Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1988, Blaðsíða 3
LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1988.
Bílar
35
Hundrað hestafla Ibiza með rafeindastýrðri innspýtingu. Útlitsbreytingin er
einkum aftan á.
Að innan nemur augað breytinguna
aðallega í öðruvísi stýrishjóli.
40% aukning í Ibiza
Seatverksmiðjumar á Spáni juku
framleiðslu sína um tuttugu af
hundraði árið 1987 - smíðuðu 406
þúsund bíla í allt. Þar af seldu þær
um 246 þúsund bíla á erlendum
markaði - það er að segja markaði
utan Spánar. Mest munaði um 40%
framleiðsluaukningu á gerðinni
Ibiza sem gerði það gott á útflutn-
ingsmarkaðnum á síðasta ári.
Og hvað er þá eðlilegra en myija
dálítið undir þennan vinsæla bíl? Það
er einmitt það sem Spánverjar ætla
að gera - pg þýskir vinir þeirra en
Seat er nú sem kunnugt er þriðja
stjaman í samsteypunni Volkswag-
en/Audi/Seat. Þeir ætla að setja í
hann öflugri vél en nokkru sinni fyrr
og sýna afurðina á bílasýningunni í
Torino 1 apríl undir auðkenninu SXi.
Að gruhni til er þetta sama vélin
og nú knýr Ibiza 1,5 GLX, 1461 cc
System Porsche. í GLX er hún með
blöndungi og skilar þannig búin 85
hestöflum. En 1 SXi er hún komin
með rafeindastýrða innspýtingu eins
og i-ið gefur til kynna og skilar þá
um 100 hestöflum. Ekki hefur þetta
þó afgerandi áhrif á hraða. Blönd-
ungsvélin á aö koma bílnum á 175
km hraða en innspýtta vélin á 185
km og er nú vandséð að þetta skipti
öllu máli. Hins vegar mun hröðun
hafa aukist úr 0-100 á 12,2 sekúndum
á 1,5 GLX í um 11 sekúndur á SXi.
Að ytra útliti er fjarska hógværlega
farið í sakimar. Komið er fyrir auka-
Ijósum í klýfnum undir framstuöar-
anum og settur hefur verið á bílinn
klýfir að aftan, strax neðan við aft-
urrúðuna. Svo eru náttúrlega þessir
lotningarverðu stafir á eftir heiti
bílsins á afturhleranum vinstra meg-
in SXi. Að innan er jafnlítið sóst eftir
íburði samfara öflugri vél. Þó er
bólstrun sætanna sögð ofurlítið
öðmvisi og sætishjólið allt öðruvísi.
Áfram, 405!
Yfirmenn Peugeot em svo himinlif-
andi yfir móttökunum sem bíll ársins
í Danmörku og Evrópu, 405, hefur
hvarvetna fengið að þeir hafa skálað
daglega í kampavíni síðan í haust -
að vísu bara freyðivíni nema á fóstu-
dögum (eða þannig... ). Þeir hafa
ekki enn komist yfir það að 54 af 57
kjörnefndarmönnum skyldu velja
Peugeot 405 í fyrsta sæti.
Þeim hjá Peugeot þykir ekki bara
sigurinn sætur heldur þykir þeim
þetta líka nokkur uppreisn æru.
Þeim hefur nefnilega sviðið það sárt
í fjögur ár að 205 skyldi tapa fyrir
Fiat Uno árið 1984 sem bíll ársins í
16
ventla
Thema
Turbo
Lancia kemur fram með 16
ventla útgáfu af 2000 vélinni i
Thema Turbo seinna á þessu
ári. Talið er líklegt að vélin
veröi kynnt á bílasýningunni í
Torino í vor, þó vélin verði ekki
fáanleg fym en seinna, Svo
munar um hvem nýjan ventil
á strokk sem eykur orku vélar-
innar úr 165 hestöflum í 185
hestöfl en megintilgangurinn er
að auka seiglu. Annars er það
helsta nýjimgin í þessari vél að
í henni veröur búnaður sem
dregur úr túrbínukraftinum
þegar þaö þykir henta - til
dæmis til aö koma i veg fyrir
spól á hálku. Einnig verðm- hún
búin nýju, mjög fúllkomnu raf-
eindakerfl sem stýrir öllum
helstu vinnsluþáttum vélarinn-
ar með betri nýtni aö markmiöi.
Ennfremur er taliö aö boðið
verði upp á rafeindastýrða
fjöðrun að einhvetju leyti.
Evrópu, þó svo að tapið væri naumt.
Þeir ætla að láta kné fylgja kviöi og
eru aö koma með 405 dísil, 405 þver-
bak og 405 4x4 - það er að segja bíl
með sídrifi, líku því sem notið hefur
vinsælda í Audi Quattro.
Heima fyrir velja flestir 1600 vél-
Volkswagen er að loka einu verk-
smiðjunni sem fyrirtækið átti í
Bandaríkjunum. Salan á fram-
leiðsluvöru VW í þessari verksmiðju
hefur sigið jafnt og þétt á ógæfuhlið-
ina þannig að ekki er talin ástæða til
að halda áfram á þeirri braut.Líkleg-
ast er talið að annaðhvort Hyundai
eða Daihatsu kaupi en bandaríski
bílarisinn Ford er ekki útilokaður.
Þetta þýðir þó ekki að VW sé öllum
heillum horfinn í Bandaríkjunum.
Lancia Y
skiptingu -
Lancia Y10 (sem hér gengur undir
nafninu Lanciaskutlan) kemur til
meö að fá stiglausa sjálfskiptingu,
líklega á þessu ári. Þetta þykja stór
tíðindi því þetta er um leið heÚmikið
kjaftshögg fyrir evrópsku stiglausu
sjálfskiptinguna sem Ford og Fiaf
hafa sameinast um aö smíða og þegar
er komin í Ford Fiesta og Fiat Uno.
Þetta eru enn meiri tíðindi vegna
þess að Lancia er hluti af Fiatveld-
inu.
Fljótt á Utið gæti litið svo út sem
með þessu sé Fiat annaðhvort að
stinga undan sjálfu sér á þessu sviði
eða að undirbúa vinsht við Ford.'
Hvorug tilgátan mun þó rétt heldur
er Ford/Fiat sjálfskiptingin með sín-
um tveimur vökvastýrðu kúplingiun
of stór til að komast fyrir í ypsilon-
inu. Þar sleppur hins vegar hin netta
ina. Hin öfluga 1900 vél gengur líka
ágætlega en ekki eins vel. Komandi
dísilvélar verða hin gamalkunna
1905 cc vél og einnig 1769 cc (eins og
fáanleg hefur verið í 205), nema með
túrbó sem eykur orkúna upp í 90
hestöfl.
Salan á Brasilíufólksvagninum Fox
þykir lofa góðu og alltaf eru ein-
hverjir sérvitringar sem taka gömlu,
seigu bjölluna fram yfir allt annað
og hana framleiðir VW enn, að vísu
bara í Mexíkó. Og ekki má gleyma
ágætum bílum sem Volkswagen/
Audi/Seat framleiða í Þýskalandi,
Belgíu og á Spáni, þótt aðeins þeir
fyrrnefndu eigi fylgi að fagna í
Bandaríkjunum.
fær sjálf
frá Subaru
rafeindastýrða Subaruskipting sem
byggist á aðeins einni kúplingu.
SaTnt gæti þetta að einhveiju leyti
táknað þáttaskil. Enginn hefur verið
harðari á því en Fiat að hleypa Jap-
önum að engu leyti inn á sig. Þar
hefur fram á þennan dag gjaman
verið talað um „gulu hættuna" og
„hina japönsku óvini“. Skammt er
síðan einn aðstoðarforstjóra Fiat af-
boðaði nær fyrirvaralaust fyrir-
hugaðan fund með forstjóra Toyota
í Tókíó á þann hátt að það er talið
jaðra við dónaskap. Þess er einnig
minnst að þegar Austin Rover í Bret-
landi efndi til samvinnu við Honda
kölluðu forstjórar Fiat Austin Rover
„Trójuhest Japana í Evrópu".
En kannski sannast hér bara hiö
fornkveðna að sjálfsagt sé að hafa
gagn af óvinum sínum, sé þess nokk-
ur kostur.
Volkswagen lokar
N O T A Ð 1 mttamx R 1 B í 1 L A R
Volvo 745 GLE, árg. 1986, ekinn
52.000 km, steingrár/metallic,
sjáifsk., vökvast., topplúga. Verð
1.100.000.
Volvo 740 GL árg. 1985, ekinn
51.000 km, blár, metailic, sjálfsk.,
m/yfirgír, vökvastýri. Verð 750.000.
Volvo 740 GL árg. 1985, ekinn
36.000 km, silfur/metallic, sjálfsk.,
m/yfirgír, vökvast. Verð 750.000,
góð kjör.
Renault 9 tc árg. 1982, ekinn
72.000 km, Ijósbrúnn/metallic.
Verð 185.000, mjög góð kjör.
Volvo 745 GL, árg. 1986, ekinn
13.000 km, silfur/metallic, beinsk.,
5 gira, vökvast. Verð 960.000.
Volvo 244 GL árg. 1982, ekinn
85.000 km, beinsk., m/vökvastýri,
Ijósbrúnn. Verð 400.000.
Volvo 245 GL, árg. 1983, ekinn
79.000 km, Ijósgrænn/metallic,
sjálfsk., vökvast. Verð 550.000.
Volvo 244 GL árg. 1981, Ijósblár/
metallic, beinsk. m/yfirgir,
vökvast. Verð 345.000, góð kjör.
Volvoi 340 GL árg. 1986, ekinn
26.000 km, beinsk., 5 gíra, blá-
metallic, álfelgur. Verð 525.000.
Góð kjör.
VW Golf árg. 1984, ekinn 84.000 km,
rauður, beinsk. Verð 300.000, góð
kjör.
Audi 100 CC árg. 1984, ekinn
96.000 km, hvitur, beinsk., 4ra
gira m/yfirgír, fallegur bill. Verð
710.000. Góð kjör. Ath. skipti á
ódýrari.
Volvo C 202 Lapplander, ekinn
55.000 km, brúnn, beinsk., m/
vökvastýri, innréttaður, ný dekk og
felgur, læst drif og fleira. Verð
450.000.
Suzuki fjórhjól árg. 1987, ekið 267 km, 4X4. Verð
280.000, góð kjör.
OPIÐ ALLA DAGA FRÁ KL. 9.00 TIL 18.00
LAUGARDAGA FRÁ KL. 10.00 TIL 16.00
VOLVOSALURINN SKEIFUNNI 15 SÍMI 691600-69161