Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1988, Síða 6
30
FÖSTUDAGUR 22. APRÍL 1988.
Háskólabíó
Hentu mömmu af lestinni
Hinn litli og skemmtilegi Danny
DeVito tekur að sér tvöfalt hlut-
verk í gamanmyndinni Hentu
mömmu af lestinni (Throw
Momma from the Train). Hann
leikur aðalhlutverkið og leikstýrir
myndinni. DeVito hefur getið sér
gott orð sem gamanleikari á und-
anförnum árum. Hann er minna
þekktur leikstjóri. Hann er þó eng-
inn nýgræðingur bak við mynda-
vélina. Hefur hann leikstýrt
íjöldanum öllum af stuttum sjón-
varpsþáttum við góöan orðstír.
Hentu mömmu af lestinni íjallar
um tvo rithöfunda, Larry Donner
(Billy Crystal), og Owen Lift
(Danny DeVito). Þeir eiga sameig-
inlegt vandamál. Larry þolir ekki
eiginkonu sína og Owen á móður
sem er að gera hann vitlausan.
Þeir ákveða því að best sé að losna
við þær og á Owen að sjá um eigin-
konu Larrys og Larry um móður
Owens. Rithöfundarnir eru ekki
lengi að upphugsa snjalla áætlun
en eins og í góðri gamanmynd fer
ekki allt eins og ætlað var...
Kvikmyndir - Kvikmyndir - Kvikmyndir
í myndinni lllur grunur leikur Cher lögfræðing sem tekur að sér að verja grunaðan morðingja.
Bíóhöllin
Hættuleg fegurð
I Hættuleg fegurð (Fatal Beauty)
leikur Whoopi Goldberg leynilöggu
í Los Angeles, Ritu Rizzoli. Rita er
sérfræðingur í að dulbúast og starf-
ar því í eiturlyfjadeildinni og er
oftast látin í erfiðustu verkefnin.
Hana langar samt að lifa lengur og
þar sem hún er fyndin og skemmti-
Hættuleg fegurð er fjórða kvik-
mynd Whoopi Goldberg á aðeins
tveimur árum.
leg á hún stundum auðvelt með að
bjarga sér úr vandræðum.
í byrjun myndarinnar fær hún
sitt erfiðasta verkefni til þessa.
Sterkt og gallað kókaín er í boði á
götum Los Angeles, stórhættulegt
efni. Það verður hlutverk Ritu að
koma því af götunni. Hún nýtur
aðstoðar Carls Jimenez (Ruben
Blades) lögregluþjóns sem gerir allt
samkvæmt bókinni. Það nægir
samt ekki. Kynni hennar við líf-
vörðinn Mike Marshak (Sam
Elliott) er aftur á móti það sem hún
þarfnast í baráttu sinni viö eitur-
lyfjasalana.
Hættuleg fegurð er fjórða kvik-
mynd Whoopi Goldberg á tveimur
árum. Eftir hinn eftirminnilega
leik hennar í The Color Purple hef-
ur hún leikið í Jumping Jack Flash
og Burglar. í Hættulegri fegurð
leikur hún undir stjórn Toms Holi-
and sem gat sér frægðarorð fyrir
að stjórna einni af betri hryllings-
myndum síðari ára, Fright Night.
Samstarf þeirra ætti að lofa góðu.
Stjömubíó
Illur grunur
Nú gefst bæjarbúum tækifæri að
sjá nýbakaðan óskarsverðlauna-
hafann Cher í tveimur nýjustu
myndum sínum. Hún fékk óskars-
verðlaun á dögunum fyrir leik sinn
í kvikmyndinni Fullt tungl (Mo-
onstruck). Hefur sú mynd verið
sýnd hér undanfarið. Stjörnubíó
hefur nú hafið sýningar á Illum
grun (Suspect), spennumynd þar
sem Cher leikur lögfræðinginn
Kathleen Riley. Leiksviðið er Was-
hington. Hæstaréttardómari
fremur sjálfsmorð. Lík af konu
finnst við árbakka. Henni hefur
verið misþyrmt og síðan myrt.
Fyrrverandi hermaður úr Víet-
namstríðinu er leiddur fyrir rétt,
grunaður um morðið.
Riley fær það verk að verja hinn
grunaða. Hún kemst fljótt að því
að hér er ekki um venjulegt morð-
mál að ræða og málið verður enn
dularfyllra þegar einn kviödóm-
endanna, Eddie Sanger (Dennis
Quaid), kemst yfir upplýsingar er
Hér hafa þau Sam Elliot og Whoopi Goldberg greinilega lent í vandræð-
um ef ráða má af svip þeirra og stellingum.
Cher og Denis Quaid í hlutverkum sínum í lllum grun.
tengjast máhnu og setur sig í sam-
band við Riley en það má hann alls
ekki gera.
Leikstjóri myndarinnar er Peter
Yates, gamalreyndur gæðaleik-
stjóri sem á baki myndir á borð við
Bullitt, Breaking away og The
Dresser, svo einhverjar séu nefnd-
ar. Handritið skrifaði Eric Roth.
Illur grunur er mynd sem býður
upp á spennandi og dramtíska frá-
sögu sem heldur áhorfandanum
við efnið.
HK
Sýningar
Gallerí Borg,
Pósthússtræti 9
Elías B. Halldórsson sýnir i Gallerí Borg.
Á sýningunni .eru nýlegar olíumyndir.
Elías hefur haldið margar einkasýningar
um allt land og tekið þátt i fjölda samsýn-
inga hér heima og erlendis.
Þessa dagana eru kynnt grafíkverk eftir
Þórð Hall í sýningarglugganum í Austur-
stræti og ný keramikverk eftir Guðnýju
Magnúsdóttur. Kynningin varir í hálfan
mánuð.
Gallerí Llst,
Skipholti 50b
í galleríinu eru til sölu og sýnis ýmis
listaverk. Opið kl. 10-18 virka daga. En
um helgar kl. 14-18.
Gallerí Langbrók,
Bókhlöðustíg 2,
textílgallerí. Opið þriðjudaga til fóstu-
daga kl. 12-18 og laugardaga kl. 11-14.
Gallerí Nes,
Nýjabæ v/Eiðistorg
Opnaður hefur verið nýr sýningarsalur,
Galierí Nes, í verslunarhúsnæði Nýja-
bæjar við Eiðistorg, III hæð. Opið er virka
daga kl. 16-19 og laugardaga og sunnu-
daga kl. 13-16.
Gallerí Svart á hvítu
Laugardaginn 16. april var opnuð í Gal-
lerí Svart á hvítu sýning á blýantsteikn-
ingum Valgerðar Bergsdóttur. Á
sýningunni verða verk unnin á árunum
1987-1988, allt blýantsteikningar á papp-
ír. Valgerður hefur haldið fjölda einka-
sýninga og tekið þátt í samsýningum.
Hafnargallerí,
Hafnarstræti 4
Opnuð hefur verið sýning á 14 olíumynd-
um eftir Ástu Guðrúnu Eyvindardóttur
á loftinu í Bókaverslun Snæbjarnar. Sýn-
ingin, sem er sölusýning, stendur til 24,
apríl.
FÍM-salurinn,
Garðastræti 6
Sýning Mattheu Jónsdóttur, Vorvindar,
var opnuð laugardaginn 16. apríl og
stendur til 1. maí.
Kjarvalsstaðir
við Miklatún
Nk. laugardag verða opnaðar fjórar sýn-
ingar. Guðbjörg L. Jónsdóttir, Sara
Vilbergsdóttir, Svanborg Matthíasdóttir
og Leifur Vilhjálmson sýna málverk í
austursal. í vesturforsal er sýning á litho-
grafíum eða steinprenti eftir heims-
þekkta listamenn úr safni Sorlier sem
nú er í eigu Museé des Sables-d’Olonne
í Frakklandi. Tékkneski listmálarinn,
Rastislav Michal, opnar myndlistarsýn-
ingu í vestursal. Á sýningunni eru
olíumálverk, svartlistarmyndir og vegg-
teppi. Að lokum verður opnuð sýning
sem ber yfirskriftina: „Swedish Textil
art“- sænsk textíllist, yfirlitssýning á
textílverkum unnum hjá Handarbetes
Vánner í Stokkhólmi á árunum
1900-1987. Sýningarnar á Kjarvalsstöðum
eru opnar kl. 14-22.
Listasafn ASÍ,
Grensásvegi 16
Laugardaginnn 23. april verður opnuð
sýning á sænskum textíl, unnum á árun-
um 1900-1987. Opið er virka daga kl. 16-20
og um helgar kl. 14-20.
Listasafn Einars Jónssonar
við Njarðargötu
er opið alla laugardaga og sunnudaga kl.
13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn
daglega frá kl. 11-17.
Listasafn Háskóla íslands
í Odda, nýja hugvísindahúsinu, er opiö
daglega kl. 13.30-17. Þar eru til sýnis 90
verk í eigu safnsins, aðallega eftir yngri
listamenn þjóðarinnar. Aðgangur að
safninu er ókeypis.
Listasafn íslands,
Fríkirkjuvegi 7
Safnið er opið alla daga nema mánudaga
kl. 11-17. Sérfræðingur veitir leiðsögn um
sýninguna Aldarspegil á sunnudögum kl.
13.30-14.45. Mynd mánaðarins kynnt alla
fimmtudaga kl. 13.30. Kaffistofa hússins
er opin á sama tíma og safnið.
Myntsafn Seðlabanka og
Þjóðminjasafns,
Einholti 4
Opið á sunnudögum kl. 14-16.
Norræna húslð
Norræn farandsýning á efni úr norræn-
um kortabókum var opnuð laugardaginn
16. apríl kl. 15.00 í anddyri Norræna húss-
ins og verður hún opin daglega kl. 9-19
til 8. maí. Sýnd verða kort og annað efni
úr norrænum ritum.
Nýhöfn,
Hafnarstræti 18
Laugardaginn 9. apríl var opnuð sýning
á verkum Gerðar Helgadóttur mynd-
höggvara. Það er Lista- og menningarráð
Kópavogs sem heldur sýninguna í tilefni
þess að hinn 11. apríl heföi Gerður orðið
60 ára.
Stofnun Árna Magnússonar
Handritasýning Áma Magnússonar er í
Árnagarði við Suðurgötu á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugardögum itl. 14-16.
Sjóminjasafn íslands,
Vesturgötu 8, Hafnarfirði
Opnunartími í vetur er laugardaga og
sunnudaga kl. 14-18. Skólafólk og hópar
geta pantað tíma í síma 52502 alla daga
vikunnar.
Póst- og símaminjasafnið,
Austurgötu 11
Opiö á sunnudögum og þriðjudögum kl.
15-18. Aðgangur ókeypis.
Þjóðminjasafn íslands
Nú stendur yfir sýning á teikningum
skólabarna í Bogasal Þjóðminjasafnsins.
Sýningin stendur fram í maí og er opin
á venjulegum opnunartíma safnsins.
AKUREYRI
Gallerí Glugginn,
Glerárgötu 34
Sýning á sænskri textíllist verður opnuð
í Glugganum nú um helgina. Þar verða
sýnd verk sem unnin voru hjá Handar-
betes Vánner í Stokkhólmi frá árinu 1900.