Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 29.02.1988, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 29.02.1988, Qupperneq 13
MÁNUDAGUR 29. FEBRÚAR 1988. 33 Iþróttir GULLI FAGNAÐ Katarína Witt náði að verja ólympiutitil sinn í isdansi, fyrst kvenna í meira en hálfa öld. Símamynd Reuter Witt hafði betur í einvíginu við Thomas: A-þýska ísdrottningin hélt ólympíukrúnunni Svig kvenna: Vreni Schneider stal senunni - Guðrún með flensu Svissneska stúlkan Vreni Schneid- er hreppti sín önnur gullverölaun í Calgary er hún varð fyrst kvenna í sviginu á fóstudag. Áöur hafði Schneider orðið hlutskörpust í Stór- svigi. Önnur í svigkeppninni varð Mateja Svet frá Júgóslavíu en brons- iö hreppti v-þýska stúlkan Christ Kinshofer-Guetléin. „Allir vilja nú skjóta mér upp á stjörnuhimininn," sagði Schneider í kjölfar sigurs síns í sviginu. „Ég hef hins vegar ekki í hyggju aö verða nein stjarna, ég vil bara sinna íþrótt- inni og standa mig eins vel og mér er unnt.“ Fjölmörgum stúlkum hlekktist á í sviginu á fóstudag enda luku aðeins 29 stúlkur keppni af 61 sem skráð var til þátttöku. Guðrún Kristjánsdóttir frá íslandi hugðist keppa í sviginu en varð að hverfa frá þeirri ætlun sinni. Hún veiktist nefnilega af inflúensu skömmu fyrir sjálfa keppnina. -JÖG TOMBAbomba tók gull í tveimur greinum, bæði í svigi og stórsvigi. DEBI Thomas, reginkeppinaut- ur Katarínu Witt, varð fyrir áfalli í isdansinum en hreppti þó brons- verðlaun. Simamyndir Reuter Isdrottningin Katarína Witt hélt ólympíukrúnunni er hún haföi betur í einvíginu við bandarísku stúlkuna, Debi Thomas. Áþreifanleg spenna var í íshöllinni í Calgary er keppend- urnir dönsuðu. Ófáir voru raunar á bandi kanadísku stúlkunnar Elísa- betar Manley sem hreppti silfur, flestum að óvörum. Réð þar mestu um áfall Debi Thomas á ísnum en hún missti jafnvægið í einu sporinu og féll fyrir bragðið niður um eitt sæti. Katarína Witt, sem dansaði fyrst, var öryggið í sinni skýrustu mynd er hún sté á ísinn. Dansinn sjálfur varð hins vegar ekki alveg áfallalaus hjá henni. Witt náði engu að síður öðrú sætinu í frjálsu æfmgunum og reyndist óvinnandi fyrir Elísabetu Manley að ná forskoti hennar frá fyrri keppnisdegi. Kanadíska stúlkan varð einmitt hlutskörpust í frjálsa dansinum. „Ég held ég hafi dansað vel en spennan hérna í höllinni hefur verið þrúgandi," sagði Witt er hún kom af ísnum. „Debi Thomas gat unnið gulliö því að ég náði ekki því þrefalda stökki sem ég ætlaði mér. Thomas var hins vegar mjög óstyrk og sýndi á sér þá mannlegu hlið sem fjölmiðlar hafa ekki kannast við til þessa. Debi er ekki ósigrandi þótt sum dagblöð hafi ætlað svo, hún gerir sín mistök und- ir álagi á sama hátt og aðrir,“ sagði Katarína. „Ég er mjög stolt af þessum tveim- ur ólympíutitlum mínum og vona að það sem ég hef afrekað verði ekki leikið eftir alveg í bráð," sagði hún jafnframt. Þess má í lokin geta að Witt er fyrst kvenna til að verja ólympíutitil í ís- dansi eða listhlaupi í meira en hálfa öld. Sú sem vann það afrek áður var norska skautadrottningin Sonja Henie en hún varð þrívegis ólympíu- meistari í greininni. -JÖG Olympíuúrslit frá Calgaiy SKÍÐASKOTFIMI 4x7,5 km 1 Sovétríkin...01:22.30, Oklst. 2 y-Þýskaland...01:23.37,4 klst. 3Itaha.......01:23.51,5 klst. SVIG Kvenna: 1 Vreni Schneider Svi.1.36,69 2MatejaSvet Júg.........1.38,37 3 Khofer-Guetlein V-Þýs.1.38,40 Karla: 1 Alberto Toraba íta.....1.39,47 2 Frank Wömdl V-Þýs.....1.39,53 3 Paul Frommelt Lich....1.39,84 Finnland-Sovétrí kin................ ..2-1 1 Sovétrikin.................... gull 2 Finnland......................silfur 3 Svíþjóð....................... brons 50 KM GANGA SKAUTAHLAUP 1000 m kvenna: 1 Ch Rothenburger A-Þýs.1.17,65 2 Karin Kania A-Þýs.....1.17,70 3 Bonnie Blair Band.....1.18,32 1500 m kvenna: 1 Yvonne V Gennip Hol...2,00,68 2 Karin Kania A-Þýs.....2.00,82 3 Andrea Ehrig A-Þýs....2.01,49 5000 m kvenna: lYvonneVGennipHol. ...7.14,13m 2 Andrea Ehrig A-Þýs.......7.17,12 m 3 Gabi Zange A-Þýs.....7.21,61 m ÍSKNATTLEIKUR Sovétríkin-Svíþjóð..........7-1 Kanada-V-Þýskaland..........8-1 Tékkóslóvakía-Finnland......5-1 Kanada-Tékkóslóvakía........6-3 Svíþjóð-V-Þýskaland.............3-2 1 Gunde Svan Syi..........02:04.30,9 2 Maurilio Zolzlta .......02:05.36,4 3 Andy Grúnfelder Svi. ..,.02:06.01,9 ÍSDANS-LISTHLAUP 1 Katarína Witt A-Þýs......4,2 st, 2 Elízabeth Manley Kan......4,6 st. 3 Debi Thomas Ban..........6,0 st. SLEÐAKEPPNI 4ra manna sleðar: lSviss.................03.47,51 m 2 A-Þýskaland............03,47,58 m 3 Sovétríkin...........03.48,26 m NORRÆN TVÍKEPPNI Stökk 70 m ganga 15 km: 1H. KempfSvi........217,9/38.16,8 2 K. Sulzenbacher Aus. .................... 228,5/39.46.5 3 Allar Levandi Sov..216,6/39.12,4 Heilsugormurinn GETUR GERT KRAFTAVERK! STÆLIR mjaðmir og læri, brjóst og arma, maga og mitti - og allt hitt á aðeins 5 mínútum á dag. Þú gerir æfingamar heima - sparar tíma og peninga. 5 mínútur á dag með heilsugorminum jafnast á við að hjóla 6 km! Svo getur þú aftur farið í þröngu gallabuxumar, stuttbuxurnar og sundbolinn með fullu sjálfstrausti. PANTIÐ í TÍMA í BOX 8600 128 Reykjavík Vinsamlegast sendið mér stk. heiisugorm Nafn Póstnúmer

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.