða ekið undir
litlu álagi. Hönnun kertis, sem vinn-
ur rétt við allar aðstæður, er erfið.
Þetta vandamál er enn stærra þeg-
ar notað er blýlaust bensín og þá
eyðileggst mengunarvörnin fljótt ef
vélin gengur ójafnt og bruni elds-
neytisins er ekki fullkominn.
Dl-kerfið frá Saab leysir einnig
þetta vandamál. Hægt er að velja
gott „kalt“ kerti og kerfið sér um að
senda nægan neista við hvaða að-
stæður sem er, jafnvel þótt kertið sé
blautt eða skítugt. í eldri kveikju-
kerfum er aðeins hægt að hafa
kertabilið 0,6 til 0,8 mm. í Dl-kerfinu
er hins vegar hægt að hafa kertabilið
meira, eða 0,9 til 1,5 mm. Þetta þýðir
að neistinn verður lengri og kveikir
betur.
Miðað við dísilvélar hefur bensín-
vélin ávallt haft þann galla að
kveikjukerfið hefur þótt óáreiðan-
legt. Dl-kerfið er stórt skerf fram á
við hvað þetta varðar. Það vinnur
vel og örugglega og viðhald nær
hverfur.
„Fjölneisti“ - nýjung frá Saab
Nýja kveikjukerfið frá Saab hefur
einnig annan kost, „fjölneistann".
Fjölneistinn tryggir örugga kveik-
ingu, jafnvel þótt kertin séu skítug
eða rök.
í hvert sinn sem vélin er ræst sér
Dl-kerfið um að senda marga 40.000
volta neista í senn, allt að 50 á broti
úr sekúndu, til þess kertis sem næst
er í kveikiröðinni.
Þessi fjölneistaröð brennir burt all-
an raka, skít og annað það sem
hindrar eðlilega kveikingu á elds-
neytinu. Um leið og válin er farin að
snúast á 600 snúninga hraða á mín-
útu hverfur þessi fjölneistiög eðlileg
kveiking byijar og þar með aðeins
einn neisti í einu til hvers kertis.
Ef svo kynni aö fara að vélin neit-
aði samt sem áður að fara í gang, þá
bætir Dl-kerfið við enn einni aðgerð:
það sendir frá sér mikinn fjölda
neista, allt að þúsund í einu, til allra
kertanna í einu og þá er hægt að
reyna gangsetningu aftur.
Fjölneistinn er nýjung frá Saab,
sem
aðeins er hægt að nota í kveikjukerfi
byggðu á þéttum og með eitt há-
spennukefli fyrir hvern strokk
vélarinnar.
Fylgst með brennslunni í vél-
inni
„Mikilvægasti þátturinn við SDI-
kerfið er að um fleiri kosti verður
hægt að velja við hönnun bílvéla. Þar
með gefast tækifæri til að nýta elds-
neyti betur, fá meira afl, minna næmi
við sveiflum í eldsneytisgæðum,
meira rekstraröryggi og minna við-
hald,“ segir Per Gilbrand, sem
stjómaði þróun kerfisins af hálfu
Saab.
„Nú þegar hefur Dl-kerfið haft
þann kost í för með sér að hægt er
að fylgjast með brennslunni í hverju
brunahólfi fyrir sig. Þetta næst með
því að mæla jónunina á milli kerta-
oddanna.
Hægt er að mæla jónunina eða
efnabreytinguna sem verður hverju
sinni sem neistinn kveikir í eldsneyt-
inu. Ef þessi mæling sýnir breytingu
eða minni bruha þá getur kerfið leið-
Sextán ventla vélin frá Saab með „Direct Ignition". „Kassettan" með búnaðinum er felld ofan í ventlalokið.