Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1988, Qupperneq 6
30
FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 1988.
Jim Graham (Christian Bale) lærir að bjarga sér sjálfur frá hinum lífs-
reynda sjómanni, Basie (John Malkovich).
Kvikmyndir - Kvikmyndir - Kvikmyndir - Kvikmyndir -
sekur um eiturlyíjasölu. Morgun
einn þegar hann vaknar er lík í
kjallara hans og hann getur ekki á
nokkum hátt útskýrt hvemig á því
stendur. Og ekki nóg meö þaö, það
er annað lík í bílnum hans. Og
fleira óhuggulegt kemur í ljós.
Madden fer á stúfana til aö reyna
að fá botn í máhð en lögreglufor-
ingja einum, sem hafði haldið við
konu hans, er mikið í mun að sanna
morðin á hann.
em teknir til fanga og settir í fanga-
búðir.
Þar kemst hann aö raun um hvað
það er að hafa fyrir lífinu. Fyrir
utan sjómennina tvo kynnist hann
frú Victor sem er vinkona foreldra
hans. Annar sjómannanna, Basie,
verður nokkurs konar foringi í
fangabúðunum og nýtur Jim góðs
af því og kennslu fær hann h)á
lækninum Rawlins.
Þegar stríðinu lýkur og Jim verð-
ur frjáls er hann miklu nær full-
orðnum manni en sá drengur sem
hann var þegar hann var hnepptur
í varðhald og hann er fullfær um
að takast á við lífið.
Veldi sólarinnar hefur hvarvetna
fengið mikið lof gagnrýnenda sem
almennra áhorfenda þótt myndin
sé langt frá því að vera best sótta
mynd Spielberg. Urðu margir
hneykslaðir þegar algjörlega var
gengið framhjá henni við óskars-
tílnefningar í vor.
Hið erfiða hlutverk Jim Graham
leikur Christian Bale og var hann
valinn úr hópi fjögur þúsund
drengja sem sóttu um hlutverkið.
Aðrir þekktir leikarar em John
Malcovich, Nigel Havers og Mir-
anda Richardson. HK
Norman Mailer er einhver allra
þekktasti rithöfundur Bandaríkj-
anna og nýtur virðingar sem slík-
ur. Síðasta skáldsaga eftir hann
kom út 1984 og nefnist hún Tough
Guys Don’t Dance. Nú er þessi saga
komin í kvikmyndaformið og er
leikstjóri enginn annar en Norman
Mailer sem að sjálfsögðu skrifar
einnig handritið.
í fyrstu mætti halda að þetta
væri frumraun hans sem leikstjóri
en svo er nú ekki. Hann leikstýrði
þremur kvikmyndum í byijun sjö-
unda áratugarins. Myndimar
þrjár, Wild 90, Beyond The Law og
Maidstone, em flestum gleymdar
enda segir hann sjálfur að mynd-
Eiginkonu Maddens leikur nýliðinn Debra Sandlund og hefur hún fengið mikið hrós fyrir leik sinn.
Aðalhlutverkin leika Ryan O’Ne-
al er leikur rithöfundinn Madden.
Isabella Rossellini leikur Madelain
er minnir Madden á fortíð hans.
Debra Sandlund leikur hina ótrúu
eiginkonu hans og Wings Hauser
leikur lögreglustjórann.
HK
Isabella Rossellini leikur hina dul-
arfullu Madelain.
Bíóborgin
Yeldi sólarinnar
Veldi sólarinnar er nýjasta kvik-
mynd Steven Spielbergs og
kannski sú sem hvað mest er varið
í. Hefur honum tekist að skapa eft-
irminnilega kvikmynd um ellefu
ára gamlan dreng sem á stríðsár-
unum kynnist fangabúðalífi.
Myndin er gerð eftir skáldsögu
J.G. Ballard sem svo byggir söguna
á eigin bamæsku. Handritshöfund-
ur er eitt þekktasta leikritaskáld
Breta, Tom Stoppard.
Veldi sólarinnar gerist í Kína og
fór mestöll útimyndataka þar fram.
Sögusviðið er Shanghai 1941. Hinn
ellefu ára gamh Jim Graham, sem
hefur lifað þægilegu lífi ásamt for-
eldrum sínum, er snögglega skilinn
frá þeim þegar Japanir gera innrás
í Kína. Honum er bjargað af tveim-
ur bandarískum sjómönnum og
þvælist með þeim þangað til þeir
imar hafi aðeins höíðað til smá-
hóps fólks sem var sama hvort
myndimar væm vel eða illa unn-
ar, aðeins aö þær væm öðmvísi.
Dauðadans er af allt öðrum toga
spunnin. Þetta er flókin sakamála-
mynd sem fjallar um rithöfundinn
Tim Madden sem er nýsloppinn úr
fangelsi eftir að hafa verið fundinn
Tim Madden (Ryan O’Neal) er hundeltur af lögreglu sem og glæpamonn-
um.
Hinn ungi Jim Graham horfir hér hugfanginn á bandarískar herflugvélar
yfir fangabúðunum. Hann veit að frelsið er í nánd.
Stjömubíó
Dauðadans
Sýningar
Gallerí Nes
Nýjabæ v/Eiðistorg
Opnaður hefur verið nýr sýningarsalur,
Gallerí Nes, í verslunarhúsnæði Nýja-
bæjar við Eiðistorg, III. hæð. Opið er
virka daga kl. 16-19 og laugardaga og
sunnudaga kl. 13-16.
Gallerí Svart á hvítu
í Gallerí Svart á hvítu stendur yfir sýning
á verkum Karls Kvaran. Á sýningunni
eru verk sem öll eru unnin meö blýanti
á pappír á árunum 1969-75. Karl hefur
ekki áður sýnt verk unnin með þessari
tækni en hann er löngu þekktur fyrir
olíu- og gvassmyndir sínar. Sýningin
stendur til 22. mai og er opin aúa daga
nema mánudaga kl. 14-18.
Kjarvalsstaðir
yið Miklatún
í vestursal stendur yfir sýning sem ber
heitið Böm hafa 100 mál og kemur frá
borginni Regio Emilia á Ítalíu. Em þar
kynntar nýjar hugmyndir um list, menn-
ingu og kennslu ungra bama. í vesturfor-
sal gefur að líta verk eftir böm frá bama-
heimilinu Marbakka. í austursal er sýn-
ing á vatnslitamyndum hins heimsfræga
listamanns Gunthers Ueckers. Myndim-
ar málaði hann af Vatnajökli í Islands-
ferð sinni 1985. í austurforsal er sýrúng
í tengslum við Norrænt tækniár. Sýnd
em verk bama úr samkeppni er tengist
norræna tækniárinu ásamt ritgerðum úr
samkeppni grunnskólabama. Kjarvals-
staðir em opnir daglega frá kl. 14-22.
Sýningamar standa yfir til 29. maí.
Listasafn Einars Jónssonar
við Njarðargötu
er opið alla laugardaga og sunnudaga kl.
13.30- 16. Höggmyndagarðurinn er opinn
daglega frá kl. 11-17.
Listasafn Háskóla íslands
í Odda, nýja hugvisindahúsinu, er opið
daglega kl. 13.30-17. Þar em til sýnis 90
verk í eigu safnsins, aðallega eftir yngri
listamenn þjóðarinnar. Aðgangur að
safhinu er ókeypis.
Listasafn íslands
Fríkirkjuvegi 7
Safnið er opið alla daga nema mánudaga
kl. 11-17. Sérfræðingur veitir leiðsögn um
sýninguna Aldarspegil á sunnudögum kl.
13.30- 14.45. Mynd mánaðarins er kynnt
alla fimmtudaga kl. 13.30. Kaffistofa húss-
ins er opin á sama tima og safnið.
Myntsafn Seðlabanka og
Þjóðminjasafns
Einholti 4
Opið á sunnudögum kl. 14-16.
Norræna húsið
Finnski listmálarinn Axeli Gallen-Kall-
ela sýxúr myndskreytingar sem hann
gerði við kvæðabálkinn Kalevala. Á sýn-
ingunni em einnig ljósmyndir sem tekn-
ar vom í þorpum karelskra kvæða-
manna. Sýningin er opin daglega kl. 14-19
og stendur hún til 22. maí.
Nýhöfn,
Hafnarstræti 18
Haukur Dór opnar sýningu á morgun kl.
14. Á sýningunni verða teikningar og
málverk unnin á pappír og striga á sl.
tveimur árum. Sýningin, sem er sölusýn-
ing, er opin virka daga frá kl. 10-18 og
um hvítasunnu og helgar frá kl. 14-18.
Hún stendur til 1. júní.
Nýlistasafnið
Robin Van Harreveld sýnir ljósmyndir í
Nýlistasafhinu. Sýningin er opin virka
daga kl. 16-20 og kl. 14-20 um helgar.
Sýningin stendur til 29. maí.
Stofnun Árna Magnússonar
Handritasýning Áma Magnússonar er í
Ámagarði við Suðurgötu á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugardögum kl. 14-16.
Sjóminjasafn íslands
Vesturgötu 8, Hafnarfirði
Opnunartími í vetur er laugardaga og
sunnudaga kl. 14-18. Skólafólk og hópar
geta pantað tima í síma 52502 alla daga
vikunnar.
Póst- og símaminjasafnið,
Austurgötu 11
Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl.
15-18. Aðgangur ókeypis.
Þjóðminjasafn íslands
Nú stendur yfir sýning á teikningum
skólabama í Bogasal Þjóðminjasafnsins.
Málverkasýning í anddyri
Landspítalans
Fánýtar stílæftngar misskilinnar lista-
konu heitir málverkasýning sem Harpa
Karlsdóttir heldur í anddyri Landspítal-
ans (1. hæð, gengið inn frá Kringlu) og
stendur hún fram yfir mánaðamót. Þetta
er fyrsta einkasýning Hörpu.
Sýning í safnaðarheimiii
Hveragerðis
í safnaðarheimilinu í Hveragerði verður
opnuð sýning á vatnslitamyndum eftir
Nikulás Sigfússon laugardaginn 21. maí
kl. 14. Á sýningunni, sem verður opin
dagana 21., 22. og 23. maí kl. 14-22, em
um 30 myndir sem málaðar em á þessu
og sl. ári.
Sýning í Gimli á Stokkseyri
Laugardaginn 21. maí opnar Elfar Guðni
sýningu í Gimli á Stokkseyri. Þetta er
þriðja sýning Elfars í þessu aldna sam-
komuhúsi þeirra Stokkseyringa. Mynd-
imar em víðs vegar af landinu. Megin-
efni myndanna em hestar. Allar mynd-
frnar em málaðar með olíu á striga. Þetta
er 16. einkasýning Elfars. Hún verður
opin um helgar kl. 14-22 og virka daga
kl. 20-22. Henni lýkur 5. júní.
Myndlistarsýning í Hótel Höfn
Sigurður Sólmundsson heldur 8. mynd-
listarsýningu sína í Hótel Höfn, Homa-
ffrði, dagana 20.-23. maí nk. Sigurður
sýnir að þessu sinni 35 myndir sem allar
em unnar á sl. ári og því sem af er þessu.
Sýningin er opin alla daga kl. 14-22 nema
fóstudaga kl. 20-22. Myndimar em að
venju unnar úr íslenskum jarðefiium.