Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1988, Qupperneq 7
FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 1988.
31
Hart barist í
knattspyrnunni
- 2. nmferöin í 1. deild á fullu um helgina
Fiórir leikir eru á dagskrá um helg-
ina í 1. deild íslandmótsins í knatt-
spymu og lýkur þar meö 2. umferð
mótsins. Þá eru á dagskrá leikir í
lægri deildunum en keppni hefst
um helgina í 3. deild en tveir leikir
hafa farið fram í 4. deild.
1. deild
í kvöld, fóstudag, leika Leiftur og
Valur á malarvelhnum á Ólafsfirði
en leikurinn átti að fara fram á
Valsvellinum. Verður fróðlegt að
sjá hvemig nýliðarnir spjara sig í
öðrum leik sínum en Leiftur náði
sem kunnugt er jafntefli gegn ÍA í
fyrstu umferðinni.
• Á morgun, laugardag, eru þrír
leikir á dagskrá. Völsungur og
Akranes leika á HúsavíkurveUi
klukkan 14.00, Víkingur og KA frá
Akureyri leika á gervigrasinu í
Laugardal klukkan 15.00 og Þór og
Fram leika á Akureyri klukkan
14.00.
2. deild
Þrír leikir fara fram í 2. deild karla
á laugardag. KS og Tindastóll leika
á Siglufirði klukkan 14.00. Víðir fær
Fylki í heimsókn og hefst leikurinn
klukkan 14.00 og loks leika ÍBV og
Þróttur, Reykjavík, í Eyjum og
hefst sá leikur einnig klukkan
14.00.
3. deild
Fyrsti leikurinn í 3. deild íslands-
mótsins fer fram í kvöld en þá leika
Reynir, Sandgerði, og Stjarnan á
heimavelli Reynis klukkan 20.00. Á
laugardag leika Grótta og Njarðvík,
ÍK og Afturelding og Grindavík og
Leiknir, Reykjavík. Allir leikimir
heíjast klukkan 14.00.
4. deild
í 4. deild karla eru fimm leikir á
dagskrá. Einn þeirra er í kvöld en
þá leika Léttir og Hvatberar á
gervigrasvellinum í Laugardal
klukkan 20.00. Á laugardag leika
síðan Emir og Haukar á Selfossi
klukkan 14.00, Augnablik og Snæ-
fell á Kópavogsvelli klukkan 17.00,
Skallagrímur og Hveragerði í Borg-
amesi klukkan 14.00 og Fyrirtak
og Víkingur frá Ólafsvík klukkan
18.00 á gervigrasinu í Laugardal.
Boltakast
í dag, föstudag, munu 2. árs nemar
íþróttakennaraskóla íslands kasta
á milli sín handbolta frá Laugar-
vatni til Reykjavíkur. Tilgangur
hlaupsins er að safna áheitum til
styrktar útskriftarnemum íþrótta-
kennaraskólans og ólympíuforum
HSÍ. Áætlaður komutími til
Reykjavíkur, nánar tiltekið að
Bylgjuportinu við Snorrabraut, er
á miili klukan tvö og þijú.
Norðurlandamót
heyrnarlausra í
handbolta
Noröurlandamót heyrnarlausra í
handbolta fer fram um helgina og
fara allir leikimir fram í Selja-
skóla. Mótið verður sett kl. 19.10 í
kvöld og síöan em tveir leikir á
dagskrá, Ísland-Noregur og Sví-
þjóð-Danmörk. Á laugardag léika
Noregur og Danmörk klukkan
14.00 og ísland mætir Svíþjóð
klukkan 15.45. Á sunnudag leika
síðan Noregur og Sviþjóð klukkan
14.00 og ísland og Danmörk klukk-
an 15.45. Norðmenn em núverandi
Norðurlandameistarar.
FKIBRSÆIUSTÖHf EHUUHS
STELPUR - STRÁKAR
Viltu starfa erlendis við fyrirsætustörf og ert á aldrin-
um 17-22 ára? Ef svo er þá sendu okkur myndir
ásamt ýmsum upplýsingum sem fyrst. Við erum með
umboð fyrir nokkur heimsþekkt fyrirsætufyrirtæki í
þremur Evrópulöndum. Tilboð sendist DV, merkt
„Fyrirsætustörf erlendis", fyrir 5. júní.
Icelandic Models
Idýrir
hvítir herraskór
Aðeins kr. 1.495,
Dömuskór, stök númer, kr. 495,
Barnastigvél, str. 27-30
aðeins kr. 350,-
skómarkaðurinn
Hverfisgötu 89 - simi 18199
FRÁ MENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU:
Umsóknarfrestur um áður auglýstar kennar-
stöður við eftirtalda framhaldsskóla fram-
lengist til 31. maí næstkomandi:
Við Menntaskólann í Kópavogi er laus til umsóknar
kennarastaða í viðskiptagreinum.
Við Menntaskólann að Laugarvatni vantar kennara í
stærðfræði/tölvufræði, eðlisfræði, stjörnufræði,
frönsku, Vi stöðu, og dönsku, Vi stöðu.
Við Framhaldsskólann í A-Skaftafellssýslu eru lausar
til umsóknar kennarastöður í: ensku, stærðfræði og
viðskiptagreinum ásamt tölvufræði. Hlutastöður í
dönsku, þýsku, líffræði, eðlisfræði og efnafræði.
Æskilegt er að umsækjendur geti kennt meira en
eina grein.
Við Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Keflavík, vantar
kennara í eftirtöldum greinum: ensku, íslensku, list-
greinum, rafmagnsgreinum, sögu, sérgreinum hár-
iðna, stærðfræði, tölvufræði og vélstjórnargreinum.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf, sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu
6, 150 Reykjavík, fyrir 31. maí nk.
Menntamálaráðuneytið
„Mér er ekkert metnaðarmál að kom-
ast upp metorðastigann hér innan lög-
reglunnar,“ segir Ómar Smári Ár-
mannsson, aðalvarðstjóri hjá lögregl-
unni í Reykjavík, í helgarviðtalinu á
morgun. Ómar Smári, sem er rúmlega
þrítugur, hefur látið að sér kveða í fjöl-
miðlum þar sem hann hefur komið
hugðarefnum sínum á framfæri. Er það
vissuiega ólikt því sem eldri lögreglu-
menn hafa gert. Ómar Smári var send-
uraf fyrrverandi lögreglustjóra á þrett-
án vikna námskeið hjá FBI í Bandaríkj-
unum og þar lærði hann ýmislegt sem
hann segir að eigi eftir að koma sér
að góðum notum í hvaða starfi sem
er. Hressilegt viðtal vlð Ómar Smára
um skólann, umferðina og síðast en
ekki síst hvítasunnuna sem við gerum
einnig góð skil í helgarblaðinu á morg-
un.
Sigrún Þorsteinsdóttir er
46 ára húsmóðir úr Vest-
mannaeyjum sem ætlar
að bjóða sig fram til for-
seta. Sigrún vill að forseti
verði pólitískur og geti
notfært sér vald sitt til að
neita að skrifa undir lög
frá Alþingi. Hún segist
hafa unnið i frystihúsi, á
saumastofu og í þeim
störfum þar sem lægst eru
launin. Láglaunastefnu
telur hún mannréttinda-
brot sem hún muni berjast
gegn verði hún kosinn for-
seti íslands. Nánarum
Sigrúnu í helgarblaðinu á
morgun.
rvi/Q
Sykurmolarnir,
„óskabörn þjóðar-
innar“, spiluðu i
gærkvöldi í Astor-
ia í London en
með þeim hefst
tónleikaferðalag
sem á eftir að
standa í ailt sum-
ar. í næsta mánuði
mun hljómsveitin
spila í Bandaríkj-
unum. Þorsteinn
Högni, tónlistar-
spekúlant DV, fylgdi Sykurmolunum eftir og segir okkur allt um
hvernig hljómleikarnir fóru fram, um fjöldann, sem þar var saman
kominn, hljómgæðin og stemninguna. Auk þess ræddi hann við
blaðamenn þeirra bresku blaða sem hvað mest hafa hampað hljóm-
sveitinni.