Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1988, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1988, Blaðsíða 1
 TVö hundruð fákar skráðir á hvítasunnukappreiðar Mikil skráning hefur veriö undan- farna daga fyrir hvítasunnukapp- reiðar Fáks sem haldnar veröa nú um hvítasunnuhelgina. Mótiö hófst reyndar í gærkvöldi klukkan 18.00 meö dómum á fimmtíu og tveimur B-flokks hestum. í kvöld klukkan 18.00 veröa fjörutíu og þrír A-flokks hestar dæmdir á Asavelli Hvítasunnukappreiöar Fáks eru yfirleitt mjög spennandi. DV-mynd E.J. Á laugardaginn klukkan 9.00 veröa dæmdir hestar tuttugu og fimm unglinga á Asavelli og klukk- an 11.00 verða dæmdir fimmtán hestar barna á sama velli. Jafn- framt hefst töltkeppni Fáksmanna klukkan 9.30 á Hvammsvelli. Þegar keppni í barna- og unglingaflokki er lokið um 13.00 veröa úrslit í báð- um flokkum. Klukkan 15.30 hefjast kappreiðar. Þar munu fara fram fyrri sprettir í 150 metra skeiði, 250 metra skeiði og 300 metra brokki. Fjörutíu og einn vekringur hefur verið skráður í skeiðgreinarnar en tólf hestar í 300 metra brokk. Keppni í 800 metra brokki og 800 metra stökki fellur niður vegna ónógrar þátttöku. Lokadagurinn er sem fyrr mánu- dagur en þá hefst mótið klukkan 13.00 með mótssetningu og strax að henni lokinni hefst úrslita- keppni fimm hesta og knapa í tölt- keppninni. Þvínæst fara fram úr- slit fimm gæðinga í A- og B-flokki. Þegar fegurstu gæðingarnir hafa verið valdir fer fram verðlaunaaf- hending, einnig hjá börnum og unglingum sem luku keppni á laug- ardeginum. Mótinu lýkur með úr- slitum í kappreiðunum sem hefjast klukkan 15.30. E.J. Hótel Valhöll - sjá bls. 18 Menning- arhátíð á Sauðár- króki - sjá bls. 19 Hvíta- sunnu- djass í Heita pottinum - sjá bls. 19 Passíukór- innmeð tónleika - sjá bls. 29 Böm hafa hundrað mál - sjá bls. 29 Úr leimum í málun og teikningu - sjá bls. 20 Aldaleikar og varðeldur - vormót Hraunbúa í Krísuvík Fertugasta og áttunda vormót skátafélagsins Hraunbúa í Hafnar- firði fer fram nú um Helgina í Krísuvík. Þegar hafa nokkur hundruð manns skráð sig á mótið. Mótsgjald er 1.000 krónur. Að sögn Péturs Más Sigurðssonar, dag- skrárstjóra mótsins, hefur verið töluvert um að eldri skátar hafi mætt á mótið. Hafa fjölskyldubúðir stundum náð sömu stærð og á landsmóti. Víkingaöid og geimöld Dagskrá mótsins er mjög fjöl- breytt. Ýmsir leikir eru á dagskrá, kynningarleikur, næturleikur og aldaleika rnir. Þeir síðastnefndu fara fram eftir hádegi á laugardag og sunnudag. Leikunum er skipt í fjórar aldir sem bera nöfnin forn- öld, víkingaöld, tækniöld og geim- öld. Eftir orðum dagskrárstjóra að dæma er hér um stórkostleika leika að ræða með alveg ótrúlegum nýj- ungum og munu skosku Hálanda- leikarnir vera smámunir í saman- burði við aldaleikana. Heitt kakó og kex Sunnudagurinn er heimsókna- dagur. Þá gefst almenningi tæki- færi til að heimsækja mótið endur- gjaldslaust. Fólk getur spókað sig og séð hvað um er að vera og tekið þátt í hinum ýmsu leikjum. Hundr- ekki hliðhollir útvistarfólki. Þar ur og eftir það fá allir heitt kakó aðogtuttugufermetratjaldiverð'ur verður einnig á boðstólum heitt og kex fyrir svefninn eða heim- komiðuppþarsemfólkgeturborð- kakó til að ylja kroppinn. Um ferðina. að nesti sitt ef veðurguðirnir verða kvöldið verður varðeldur og söng- -gh Fjölbreyttir leikir og þrautir einkenna góö skátamót.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.