Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1988, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1988, Side 3
FQSTUDAGUR 6. MAÍ 1988. 3 13v Viðtalið v ....■■■.........—.... / Nafn: Sveinn Andri Sveinsson Aldur: 24 Staóa: Formaður stúdentaráðs HÍ „Bg er félagsmálafrík en fé- lagsmál og stjórnmál eru þau svið sem ég hef mestan áhuga á. En þetta er Jpriðja árið sem ég starfa í Vöku. Aður var ég ritsjóri Vöku- blaðsins en það varð nú til þess að setja námið úr skorðum. Ég ákvað því að fresta prófum í ár fram á næsta ár til þess að geta veriö í formannsstarfmu," segir Sveinn Andri Sveinsson, sem var kosinn formaöur studentaráðs Háskóla íslands fyrir nokkru að undangengnum mánaöarlöngum samningaviðræðum milli Vöku og Röskvu. Hann er á íjóröa ári í lögfræðinámi en auk þess hefur hann starfað sem blaðamaður á Morgunblaðinu. Sveinn Andri er fulltrúi Vöku í Stúdentaráöi og segist hann líta fyrst og fremst á formannsstarfið sem félagstarf þó það sé í raun og veru fullt starf, Þar vill hann leggja ofurkapp á að auka sam- skipti milli deilda Háskólans og reyna að fá staölað einingakerfi fyrir allar deildir. En öll félags- málastörfm eru ckki upp talin. Sveinn Andri var inspector scholae í Menntaskólanum í Reykjavík á sínum tíma, aukþess sem hann hefur setið í stjórn Heimdallar síöan 1986 og í stjóm Sarabands ungra sjálfstæðis- manna síðan í sumar. „Hlusta á nýbylgju“ „Ég hef mjög gaman af tónhst og hlusta ég þá helst á nýbylgju. Um þessar mundir er ég alveg grænn að bíða eftir að komast á tónleikana með Woodentops þeg- ar þeir koma til landsins. Ég er með safnaramaníu þamiig að ef ég fæ dálæti á einhverri grúppu reyni ég að kaupa upp aEar plötm' sem hún hefur gefið út. Annars spilaði ég einu sinni á básúnu í skólahljómsveit þótt þaö hafi ekki verið mikill frægðarferill. Laganemar spila alltaf fótholta tvisvar í viku og hef ég tekið þátt í því til að halda mér í formi. í prófunum hefur þetta dottið rúð- ur svo ég hef spilað aðeins með Mogganum. Svo tek ég af og til i veggjatennis.“ „Pramhaldsnám f Hol- landi“ Sveinn Andri er fæddur i Reykjavík 1963 og uppalinn í Reykjavík og Kópavogi. Foreldr- ar hans eru Sveinn Haukur Valdimarsson hæstaréttarlög- maður og Jóhanna Andrea Lúðvígsdóttir, starfsmaöur hjá Sjálfsbjörg. Sveinn Andri segir aö framtíðaráformin séu aö klára lögfræðina en fara síðan í fram- haldsnám. „Ég stefni á fram- haldsnám í Hollandi í framtíð- inni. Ég var i landinu einn vetur til að læra málið og tók þá inn- tökupróf í ríkisháskólann í Leiden. Þar langar migað stúdera Efnahagsbandalagið og alþjóð- legan samnningarétt." -JBj Fréttir Auglýsingastarfsemi fjáimálaráðuneytisins: Mistók vora gerð sagði fjármálaráðherra Fjármálaráðherra viðurkenndi á Alþingi í gær að mistök hefðu verið gerð í sambandi við auglýsingagerð við kynningu á skattkerfisbreyting- um ríkisstjórnarinnar. Þetta kom fram í svari fjármálaráð- herra við fyrirspurn Steingríms J. Sigfússonar um kostnað íjármála- ráðuneytisins vegna auglýsinga um „eigið ágæti“. Ráðherra sagði að á fjárlögum væru 170.517.000 kr ætlað- ar til verkefnaflokksns „Skattstofur, sameiginleg útgjöld". Undir þeim lið eru 25,2 milljónir ætlaðar til kynn- ingar á staðgreiðslukerfinu. Ráð- herra sagði að ekki lægi fyrir nákvæm skipting á þeirri upphæð sem hér um ræðir en vísaði til svara frá umræddri auglýsingastofu, Kátu maskínunni. Sagðist ráðherra geta tekið undir það að það verði að gera miklar kröfur til texta sem kemur frá ráðuneytum. Sagði hann að mistök hefðu verið gerð varðandi fyrstu auglýsinguna um skattkerfisbreyt- inguna en þær tvær auglýsingar, sem komið hefðu á eftir, hefðu verið í lagi. Þá kom fram í svari ráðherra að 40 milljónir eru ætlaðar til undirbún- ings virðisaukaskattsins og hluti þess fjár verður notaður til auglýs- inga. Fulltrúar stjórnarandstöðunnar voru myrkir í máli yfir þessum aug- lýsingum og sagði t.d. Steingrímur J. Sigfússon að með þessum auglýs- ingum væri ijármálaráðherra að nota almannafé í pólitískum tilgangi til að auglýsa eigið ágæti og stefnu sem mikill pólitískur ágreiningur væri um. Sagði Steingrímur að með þessu væri verið að setja hættulegt fordæmi. Undir það tók Hreggviður Jónsson og sagðist gera kröfu um að fá að njóta sömu kjara og fjármála- ráðherra. Svavar Gestsson sagði að það leyndi sér ekki að þetta fé, sem ætlað væri til að kynna skattkerfis- breytingar, væri notað til að koma áróðri Alþýðuflokksins til skila. Júl- íus Sólnes sagði að með þessu væri verið að halda auglýsingastofu Al- þýðuflokksins volgri fyrir næstu kosningar. -SMJ Olafsfjoröur: Engin umsókn um bæjarstjórastólinn Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Enn hefur engin umsókn borist um stöðu bæjarstjóra á Ólafsfirði sem auglýst hefur verið laus til umsókn- ar, en umsóknarfresturinn rennur út 15. maí. Valtýr Sigurbjarnarson, sem gegnt hefur starfi bæjarstjóra á Ólafsfirði undanfarin ár, lætur af því starfi í sumar og tekur við starfi forstöðu- manns Byggðastofnunar sem stað- sett verður á Akureyri. Valtýr sagði í samtali við DV að htið væri að marka þótt engin umsókn hefði bor- ist um stöðu bæjarstjóra á Ólafsfirði ennþá, reynslan segði mönnum að slíkar umsóknir bærust venjulega ekki fyrr en á síðustu dögum um- sóknarfrests. Glæsileg utanáliggjandi glerlyfta flytur gesti upp i Mánaklúbbinn. „A La Carte“ Úrval Ijújfengra sérrétta Leyjið bragðlaukumnn að njóta sín Aðeins það besta er nógu gott fyrir gesti okkar Láttu nú verða afþví að bjóða konunni í Mánaklúbbinn, perlu íslensks skemmtanalífs Húsið opið föstudaga og laugardaga kl. 18-03 sunnudaga kl. 18-01 / Hljómsveit hússins leikur fyrir dansi Pantið borð tímanlega, símar 29098 og 23335 ______^ _ ____________ | af hverju TARKETT er mest selda parketið hér á landi: HARÐVIÐARVAL Tarkett er með nýrri lakkáferð sem gerir það þrisvar sinnum endingar- betra en væri það með venjulegu lakki. Veitir helmingi betri endingu gegn rispum en venjulegt lakk. Gefur skýrari og fallegri áferð. Tarkett er auðvelt að leggja. Tarkett er gott í öllu viðhaldi. Verðið á Tarketti er hagstætt. Ef þú vilt gott parket veldu þá Tarkett. HARÐVIÐARVAL HF., KRÓKHÁLSI4,110 RVÍK. SÍMI671010.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.