Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1988, Page 16
16
FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1988.
FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1988.
33
Samningur Pétairs við Spurs útninninn:
Mögulegt að
Pétur skipti
um félag
Fóstbræðumir Oswaldo Ardi-
les og Steve Archibald, sem
léku saman í gullaldarliði Tott-
enham Hotspur, spila nú báðir
í annarri deildinni í Englandi.
Eru þeir meðai máttarstólpa í
liöi Blackburn sem berst hat-
rammlega fyrir sæti í fyrstu
deildinni.
Blacbum leggur nú ailt undir
til aö ná takmarki sínu en fjöl-
margir lykilmanna eiga við
meiðsl að striða, á meðal þeirra
eru Archibald og Ardiles. Þeir
tveir leggja þunga á að komast
í form fyrir næsta laugardag en
þá mætir Blackbum liði Mill-
wall sem þegar hefur unnið
aðra deildina. Haíöi Blackburn
betur í þeirri viöureign vinnur
liöiö sér rétt til aö leika sérstak-
lega um sæti í fyrstu deildinni:
„Við verðum einfaldlega að
vinna þennan leik,“ segir Don
Mackay, framkvæmdastjóri
Blacbum. „En viö vitum aö
Milwall gefur ekkert eftir í sín-
um fyrsta heimaleik eflir að
liöið tryggði sér sigur i annarri
deildinni. Leikmenn vilja sjálf-
sagt ekki spilla gleðinni meö því
að liggja á heimavelli,“ segir
Mackey.
Þess má geta aö auk Black-
bum eiga Middlesbrough,
Bradford, Aston Villa og Cryst-
al Palace möguleika á aö fylgja
Millwall upp í fyrstu deildina.
-JÖG
Boston
Celtics
tapaði
Nokkrir leikir fóm fram í úr-
slitum NBA í fyrrinótt. Úrslit
urðu þessi:
Austurriðill
NYKnicks-Celtics 109-100(1-2)
Bucks-Hawks...123-115(1-2)
Bullets-Pistons..... 106-103(2-2)
Vesturriöill
Utah-Portland.113-108(2-1)
-JÖG
Pétur Guðmundsson og félagar hjá
San Antonio Spurs eru komnir í
sumarfrí en þeir eru nú úr leik í
úrslitakeppni NBA-deildarinnar.
Beiö liðið lægri hlut fyrir meistumn-
um, LA Lakers, eins og fram hefur
komið í DV.
„Við náöum mjög góðum leikjum
gegn Lakers en misstum þetta alltaf
niður í síðasta fjórðungnum," sagði
Pétur í spjalli við DV.
„Hvað framhaldið hjá mér varðar
þá er það allt óljóst,“ hélt hann
áfram. „Samningur minn við San
Antonio er útrunninn en ég þarf lík-
lega að bíða fram í júní eftir viðræð-
um við ráðamennina. Þá fyrst lýkur
úrslitakeppninni. Það er möguleiki
að ég fari til annars félags enda er
mér frjálst að ræða við hvaða lið sem
er hér í NBA-deildinni. Raunar geri
ég fastlega ráð fyrir að þau tvö félög,
sem koma ný inn í NBA-deildina,
Miami Heat og Sharlotte, sýni mér
áhuga. Hávaxnir menn þykja verð-
mætir hér um slóðir enda ekki á
hverju strái,“ sagði Pétur í samtalinu
við blaðið. -JÖG
Johan Cruyff skrifaði öðru sinni undir samning við knattspyrnuliðið Barcel-
ona í fyrrakvöld, þá sem þjálfari, en Hollendingurinn var kjölfestan í liðinu
fyrir nokkrum árum. Á myndinni takast þeir í hendur Cruyff og Luis Nunes,
forseti félagsins. Símamynd Reuter
Svo kanh að fara að stórskyttan Jakob Jónsson spili erlendis á næsta tímabili. Hann hefur verið i herbúðum KA-manna í
vetur en átt við meiðsl að stríða lungann úr tímabilinu.
Bjöm Jónsson spilar með Habenhausen á næsta ta'mabili:
Víðir Sgurðsson, DV, Hamborg:
Björn Jónsson, handknattleiksmaður
úr Breiðabliki, hefur ákveðið að leika
með v-þýska liðinu Habenhausen á
næsta tímabili. Eins og sagt var frá í DV
á dögunum fékk Björn tilboð frá liðinu.
Hélt hann utan nú í vikunni til viðræðna
samhliða því að líta á aöstæður hjá félag-
inu.
í samtali við DV í gærkvöldi sagðist
Bjöm mjög ánægður með aðstæðurnar
hjá Habenhausen og kvaðst ætla að
ganga til liðs við félagið á næsta tíma-
bili. Sagði hann liðið í svipuðum styrk-
leikaflokki og frambærileg annarrar
deildar lið hér heima á íslandi.
Það er ljóst að brotthvarf Bjöms er á
margan hátt áfall fyrir Breiðablik en
Björn hefur verið kjölfestan í liðinu síð-
ustu vetur ásamt bróður sínum Aðal-
steini. Þeir bræður munu báðir leika í
V-Þýskalandi á vetri komanda, Bjöm
með Habenhausen, eins og áður sagði,
en Aðalsteinn með Shutterwald, eins og
fram hefur komiö í DV.
Nauðungaruppboð
á eftirtöldum fasteignum fer
fram í dómsal embættisins,
Skógarhiíð 6, 3. hæð,
á neðangreindum tíma:
Keilir RE-37, þingl. eig. Fjarðarskip
hf., mánud. 9. maí ’88 kl. 13.45. Upp-
boðsbeiðandi er Tryggingastofriun
ríkisins.
Skólavörðustígur 6B, íb. 01-01, þingl.
eig. Pétur Tryggvi Hjálmarsson,
mánud. 9. maí ’88 kl. 10.30. Uppboðs-
beiðandi er Ævar Guðmundsson hdl.
Smyrilshólar 6, 2. hæð B, þingl. eig.
Kjartan Guðbjartsson, mánud. 9. maí
’88 kl. 10.45. Uppboðsbeiðandi er Sig-
urður G. Guðjónsson hdl.
Sogavegur 148, 1. hæð, þingl. eig.
Bjami Asmundsson, mánud. 9. maí ’88
kl. 11.00. Uppboðsbeiðandi er Guðjón
Ármann Jónsson hdl.
Stíflusel 14, íb. 01-01, þingl. eig. Jón
Kristfinnsson, mánud. 9. maí ’88 kl.
11.30. Uppboðsbeiðendur eru Sigurður
Sigurjónsson hdl. og Ásgeir Thorodds-
en hcfl.
Tunguvegur 92, þingl. eig. Kathinka
Clausen, mánud. 9. maí ’88 kl. 11.45.
Uppboðsbeiðendur eru Jón Ólafsson
hrl., Þorfinnur Egilsson hdl. og Iðnað-
arbanki íslands hf.
Vatnsstígur 9A, þingl. eig. Jón L.
Hilmarsson og Hafsteinn Hilmarss.,
mánud. 9. maí ’88 kl. 13.30. Uppboðs-
beiðandi er Búnaðarbanki íslands.
Vesturás 39, hluti, talinn eig. Einar
A. Pétursson og Kolbrún Thomas,
mánud. 9. maí ’88 kl. 13.30. Uppboðs-
beiðendur eru Gjaldheimtan í Reykja-
vík og Magnús Norðdahl hdl.
Vesturberg 100, 3. hæð t.h., þingl. eig.
Þórir Þórisson, mánud. 9. maí ’88 kl.
13.45. Uppboðsbeiðendur eru Trygg-
ingastofnun ríkisins og Veðdeild
Landsbanka íslands.
BORGARFÓGETAEMBÆTnD í REYKJAVÍK.
Nauðungaruppboð
annað og síðara
á eftirtöldum fasteignum fer
fram í dómsal embættisins,
Skógarhlíð 6, 3. hæð,
á neðangreindum tíma:
Álakvísl 60, talinn eig. Einar Oddur
Garðarsson, mánud. 9. maí ’88 kl.
15.15. Uppboðsbeiðandi er Gjald-
heimtan í Reykjavík.
Bergstaðastræti 21, þingl. eig. Páll
Gunnólfsson, mánud. 9. maí ’88 kl.
14.30. Uppboðsbeiðendur eru Gjald-
heimtan í Reykjavík og Tollstjórinn
í Reykjavík.
Birkihlíð 12, hl., þingl. eig. Marselíus
Guðmundsson o.fl., mánud. 9. maí ’88
kl. 14.30. Uppboðsbeiðendur eru
Gjaldheimtan í Reykjavík og Veðdeild
Landsbanka íslands.
Fannafold 75, talinn eig. Magnús
Matthíasson, mánud. 9. maí ’88 kl.
14.15. Uppboðsbeiðandi er Bæjarfóg-
etinn í Kópavogi
Hrafnhólar 8, 3. hæð E, þingl. eig.
Siguijón Þorláksson og Svanf. Magn-
úsd., mánud. 9. maí ’88 kl. 14.45.
Uppboðsbeiðandi er Baldur Guð-
iaugsson hrl.
Hveríísgata 82, 1. hæð eldra hús,
þingl. eig. Jón Guðvarðarson, mánud.
9. maí ’88 kl. 11.45. Uppboðsbeiðendur
eru Útvegsbanki íslands hf.
Hverfisgata 82,2. hæð, tahnn eig. Jón
Þ. Waltersson, mánud. 9. maí ’88 kl.
11.45. Uppboðsbeiðandi er Útvegs-
banki íslands hf.
Krummahólar 2, 5. hæð A, þingl. eig.
Anna Jenný Raíhsdóttir og Gylfi In-
gólús., mánud. 9. maí ’88 kl. 14.00.
Úppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan í
Reykjavík.
Langholtsvegur 164, kjallari, þingl.
eig. Sigurborg J. Svavarsd. og Guðm.
Skúlason, mánud. 9. maí ’88 kl. 15.00.
Uppboðsþeiðandi er Sigurður G. Guð-
jónsson hdl.
Leifsgata 10, kjallari, þingl. eig. Bogi
Sigmjónsson, mánud. 9. maí ’88 kl.
15.15. Uppboðsbeiðendur eru Inn-
heimtustofriun sveitarfélaga, Guðjón
Ármann Jónsson hdl., Landsbanki ís-
lands, Verslunarbanki fslands hf. og
Búnaðarbanki íslands.
Maiúubakki 6, 3. hæð t.h., þingl. eig.
Kristinn Sigurðss.og Gunnhildur
Magnúsd., mánud. 9. maí ’88 kl. 14.45.
Uppboðsbeiðendur eni Gjaldheimtan
í Reykjavík, Guðjón Ármann Jónsson
hdl., Róbert Ámi Hreiðarsson hdl. og
Veðdeild Landsbanka íslands.
Njálsgata 62, rishæð, þingl. eig. Tómas
Magnús Tómasson, mánud. 9. maí ’88
kl. 15.15. Uppboðsbeiðendur eru
Gjaldheimtan í Reykjavík, Jón Þór-
oddsson hdl., Veðdeild Landsbanka
íslands, Guðjón Ármann Jónsson hdl.,
Baldur Guðlaugsson hrl. og Ásgeir
Thoroddsen hdl.
Orrahólar 7, 2. hæð C, þingl. eig.
Guðlaug Guðjónsdóttir, mánud. 9. maí
’88 kl. 13.30. Uppboðsbeiðendur eru
Gjaldheimtan í Reykjavík, Búnaðar-
banki íslands, Verslunarbanki íslands
hf., Ólafúr Ragnarsson hrl., Ami Ein-
arsson hdl., Andri Ámason hdl.,
Grétar Haraldsson hrl., Ævar Guð-
mundsson hdl., Útvegsþanki Islands
hf., Hróbjartur Jónatansson hdl. og
Jón Ingólfsson hdl.
Skipholt 33, hluti, þingl. eig. Tónlist-
arfélagið í Reykjavík, mánud. 9. maí
’88 kl. 14.15. Uppboðsbeiðandi er
Verslunarbanki íslands hf.
Unufell 33, íbúð merkt 03-01, þingl.
eig. Guðlaug E. Skagfjörð, mánud. 9.
maí ’88 kl. 11.00. Uppboðsbeiðendur
em Veðdeild Landsbanka íslands og
Gjaldheimtan í Reykjavík.
Vogaland 1, þingl. eig. Bjöm Trausta-
son, mánud. 9. mar’88 kl. 11.15.
Uppboð'sbeiðandi er Ólafur Axelsson
hrl.
Völvufell 46, 4. hæð t.v., þingl. eig.
Guðmundur I. Sumarliðason, mánud.
9. maí ’88 kl. 11.15. Uppboðsbeiðendur
em Veðdeild Landsbanka íslands og
Gjaldheimtan í Reykjavík.
Öldugata 41, rishæð, þingl. eig. Sig-
urður K. Ágústsson, mánud. 9. maí ’88
kl. 10.45. Uppboðsbeiðendur em Veð-
deild Landsbanka íslands, Kristján
Ólafsson hdl. og Búnaðarbanki Is-
lands.
BORGARFÓGETAEMBÆTnD í REYKJAVÍK
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta
á eftirtöldum fasteignum:
Laugavegur 28 B, þingl. eig. Húsfélag-
ið Laugavegi 28B hf. fer fram á
eigninni sjáífri, mánud. 9. maí ’88 kl.
16.00. Uppboðsbeiðandi er Gjald-
heimtan í Reykjavík.
BORGARFÓGETAEMBÆTITÐ í REYKJAVÍk
Bretar
sleppa úr
prísundinni
Sjö breskum knattspyrnuáhangend-
um var sleppt úr prísund í Ungveija-
landi í vikunni en þeir vom hnepptir
í varðhald í kjölfar óeirða þar í síðustu
viku. Slepptu Bretamir fram af sér
beislinu á vertshúsi nokkm og kunnu
heimamenn lítt að meta dólgslætin.
Bretar þessir höfðu fylgt landsliði sínu
til Búdapest en þar skildu Englending-
ar og Ungveijar jafnir f markalausum
leik í síöustu viku.
Aö sögn ungversku fréttastofunnar,
MTI, var fjórum úr hópnum sleppt
vegna skorts á söimunargögnum en
hinum gegn tryggingu. -JÖG
íþróttir
Jakob Jónsson er hættur í KA:
Tvö erlend félagslið
vilja Jakob Jónsson
- annað 1. deildariið í Frakklandi en hitt 2. deildarlið í Sviss
Svo kann að fara að handknatt-
leiksmaðurinn Jakob Jónsson, sem
var í herbúðum norðanliðsins KA í
vetur, spih erlendis á næsta tímabih.
Tvö erlend félög, annað franskt
fyrstu deildarlið en hitt svissneskt
annarrar deildariið, hafa mikinn hug
á að fá Jakob til sín. Hafa forráða-
menn þessara félaga fylgst með
framgöngu Jakobs á myndböndum
og em að sögn heimiidarmanns DV
mjög ánægöir með leikstíi íslend-
ingsins.
I spjalli við blaðið kvaðst Jakob á
margan hátt spenntur fyrir þvi að
reyna fyrir sér erlendis á nýjan leik
en hann spilaði í Noregi um hríð og
varð þar tvöfaldur meistari undir
stjórn Helga Ragnarssonar hjá Sta-
vanger.
Jakob sagöist hins vegar hafa mörg
járn í eldinum og að fleira væri inni
í myndinni en þessi erlendu félög.
Hann kvaöst til aö mynda hafa rætt
við ráðamenn tveggja fyrstu deildar-
Uða hér sunnan heiða.
í samtahnu við DV kvaðst Jakob
ekki ætla að leika áfram með KA en
sagði það ráðast á næstu dögum eða
vikum í hvaða félagi hann hygðist
spila á næsta vetri.
-JÖG
Uislit Reykjavíkurmótsins í knattspymu á sunnudag:
HandknatUeikur:
„Þetta verður mót KR
og án efa leikur KR“
- segir KR-ingurinn „Kiddi í Formprenti“
• Kristinn Jónsson segir það bjarg-
fasta trú sína að KR verði Reykjavík-
urmeistari.
„Það er engin spurning um það að
við KR-ingar ætlum okkur aö vinna
þennan leik og þar með Reykjavíkur-
mótið. Það er enginn vaíi. Það er
kominn tími til að KR vinni mót í
meistaraflokki," sagði Kristinn Jóns-
son, einn mesti KR-ingurinn í
bænum en hann var um tíma for-
maður knattspyrnudeildar KR. Kiddi
í Formprenti, eins og hann er jafnan
kallaður, var ekki í neinum vafa um
úrslitin í leik KR og Fram um
Reykjavíkurmeistaratitilinn á gervi-
grasinu í Laugardal á sunnudags-
kvöld.
„Það kemst ekkert annaö hjá okkur
en að vinna þetta mót og nota þennan
sigur sem stökkpall inn í íslandsmót-
ið,“ sagði Kristinn ennfremur.
- Nú tapaði KR 0-2 fyrir Fram í
Reykjavíkurmótinu. Verður þetta
ekki erfltt hjá þínum mönnum á
sunnudagskvöldið?
„Fyrri leikurinn var engin mæli-
stika. Ég skal hins vegar fúslega
viðurkenna að það sem kom fram í
þeim leik var Framara. En þessi fyrri
leikur liðanna í mótinu gildir ekki á
sunnudag. Þetta verður leikur KR-
inga og þar með mót KR-inga. Þú
færð mig ekki til að segja neitt ann-
að. í KR-liðinu eru mjög góöir strákar
og þjálfarinn er einnig mjög góöur.
Hann hefur sett reglur sem leikmenn
fara eftir enda væri það veikleika-
merki þjálfara ef leikmenn færu ekki
eftir þeim reglum sem hann setti.“
- Þú ert sem sagt ekki í nokkrum
vafa um að KR veröur Reykjavíkur-
meistari á sunnudaginn?
„Nei, alls ekki. KR er elsta og besta
félagið og þaö er bjargfóst trú mín
aö KR veröi Reykjavíkurmeistari í
ár. Það er orðið alltof langt síðan KR
vann mót.“
- Hvenær vann KR síðast titil?
„Ég er ekki tilbúinn að ræða það
mál. Við KR-ingar lifum í framtíö-
inni,“ sagði Kristinn Jónsson.
KR varð síöast Reykjavíkurmeist-
ari áriö 1978 en félagiö hefur unnið
mótið 26 sinnum. -SK
„Fram sigrar 3-1“
- segir Framarinn Hörður „Castro“ Einarsson
„Úrslitaleikurinn á sunnudag
leggst mjög vel í mig eins og raunar
allir aðrir leikir sem Fram spilar.
Viðureignir milli þessara félaga hafa
alltaf verið hörkuleikir og þar verður
engin breyting á að þessu sinni. Ég
hef samt trú á að Fram vinni leikinn
3-1,“ sagöi Höröur Einarsson í sam-
tali við DV, en Hörður er einn af
dyggustu stuðningsmönnum Fram-
liðsins og hefur fylgt liðinu í gegnum
súrt og sætt í mörg ár. Skiptir raunar
engu máli hvemig viðrar, alltaf er
Höröur mættur á völlinn. Hörður
veröur svo auðvitað mættur á gervi-
grasið á sunnudag þegar Fram og
KR leika til úrslita á Reykjavíkur-
mótinu í knattspyrnu.
- Hvenær byrjaöir þú að fylgjast með
Fram-liöinu?
„Ég hef fylgt Fram-liðinu allar göt-
ur frá árinu 1950 og orðið vitni að
ýmsu skemmtilegu. Fyrr á árum var
meiri sjarmi yfir Reykjavíkurmótinu
en ég hef.trú á aö stemmningin yfir
mótinu sé að koma aftur. Ég held að
minnisstæðasti leikurinn á Reykja-
víkurmótinu hafi verið leikur Fram
• Hörður Einarsson spáir Fram 3-1
sigri.
og KR á dögunum. Leikurinn verður
eftirminnilegur fyrir þær sakir að
áhorfendur, og hvað þá dómari og
línuverðir, sáu ekki handaskil fyrir
blindbyl sem stóð yfir nær allan leik-
inn. Það þótti undrum sæta að
dómarinn skyldi ekki flauta leikinn
af.“.
- Hvernig leggst knattspyrnan í sum-
ar í þig?
„Sumarið leggst vel í mig og ég hef
trú á að knattspyrnan verði jafnari
en undanfarin ár. Fram-liðið verður
í toppbaráttu enda hefur liðið á sín-
um snærum öndvegisþjálfara og ekki
má gleyma því að knattspyrnudeild-
inni er mjög vel stjómað og er það
ekki lítið atriði.
„Valur, KR og Víkingur koma
einnig til með aö verða í baráttunni
í sumar. Önnur lið held ég að verði
ekki í baráttunni um titiiinn í sum-
ar,“ sagði Hörður Einarsson að
lokum. -JKS
Eccon
■JJvI 1
með aðva
hönd á
bikamum
Tusem Essen, hð Alfreðs
Gíslasonar í V-Þýskalandi, er
nú með aðra hönd á bikamum
v-þýska eftir frækinn sigur á
Massenheim í fyrrakvöld. Vann
Essen leikinn, sem fór fram í
Massenheim, með 25 mörkum
gegn 18.
Það er ljóst að Alfreð ætlar
aö kveðja félag sitt með mikilli
reisn þvi hann sýndi allar sínar
bestu hliðar í leiknum. - Skor-
aði 6 mörk og var fimasterkur
í vöminni. Hélt Alfreö þar aftur
af finnsku stjömunni Káll-
mann, sem hefur gjaman veriö
atkvæðamesti leikmaður Mass-
enheim í vetur. Gerði Finninn
ekki mark í leiknum.
Liðin mætast aö nýju á
heimavelli Essen en þar ráðast
úralitin í v-þýska bikamum.
-JÖG
Flaggakeppnin
ogopna Sól-mótið
hjá GR og GS
Tvö golfmót eru á dagskrá um
helgina. Hjá GS verður opna
Sól-mótiö haldiö á Hólmsvelli i
Leiru á morgun og verður ræst
út frá kl. 9 um morguninn.
Staráð er í sima 92-14100 og einn-
ig er hægt að skrá sig í golfskál-
anum. Rétt er aö menn bregðist
skjótt viö því búist er við mik-
illi þátttöku. Verðlaun era gefin
afSólh/f.
Fiaggakeppnin
Á raorgun fer hin árlega
Flaggakeppni frara hjá Golf-
klúbbi Reykjavikur og verður
ræst út frá ki. 9 í fyrramáliö.
• Á morgun halda GR-menn
einnig upp á þaö aö fram-
kvæmdum er lokiö við golfskál-
ann en miklar breytingar eru
afstaðnar. I tilefni af því og tfl
aö fagna upphafi golfvertiöar
verður haldinn fagnaöur í golf-
skálanum kl. 19.30. Hægt er að
panta miða hjá framkvæmda-
sljóra í sima 84735. Síðast var
uppselt og þvi rétt að vera í
fyrra lagi að þessu sinni.