Dagblaðið Vísir - DV - 29.02.1988, Blaðsíða 12
32
MÁNUDAGUR 29. FEBRÚAR 1988.
LAUS STAÐA
Staða löglærðs fulltrúa við embætti ríkisskattstjóra
er laus til umsóknar.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur, menntun
og fyrri störf, skal senda til ríkisskattstjóra, Skúlagötu
57, 150 Reykjavík, fyrir 20. mars nk.
Ríkisskattstjóri
25. febrúar 1988
REYKJMJÍKURBORG
Stödíci
HEIMILISHJÁLP
Starfsfólk óskast í heimilishjálp í heilsdagsstörf og
hlutastörf.
Hentugt fyrir húsmæður og skólafólk sem hefur tíma
aflögu.
Upplýsingar í síma 18800.
Varnarliðið
auglýsir eftirfarandi starf laust til umsóknar:
Starf deildarstjóra Keiluspilshallar á Keflavíkurflug-
velli.
Viðkomandi skal hafa umsjón með keilusal Varnar-
liðsins, sjá um fjárhagsáætlunargerð, innkaup,
mannahald, uppröðun keppnisliða, markaðsöflun og
fleira.
Umsækjandi hefi reynslu í umsjón með tómstunda-
starfsemi eða hafi menntun á sambærilegu sviði.
Reynsla viö stjórnunarstörf ásamt reynslu við fjár-
hagsáætlunargerð æskileg. Mjög góðrar enskukunn-
áttu krafist. Umsækjandi þarf að vera tilbúinn að
vinna utan venjulegs vinnutíma, svo og um helgar.
Umsóknir berist Varnarmálaskrifstofu utanríkisráðu-
neytisins, ráðningardeild, Brekkustíg 39, Njarðvík,
eigi síðar en 11. mars. nk. Nánari upplýsingar veittar
í síma 92-11973.
Málari óskast
Kópavogshæli
Málari óskast til vinnu við málningu húseigna Kópa-
vogshælis, bæði utanhúss og innan. Fullt starf.
Ráöningartími eftir samkomulagi.
Þarf að hafa sveinspróf í málaraiðn.
Nánari upplýsingar gefur framkvæmdastjóri eða
umjónarmaður, sími 41500.
Umsóknir sendist framkvæmdastjóra Kópavogshælis
fyrir 10. mars nk.
RÍKISSPÍTALAR
' STARFSMANNAHALD
Röntgentæknar
óskast
Landspítalinn - röntgendeild.
Röntgentæknar óskast í 100% vinnu á röntgendeild
Landspítalans. Um er að ræða bæði framtíðarvinnu
og sumarafleysingar. Dagvinna og gæsluvaktir.
Nánari upplýsingar gefur hjúkrunarstjóri röntgen-
deildar, sími 29000-432.
Umsóknir sendist hjúkrunarstjóra röntgendeildar
Landspítalans.
RÍKISSPÍTALAR
STARFSMANNAHAID
jþróttir_______________________________________________dv
Isknattleikur:
Finnar skákuðu
Sovétmönnum
- en Rússamir tóku samt gullið
CHRISTA Rothenburger, A-
Þýskalandi, vann gullverölaun í 1000
metra skautahlaupi og setti ofan í
kaupið heimsmet.
VRENI Schneider, Sviss, vann
sitt annað ólympíugull á föstudag,
varð þá hlutskörpust í svigi kvenna.
YFIRBURÐIR Sovét-
manna færðu þeim ólympíugull i
ísknattleik. Þeir tryggðu sér titilinn
með því að kjöldraga Svía, 7-1.
GAMLA brýnið Gunde Svan
gerði það sem sænska þjóðin vænti
af honum, hann vann gull í 50 kíló-
metra göngunni.
Símamyndir Reuter
Það dró heldur betur til tiðinda i
ísknattleikskeppninni á fóstudag. Þá
kagstrýktu Sovétmenn heimsmeist-
ara Svía, 7-1, á sama tíma og Finnar,
reginfjendur þeirra, máttu sætta sig
við skell gegn Tékkum, 2-5. Með
þeim úrslitum réðust örlög gullpen-
inganna en þeir fóru á brjóst Sovét-
manna. Voru Rússar vel að sigrinum
komnir enda tryggðu þeir sér ólymp-
íukrúnuna löngu áður en afdrif
silfur- og bronsverðlauna voru ráðin.
Finnar fengu sín fyrstu verð-
laun í ísknattleik
Finnar, sem voru með fílsterkt lið
á leikunum, náðu síðan í silfriö í
nótt með því leggja sjálfan sovéska
gullbjörninn aö velb, 2-1, í hörkuleik.
Var það fyrsta og eina tap Sovét-
Þótt Alberto Tomba hafl farið sem
elding í brekkunum í Calgary var það
engu aö síður gamb jaxlinn Ingemar
Stenmark sem stal senunni í sviginu.
Þrátt fyrir að hann lenti í 5. sæti
hélt hann skrautsýningu og náði
langbesta tímanum í síðari ferðinni.
Beit Stenmark þá á jaxlinn og fór
niður hlíð Allan-fjalls með þeim
hætti sem honum einum er lagið.
Örlítið betri tími í fyrri ferðinni hefði
fært þennan gamla skíðakappa á
pall.
Tomba tók sitt annað gull
Tomba vann gullið í sviginu og
gekk þar eftir spádómur flestra. ítal-
inn er enn ungur og einhver fremsti
skíðamaður sem fram hefur komið.
Hreppti hann tvenn gullverðlaun í
Calgary, bæði í svigi og stórsvigi. Það
blés þó ekki byrlega hjá kappanum
í upphafi svigkeppninnar. Hann náði
sér ekki almennilega á strik í fyrri
„Ég er hryggur yfir því að Guörún
Kristjánsdóttir skyldi veikjast því að
hún hefur tekið miklum framförum
og í raun bætt sig með hverju móti,“
sagði Hans Kristjánsson, formaöur
alpagreinanefndar SKÍ, í spjalli við
DV í gær.
„Þá hefur Einar Ólafsson göngu-
maður veriö í góöu formi í vetur.
Hann er einn af okkar bestu skíða-
mönnum og því hefði ég kosið að sjá
hann gera sitt besta í báðum þeim
manna í keppninni. Með sigrinum
náðu Finnar í sín fyrstu ólympíu-
verðlaun í ísknattleik frá upphaíi og
var gleöi þeirra því mikil.
Nágrannar Finna, Svíar, nældu
síðan í bronsverðlaun í nótt eftir
mjög tvísýnan leik við V-Þjóðverja.
Lyktaði honum 3-2 en Svíar voru
undir 0-2 til skamms tíma. Með sigri
sínum slökktu Svíar vonir milljóna
Kanadamanna um verðlaun í ís-
knattleiknum, en allflestir þeirra
gerðu ráð fyrir sínum mönnum á
palli. Stuðningur 19 þúsund kanad-
iskra áhorfenda í skautahöllinni
dugði þýskum skammt því Svíar
sýndu svipaðan leik og gerði þá að
heimsmeisturum fyrir fáeinum
misserum.
ferðinni og var í þriðja sætinu er sú
síðari hófst. Þar komst hann hins
vegar næstur Stenmark að tækni og
hraða og varð því efstur er upp var
staðið.
Daníel í 24. sæti
Daníel Hilmarsson náði þokkaleg-
um árangri í sviginu í Calgary, varð
í 24. sæti en 54 luku keppni. Fékk
Daníel tímann 1:55,29 mínútur en til
samanburðar má geta þess að sjálfur
Tomba hreppti tímann 1:39,46 mínút-
ur. Alfredo Rego frá Guatemala, sem
varð síðastur í sviginu, fékk hins
vegar tímann 3:20,23.
Mikil afföll voru í sviginu en 53
skíðamenn féllu úr keppni og á með-
al þeirra voru margir frægir kappar,
til að mynda Joel Gaspos, Sviss,
Armin Bittner, V-Þýskalandi og Rud-
olf Nierlich frá Austurríki.
-JÖG
göngum sem hann tók þátt í. I 50
kílómetra göngunni tók hann sig
rækilega á og náði þar viöunandi
árangri. Hvað Daníel Hilmarsson
varðar þá er ég ánægður með árang-
ur hans, sérstaklega með svigið.
Daníel gerði í raun „akkúrat" það
sem af honum var vænst. Hann var
fyrir ofan miðju, bæði í sviginu og
stórsviginu," sagði Hans Kristjáns-
son.
-JÖG
-JÖG
Daníel fyrir ofan miðju:
Stenmark fór á kostum
en Tomba tók gullið
-önnur gullverðlaun rtölsku sprengjunnar
Árangur íslendinga í Calgary:
Anægður með árangur Daníels
- segir Hans Kristjánsson hjá SKÍ
Einar Olafsson varð í 44. sæti í 50 km göngunni:
Hraustleg framganga færði Gunde gull
Gamla brýnið Gunde Svan
vann sín önnur gullverðlaun er
hann bar sigurorð af móthetjum
sínum í 50 kílómetra göngunni á
laugardag. Áöur haföi Svíinn
hlotið gull í 4x10 km boðgöngu
en þar var sveit frænda okkar
hlutskörpust Svan gekk nyög
vasklega á laugardag enda hefur
skautastOlinn verið hans vígi um
langa hríð: „Ég hélt mínu striki,
gekk mjög jafnt og gætti þess aö
sprengja mig ekki,“ sagði Svan í
spjalli við talsmann Reuters rétt
kominn í markið. Einar Ólafsson
frá íslandi varð í 44. sæti i 50 km
göngunni, fékk timann 02:18.21,9
klst. Til skamms tíma var óvíst
hvort Einar næði að keppa þar
sem hann hefur strítt við bak-
meiðsl síöustu dagana. -JÖG