Dagblaðið Vísir - DV - 29.02.1988, Side 2
22
MÁNUDAGUR 29. FEBRÚAR 1988.
FÉLAGSMÁLASTOFNUN
REYKJAVÍKURBORGAR
DROPLAUGARSTAÐIR
- heimili aldraðra - Snorrabraut 58.
Starfsstúlkur vantar í eldhús, 100% starf og 35%
starf, nú þegar, einnig til afleysinga í eldhús í sumar.
Starfsstúlkurvantar í ræstingu, 62,5% starf, nú þegar.
Upplýsingar gefur forstööumaður í síma 25811 milli
kl. 9 og 12 f.h. virka daga.
LAUS STAÐA
Staöa fulltrúa við embætti ríkisskattstjóra er laus til
umsóknar. Um er að ræða sérhæfð skrifstofustörf við
færslu spjaldskrár, gagnasöfnun, tilkynningar og
upplýsingar sem þessum verkþáttum tengjast.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf, skal senda til ríkisskattstjóra, Skúlagötu 57,150
Reykjavík, fyfir 20. mars nk.
Ríkisskattstjóri
25. febrúar 1988
FÉLAGSMÁLASTOFNUN
REYKJAVÍKURBORGAR
STAÐA FULLTRÚA
Laus er til umsóknar staöa fulltrúa í Fjármála- og
rekstrardeild Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborg-
ar. Starfió er fjölbreytt og gefur góóa reynslu í skrif-
stofustörfum.
Æskilegt er að viðkomandi hafi stúdentspróf eóa
hliðstæða menntun. Sveigjanlegur vinnutími. Vinnu-
staður er Vonarstræti 4.
Upplýsingar gefur yfirmaður Fjármála- og rekstrar-
deildar í síma 25500.
Sj úkraþj álfarar
óskast
Vífilsstaðaspítali.
Sjúkraþjálfari óskast í fullt starf frá 1. júní 1988.
Húsnæði getur fylgt.
Nánari upplýsingar gefur yfirsjúkraþjálfari Vífilsstaða-
spítala, sími 42800.
RÍKISSPÍTALAR
STARFSMANNAHALD
FÉLAGSMÁLASTOFNUN
REYKJAVÍKURBORGAR
UTIDEILDIN I REYKJAVIK
Við í Útideildinni vinnum leitar- og vettvangsstarf
meðal barna og unglinga. Markmiðið með starfinu
er m.a. að hjálpa unglingum, koma í veg fyrir að
þeir lendi í erfiðleikum og aóstoða þá ef slíkt kemur
fyrir.
Við erum að leita að starfsfólki með háskólamenntun
í félagsráðgjöf og sálarfræði eða sambærilega mennt-
un.
Vinnutíminn er á daginn og kvöldin.
Nánari upplýsingar gefur Edda Ólafsdóttir í síma
Útideildar, 621611, e.h.
Umsóknum skal skilað til Starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, á umsóknareyðublöð-
um, sem þar fást, fyrir 14. mars.
Islandsmot 1 puttlj þaöfyrstasinnartegundarsemhaldióerinnanhusshérálandi, fór
fram á neðri haeð Kringlunnar i gær. Sigriður Flygenring, GR, sigraði í keppni kvenna, bæði með forgjöf og án
hennar. Gunnar Sigurðsson, GR, sigraði í keppni karla án forgjafar en Jón Ásgeir Eyjólfsson, NK, með forgjöf.
Gunnar hlaut að auki sérstaka bikara fyrir flest innpútt og pör. Þátttakendur voru tæplega eitt hundrað og stefnt er
að því að mót þetta verði að árlegum viðburði. Á myndinni mundar hinn kunni kylfingur, Ragnar Ólafsson, kylfu sína.
VS/DV-mynd Brynjar Gauti
Fimleikar:
Hanna Lóa best
a oðru
Meistaramótið í íslenskum flm-
leikastiga 1988 var haldið í Laugar-
dalshöll í gær í umsjón flmleikadeild-
ar Ármanns. Keppt var á þremur
stigum kvenna og tveimur stigum
karla og urðu úrslit sem hér segir:
II stig kvenna:
Hanna Lóa Friðjónsd., Gerplu ....36,65
Fjóla Ólafsdóttir, Árm....36,30
Bryndís Guðmundsdóttir, Árm. .34,00
Vilborg Hjaltalín, Árm....31,70
Hjördís S. Sigurðard., Gerplu.31,25
stiginu
IV stig kvenna:
GerðaK. Lárusdóttir, Stj......36,10
Þorgerður Jónsdóttir, Gerplu..35,95
Jóhanna Gunnlaugsdóttir, KR ...35,80
Lilja Valdimarsdóttir, Gerplu ....35,45
Elín H. Jónasdóttir, Gerplu...35,30
III stig karla:
Axel Bragason, Árm............55,70
Jóhannes Sigurðsson, Árm......54,85
Kristján Stefánsson, Árm......48,85
Örvar Arnarson, Árm...........48,25
Skarphéðinn Halldórss, Árm....47,75
III stig kvenna: IV stig karla:
Sigurbjörg Ólafsdóttir, Stj....34,80 Þór Elfar Helgason, Árm........57,50
Elínborg Ævarsdóttir, Árm......34,30 Gísli Örn Garðarsson, Árm.....53,90
Sigríður Björnsdóttir, Árm.....33,60 Jón Tr. Sæmundsson, Gerplu....53,40
Edda Guðmundsdóttir, Árm.......33,55 Birgir Grímsson, Árm..........52,65
Jóhanna Ágústsdóttir, Gerplu... .33,45 Gísli P. Davíösson, Árm.......50,45
Frjálsar íþróttir:
Þórdís
önnur
Þórdís Gísladóttir hreppti
annað sætið í hástökki
kvenna á sterku frjálsíþrótta-
móti sem fram fór í Tammer-
fors í Finnlandi um helgina.
Hún stökk 1,87 metra.
Mótiö var landskeppni
Finna, Svía og Norðmanna en
íslendingum og Dönum var
boðið að senda keppendur.
• Gunnlaugur Grettisson
keppti í hástökki karla og
hafnaði í sjöunda sæti, stökk
2,13 metra.
• Pétur Guðmundsson var
meðal þátttakenda í kúlu-
varpi og náði sínum besta
árangri innanhúss, kastaði
18,48 metra.
-VS
Úrslitakeppni íslandsmótsins í blaki:
Deildarmeistarar ÍS
töpuðu loksins leik
- Þróttur vann, 3-2, og er með sex stig eftir þrjá leiki
Deildarmeistarar karla, ÍS, töpuðu
á laugardaginn fyrsta leik sínum í
vetur og voru það Þróttarar sem sigr-
uðu þá, 3-2, í löngum og spennandi
leik. í fyrstu hrinu sigruðu stúdent-
ar, 15-9, en Þróttarar svöruðu fyrir
sig með því að sigra í þeirri næstu,
15-8. ÍS-ingar komust svo í 2-1 með
15-6 sigri og virtust Þróttarar vera
búnir að gefast upp. Svo reyndist þó
ekki vera og þeir jöfnuðu leikinn,
2-2, með því að sigra í íjórðu hrinu,
15-10, og fór Sveinn Hreinsson á
kostum í smassinu. í úrslitahrinunni
komust ÍS-ingar í 8-5 en þá skoruöu
Þróttarar 7 stig án þess að ÍS fengi
nokkurt og sigruðu í hrinunni, 15—11.
Þar með var fyrsti sigur Þróttar á ÍS
í vetur í höfn og hefur liðið unnið
alla leiki sína, 3-2, í úrslitakeppninni.
• Breiöablik sigraði Þrótt, 3-1, í
úrslitakeppninni í . kvennaílokki.
Blikastúlkurnar sigruðu í tveimur
fyrstu hrinunum, 15-9 og 15-11, en
Þróttarar voru ekki á því að gefast
upp þó svo að það vantaði aðalupp-
spiiara liðsins, Björgu Björnsdóttur,
sem er slösuö, og sigruðu í 3. hrinu,
15-7. í fjórðu hrinu komust þær svo
í 7-0 en náðu ekki að fylgja því eftir
og Breiöablik vann hana, 15-11, og
þar með leikinn.
• Þá áttust við Víkingur og ÍS. ÍS-
stúlkurnar komu ákveðnar til leiks
og sigruðu í fyrstu hrinunni, 15-7.
Víkingar náðu að knýja fram sigur í
þeirri næstu, 15-13. ÍS var þó ekki á
því að gefast upp og vann næstu
hrinu, 15-11. í fjórðu hrinu sigruðu
Víkingar, 15-11, og því þurfti úrslita-
hrinu. í henni voru Víkingar mun
ákveðnari og sigruðu í henni, 15-7,
og unnu þar með leikinn, 3-2.
• HK vann furðu öruggan sigur á
KA í karlaflokki á Akureyri á föstu-
dagskvöldið, 3-1. Fyrsta hrinan var
jöfn og KA vann hana, 15-12, en síöan
hrundi leikur liðsins til grunna.
Kópavogsbúarnir fóru hamfórum í
næstu hrinu og sigruðu, 15-1, og þeir
unnu hinar tvær, 15-10 og 15-12, eftir
að hafa strax náö yfirburðaforystu í
báðum.
• Staðan í úrslitakeppninni í
karlaflokki:
Þróttur.............3 3 0 9-6 6
ÍS.................2 115-3 2
HK..................3 12 5-7 2
KA..................2 0 2 3-6 0
• Staðan í kvennaflokki:
Breiðablik..........2 2 0 6-2 4
Víkingur............1 10 3-2 2
Þróttur.............1 0 11-3 0
ÍS...........:.....2 0 2 3-6 0
Leikin er tvöfóld umferð um ís-
landsmeistaratitilinn í báðum flokk-
um. -B/GK/VS